Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÞETTA er merkileg sýning sakir
þess að þetta er í fyrsta sinn sem við
drögum vagninn, erum agn sem not-
að er til að trekkja aðra sýnendur að
og einnig gesti. Venjulega erum við í
hinu hlutverkinu, þurfum jafnvel að
hafa fyrir því að fá að vera með á sýn-
ingum,“ sagði Svanhvít Aðalsteins-
dóttir verkefnisstjóri hjá Útflutnings-
ráði Íslands við Morgunblaðið um
alþjóðlegu sýninguna sem opnuð var í
Caen í Normandí í Frakklandi í gær.
Ísland er í heiðurssæti á sýning-
unni, Foire Internationale de Caen,
sem stendur í 10 daga en henni lýkur
25. september. Sautján íslensk fyrir-
tæki taka þátt og hafa aðsetur í sér-
stöku Íslandsþorpi sem er í hjarta
sýningarsvæðisins.
Sýningin er alhliða heimilissýning
með menningarlegu ívafi sem nýtur
mikilla vinsælda og dregur til sín
gesti frá gjörvöllu Frakklandi. Hún
er fimmta stærsta sýning sem haldin
er ár hvert í Frakklandi. Að þessu
sinni eru sýnendur um 1.000, en auk
franskra eru þeir frá alls um 50 lönd-
um. Ber þar mest á alls konar hand-
verki. Um er að ræða sölusýningu og
er íslenska þorpið á um 1500 fer-
metra gólffleti. Sýningin fer fram á
27.000 fermetra gólfi í sjö þema-
tengdum sýningarsölum auk smá-
tjalda utanhúss. Alls eru 32 hektarar
í útjaðri Caen lagðir undir sýninguna.
Mikið lagt í að hafa séríslenskt
umhverfi á sýningunni
„Það hefur verið einstaklega vel að
undirbúningnum staðið af hálfu sýn-
ingarhaldara og er íslenska sýning-
arsvæðið mjög vel úr garði gert,“
sagði Svanhildur. Mikið er lagt í að
búa til skemmtilegt íslenskt umhverfi
með hrauni, bullandi eldfjöllum, hver-
um og ísjökum, svo eitthvað sé nefnt.
Af þessu tilefni hefur hraun og jarð-
vegur verið flutt til Caen frá Íslandi.
Svo mikill áhugi reyndist vera á Ís-
landi fyrir þátttöku í sýningunni að
franska undirbúningsnefndin þurfti
að velja úr hópi umsækjenda. Haft
var til hliðsjónar að þátttakendahóp-
urinn sýndi þá fjölbreytni sem ríkir
hjá íslenskum fyrirtækjum, hand-
verksfólki og hönnuðum. Íslenska
sendiráðið í París hefur í rúmt ár
unnið náið að undirbúningi þátttöku í
sýningunni, en þar hefur Unnur
Orradóttir viðskiptafulltrúi verið í
fararbroddi.
Íslensku fyrirtækin sem taka þátt í
sýningunni eru Stúdíó OS, Verk-
smiðjan, Kirsuberjatréð, Textíl
Gallerí, Glófi, Túrí, Sigrún Design,
Merkilegt.is, Leðuriðjan, Guðrún
Steingrímsdóttir, Icelandic Glacial,
Skyr, ferðaskrifstofan 66°Nord, Ice-
landair, Íshestar, Atvinnuþróunar-
félag Þingeyinga og Cintamani.
Aðsókn að þessari sýningu hefur
farið vaxandi með hverju ári en gestir
voru um 220.000 í fyrra og er búist við
því að aðsókn verði ekki minni nú.
Hefur sýningin verið rækilega kynnt
í fjölmiðlum og með auglýsingum á
almannafæri. Kostaði kynningarher-
ferðin 200.000 evrur, eða sem svarar
18 milljónum króna. Miðað við fyrri
reynslu segir Philippe Bertin, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, að um
75% gesta muni hafa viðkomu í ís-
lenska þorpinu.
Á sýningunni er að finna um 30
veitingastaði þar sem boðið er upp á
mat víðs vegar að úr heiminum.
Stærstur er Víkingurinn (Le Viking)
þar sem hægt verður að snæða mat
með íslensku ívafi, fiskrétti, íslenskt
lambakjöt, skyr og íslenskt vatn.
Talsvert er lagt upp úr því að
kynna íslenska menningu á sýning-
unni. Yfir 30 tónlistaruppákomur
verða á sérstöku sviði og þar kemur
Ísland við sögu dag hvern, meðal
annars leikur tríóið Guitar Islancio
þar nokkrum sinnum dag hvern. Á
aðalsviðinu verður einnig efnt til Ís-
landskynninga, fjallað sérstaklega
um íslenska náttúru í máli og mynd-
um og kemur þar m.a. við sögu maður
sem sagður er vera sérfróður um
birni og norðurljós.
Íslenskum bókmenntum verða
gerð mikil skil, bæði nútímabók-
menntum og fornum. Rithöfundar
troða upp nokkrum sinnum á dag,
þar á meðal Þórarinn Eldjárn þriðju-
daginn 19. sept., Andri Snær Magna-
son miðvikudaginn 20. september og
Elín Pálmadóttir og Æsa Sigurjóns-
dóttir föstudaginn 22. september Þá
tekur Steinunn LeBreton, sem lengi
hefur kennt íslensku við háskólann í
Caen, þátt í a.m.k. tveimur umræðu-
fundum um Íslendingasögurnar á
sviðinu.
Fjallað verður um Ísland sem
áfangastað ferðamanna í víðum skiln-
ingi á morgun og sunnudag. Þar kem-
ur m.a. við sögu Anna Kristín Ás-
björnsdóttir sem rekur
ferðaskrifstofuna 66°Nord í Lyon en
skrifstofan sérhæfir sig í að selja
Frökkum Íslandsferðir.
Vígi Vilhjálms rúðujarls
Í sýningarborginni frönsku, Caen,
var vígi Vilhjálms bastarðar Rúðu-
jarls og hertoga af Normandí til
forna. Þaðan lagði hann í herför gegn
Haraldi Guðinasyni Englandskon-
ungi sem lauk með falli Haraldar í
Hastings 1066. Þar og annars staðar í
Normandí voru umsvif víkinga einnig
talsverð og vék Tómas Ingi Olrich
sendiherra að hinum sögulegu
tengslum Íslands og Caen sem vík-
ingar stofnuðu til fyrir meira en þús-
und árum. Nú eru það íslenskir vík-
ingar síðari tíma – fyrirtæki í útrás –
sem gera strandhögg í Normandí og
meðal þeirra ríkti bjartsýni í upphafi
sýningarinnar hér í Caen.
Slóðina á heimasíðu sýningarinnar
er http://www.caen-expo-con-
gres.com
Ísland dregur vagninn í Caen
Eftir Ágúst Ásgeirsson í Caen
Þjóðlegir Íslenskir jólasveinar voru á stjái en grunnskólabörn í Normandí
munu heimsækja þá næstu daga og fá þá í heimsókn í skóla sína.
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Mikill áhugi Íslensku básarnir eru í kjarna sýningarinnar í Caen og þar var múgur og margmenni allan daginn.
Á AÐALFUNDI Hjálparstarfs
kirkjunnar sem haldinn var 11. sept-
ember sl. var Þorsteinn Pálsson rit-
stjóri kosinn stjórnarformaður.
Auk hans voru
kosin í stjórn Sig-
ríður Lister
hjúkrunarfræð-
ingur og Gunnar
Sigurðsson kerf-
isfræðingur. Í
varastjórn eru sr.
Elínborg Sturlu-
dóttir og Hrafn-
hildur Sigurðar-
dóttir,
útibússtjóri hjá Landsbankanum.
Í skipulagsskrá Hjálparstarfs
kirkjunnar er hlutverki stofnunar-
innar settur ákveðinn rammi. Hjálp-
arstarf kirkjunnar á að hafa for-
göngu um og samhæfa mannúðar- og
hjálparstarf íslensku kirkjunnar inn-
anlands sem utan. Innanlands á
stofnunin að veita skyndihjálp í
neyðartilfellum og veita innlendum
líknarfélögum aðstoð. Erlendis á
stofnunin að veita bágstöddum neyð-
ar- og þróunaraðstoð, sinna flótta-
fólki og stuðla að því að mannréttindi
séu virt. Stofnunin á að standa fyrir
fræðslu um hjálparstarf og mann-
réttindi. Hún á að fræða um sérstöðu
stofnunarinnar sem og miðla afstöðu
kristinna manna til meðbræðra
sinna, segir í fréttatilkynningu.
Nýr formaður
Hjálparstarfs
kirkjunnar
Þorsteinn Pálsson
♦♦♦