Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 23
SUÐURNES
Blaðbera vantar
á Akureyri í
AKURGERÐI
LÖNGUMÝRI
STEINAHLÍÐ
Upplýsingar í síma
461 6011 og
840 6011
Grindavík | Fjáreigendur í Grinda-
vík smala beitarhólfið í Krýsuvík í
dag og koma með safnið í Þórkötlu-
staðarétt um klukkan 19. Réttað
verður á morgun, sunnudag, og
hefjast réttastörfin klukkan 13.
Fjölmenni mætir venjulega í Þór-
kötlustaðarétt enda ein af fáum
réttum sem eftir eru í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins og ávallt sér-
stök stemning. Göngur Grindvík-
inga hafa þó breyst verulega eftir
að tekið var í notkun nýtt beitarhólf
í Krýsuvík. Þar geta gangnamenn
gengið að fénu vísu.
Alltaf hefur verið mikill áhugi á
búskap í Grindavík, alveg frá því
útvegsbændur stunduðu jöfnum
höndum útgerð og landbúskap.
Fénu hefur heldur fækkað á und-
anförnum árum en á síðasta ári var
á fimmta tug Grindvíkinga talinn
eiga alls um fimm hundruð ær.
Réttað í
Grindavík
Sandgerði | Ákveðið hefur verið að
varðveita muni úr bandaríska timb-
urflutningaskipinu Jamestown í
Sandgerði. Bæjarstjórn Sandgerð-
isbæjar hefur samþykkt sam-
komulag þess efnis við Tómas J.
Knútsson kafara.
Jamestown strandaði utan við
Hafnir 1881. Akkeri úr skipinu
stendur fyrir framan Sæfiskasafnið
í Höfnum. Tómas Knútsson hefur
fundið annað akkeri og fleiri muni
úr skipinu en þrætur hafa staðið
um það hvar varðveita skuli þá.
Flakið tilheyrir landi jarðar í Sand-
gerðisbæ. Bæjarstjórnin hefur sam-
þykkt að greiða allt að 800 þúsund
kr. vegna kostnaðar við björgun
muna úr skipinu og varveita þá í
tengslum við Fræðasetrið eða húsið
Efra-Sandgerði.
Varðveita muni
úr Jamestown
Reykjanesbær | Stakar máltíðir í
grunnskólum Reykjanesbæjar
hækka en verðið í áskrift er
óbreytt. Felst þetta í ákvörðun
meirihluta bæjarráðs Reykjanes-
bæjar sem tekin er vegna aukins
kostnaðar við þjónustuna. Tilgang-
urinn er að hvetja fleiri foreldra til
að kaupa áskrift og nota þjón-
ustuna betur. Minnihluti bæjarráðs
greiddi atkvæði gegn hækkun
gjaldsins, vill afnema gjaldið.
Verð stakra skóla-
máltíða hækkar
Keflavík | Hestamannafélagið Máni
mun ekki hefjast handa við byggingu
reiðhallar á félagssvæði sínu Mána-
grund í nágrenni Keflavíkur fyrr en
tryggð verður full fjármögnun bygg-
ingarinnar. Félagið fékk loforð land-
búnaðarráðuneytisins fyrir styrk, en
lægri fjárhæð en reiknað var með, að
sögn Margeirs Þorgeirssonar, for-
manns Mána.
Mánafélagar hyggjast reisa um
2000 fermetra reiðhöll og er áætlað
að hún kosti 80 milljónir króna.
Reiknað var með að ríkið myndi
leggja til að minnsta kosti 30 millj-
ónir, Reykjanesbær 30 milljónir og
að félagsmenn myndu standa undir
því sem eftir stæði og greiða um 20
milljónir króna. Jafnframt var búið
að tryggja rekstrargrundvöll húss-
ins með starfsmanni.
Ekki skortur á verkefnum
Margeir Þorgeirsson segir að nú
verði að hugsa fjármögnunina upp á
nýtt og ekki verði farið af stað fyrr
en hún verði að fullu tryggð. Segir
hann koma til greina að leita til
Íþróttaakademíunnar í Reykja-
nesbæ og Fjölbrautaskóla Suður-
nesja enda sé áhugi fyrir því að
byggja upp hestabraut þar.
„Við höfum byggt upp góða útiað-
stöðu með hringvelli og höfum haldið
tvö Íslandsmót. Okkur vantar reið-
höll til að þróa þetta áfram og geta
rekið reiðskóla og haldið reiðnám-
skeið allt árið. Bygging reiðhallar
yrði hestamennskunni hér til mikils
framdráttar. Eitt er víst að það verð-
ur ekki skortur á verkefnum í þess-
ari aðstöðu,“ segir Margeir Þor-
geirsson.
Máni er hestamannafélag allra
Suðurnesjamanna. Máni var því
einnig aðili að umsókn um styrk til
byggingar reiðskemmu í Grindavík.
Margeir segir eðlilegt að Grindvík-
ingar vilji fá eigin reiðhöll enda heill
fjallgarður á milli. Landbúnaðar-
ráðuneytið lofaði 7 milljónum króna í
það verkefni. Öflug fyrirtæki og ein-
staklingar standa aðallega að baki
þeirri byggingu.
Ekki hafist handa fyrr
en fjármögnun lýkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reiðskóli Komið verður upp reiðskóla í væntanlegri reiðhöll á Mána-
grund. Myndin er tekin á námskeiði í Reiðhöllinni í Reykjavík.
LANDIÐ
Skeiðarársandur | Vinnuflokkur
Vegagerðarinnar er þessa dagana
að rífa brúna á Sæluhúsavatnskvísl
á Skeiðarársandi og setja í staðinn
ræsi í veginn. Við þá framkvæmd
fækkar einbreiðum brúm á Hring-
veginum um eina.
Farvegur Sæluhúsavatnskvíslar
hefur verið þurr í mörg ár og marg-
ir vegfarendur furðað sig á því að
þar skuli vera brú, hvað þá ein-
breið.
Sigurður K. Jóhannsson, sem er
yfir framkvæmdadeild Vegagerðar-
innar á suðursvæði, segir að þetta
sé ekki mikil framkvæmd. Brúin er
söguð í sundur og flutt í burtu í bút-
um. Rör er sett í farveginn og fyllt
yfir. Bjóst hann við að framkvæmd-
um myndi ljúka í næstu viku, nema
hvað malbikað yrði síðar.
Umferðinni er á meðan beint yfir
farveginn á bráðabirgðavegi.
Stöplar brúarinnar eru látnar
standa, en fyllt að þeim. Segir Sig-
urður aldrei að vita hvort vatn komi
í farveginn aftur. Ef vötnin á Skeið-
arársandi breyta sér þannig að síð-
ar verði þörf á brú á Sæluhúsa-
vatnskvísl yrði auðvelt að moka frá
aftur og setja nýja brú á undirstöð-
urnar. Raunar verður brúin sett í
geymslu hjá Vegagerðinni í Vík í
Mýrdal, en óvíst að hún verði til
taks þegar og ef að því kemur að
sett verður ný brú á ána.
Brú rifin af þurrum árfarvegi
Ljósmynd/Pálmi Guðmundsson
Skagafjörður | Brottfluttir Skag-
firðingar, búsettir á höfuðborg-
arsvæðinu, komu saman á Hvaleyr-
arvelli í Hafnarfirði um síðustu
helgi og spiluðu golf af hjartans
list. Er þetta árlegur viðburður og
sífellt fjölgar í hópnum. Að þessu
sinni mættu hátt í sextíu kylfingar
til leiks, þar af nokkrir heimamenn
í Skagafirði sem óku suður yfir
heiðar til að hitta gamla félaga.
Táningarnir sigruðu
Lengst af var leikið við hinar
verstu aðstæður, rok og rigningu,
og höfðu keppendur á orði að hin
svonefnda „Skarðagola“, sem
löngum hefur hrellt kylfinga á Hlíð-
arendavelli á Sauðárkróki, hefði
komið alla leiðina suður á Hvaleyr-
ina. Á myndinni sést að síðasta holl-
ið var sérlega blautt en ánægt í
mótslok, f.v.: Ólafur Ingimarsson
læknir, Gunnar Guðjónsson móts-
stjóri og Þórður Hilmarsson, for-
stöðumaður hjá Útflutningsráði.
Það kom á daginn að unga kyn-
slóðin lék best í slagviðrinu. Guðjón
Ragnarsson, 14 ára, varð efstur í
karlaflokki og í kvennaflokki sigr-
aði yngsti keppandinn í mótinu,
Karen Harðardóttir, 13 ára.
Skarðagolan elti Skag-
firðinga á Hvaleyrina
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Vestfirðir | Slysavarnafélagið
Landsbjörg telur þörf á að bæta
gsm samband á Vestfjörðum.
Ályktun þess efnis var samþykkt
samhljóða á fundi stjórnar samtak-
anna og starfsmanna með fé-
lagseiningunum á Vestfjörðum,
sem nýlega var haldinn á Ísafirði.
Skorað er á samgönguráðherra
sem jafnframt er fyrsti þingmaður
kjördæmisins að sjá til þess að kom-
ið verði á gsm sambandi á öllum
fjallvegum og þröngum fjörðum á
svæðinu hið fyrsta.
Gsm verði bætt
á Vestfjörðum