Morgunblaðið - 16.09.2006, Page 34

Morgunblaðið - 16.09.2006, Page 34
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAGA leitar- og björg-unarflugs á vegumBandaríkjahers hér viðland teygir sig aftur til síðari heimsstyrjaldarinnar. Flug- kostur hefur verið með ýmsu móti, í fyrstu var aðeins notast við flugvélar en seinna bættust skammdrægar þyrlur í flotann. Óhætt er að segja að sannkölluð bylting hafi orðið á þessu sviði ár- ið 1971 þegar þrjár Sikorsky HH3 þyrlur, svokallaðar „Jolly Green Giant,“ komu til landsins. Tuttugu árum síðar, árið 1991, komu fimm nýjar Sikorsky HH-56G þyrlur til björg- unarsveitarinnar og hafa þær ver- ið hér síðan, þ.e. þangað til í sum- ar. Raunar er réttara að segja að björgunarsveitin ráði yfir fjórum björgunarþyrlum og einni til vara því ávallt var gert ráð fyrir að ein væri fjarverandi í stórri viðhalds- skoðun. Viðveran hefur ekki verið alveg samfelld. Af og til hafa þyrlurnar verið fluttar utan til að taka þátt í æfingum og árið 2003 var hluti sveitarinnar kallaður til starfa í Sierra Leone um nokk- urra vikna skeið. Fluttar til Bretlands Frá árinu 1988 hefur björg- unarsveit Varnarliðsins verið sér- stök hersveit og ber hún nafnið 56. flugbjörgunarsveitin. Að sögn Friðþórs Eydals, upplýsingafull- trúa Varnarliðsins, var aðsetur hennar í sumar flutt frá Keflavík- urflugvelli og til Lakenheath- herflugvallarins í Bretlandi og í júlí var þremur þyrlum hennar pakkað saman og þær fluttar til Lakenheath. Tvær voru þá eftir og voru áhafnir þeirra á vakt ef útkall bærist, að sögn Friðþórs. Síðustu björgunarvaktinni lauk í gær og eftir það geta Íslend- ingar eða sjófarendur við landið engrar aðstoðar vænst úr þessari átt. Þyrlunum verður pakkað saman og þær fluttar úr landi, væntanlega innan einnar viku. Samkvæmt leigusamningum Landhelgisgæslunnar á hún að fá tvær þyrlur afhentar þann 1. október en hugsanlegt er að af- hending dragist eitthvað á meðan búnaði er komið fyrir í þyrlunum. Þyrlurnar eru sömu gerðar og þær sem fyrir eru, þ.e. önnur er af gerðinni Dauphine og hin er Super Puma. Að sögn Friðþórs Eydals eru upplýsingar ekki til taks um fjölda þeirra sem björgunarsveitir Varnarliðsins hafa bjargað frá því bandaríski herinn kom hingað fyrst. Þessar upplýsingar hafa á hinn bóginn verið skráðar frá 1971 og síðan þá hefur björg- unarsveit Varnarliðsins komið að björgun 310 manna. Gildi sveitarinnar hefur aug- ljóslega verið gríðarlegt og mik- ilvægi hennar var enn meira á meðan þyrlukostur Landhelg- isgæslunnar var verri en hann er í dag. Þó er ekki langt síðan sú staða kom upp að báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru úr Þyrlunum verður an og þær fluttar t Afrek Goðinn sökk þegar hann var að reyna að koma Bergvíkinn Klukkan sex í gær- morgun lauk síðustu bakvaktinni við björg- unarþyrlur varnarliðs- ins. Hálfur mánuður eða meira er í að Gæsl- an fái tvær leiguþyrlur afhentar. Hamfarir Brimið gekk yfir Svanborgu og báturinn kastaðist til o 34 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Björgun sex skipverja afþaki björgunarskipsinsGoðans sem strandaði í Vöðlavík í janúar 1994 hlýtur að teljast með frækilegustu afrekum þyrlubjörgunarsveitar Varn- arliðsins, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Aðstæður til björg- unar voru skelfilegar, skipið hafði strandað um 150 metra frá landi og himinháar brimöldur skullu hvað eftir annað á því. Skyggni var lítið og vindstyrkur um 20 m/s. Sex skipverjar höfðu komist upp á þak Goðans og þar héldu þeir sér dauðahaldi í reyk- háf, handrið og annað sem veitti festu. Einum skipverjanum skol- aði fyrir borð áður en hann komst upp á þakið og fannst hann síðar látinn. Útilokað reynd- ist að koma sexmenningunum til bjargar úr landi. Eina þyrla Landhelgisgæslunnar á þ tíma, TF-SIF, varð frá að vegna veðurs. Með harðfy hægt að fljúga tveimur þy varnarliðsins á slysstað e voru þrefalt öflugri en vé helgisgæslunnar. Fyrri þy kom á vettvang hátt í sex stundum eftir strandið og mátti engan tíma missa. „ við tafist hefði einhverjum þorrið máttur fljótlega og fyrir borð. Þó að þeir ste hefðu e.t.v. þraukað í fáe stundir í viðbót, efast ég nokkur þeirra hefði verið næstu nótt,“ sagði James yfirmaður þyrlubjörguna arinnar og flugstjóri í fer Eftir slysið skrifuðu 1.300 menn undir áskorun til rí isstjórnarinnar um að kau ugri þyrlu. Björguðu sex af þak Goðans í Vöðlavík ELDFLAUGAVARNIR BANDARÍKJAMANNA Í fyrradag birtist hér íMorgunblaðinu athyglis-verð frétt um hugmyndir og óskir Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarna- kerfum í Tékklandi og jafnvel Póllandi. Í fréttinni segir m.a.: „Bandaríkjamenn áforma að koma upp tíu gagneldflaugum og tilheyrandi ratsjá í Evrópu. Þetta telja ráðamenn vestra nauðsynlegt í því skyni að efla varnir gagnvart hugsanlegri eldflaugaárás af hálfu „útlaga- ríkis“ og er þá einkum horft til Írana og Norður-Kóreu. Varn- arkerfið mun samanstanda af gagneldflaugum á jörðu niðri, ratsjám og gervihnöttum … Bandaríkjamenn hafa lagt ríka áherzlu á, að kerfið muni einnig nýtast til að efla varnir Evrópu og ríkja Atlantshafsbandalags- ins (NATO). Mark Pekala, einn af aðstoðarutanríkisráðherrum Bandaríkjanna …lagði áherzlu á að land, sem lagt yrði undir kerfið mundi áfram lúta stjórn viðtökuríkisins en ekki Banda- ríkjanna. Gerður yrði sérstakur samningur um gagnflaugakerfið og embættismenn viðtökuríkis- ins mundu eiga greiðan aðgang að stjórnstöð þess.“ Loks segir í frétt Morgun- blaðsins í fyrradag: „Mál þetta kann að reynast stjórnvöldum í Tékklandi erfitt og hafa þegar kviknað vanga- veltur um, að það muni reynast banabiti nýrrar ríkisstjórnar. Skoðanakannanir sem gerðar hafa verið í Póllandi benda til þess, að meirihluti kjósenda þar sé einnig andvígur því, að geng- ið verði til viðræðna við Banda- ríkjamenn um gagneldflauga- kerfið. Kann því svo að fara að Bandaríkjamenn þurfi að horfa til annarra ríkja telji þeir nauð- synlegt að koma þess háttar vörnum upp í Evrópu. Í því við- fangi þykja Búlgaría, Ungverja- land og jafnvel Tyrkland koma til greina.“ Bandaríkjamenn áttu þátt í að bjarga Evrópulöndum undan hrammi nazismans fyrir meira en hálfri öld. Bandaríkjamenn komu stríðshrjáðum þjóðum Evrópu til bjargar með Mars- hallaðstoðinni. Bandaríkin voru brjóstvörn lýðræðisríkjanna í kalda stríðinu. Bandaríkjamenn áttu mestan þátt í að koma Sov- étríkjunum á kné og sigra kommúnismann við lok kalda stríðsins. Þá fengu m.a. Tékkar og Pól- verjar frelsi sitt á ný. Hvers vegna standa Banda- ríkjamenn frammi fyrir því, að bæði Tékkar og Pólverjar hafa svo miklar efasemdir um að hleypa þeim inn í land sitt til þess að setja upp varnarkerfi gegn hugsanlegum árásum ríkja, sem styðja við bakið á hryðjuverkamönnum? Hvers vegna er Bandaríkjamönnum ekki tekið fagnandi, þegar þeir banka á dyr þessara þjóða? Ástæðan fyrir því er sú sorg- lega staðreynd að þessar þjóðir treysta Bandaríkjamönnum ekki. Þeir hafa haldið þannig á málum í samskiptum við aðrar þjóðir að þeim er ekki lengur treyst. Þeir hafa sýnt það í svo ríkum mæli að þeir hugsa ein- vörðungu um eigin stundar- hagsmuni, að þeir eru að missa það traust, sem aðrar þjóðir báru til þeirra. Þegar þeir þurfa ekki lengur á eldflauga- vörnum og ratsjám í Tékklandi að halda skilja þeir bara dótið eftir. Og svo bætir einn af aðstoð- arutanríkisráðherrum Banda- ríkjanna gráu ofan á svart með því að lýsa því yfir, að Tékkar muni að sjálfsögðu ráða yfir þeim hluta af landi sínu, þar sem gagneldflaugunum verður komið fyrir! Er það Bandaríkj- anna að lýsa því yfir?! Er hugs- anlegt að Tékkar hafi eitthvað um það að segja sjálfir?! Við Íslendingar höfum ríka ástæðu til að vantreysta Banda- ríkjamönnum. Framkoma þeirra við okkur síðustu 3–4 ár- in er með þeim endemum, að orð fá ekki lýst. Bandaríkjamenn munu því miður eiga eftir að kynnast við- brögðum sem þessum frá fleiri þjóðum en Tékkum og Pólverj- um. Morgunblaðið segir því miður vegna þess, að þetta volduga ríki í vestri hefur alla burði til að vera leiðandi afl í baráttu fyrir betra mannlífi um heim allan, fyrir lýðræðislegum stjórnarháttum og fyrir því, að mannréttindi verði virt. En þjóð, sem tekur upp á því sjálf að virða ekki mannréttindi getur ekki búizt við því að henni verði treyst. Þjóð, sem hefur uppi fagurgala við sam- starfsþjóðir til margra áratuga en snýr svo við þeim bakinu, þegar henni sjálfri hentar, get- ur ekki búizt við því, að henni verði treyst. Hvað skyldi hafa komið fyrir þessa auðugu og merku þjóð? Hvers vegna er hún að gleyma þeim gildum, sem gerðu hana merka? Það er ekki hægt að stjórna heiminum með pening- um og vopnum einum saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.