Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það hefði nú mátt vera spurningarmerki á skiltinu hr. fjármálaráðherra.
VEÐUR
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
'-
./
''
''
'0
'0
'1
'2
'.
'3
-'
4 5!
5!
5!
)*5!
5!
)*5!
4 5!
5!
5!
)*5!
)*5!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
/
/
.0
.0
'2
'2
''
'.
'0
'2
1
4 5!
4 5!
4 5!
4 5!
5!
*%
4 5!
5!
4 5!
*%
4 5!
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
..
..
.0
.0
..
.
1
0
.-
.1
.6
7 %
5!
5!
5!
5!
5!
5!
4 5!
5!
)
%
9! :
;
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
89
=
-
5 2
7
*
:
;
7 %
:!
* ;%
-:(8
7 ;
(:.-
*< !
6 .-
;
!! =
(:.-8
( .3 ;)5!
>? *5
*<
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A" -0( 2;(
.2/
--1
33/
.2'/
1'2
/-'
..0.
.1..
.02.
.6.-
.(23
'-'2
63-
633
6-(
6''
./3.
./3(
./0.
./'.
'20-
''33
';1
.;3
.;.
.;1
.;6
.;2
2;(
.;2
-;2
.;(
.;'
.;0
.;6
2;/
Ekki þarf að tala við marga Húsvík-inga til þess að komast að raun
um að þeir vilja álver. Eina áhyggju-
efni þeirra virðist vera að það sé of
langt í að álverið rísi.
Ein af ástæðunum fyrir því að Hús-víkingar vilja álver er sú að þeir
vilja ekki að eignir þeirra verði að
engu. Gera sér frekar vonir um að
þær aukist að
verðmæti fremur
en hitt.
Húsvíkingar sjánánast við
bæjardyrnar hjá
sér hvað getur
gerzt ef sveit-
arfélög veslast
upp.
Nú er hægt að kaupa 200 fm hús áRaufarhöfn fyrir 3 milljónir
króna. Þar er hægt að kaupa ágætt
hús fyrir eina milljón króna.
Húsvíkingar eru vafalaust tilbúnirað hlusta á aðrar hugmyndir um
atvinnuuppbyggingu en álver en það
verða þá að vera raunhæfar hug-
myndir.
Þeir verða ekki sakaðir um að geraekkert til að bjarga sér sjálfir.
Þegar samdráttur í sjávarútvegi fór
að koma illa við Húsavík tóku dugn-
aðarmenn sig til og byggðu upp nán-
ast ótrúlega myndarlega atvinnu-
starfsemi í kringum hvalaskoðun.
Það er ekki sjávarútvegur eðaverzlun og þjónusta við landbún-
aðarhéruðin sem setja svip sinn á
Húsavík nú heldur hvalaskoðun.
Þá koma aðrir og vilja drepa hvala-skoðun með því að byrja að
drepa hvali á ný.
Það verður erfitt fyrir stjórn-málamennina að útskýra fyrir
Húsvíkingum að þeir eigi að láta ál-
ver lönd og leið taki þeir ákvarðanir
sem leiða til þess að ný atvinnugrein
verði drepin í fæðingu.
STAKSTEINAR
Húsavíkurhöfn.
Þeir vilja álver
SIGMUND
MANNANAFNANEFND hefur
samþykkt beiðni um karlmannsnafn-
ið Náttmörður sem eiginnafn. Nafnið
skal þó ekki fært á mannanafnaskrá
fyrr en beiðni um skráningu þess hef-
ur borist Þjóðskrá. Nefndin hefur
einnig samþykkt beiðni um karl-
mannsnafnið Julian sem eiginnafn og
skal nafnið fært á mannanafnaskrá
sem ritmynd af eiginnafninu Júlían.
Þá samþykkti nefndin beiðni um
karlmannsnafnið Sókrates sem eig-
innafn og verður það fært á manna-
nafnaskrá ásamt eignarfallsmynd
þess, Sókratesar. Jafnframt sam-
þykkti nefndin beiðni um kven-
mannsnafnið Þeba sem eiginnafn,
millinafnið Elvan og karlmannsnafn-
ið Svani sem eiginnafn og verða þau
færð á mannanafnaskrá. Nefndin
samþykkti auk þess beiðni um karl-
mannsnafnið Æsir sem eiginnafn og
skal það fært á mannanafnaskrá
ásamt eignarfallsmynd þess, Æsis.
Xavier, Kalina, Cesar,
Minnie og Mario hafnað
Nefndin hafnaði aftur á móti beiðni
um kvenmannsnafnið Christa sem
eiginnafn. Segir í úrskurði nefndar-
innar m.a. að eiginnafnið Christa geti
ekki talist í samræmi við almennar
ritreglur íslensks máls þar sem sam-
stafan „ch“ sé ekki notuð í íslensku
máli, auk þess sem nafnið hafi ekki
unnið sér hefð í íslensku máli. Enn
fremur hafnaði nefndin beiðni um
karlmannsnafnið Xavier sem eigin-
nafn, m.a. á þeirri forsendu að nafnið
geti ekki talist í samræmi við almenn-
ar ritreglur íslensks máls þar sem
stafurinn „x“ sé ekki hafður í upphafi
orðs í íslensku máli, auk þess sem
ekki sé komin hefð á þennan rithátt.
Þá hafnaði nefndin beiðni um
kvenmannsnafnið Kalina sem eigin-
nafn. Í úrskurði nefndarinnar kemur
m.a. fram að eiginnafnið Kalina geti
ekki talist ritað í samræmi við al-
mennar ritreglur íslensks máls, mið-
að við að eðlilegur íslenskur fram-
burður nafnsins sé Kalína, og að ekki
sé komin hefð á ritun nafnsins Kal-
ina.
Nefndin hafnaði einnig beiðni um
kvenmannsnafnið Minnie sem eigin-
nafn. Segir í úrskurði að Minnie geti
ekki talist ritað í samræmi við al-
mennar ritreglur íslensks máls, mið-
að við að eðlilegur íslenskur fram-
burður nafnsins sé Minní. Jafnframt
er bent á að ekki sé komin hefð fyrir
þessum rithætti.
Beiðni um karlmannsnöfnin Mario
og Marío sem eiginnöfn var einnig
hafnað af nefndinni. Í úrskurði er
tekið fram að nöfnin geti ekki talist
rituð í samræmi við almennar rit-
reglur íslensks mál, miðað við að eðli-
legur íslenskur framburður nafnsins
sé Maríó. Tekið er fram að íslensk
karlmannsnöfn endi yfirleitt ekki á
-o.
Einnig var beiðni um karlmanns-
nafnið Cesar sem eiginnafn hafnað, á
þeirri forsendu að nafnið gæti ekki
talist ritað í samræmi við almennar
ritreglur íslensks máls þar sem bók-
stafurinn „c“ væri ekki í íslenska staf-
rófinu, samanber nýútkomna Staf-
setningarorðabók.
Náttmörður
heimilað
Mannanafnanefnd samþykkir karl-
mannsnafnið Julian sem eiginnafn
Í HNOTSKURN
»Beiðni um karlmannsnafniðCesar sem eiginnafn var
hafnað af mannanafnanefnd.
»Beiðni var samþykkt umkvenmannsnafnið Þeba sem
eiginnafn.
»Karlmannsnöfnunum Marioog Marío sem eiginnöfnum
var hafnað.
»Nefndin samþykkti beiðni umkarlmannsnafnið Sókrates
sem eiginnafn.
GUNNAR Svav-
arsson, forseti
bæjarstjórnar í
Hafnarfirði og
formaður fram-
kvæmdastjórnar
Samfylkingarinn-
ar, hefur ákveðið
að bjóða sig fram
í 1. sæti í Suðvest-
urkjördæmi, að
því er segir í
fréttatilkynningu. Þar segir Gunnar:
„Um nokkurn tíma hefur verið
leitað til mín um að gefa kost á mér
til að leiða framboðslista Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Ég
hef ákveðið að taka þeirri áskorun og
að miðla þeirri reynslu sem ég bý yf-
ir, m.a. vegna starfa minna innan
Samfylkingarinnar og jafnaðar-
mannahreyfingarinnar sl. áratugi.“
Segir hann að fyrir liggi að tveir
góðir leiðtogar jafnaðarmanna í
kjördæminu hafi ákveðið að snúa til
annarra starfa, þau Guðmundur
Árni Stefánsson og Rannveig Guð-
mundsdóttir. „Það ábyrgðarhlut-
verk sem þau hafa gegnt sækist ég
eftir að fylla,“ segir í yfirlýsingu
Gunnars. Þar segir ennfremur að
reynsla Gunnars sem sveitarstjórn-
armaður og formaður framkvæmda-
stjórnar Samfylkingarinnar muni
nýtast vegna framboðsins.
Gunnar
stefnir á
1. sæti
Gunnar
Svavarsson
STJÓRNARNEFND Landspítala –
háskólasjúkrahúss sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem hún segist
undrast ályktanir Læknafélags Ís-
lands sem samþykktar voru á aðal-
fundi þess nýlega um starfsemi
sjúkrahússins og framtíðaruppbygg-
ingu.
„Stóryrðum félagsins um stjórn-
endur LSH er vísað á bug og lýst
fullum stuðningi við þá í vandasöm-
um verkefnum. Einnig vekur furðu
að Læknafélag Íslands gangi gegn
ítrekuðum samþykktum læknaráðs,
hjúkrunarráðs og starfsmannaráðs
LSH um nauðsyn þess að reisa nýtt
háskólasjúkrahús,“ segir m.a. í
ályktun stjórnarnefndarinnar.
Eru starfsmenn og stjórnendur
LSH hvattir til að standa áfram sam-
an um uppbyggingu háskólasjúkra-
hússins.
Undrast ályktanir
Læknafélags Íslands