Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Hægviðri og skýjað með köfl- um en rigning um tíma suðaust- anlands. Hlýjast suð- vestanlands. » 8 Heitast Kaldast 10°C 17°C HAUSTLITIRNIR birtast nú óðum og lauf trjánna tek- ur senn að falla til jarðar. Enn er þó rúmur mánuður til fyrsta vetrardags og birtuskilyrði eins og að vori. Spáð er nokkuð vætusömu en mildu veðri á landinu fram yfir helgi en síðan mun snúast í norðaustanátt og kólnandi veður. Morgunblaðið/Ásdís Haust í Reykjavík KVIKMYND um Jón Pál Sigmars- son náði öðru sæti á lista um mest sóttu kvikmyndirnar síðustu daga. Í pistli Birtu Björnsdóttur í dag er athygli vakin á þessu, en þar segir m.a. að „Niðurstaðan [hljóti] að vera sérstaklega ánægjuleg fyrir aðstandendur myndarinnar þar sem nú stendur yfir kvikmyndahá- tíð, sem myndin var reyndar sýnd í tengslum við, og því framboð í bíó- húsum meira en venjulega.“ Birta segir jafnframt að „því miður [sé] það sjaldgæft að íslenskar myndir séu þær mest sóttu í kvikmynda- húsum landsins“. Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson Nýja myndin um Jón Pál vinsæl FRAM undan er langt og erfitt tímabil leiðréttingar í íslensku efna- hagslífi að því er kemur fram í um- sögn greiningardeildar Danske Bank um þær fréttir að dregið hafi úr hagvexti hér á landi á öðrum ársfjórðungi. Danski bankinn telur þetta þó góðar fréttir þar sem löngu hafi verið tímabært að herða ólina. Hagstofa Íslands gaf í gær út Hagtíðindi þar sem fjallað var um minnkandi hagvöxt og samdrátt í einkaneyslu hér á landi. Hagvöxtur var á öðrum ársfjórðungi 2,75% að raungildi frá sama tíma í fyrra, og er hagvöxtur það sem af er árinu mun minni en í fyrra. Meginástæð- an er ekki minnkandi framleiðsla eða útflutningur, þótt aðeins hafi dregið úr honum, heldur mikill samdráttur í vexti einkaneyslu. Einkaneysla jókst um 4,6% frá því í fyrra, en árið áður jókst hún um 12,3%. Þá hefur vöxtur fjármuna- myndunar dregist saman. Minnkar þrýsting til hækkunar stýrivaxta Mikið munar um það hve mjög hefur dregið úr vexti innflutnings, en á öðrum ársfjórðungi jókst hann um 6,3% miðað við 29% aukningu í fyrra. Greiningardeild Glitnis segir að miðað við þessar fréttir hafi dregið úr líkum á snarpri leiðrétt- ingu í íslensku efnahagslífi. Að lokum segir í skýrslu Danske Bank að þessi kólnun í íslensku efnahagslífi minnki þrýsting til hækkunar stýrivaxta. Ekki er gert ráð fyrir að tímabili vaxtahækkana sé lokið hjá Seðlabankanum, en til greina komi að næsta hækkun verði aðeins um 0,25% í stað 0,50% eins og verið hefur undanfarin skipti. Mjög dregur úr vexti einkaneyslu hér á landi Í HNOTSKURN »Hagvöxtur það sem af er árier mun minni en undanfarin misseri. »Kemur það einkum til vegnasamdráttar í einkaneyslu og minnkandi innflutnings. »Greiningaraðilar eru al-mennt sammála um að um góðar fréttir sé að ræða, en ís- lenskt efnahagslíf hafi mátt við kólnun sem þessari.  Verulega | 16 KJARTAN Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri og al- þingismaður, spyr Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt- ur menntamálaráðherra í grein í Morgunblaðinu í dag hvort hún geti tryggt honum aðgang að gögn- um um símahleranir stjórnvalda á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Samkvæmt jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar eigi hann rétt á aðgangi að gögnunum og fái hann ekki jákvæð svör á næstu dögum í þessum efnum verði hann að leita réttar síns hjá dómstólum. Kjartan rifjar upp að í vor hafi Guðni Th. Jó- hannesson sagnfræðingur lagt fram óyggjandi gögn um hleranir stjórnvalda hjá stjórnarandstæð- ingum á þessum tíma og þar á meðal séu verulegar líkur á að heimasími hans hafi verið hleraður. Heimildir til hlerana hafi verið fengnar með tilvísan til öryggis landsins sem jafngildi því að þeir sem hlerað hafi verið hjá hafi verið sakaðir um landráð. „Nú skyldi maður halda að hver sá sem fyrir slíku verður af hálfu dómsmálaráðuneytisins í heima- landi sínu, án þess þó að hafa nokkru sinni verið ákærður eða dæmdur, eigi 40 árum síðar rétt á að sjá öll gögn sem málið varða og enn eru varðveitt. Mörg okkar sem hlerað var hjá á fyrrnefndum ár- um eru nú látin en við sem eftir lifum viljum fá öll gögnin til skoðunar. Við viljum sjá hvernig dóms- málaráðuneytið rökstuddi hinar þungu ásakanir sínar í okkar garð, hvernig sakadómur rökstuddi leyfisveitinguna og ekki síst með hvaða hætti upp- tökum af einkasímtölum okkar var ráðstafað.“ Kjartan segir að gögnin séu geymd á Þjóðskjala- safni og honum hafi í tvígang í sumar verið neitað um aðgang að þeim, bæði um frjálsan aðgang og einnig um aðgang að þeim með sömu skilmálum og sagnfræðingurinn, þótt hann hafi reyndar einnig há- skólapróf í sagnfræði. Þess vegna spyrji hann ráð- herra tveggja spurninga sem æðsta yfirmann safns- ins „1. Telur ráðherrann að það geti samrýmst jafn- ræðisreglu stjórnarskrárinnar að mér, sem hef lögvarinna hagsmuna að gæta og hef reyndar háskólapróf í sagnfræði, sé neitað um sams konar aðgang að umræddum gögnum og annar sagnfræðingur hefur fengið? 2. Telur ráðherrann sig hafa möguleika á að tryggja mér nú á næstu dögum þann rétt sem jafnræðisregla stjórnarskrárinnar veitir mér til aðgangs að umræddum gögnum um símahler- anir á árunum 1949–1968?“ Krefst gagna um símahleranir  Spurt um | 38 MANNANAFNANEFND hefur samþykkt beiðni um karlmanns- nafnið Sókrates sem eiginnafn og verður það fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Sókr- atesar. Jafnframt samþykkti nefndin beiðni um kvenmannsnafnið Þeba sem eiginnafn, millinafnið Elvan, karlmannsnafnið Svani sem eig- innafn og verða þau færð á manna- nafnaskrá. Nefndin samþykkti auk þess beiðni um karlmannsnafnið Æsir sem eiginnafn og skal það fært á mannanafnaskrá ásamt eign- arfallsmynd þess, Æsis. | 8 Mannanafna- nefnd sam- þykkir Sókrates SÍÐUSTU bak- vakt við björgun- arþyrlur varnar- liðsins á Kefla- víkurflugvelli lauk í gærmorgun og geta nú Íslend- ingar eða sjófar- endur við landið engrar aðstoðar vænst úr þeirri átt. Samkvæmt leigusamningum Landhelgisgæslunnar á hún að fá tvær þyrlur afhentar 1. október. Frá 1971 hefur björgunarsveit varnarliðsins komið að björgun 310 manna. Tvö afrek standa upp úr að mati þeirra sem þekkja til, þ.e. þegar sex mönnum var bjargað af þaki björgunarskipsins Goðans í Vöðlavík árið 1994 og síðan árið 2001 þegar eina skipverjanum sem enn var á lífi úr áhöfn Svanborgar SH var bjargað við gríðarlega erfiðar aðstæður við Svörtuloft á Öndverðarnesi. Þyrlusveit varnarliðs- ins hætt  Þyrlunum | Miðopna ♦♦♦ ♦♦♦ TEKIÐ var fyrir erindi frá Hrauni íÖxnadal ehf. á síðasta fundi sveit- arstjórnar Hörgárbyggðar, þar sem óskað er eftir því að sveitarfé- lagið beiti sér fyrir því að stofnaður verði fólkvangur í landi Hrauns. Í umfjöllun á vefritinu bondi.is segir að sveitarstjórnin hafi samþykkt að vísa beiðninni um fólkvang til skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar við yfirstandandi að- alskipulagsgerð. Var nefndinni fal- ið að hefja undirbúning fyrir stofn- un fólkvangsins. Hraun í Öxnadal verði fólkvangur REYKJAVÍKURBORG mun halda veglega upp á tuttugu ára afmæli leiðtogafundar Ronalds Reagans og Míkhaíls Gorbatsjovs sem fram fór í Höfða 12.–13. október 1986. Meðal annars mun Gorbatsjov halda fyrirlestur um alþjóðamál og kalda stríðið en auk þess verður haldið málþing þar sem halda er- indi fræðimenn frá Bandaríkjunum og Rússlandi. Gorbatsjov mun einnig sitja há- degisverð í Höfða 14. október ásamt flestum þeim sem stóðu að fundinum, s.s. Davíð Oddssyni, þá- verandi borgarstjóra, Steingrími Hermannssyni, þáverandi forsætis- ráðherra, Matthíasi Á. Mathiesen, þáverandi utanríkisráðherra, og Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta Íslands. | 6 Gorbatsjov ræðir um kalda stríðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.