Morgunblaðið - 16.09.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 11
FRÉTTIR
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 10-16
50% afsláttur
Útsöluhorn - Góðar vörur
Dúnúlpur
rúskinnsúlpur
leðurjakkar
vattkápur
hattar
húfur
leðurhanskar
ullarsjöl
Góðar gjafir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„SUMIR deyja ungir, aðrir glíma
við erfiðleika og þjáningar alla ævi.
Vinir, ættingjar og fjölskyldur líða
fyrir þessi örlög,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
um fíkniefnavandann í samfélaginu
sem eykst með hverju ári og skilur
eftir fjölmargar fjölskyldur í sárum.
Ólafur Ragnar kynnti í gær nýtt for-
varnaverkefni sem ber heitið Taktu
þátt! Hvert ár skiptir máli og í
grunnskólum landsins verður
fimmtudagurinn 28. september nk.
t.a.m. tileinkaður baráttunni gegn
fíkniefnum.
Verkefninu hefur þegar verið
hrundið af stað með opnun nýs vef-
seturs, www.forvarnadagur.is, þar
sem m.a. verður hægt að finna upp-
lýsingar um það íþrótta- og æsku-
lýðsstarf sem í boði er fyrir ung-
menni en markmið forvarnadagsins
er m.a. að kynna það foreldrum og
ungmennum. „Það liggja fyrir vís-
indalegar rannsóknir á því að þetta
er valkostur sem sannarlega dregur
úr áhættu á því að börn ánetjist
vímuefnum,“ sagði Ólafur E. Rafns-
son, forseti Íþrótta- og ólympíusam-
bands Íslands, við tækifærið og
bætti við: „Það er nánast ábyrgð-
arlaust af foreldrum að kynna sér
ekki það sem í boði er.“
Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og
æskulýðsstarfi er eitt þriggja heilla-
ráða sem lagt er upp með í tengslum
við verkefnið, en þau eru talin geta
dregið til muna úr líkum á því að
ungmenni hefji neyslu fíkniefna. Hin
tvö eru að sniðganga áfengi sem
lengst og að eiga samverustundir
með fjölskyldunni.
Upphafið að frekari þróun
Forvarnaverkefnið er sett af stað
að frumkvæði Ólafs Ragnars í sam-
starfi við ÍSÍ, Ungmennafélag Ís-
lands, Skátahreyfinguna, Samband
íslenskra sveitarfélaga og Reykja-
víkurborg. Verkefnið er svo dyggi-
lega stutt af lyfjafyrirtækinu Actav-
is. Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, sagðist oft hafa velt því fyr-
ir sér hvað foreldrar gætu gert til að
minnka líkur á því að börn þeirra og
unglingar lentu í slíkum ógöngum
sem fíkniefnaneysla er og kveðst
hann sannfærður um að flestir for-
eldrar velti þessu fyrir sér. „Raun-
verulegt markmið með þessu verk-
efni er að fjölskyldur, foreldrar og
allir sem koma að uppeldi barna
skilji hvað það er sem skiptir máli í
uppeldinu til að minnka líkur á að
börn lendi í fíkniefnaneyslu síðar
meir. Þessi dagur er í mínum huga
aðeins upphaf að frekari þróun í bar-
áttunni við fíkniefni, eins og við
þekkjum hana hingað til,“ segir Ró-
bert sem vonast til að verkefnið
muni skila virkilegum árangri í
framtíðinni.
Sérstök dagskrá verður í öllum 9.
bekkjum grunnskóla á landinu á for-
varnadaginn og mun m.a. þjóðþekkt
afreksfólk flytja ungmennum boð-
skap um dyggðugt líferni. Auk þess
verður staðið fyrir umræðum um
forvarnir og hlutverk íþrótta- og
æskulýðssamtaka 25. september nk.
og munu þær fara fram í Háskól-
anum í Reykjavík á milli kl. 13–17.
Forseti ÍSÍ hvatti fyrirtæki í landinu
til að styðja við bakið á verkefninu.
„Við hjá Íþrótta- og ólympíusam-
bandi Íslands viljum hvetja öll fyr-
irtæki í landinu til að sýna þessu
sambærilegan skilning [og Actavis]
og gefa foreldrum barna í þessum
árgangi sem verkefnið beinist að frí
þennan dag til að sækja kynningar
og annað um það leyti sem verið er
að hefja þetta átak,“ sagði Ólafur E.
Ótrúlegur árangur
Ólafur Ragnar sagði að lokum að
árangurinn af heillaráðunum þrem-
ur væri satt að segja ótrúlegur og
„markmiðið er fyrst og fremst að
kynna fyrir ungu fólki og þjóðinni
allri þessi einföldu ráð svo við getum
í sameiningu áttað okkur á því hvað
dugir best í þessari erfiðu baráttu.“
Fíkniefnum sagt stríð á hendur
Morgunblaðið/Ásdís
Átakanlegur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræddi um fíkniefnavandann sem steðjar að íslensku samfélagi á Bessastöðum í gærdag.
„VIÐ Íslendingar búum svo vel að eiga mikið af góðum
rannsóknarmönnum sem stundað hafa rannsóknir á
þessu sviði og við höfum reynt að leggja þær til grund-
vallar þessu forvarnarstarfi, með ágætum árangri
t.a.m. í efri bekkjum grunnskóla,“ segir Þórólfur Þór-
lindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Þórólfur hefur unnið að rannsóknum á þessu sviði
um margra ára skeið og segir það m.a. afar mikilvægt
að tengja rannsóknarfólk við þá sem vinna að forvarn-
arstarfi. Hann segir þau þrjú atriði, sem tekin eru fyrir
í átakinu Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli og eru hluti
af niðurstöðum úr áratuga rannsóknum á hegðun ung-
linga og árangursríkum forvörnum, þ.e. sam-
verustundir fjölskyldunnar, þátttöku í skipulögðu
íþrótta- og æskulýðsstarfi og að sniðganga áfengi sem
lengst, vera heillavæn. „Þessi þrjú atriði eru mjög mik-
ilvæg og eru eiginlega táknræn fyrir niðurstöðu rann-
sókna á þessu sviði í heild, en síðan koma einnig að
margir aðrir þættir,“ segir Þórólfur sem fagnar sam-
starfi Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. „Nú er
þetta formlega samstarf hafið á milli Háskólans í
Reykjavík og Háskóla Íslands, þar sem raunverulega
er verið að vinna að því að tengja saman rannsóknir og
forvarnarstarf.“
„Táknræn fyrir niðurstöðu rannsókna“
Þrjú heillaráð sem
geta forðað ung-
mennum frá því
að verða fórn-
arlömb fíkniefna
Í HNOTSKURN
»Fimmtudaginn 28. sept-ember næstkomandi verð-
ur forvarnadagur haldinn í
grunnskólum landsins.
»Markmiðið er að kynnaþrjú heillaráð sem geta
forðað börnum og unglingum
frá því að verða fórnarlömb
fíkniefna.
»Vonast er til þess að for-varnadagurinn geti orðið
að árvissum viðburði.
AÐALFUNDUR Náttúrusamtaka
Austurlands (NAUST) telur ekki
rétt að hleypa vatni á Hálslón án
undangengins óháðs mats á Kára-
hnjúkavirkjun með tilliti til jarð-
fræði og hönnunar mannvirkja.
„Fundurinn tekur undir með
þeim mörgu sem lýst hafa áhyggj-
um vegna ófullnægjandi undirbún-
ings þessara framkvæmda, jafnt
Kárahnjúkavirkjunar og álvers á
Reyðarfirði,“ segir m.a. í ályktun
sem samþykkt var á fundinum, sem
haldinn var nýverið. Varar fundur-
inn við þeirri hættu sem fólki og
umhverfi á Austurlandi stafi af stór-
iðjuframkvæmdum þar.
Jafnframt fordæmir aðalfundur-
inn „þá hneykslanlegu afstöðu Alcoa
og Skipulagsstofnunar að taka fjár-
hagslega hagsmuni Alcoa fram yfir
heilbrigði íbúa við Reyðarfjörð og
Eskifjörð með því að hafna kröfum
fjölmargra um vothreinsun við ál-
verksmiðjuna“.
Aðalfundurinn hvetur til aukins
samstarfs frjálsra náttúru- og um-
hverfisverndarsamtaka til að ná
megi sem bestum árangri í málum
sem samstaða er um í þeirra röðum.
Tók fundurinn undir fram komnar
hugmyndir um að þessi samtök
myndi með sér sameiginlegan vett-
vang um náttúruvernd, sem sé
óháður stjórnvöldum.
Stjórnvöld setji sér siðareglur
Á fundinum var lýst yfir fullum
stuðningi við tillögur og ábendingar
fulltrúa náttúruverndarsamtaka í
undirbúningsnefnd um Vatnajökuls-
þjóðgarð. Var lögð áhersla á að
þjóðgarðurinn næði yfir landslags-
heildir umhverfis jökulinn, þar á
meðal Langasjó og Fögrufjöll að
friðlýsta svæðinu við Laka.
Fram kemur í ályktun frá fund-
inum að NAUST harmar að Skipu-
lagsstofnun og umhverfisráðherra
skuli hafa hundsað rökstuddar kröf-
ur um að virkjun Fjarðarár í Seyð-
isfirði fari í umhverfismat. Varar
fundurinn við því fordæmi sem
þetta kunni að gefa og krefst þess
að mat á umhverfisáhrifum verði
framvegis meginregla sem ekki
verði gengið fram hjá af stjórnvöld-
um.
Jafnframt var á aðalfundinum
samþykkt ályktun þess efnis að
brýnt væri að stjórnvöld settu form-
legar siðareglur um samskipti við
fyrirtæki og aðra aðila sem stæðu
að framkvæmdum sem yllu um-
hverfistjóni. Að mati fundarins er
óeðlilegt að opinberir aðilar taki við
fégjöfum frá slíkum aðilum eða auð-
veldi þeim á annan hátt áróður til
réttlætingar umhverfisspjöllum.
Telja undirbúning fram-
kvæmda ófullnægjandi
NAUST vill láta fresta fyllingu Hálslóns og fá nýtt mat