Morgunblaðið - 16.09.2006, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Gestur O.K.Pálmason fædd-
ist í Bolungarvík
hinn 25. maí 1930.
Hann andaðist á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 8.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Pálmi
Árni Karvelsson, f.
17.2. 1897 d. 21.2.
1958, og kona hans
Jónína E. Jóels-
dóttir, f. 18.11.
1903, d. 20.11.
1987. Systkini Gests eru Guðrún
f. 31.7. 1925, Sigríður Lovísa, f.
12.4. 1929, d. 23.9. 1944, Karvel,
f. 13. 7. 1936, og Kristný, f. 2.9.
1943.
Gestur kvæntist 24.12. 1955
eftirlifandi eiginkonu sinni Sig-
urborgu Sigurgeirsdóttur, f. 7.8.
1931. Foreldrar hennar voru
Sigurgeir Sigurðsson, f. 22.7.
1902, d. 28.7. 1995, og eiginkona
hans Margrét Guðfinnsdóttir, f.
29.3. 1909, d. 3.10. 1994. Börn
Gests og Sigurborgar eru: 1)
Ólafur Svanur, f. 27.11. 1951,
maki Alda Jóna Ólafsdóttir, f.
29.8. 1952, og á
hann einn son. 2)
Pálmi Árni, f. 2.10.
1957, maki Sig-
urlaug Halldórs-
dóttir, 9.11. 1959, á
hann þrjú börn. 3)
Sigríður Lovísa, f.
16.9. 1958, maki
Viðar Ernir Ax-
elsson, f. 3.5. 1953,
og eiga þau fjóra
syni. 4) Þórarinn
Sigurgeir, f. 31.12.
1960, maki Berg-
lind H. Bjarnadótt-
ir, f. 6.12. 1962, og eiga þau tvö
börn. 5) Davíð, f. 17.12. 1964,
sambýliskona Ásta Sóllilja Þor-
steinsdóttir, f. 23.7. 1972, og á
hann einn son.
Gestur ólst upp í foreldra-
húsum. Hann lærði húsasmíði
hjá Bjarna Magnússyni í Tröð og
starfaði hann lengst af ævi sinn-
ar við fag sitt. Hann starfaði
mikið með Lionshreyfingunni og
tók virkan þátt í starfi Félags
hjartasjúklinga á Vestfjörðum.
Útför Gests verður gerð frá
Hólskirkju í Bolungarvík í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Á kveðjustundu langar mig til að
minnast tengdapabba með nokkrum
orðum. Þó ég hafi ekki notið hans í
mörg ár varð ég þess fljótt áskynja
að hann var hlýr og umhyggjusamur
maður. Svolítið líkur afa mínum, sér-
staklega þegar kom að áhuga á veðri,
börnum og barnabörnum sem hon-
um þótti óendanlega vænt um.
Þegar ég kom fyrst vestur með
Davíð og sagði honum að ég væri að
sunnan innti hann mig eftir því hvort
væri ekki alltaf vont veður þar og
hvort nokkur sundlaug þar stæðist
sundlauginni í víkinni snúning. Þetta
finnst mér hafa verið svo einkenn-
andi fyrir hann, ánægður með
heimabæ sinn og fjölskyldu, það er
okkur til eftirbreytni sem oft höldum
að grasið sé grænna hinum megin.
Líka er eftirminnilegt 75 ára af-
mælið í maí í fyrra. Það var mjög
skemmtilegur dagur og veðrið eins
og hann vildi hafa það, sól og blíða,
jafnvel þó að það væri haldið hér fyr-
ir sunnan.
Sorgin er mikil hjá mörgum en
sennilega mest hjá Boggu minni, eig-
inkonunni sem hann mátti aldrei sjá
af enda fóru þar glæsileg og samhent
hjón.
Kærar þakkir fyrir samveruna og
hvíl í friði.
Ásta Sóllilja.
Elsku afi, takk fyrir að vera svo
góður við mig og kenna mér að smíða
og ég tala nú ekki um kofann sem þú
smíðaðir handa mér. Og takk fyrir að
fara svo oft í bíltúr og inn á sand með
mér og gefa mér svo margt, t.d. átt-
irðu alltaf smá nammi handa mér.
Ég man líka þegar við sátum saman
og vorum að hnýta á fyrir Þórarin
frænda og bátinn hans inni í stofu en
því miður var það ekki lengi. Og þú
komst svo oft í heimsókn og ég varð
alltaf jafn glaður að fá þig.
Hann afi minn var svo óskaplega
góður, svo blíður. Stundum þver og
stífur. Hann var fallegur og svo
bjartur. Gamall og lúinn. Sáttur,
mildur, friðsæll og svo tilbúinn.
Þú breiðir arma bjarta
og barnið faðmar þitt,
ég finn þitt heita hjarta,
og hjartað fagnar mitt.
Ég vil ei við þig skilja,
ég vel þitt náðarskjól;
mitt veika líf er lilja,
þín líkn er hennar sól.
(M. Joch.)
Góður Guð, passaðu afa á himnum
og huggaðu ömmu.
Gestur Ernir.
Í dag kveðjum við elskulegan
bróður okkar, Gest Pálmason, þökk-
um honum fyrir allar góðu stundirn-
ar, sem við áttum saman og minn-
umst þeirra með gleði. Við þökkum
honum fyrir fallegu smíðisgripina
sem hann gaf okkur. Þeir voru lista-
smíð. Hann brenndi líka fallegar
myndir á þá og var honum þá efst í
huga æskuheimili okkar og pabbi á
árabátnum sínum. Hann var smám
saman að hverfa frá okkur, en ljóð-
unum gleymdi hann ekki og svaraði
okkur oft í ljóðum.
Elsku bróðir.
Við andlátsfregn þína
allt stöðvast í tímans ranni.
Og sorgin mig grípur,
en segja ég vil með sanni,
að ósk mín um bata þinn
tjáð var í bænunum mínum,
en guð vildi fá þig
og hafa með englunum sínum.
Við getum ei breytt því,
sem frelsarinn hefur að segja,
um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög, sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár
og erfitt sé við hana að una,
við verðum að skilja
og alltaf við verðum að muna,
að guð, hann er góður
og veit hvað er best fyrir sína.
því treysti ég nú
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farinn þú sért
og horfinn burt þessum heimi,
ég minningu þína
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína ég bið síðan
guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir.)
Elsku Bogga. Kletturinn sem
aldrei brást. Við þökkum þér fyrir
allt sem þú varst honum. Elsku Óli,
Pálmi, Sirrý, Þórarinn og Davíð,
barnabörn og tengdabörn, megi
minningin um góðan mann ylja ykk-
ur um ókomin ár og gefa ykkur styrk
á erfiðum stundum.
Hann var ekki allra, en þegar inn
fyrir skelina var komið, sló viðkvæmt
hjarta. Við þökkum guði fyrir að
hann tók þig til sín þegar ekkert var
fram undan. Þar hafa beðið vinir í
varpa, sem hafa tekið vel á móti þér.
Guð geymi þig. Við sjáumst síðar.
Guðrún, Karvel og Kristný.
Þó að kali heitur hver
hylji dali jökull ber
steinar tali allt hvað er
aldrei skal ég gleyma þér.
(Skáld-Rósa.)
Elsku Bogga, Óli, Pálmi, Sirrý,
Þórarinn, Davíð og ykkar fjölskyld-
ur, megi góður Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Elsku frændi, þökk fyrir sam-
fylgdina, blessuð sé minning þín.
Hvíl í friði.
Kristín Karvelsdóttir.
Mágur minn Gestur O.K. Pálma-
son hefur kvatt jarðneskt líf eftir
marga dapra daga á undanförnum
mánuðum. Þau Sigurborg systir mín
áttu langa ævi saman eða allar götur
frá því þau voru unglingar og ég á
barnsaldri. Hefur hann því verið
samofinn fjölskyldu okkar í langan
tíma.
Gestur var dagfarsprúður maður,
nægjusamur að eðlisfari, hlýr og
virkilega góður heim að sækja með-
an hann var og hét og hafði gaman af
fólki. Hann var snyrtimenni svo eftir
var tekið og reglusamur í allri um-
gengni. Allir hlutir áttu sinn ákveðna
stað í kringum hann, hvort sem var á
vinnustað ellegar heima fyrir. Oft
brostum við systkinin og gerðum
gaman að þessari nákvæmni og upp í
hugann kemur „dótið“ sem hann
geymdi í eldhúsglugganum en því
mátti ekki hreyfa við fyrir nokkurn
mun. Hafði hann sjálfur lúmskt gam-
an af því ef gestir og gangandi höfðu
orð á þessu háttalagi hans, fékk við
það athygli, ræskti sig þá gjarnan,
brosti og var með svör á reiðum
höndum.
Hann var orðvar maður hann
Gestur og talaði ekki illa um náung-
ann en að sama skapi býsna opinn og
hispurslaus og fór ekki í grafgötur
með skoðanir sínar. Þannig átti hann
það til að setja fram athugasemdir
við fólk svona fyrirvaralaust en einn-
ig sló hann fólki gullhamra ef svo bar
undir og oftsinnis upplifði ég hól af
vörum hans. Þarna var talað í glensi
og alls ekki illa meint af hans hálfu,
heldur miklu frekar sagt til að ýta við
fólki og fitja upp á umræðuefni. Gesti
þótti nefnilega ekki leiðinlegt að
rabba og rökræða um menn og mál-
efni og ekki var verra ef viðmæland-
inn var á öndverðum meiði. Hann gaf
sig út fyrir að vera jafnaðarmaður og
lá ekki á liði sínu við að sannfæra
samferðamenn sína um allt það sem
jafnaðarmenn hefðu gert vel og
áorkað um dagana. Og oft sköpuðust
skemmtilegar umræður á léttum
nótum í þessu sambandi.
Gestur var fagurkeri, listhneigður
og ljóðelskur og kunni urmulinn all-
Gestur O.K. Pálmason
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar,
MARÍU RÓSU JAKOBSDÓTTUR,
Eyrarvegi 9,
Akureyri.
Jóhannes Haukur Jóhannesson
og aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGURBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Nesgötu 33,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
miðvikudaginn 13. september.
Jarðsungið verður frá Norðfjarðarkirkju miðviku-
daginn 20. september kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fjórðungssjúkrahúsið.
Sigríður S. Guðjónsdóttir, Geir Guðnason,
Guðmundur A. Guðjónsson, Ásrún Sigurbjartsdóttir,
Guðlaug Guðjónsdóttir, Helgi Magnússon,
Inga Rósa Guðjónsdóttir, Gísli Eiríksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur mágur og föðurbróðir okkar,
ÁSMUNDUR EYSTEINSSON
bóndi,
Högnastöðum,
Þverárhlíð,
lést á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, fimmtu-
daginn 14. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Lára Dagbjartsdóttir,
Sigurður Dagbjartsson,
Dagbjartur Bergþórsson,
Eysteinn Bergþórsson,
Þórunn Bergþórsdóttir,
Ingibjörg Bergþórsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÍVAR BJÖRNSSON
frá Steðja,
Bólstaðarhlíð 41,
lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 14. sept-
ember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gunnar Páll Ívarsson, Jónína Ragnarsdóttir
Símon H. Ívarsson, María J. Ívarsdóttir,
Andrea Margrét Gunnarsdóttir,
Katrín Sylvía Gunnarsdóttir, Gunnþór Jónsson,
Katrín Sylvía Símonardóttir,
Ívar Símonarson, Ástrún Friðbjörnsdóttir,
Svandís Ósk Símonardóttir, Axel Örn Sigurðsson,
Gunnar Páll, Heimir Páll og Hinrik Snær.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
KJARTAN PÁLSSON
bóndi,
Vaðnesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands miðviku-
daginn 13. september.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn
23. september kl. 13.30.
Helga Helgadóttir,
Guðmundur Jóhannesson, Þórleif Gunnarsdóttir,
Brúney Bjarklind,
Ragnhildur Eiríksdóttir, Magnús Tryggvason,
Heimir Kjartansson, María Kjartansson,
Birna Kjartansdóttir, Gísli Jón Bjarnason,
Páll Helgi Kjartansson, Salome Hansen,
Jón Steingrímur Kjartansson, Dóra Þórsdóttir,
Guðjón Kjartansson, Anika Bäcker,
Ólafur Ingi Kjartansson,
Svala Birna Sæbjörnsdóttir, Davíð Ben
og barnabörn.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR