Morgunblaðið - 16.09.2006, Side 32
Allt við hönnuðinn ogástríðuveiðimanninnJohn Rocha er í fullkom-inni mótsögn við óróleg-
an, síbreytilegan og glitrandi tísku-
heiminn. Búddískt yfirbragðið, róin
sem yfir honum hvílir og útgeisl-
unin sem af honum stafar. Blakkur,
síður haddurinn, líkur faxi á hesti,
víður, alsvartur klæðaburðurinn og
berar tásurnar í töfflunum.
,,Ég er hippi og verð það áreið-
anlega alltaf. Ég dái tískuna, enda
er hún mitt lifibrauð en ég er sá
sem ég er. Það er tvennt sem ég
myndi aldrei láta tískuheiminn hafa
áhrif á; persónuleika minn og fisk-
veiðarnar, segir Rocha og hlær en
hann var einmitt í laxveiði hér á
landi og lætur vel af. ,,Þetta er í
annað sinn sem ég kem til Íslands
en ég hef ferðast víða til þess að
veiða eins og til Alaska, Rússlands
og Nýja-Sjálands.“
Rocha er náttúrubarn og það er
bersýnilegt í hans hönnun. Nátt-
úruleg efni eins og angóraull, silki
og leður eru efniviðurinn og lág-
stemmdir litatónar þeir sem Rocha
leikur sér með auk grunnlitanna
andstæðu, þess hvíta og svarta,
sem eru í miklu uppáhaldi.
,,Það er nokkrar ástæður fyrir
því að ég er ekki sérlega litaglaður
en ég nota liti þó öðru hverju eins
og flestir. Mér finnst litskrúðugur
fatnaður oft draga að sér fullmikla
athygli á kostnað manneskjunnar
sem klæðist honum. Þegar kona
sem klæðist litsterk-
um kjól kemur inn í
herbergi eða sal þá
beinist athygli við-
staddra oftar en ekki
fremur að kjólnum en
konunni sjálfri og
persónuleika hennar.
Það er mín skoðun að
fatnaður eigi að draga
fram persónuleika
þess sem honum
klæðist, hann eigi að
vera í öndvegi og aðal-
hlutverki en ekki fatn-
aðurinn í sjálfu sér. Það er
líka svo óramargt sem ég
get gert með svörtum og
hvítum. Ég get endalaust
leikið mér með mynstur, graf-
ík, vefnað og áferð efnisins,“
segir hann með stóískri ró og
brosir.
Veiðimaður
í tískuheiminum
Það eru um tuttugu og
fimm ár síðan hann ákvað að
leggja fyrir sig tískuhönnun og
segir hann sposkur á svip að
tvennt hafi dregið sig að þessu
starfi. „Ég hélt að það væri auð-
velt og svo fannst mér ekki
verra að vera sífellt umkringdur
fallegum konum í vinnunni. En
þá var ég átján ára og blautur á
bak við bæði eyrun,“ segir hann
og hlær. „Ég komst fljótlega að
því að hönnun er hörkuvinna og
harður heimur en ég nýt þess
hins vegar enn að umgangast
fallegar konur.“ Hann sveiflar
haddinum með vinstri hendi
aftur fyrir
axlir og
segir um
leið til þess
að taka af all-
an vafa að
hann sé ham-
ingjusamlega
giftur.
„Í tískuheim-
inum eru
áskoranirnar
endalausar, það
þarf að takast á
við nýjar á sex
mánaða fresti og
það heldur mér
ungum. Ég þarf
sífellt að ögra
sjálfum mér og það
finnst mér spenn-
andi,“ segir hann og
líkir ferlinu frá hug-
mynd til hönnunar
og framleiðslu við að
veiða fisk. „Veiði-
maður þarf að
þekkja náttúruna,
hegðun fisksins og vera með réttu
græjurnar til þess að eiga mögu-
leika á að veiða hann. Sömu lögmál
gilda í tískuheiminum.“
Rocha hefur verið fengsæll veiði-
maður í ríki tískunnar. Almenn-
ingur þekkir hann sem einn af
hönnuðum verslunarkeðjunnar De-
benhams, en fyrir verslunina hann-
ar hann ódýrari línu af fatnaði sín-
um fyrir bæði kynin og börn, auk
nytjahluta, m.a. undir merkinu roc-
ha.johnrocha.
Aðspurður segir hann merkið
enga tilvísun hafa til frægrar kynn-
ingar njósnara hennar bresku há-
tignar „My name is Bond, James
Bond.“ „Nei, nei, alls ekki, þessi
samlíking hefur nú bara aldrei
hvarflað að mér og aldrei verið
spurður um hana áður í öllum þeim
viðtölum sem ég hef veitt í gegnum
tíðina,“ segir hann og skellihlær.
„En þetta er ekki svo galið, ég verð
að láta markaðsfræðinga mína vita
af þessu, það mætti ef til vill nota á
titilinn „From Rocha with Love“ á
blaðamannafundum,“ segir hann og
vísar þar í titil Bond-myndarinnar
From Russia with Love.
Jarðbundinn í velgengninni
Hátískan er þó sú sem kom
veiðimanninum á kortið og það er
enn aðalsvið og starfi Rocha. Það
er línan sem hann er þekktastur
Tískuheimurinn er fullur af ímyndum en
hann fellur ekki undir neina þeirra.
Hönnuðurinn Rocha, John Rocha, er
andans maður ekki síður en efnisins
Morgunblaðið/Eggert
Tískuhönnuðurinn og ástríðuveiðimaðurinn John Rocha.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
unnur@mbl.is
Catwalking.com
Fengsæll
veiðimaður í
ríki tískunnar
Náttúrulegur Hönnun Rocha er
kvenleg, þægileg og úr nátt-
úrulegum efnum auk þess sem
áhersla er lögð á handverk eins og
prjón.
tíska
32 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Mikið rými Leðurtaska fyrir þær sem vilja
hafa allt meðferðis. Úr smiðju Malene Bir-
ger. Fæst í Kúltúr og kostar 44.990 kr.
Prjónuð Nú
eru prjónatösk-
ur vinsælar.
Þessi er frá
Sonia Rykiel,
fæst í Kisunni
og kostar
60.200 kr.
Tautaska Fjólublátt verður áber-
andi í vetur. Dieseltaskan er úr taui,
kostar 21.990 og fæst í Kúltúr.
Morgunblaðið/Ásdís
Úr leðri Leðurtöskur eru klassískar. Sú vínrauða og bláa
fást í Karen Millen og kosta 23.990 kr. og 20. 990 kr.
Svarta taskan er frá Malene Birger.
Rúmgóðar Þrjár frá
Sonia Rykiel sem fást í
Kisunni. Verð frá 22.900-
76.500 kr.
Handhæg Fyrir
þá sem vilja
breyta til. Fæst
í Whistles og
kostar 16.990
kr.
Smart Þessi gengur með
öllu. Fæst í Marco Polo og
kostar 6.900 kr.