Morgunblaðið - 16.09.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 53
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„BELLE époque er dásamlegi tím-
inn kringum aldamótin 1900, í
Frakklandi,“ segir Björn Steinar
Sólbergsson organisti, en hann spil-
ar tónlist frá „fallega tímabilinu“
eins og það útleggst á íslensku, í
Hallgrímskirkju kl. 12 á hádegi í
dag. „Þetta voru miklir uppgangs-
tímar í Frakklandi, uppgötvanir í
vísindum og listum; impressjónism-
inn, art nouveau, salon-tónlistin;
þetta voru friðartímar og ofboðsleg
bjartsýni. Allt snerist um glæsileika
og fegurð. Allt þetta hafði líka áhrif
á tónlistina – og orgelið. Þar komu
fram nýjungar. Orgelsmiðurinn
Cavaillé-Coll var þar fremstur í
flokki og starfaði náið með tón-
skáldum eins og Cesar Frank. Það
varð algjör sprenging í tónsmíðum
fyrir orgelið. Þetta var því mjög
heillandi og spennandi tími. Á tón-
leikunum ætla ég að spila verk frá
þessum tíma, – verk sem sýna líka
ólíkustu blæbrigði orgelsins,“ segir
Björn Steinar. Hann segir að Klais
orgelið eigi „alveg dýrlega“ við
þessa tónlist, og tengsl séu milli
raddskipunar þess og hugmynda-
fræðinnar hjá Cavaillé-Coll.
„Verkin sem ég spila eru annars
vegar mjög glæsileg, og hins vegar
mjög falleg, en þetta voru þeir tveir
pólar sem allt snerist um á belle-
époque tímanum. Þessi tónlist tekst
ekki á við stóru tilvistarspurning-
arnar; ég segi að þetta sé tónlist til
að heilla og gleðja.“
Kominn í tvær nýjar stöður
Nýbúið er að ráða Björn Steinar
organista í Hallgrímskirkju, við hlið
Harðar Áskelssonar kantors, en
Björn Steinar hefur verið organisti í
Akureyrarkirkju um langt skeið. Að
auki hefur hann verið skipaður
skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar
til eins árs. Því er eðlilegt að spyrja
Björn Steinar hvort hann sé að
flytja suður. „Nei, allavega ekki eins
og er. Ég fékk ársleyfi frá Akureyr-
arkirkju í vetur til að sinna störfum
hér í borginni. Ég hef starfað á Ak-
ureyri í 20 ár og fengið að blómstra
þar og verð með verkefni þar í vetur
eftir sem áður. Það er góður maður
að leysa mig af, Eyþór Ingi Jónsson,
og starfið mitt þar því í góðum
höndum meðan ég er hér. Ég er
hins vegar afskaplega glaður að
vera kominn til starfa í Hallgríms-
kirkju með sitt blómlega helgihald
og stórkostlega listastarf.“
Tónlist | Björn Steinar Sólbergsson
leikur tónlist frá fallega tímabilinu
Til að heilla
og gleðja
Morgunblaðið/Golli
Fallegt og glæsilegt Björn Steinar Sólbergsson kynnir hljóðheim orgels-
ins og leikur m.a. Bolero eftir Alexandre Lefebury-Wely, Notre Dame eftir
Leon Boëllman og Fantasíu eftir Camille Saint-Saëns.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Hvað eiga Andrea og Blúsmenn henn-
ar, Karlakórinn Hreimur, Mozart og
Erling Blöndal Bengtsson sameig-
inlegt, fyrir utan það augljósa – að
hrærast öll í tónlistinni? Öll taka þau
stefnuna á Laugarborg í Eyjafirði í
vetur, og taka þátt í tónleikahaldi þar,
sem nú er hafið, þriðja árið í röð.
Fjölbreytni er það fyrsta sem tekið
er eftir þegar dagskrárpési Laug-
arborgar er skoðaður, eða „bland í
poka“ eins og stjórnandinn, Þórarinn
Stefánsson, kýs að kalla það í inn-
gangi. Samlíkingin við pokablandið er
góð, því í vetrardagskránni er bæði
stórt og smátt, súrt, sætt og salt.
Nýmælin í vetur eru nokkur í Laug-
arborg; nefnum fyrst þjóðlagatónleika
Michaels Clarks og fleiri tónlistar-
manna, sem flytja nýjar þjóðlagaút-
setningar, en stefnt er að því að þjóð-
lagatónleikar með því sniði verði
árlegur viðburður . Unga fólkinu verð-
ur gert hátt undir höfði, bæði því
yngsta og þeim sem eru um það bil að
stíga inn í fullorðinsveröldina. Laug-
arborg verður í samstarfi við Tónlist
fyrir alla, og býður skólabörnum í
nærsveitum til tónleika, en krakkar
þar um slóðir hafa ekki notið Tónlistar
fyrir alla til þessa. Nemendur Listahá-
skólans fá líka tækifæri til að láta ljós
sitt skína norðanlands, því nemendur í
söng- og hljóðfæraleik flytja próf-
tónleika sína í Laugarborg í vor.
Ungliðar einnig í sviðsljósinu
Ungliðar sem komnir eru á legg
verða líka í sviðsljósinu. Elfa Rún
Kristinsdóttir Bach-verðlaunahafi
heldur tónleika með föður sínum,
Kristni Erni Kristinssyni, í febrúar,
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari
sem vakið hefur mikla athygli í
Bandaríkjunum heldur einleiks-
tónleika milli jóla og nýárs, og Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og
Víkingur Heiðar Ólafsson flytja sam-
an verk eftir Grieg og Schumann 5.
nóvember.
Fjöldi annarra söngtónleika verður
í Laugarborg í vetur, bæði kór-
tónleikar og einsöngstónleikar. Ólafur
Kjartan Sigurðarson og Vovka Ashke-
nazy bjóða upp á enska og íslenska
söngmúsík í apríl; Sigríður Aðalsteins-
dóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir
flytja frönsk og íslensk lög í nóv-
emberlok, og Guðrún Ingimarsdóttir
syngur með þeim Þórarni Stefánssyni
og Sigrúnu Eðvaldsdóttur verk eftir
Bach, Händel, Vivaldi og fleiri í maí.
Íslenskt skipar veglegan sess
Hanna Dóra Sturludóttir og Lothar
Odinius verða spaðakóngur og hjarta-
drottning á Vínartónleikum Laug-
arborgar og syngja með Salon-
hljómsveit Sigurðar I. Snorrasonar,
sem hlaut sitt músíkuppeldi meðal
annars í höfuðvígi valsakónganna.
Íslensk tónlist skipar veglegan sess,
því eins og í fyrra fer hluti Myrkra
músíkdaga, tónlistarhátíðar Tón-
skáldafélags Íslands, fram nyrðra í
febrúarbyrjun.
Systkini bræða íslensk lög
Einstaklega forvitnilegir tónleikar
verða 22. október, þegar óp-
erusöngkonan Ingibjörg Guðjóns-
dóttir gengur til liðs við bræður sína,
Óskar og Ómar, og djasshljómsveit
þeirra í tilraunakenndri bræðings-
meðferð á þekktum íslenskum söng-
lögum og nýjum lögum eftir hljóm-
sveitarmeðlimi, sem eru auk
bræðranna Tómar R. Einarsson og
Matthías Hemstock.
Fljóðið frá Færeyjum, Eivør Páls-
dóttir, verður í Laugarborg í byrjun
desember, en borgardóttirin Andrea
Gylfadóttir mætir með Blúsmenn
Andreu á tónleika 20. september.
Næstu tónleika í Laugarborg heldur
Peter Máté, sem spilar unaðsmúsík
eftir Janacek, Chopin, Liszt, Hjálmar
H. Ragnarsson og fleiri á morgun,
sunnudag, kl. 15. Reyndar verður
hægt að taka forskot á þá sælu, því
Peter leikur sama prógramm í Þor-
geirskirkju í dag, laugardag, kl. 15.
Hér er aðeins stiklað á stóru í vetr-
ardagskrá Laugarborgar, en hægt er
að kynna sér hana nánar á vef hússins.
Tónlist | Ungir tónlistarmenn áberandi í vetrardagskrá Laugarborgar
Peter Máté spilar
Janacek, Chopin og
Liszt um helgina
Píanórómantík Peter Máté leikur næturljóð og impromptu eftir Chopin,
Mefistóvalsinn eftir Liszt, Ballöðu eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Ungverska
bændadansa eftir Bartók og fleira á tónleikum sínum í dag og á morgun.
Morgunblaðið/Golli
TENGLAR
..............................................
http://www.eyjafjardarsveit.is
VALGERÐUR Briem (1914–2002),
var án efa einn áhrifamesti mynd-
menntakennari sem við höfum átt.
Hún kenndi börnum í Austurbæjar-
skólanum, myndlistarmönnum við
Handíða- og myndlistarskólann og við
Kennaraháskólann. Hún kom nálægt
flestu í sögu myndmenntakennslu á Ís-
landi frá upphafi og átti meðal annars
stóran þátt í að teiknikennsla var færð
niður í fyrstu bekkina í stað þess að
hefjast við tíu ára aldur. Hún var líka
án efa eini myndmenntakennarinn
sem kennt hefur börnum í útvarpi,
eins og hún gerði árið 1939.
Allan sinn starfsferil sinnti Val-
gerður fyrst og fremst kennslu en
hennar eigin myndsköpun var bundin
við frítímann. Hún sýndi verk sín ekki
oft en árið 1980 vöktu teikningar henn-
ar athygli á Haustsýningu Félags ís-
lenskra myndlistarmanna á Kjarvals-
stöðum. Það er því eðlilegt að á
sýningunni sem nú stendur yfir á
Gerðarsafni sé kennarinn Valgerður
einnig í sviðsljósinu. Skoðanir Val-
gerðar, kennsluaðferðir og nýjungar í
því sambandi koma ágætlega fram í
fallegri bók sem gefin hefur verið út í
tilefni sýningarinnar, þar sést glögg-
lega að hún var langt á undan sinni
samtíð, t.a.m. hvað varðar samþætt-
ingu námsgreina o.fl. Að einhverju
leyti hefur hún verið líkust list-
þerapista við kennsluna.
Landslagsmyndir unnar með bland-
aðri tækni fylla allan vestursal safns-
ins, um fimmtíu að tölu. Flókið samspil
lína, forma, bakgrunns og forgrunns
og niðurstaðan er í senn ofurraunsæ
svo minnir á ljósmynd og fullkomlega
abstrakt því engin leið er að negla
myndefnið niður. Margt kemur upp í
hugann, sneiðmynd af jarðvegi í anda
verka Jóhanns Eyfells, ljósmyndir af
sýnishorni á smásjárþynnu, nær-
myndir af jarðvegi, nú eða kannski
loftmyndir af tunglinu. Myndirnar eru
unnar af miklum aga, viðfangsefnið
sem ekki verður fært í orð er svipað á
þeim öllum. Aginn og ástríðan er svo
mikil og fjöldi myndanna slíkur að
jaðrar við áráttu, manni kemur í hug
skriftarárátta Laxness og teikniárátta
gamals nemanda Valgerðar, Errós. Í
austursal er síðan m.a. að finna And-
Lit Valgerðar. Hér vinnur ákaflega vel
saman agi lærðrar myndlistarkonu og
frjálst, ósjálfrátt vinnuferli og skapar
þetta saman eftirminnilegar myndir
sem minna jafnt á súrrealisma, art-
brut sem landslagsmálverk. Smáteikn-
ingar Valgerðar eru forvitnilegar og
sýna vel vinnuferli og hugsun listakon-
unnar, hálf-ósjálfráð teikningin er að
vissu leyti barn síns tíma, tíma síð-
súrralisma og drauma sjöunda og átt-
unda áratugarins.
Í austursalnum eru einnig borð þar
sem sjá má fallegar og leikandi teikn-
ingar Valgerðar af innanhúsmunum,
afar forvitnilegar vinnubækur hennar
úr kennslunni og vinnublöð með let-
urtýpum. Það er meiri léttleiki yfir
þessum sal en vestursalnum en miðað
við allar þær nýstárlegu, kraftmiklu og
frumlegu hugmyndir sem Valgerður
bjó yfir og kom í framkvæmd má
kannski spyrja sig að því hvort yf-
irbragð sýningarinnar í heild sé óþarf-
lega fastskorðað.
Af sýningunni er þó ljóst að Val-
gerður var listateiknari og áhugaverð
listakona, myndverk hennar eiga tví-
mælalaust sess í íslenskri listasögu.
Lífið í fyrirrúmi
MYNDLIST
Gerðarsafn
Til 1. október. Opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 11–17.
Aðgangseyrir: Fullorðnir 400 kr. Örorku-
og ellilífeyrisþegar 200 kr. Ókeypis á
föstudögum.
And-Lit, Valgerður Briem
Morgunblaðið/ÞÖK
Myndlistarmaður og -kennari „Valgerður kom nálægt flestu í sögu myndmenntakennslu á Íslandi frá upphafi og átti
meðal annars stóran þátt í að teiknikennsla var færð niður í fyrstu bekkina í stað þess að hefjast við tíu ára aldur. Hún
var líka án efa eini myndmenntakennarinn sem kennt hefur börnum í útvarpi, eins og hún gerði árið 1939.“
Ragna Sigurðardóttir