Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 30
lifun
30 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Í
grenjandi rigningu eitt
síðdegi í vikunni eru börn
á náttúruleikskólanum
Hvarfi í Kópavogi að leik í
pollagöllum og stígvélum.
Þau róla, baka gómsætar heilsu-
kökur og gera hvaðeina sem hug-
myndaríkum krökkum dettur í
hug að taka sér fyrir hendur við
þessar aðstæður. Blaðamaður,
sem ekki nýtur útiveru í rigningu
líkt og þessi börn virðast svo
sannarlega gera, skaust úr bílnum
í því skyni að forðast rigninguna.
Börnin brostu og veifuðu þessum
gesti, alsæl með lífið og tilveruna.
Byggingin er litrík og innviðir
leikskólans fallegir. Á borðum er
heilsusamlegur matur. Rekstr-
araðilar skólans leggja mikla
áherslu á að þarna líði öllum vel,
ekki bara börnunum heldur er
starfsmönnum gefinn sérstakur
gaumur og vel hlúð að þeim líka.
Starfsmannarýmið notalegt
Þegar leikskólinn var byggður
höfðu rekstraraðilar skólans, Ólaf-
ur Grétar Gunnarsson og Bjarni
Þórarinsson, þegar mótað ákveðna
starfsmannastefnu.
Rík áhersla skyldi lögð á hlýju,
faglegan stuðning og tækifæri til
að endurnýja sig í starfi. Þeir fé-
lagar gera sér vel grein fyrir því
að starf leikskólakennara er afar
krefjandi. Því fannst þeim mik-
ilvægt að starfsfólkið ætti á vinnu-
stað sínum notalegt athvarf þar
sem það gæti hlaðið batteríin. Þeir
ákváðu að hafa rýmið fyrir starfs-
menn þó nokkuð stærra en gengur
og gerist í leikskólum og þar
skyldi vera róandi og gott að vera.
Í þessu athvarfi starfsmanna er
allt hvítt eða ljóst og öfugt við það
sem ætla mætti þá er þarna mjög
notalegt að vera. Dúnmjúkir sófar,
teppi sem hægt er að sveipa um
sig og góðar bækur til að glugga í
gera umhverfið hlýlegt og greini-
legt er að vel hefur tekist til.
Þangað kemur starfsfólkið og
sækir sér orku. Hvít kerti gera
andrúmsloftið enn notalegra, sér-
staklega þegar hausta fer og í
svartasta skammdeginu. „Þá verð-
ur hvíti liturinn enn notalegri og
mikilvægari,“ segir Ólafur.
Ávextir og heilsunammi
Á borðum eru ferskir ávextir og
starfsfólkið segist hiklaust borða
meira af þeim fyrir vikið. Ásókn í
svokallaðan kornbar er líka mikil
en þar er hægt að næla sér í
bland af sólblóma-, graskers- og
sesamfræjum og rúsínum. Auk
þess er á leikskólanum starfrækt
heilsusjoppa fyrir starfsfólkið þar
Hlýlegt
á Hvarfi
Kerti Skapa róandi stemmningu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hollusta Með ávextina innan seilingar eru meiri líkur á að þeir rati upp í starfsfólkið.
Rúmgott Orkurýmið var haft bogalaga. Þar stunda börnin leikfimi. Rýmið
er einnig nýtt undir fyrirlestra fyrir starfsfólk og foreldra.
Heimsókn Börnin kíkja stundum í heimsókn í starfsmannarýmið. Hvíld Nóg er af dúnmjúkum sófum til að hreiðra um sig í vinnuhléi.
Hollráð Leiðarljós skólans prýða
vegginn fyrir ofan arininn.
Í harðnandi vinnuheimi getur gert gæfumuninn að
vinnuveitendur hlúi rétt að starfsfólki sínu og sjá til
þess að það eigi sér hlýlegt athvarf í erli dagsins.
Katrín Brynja Hermannsdóttir heimsótti náttúruleik-
skólann Hvarf sem hefur þessa heimspeki í hávegum.
Róandi Þeir Ólafur Grétar Gunnarsson og Bjarni Þórarinsson vita að starf
leikskólakennara er krefjandi og eru stoltir af starfmannarýminu.