Morgunblaðið - 16.09.2006, Síða 28
matur
28 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
meti, sem er ýmist soðið, snöggsteikt
eða bakað og baunum, tófu, hnetum
og núðlum en einstaka sinnum fær
kjötmeti eins og kjúklingur að fylgja
með, aðallega fyrir eiginmanninn. Ég
er nánast 99% grænmetisæta.“
Keypti hey fyrir
sælgætispeningana
Sigrún er mikill náttúruunnandi og
hefur gaman af hvers konar útivist.
,,Ég hef lengi verið í hestamennsku,
finnst fátt stórkostlegra en að ganga
um hálendi Íslands auk þess sem ég
hef kolfallið fyrir töfrum Afríku og
ferðast þar nokkuð um. Í mörgum
uppskriftanna í síðunni gætir einmitt
áhrifa frá matarmenningu álfunnar.“
Það var eiginlega hesturinn henn-
ar Sigrúnar sem fékk hana til að
hætta að bryðja sælgæti og sykur.
,,Þegar ég var á tólfta ári tók ég þá
ákvörðun að eyða þeim peningum
sem ég hafði fram að því eytt í sæl-
gæti frekar í hey handa hestinum
mínum. Mér fannst hann þurfa meira
á heyinu að halda en ég sælgætinu,“
segir hún og brosir. ,,Ég saknaði sæl-
gætisins ekkert og vitandi að það
væri óhollt ákvað ég að hætta alfarið
að borða það. Þetta var löngu áður en
umræðan um óhollustu og syk-
urneyslu hófst og þótti undarlegt
uppátæki. Þá var umræðan um holl-
ustu í mataræði og meðalhóf ekki
hafin og fólk var yfirleitt annaðhvort
í megrun eða borðaði eins og því
sýndist. Smám saman vaknaði áhugi
minn á því hvað ég væri almennt að
setja ofan í mig, hvað væri hollt og
gott fyrir líkamann og hvað ekki.
Flestum þóttu slíkir fuglar hins veg-
ar svolítið furðulegir og sumir voru
sannfærðir um að ég væri í megrun
og að svo væri ég komin með lyst-
arstol.“
Matarvefsíður með
hollum mat eru sjaldgæfar
Sigrún segist oft þurfa að verja
lífsstíl sinn fyrir öðrum. ,,Það eru
alltaf einhverjir sem eiga erfitt með
að skilja hvers vegna ég hef valið mér
þetta mataræði. Ég fæ ótal spurn-
ingar varðandi fæðið og reyni að út-
skýra eins vel og ég get að ég hef val-
ið mér þennan lífsstíl út frá þeirri
vitneskju sem við höfum um hollt og
óhollt fæði. Ég er hins vegar ekki að
reyna troða honum upp á aðra eða yf-
irleitt að skipta mér af mataræði ann-
arra. Þetta er fyrst og fremst val
hvers og eins.“
– Af hverju heldurðu að sumum sé
svona umhugað um mataræði þitt?
,,Sumir hafa áhyggjur af því að ég
Á
heimasíðunni, www.
cafesigrun.com, er að
finna yfir 300 upp-
skriftir og myndir sem
matgæðingurinn Sigrún
hefur tekið af afrakstri eldamennsku
sinnar. Það er hollt fæði af öllu tagi,
hversdagsmatur jafnt sem kökur og
eftirréttir. ,
,Það sem uppskriftirnar eiga sam-
eiginlegt er að þær innihalda hvorki
hvítan sykur, hvítt hveiti né ger.
Flestir réttirnir eru úr fersku græn-
sé að missa af einhverju eins og t.d.
kökum. Ég bendi fólki hins vegar á
að ég borða fullt af kökum, þær eru
bara allar hollar og næringarríkar.“
– En það er líka fullt af fólki sem
gjarnan vill taka upp mataræði þessu
líkt og heimsækir síðuna þína í leit að
uppskriftum og fróðleik, ekki satt?
,,Það er rétt og það kom mér á
óvart í fyrstu hversu margir heim-
sækja síðuna en það eru hins vegar
mjög fáar íslenskar matarvefsíður á
Netinu þar sem eingöngu er að finna
uppskriftir að næringarríkum og
hollum mat. Upphaflega gerði ég síð-
una fyrir mig sjálfa, því ég vildi safna
saman á einn stað öllum þeim upp-
skriftum sem ég hafði safnað saman í
gegnum tíðina, breytt og bætt en eft-
ir því sem heimsóknunum fjölgaði
lagði ég meira í hönnun hennar en
þar naut ég dyggrar aðstoðar eigin-
mannsins, Jóhannesar Erlingssonar,
sem er forritari.
Aðgengi fyrir alla,
líka fatlaða notendur
Vefsíðan er aðgengileg öllum not-
endum, t.d. blindum notendum, not-
endum með lesblindu, hreyfihömlun,
sjónskerðingu og svo framvegis.
,,Hún er ein af fáum matarvefsíðum í
veröldinni sem eru sérstaklega
sniðnar með tilliti til þess að gera
fötluðum notendum auðveldara fyrir
og ég er stolt af því, enda ættu allar
vefsíður að vera þannig,“ segir Sig-
rún ,,Við gerð heimasíðunnar sam-
einast bæði starf og áhugamál en ég
lauk mastersnámi í Bretlandi í hönn-
un fyrir gagnvirka miðlun og starfa
hjá fyrirtækjum bæði á Íslandi og í
Bretlandi sem sérhæfa sig í aðgeng-
ismálum fatlaðra á Netinu.“
Og Sigrúnu finnst áskorun að
breyta uppskrift með óhollu hráefni í
ljúffenga hollustu. ,,Mér finnst svo
notalegt að gefa fólki bragðgóðan
mat sem það nýtur og vita að um leið
fær það vítamín í kroppinn, steinefni
og önnur mikilvæg næringarefni. Oft
er þetta auðvitað algjör tilraunastarf-
semi og eldhúsið mitt er eins og til-
raunastofa. Ég ætla ekki einu sinni
að segja hvað margir réttir hafa farið
beint í vaskinn,“ segir hún og hlær.
,,En það þýðir ekkert annað en að
prófa sig áfram og það sem heppnast
vel, hefur verið prófað og samþykkt,
fer inn á heimasíðuna.“
Þarf oft að verja
hollan lífsstílinn
Hún hefur ekki bragðað á sykri meira en hálfa ævina og saknar einskis.
Sumir hafa þó áhyggjur af því að hún sé að missa af lífsins lystisemdum.
Sigrún Þorsteinsdóttir gaukaði hins vegar kökuuppskriftum að Unni H.
Jóhannsdóttur sem gæla við bragðlaukana og eru auk þess svo hollar að
hennar sögn að þær má borða jafnt í morgunmat sem kvöldmat.
Ljúffengar Bananamúffur
Morgunblaðið/Ásdís
Skynsöm Sigrún nýtur þess að búa til og borða hollan mat.
TENGLAR
.....................................................
www.cafesigrun.com
unnur@mbl.is
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftir-
talinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan
15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og
með 15. september 2006, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2006
og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. sept-
ember 2006, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisauka-
skatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetra-
gjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskrán-
ingar sjómanna, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri fram-
leiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fast-
eignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrann-
sóknarstjóra og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekju-
skattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatrygginga-
gjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald,
markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhús-
næði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á
kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350
kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg-
inn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði
stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á
að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem
skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrr-
greindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. september 2006.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkur-
flugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli