Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KRISTJÁN L. Möller og Einar
Már Sigurðarson, alþingismenn
Samfylkingarinnar í Norðaustur-
kjördæmi, héldu sínu í prófkjöri en
niðurstaða póstkosningar var kynnt
á Akureyri á laugardagskvöldið.
Kristján varð í fyrsta sæti, Einar
Már í öðru og Lára Stefánsdóttir
varaþingmaður í þriðja sæti. Röð
þriggja efstu á listanum við kosn-
ingarnar í vor verður því sú sama
og hjá flokknum í kjördæminu fyrir
fjórum árum.
Alls voru 2.834 á kjörskrá, 1.878
greiddu atkvæði eða 66,3%. Loka-
niðurstaða prófkjörsins, sem var í
formi póstkosningar, varð sú að
Kristján L. Möller hlaut 1.295 at-
kvæði í 1. sæti, Einar Már Sigurð-
arson 781 í fyrstu tvö sætin og Lára
903 í efstu þrjú sætin. Auðir og
ógildir voru 14, 0,7%. Gild atkvæði
voru 1864, 99,3%.
Mikil fjölgun
Félagsmönnum Samfylkingarinn-
ar í kjördæminu fjölgaði um ríflega
45% á síðustu vikunum fyrir próf-
kjörið og eru nú tæplega 3.000.
Benedikt Sigurðarson, aðjunkt
við Háskólann á Akureyri, sem sótt-
ist eftir fyrsta sæti listans en hafði
ekki erindi sem erfiði, var ekki
ánægður þegar úrslit lágu fyrir.
„Ég næ ekki þeim árangri sem ég
lét mig dreyma um á tímabili, en ég
get alveg viðurkennt að þegar mað-
ur sér hvernig skráning í flokkinn
skiptist þá kemur það ekki beinlínis
á óvart þótt niðurstaðan verði í
þessa veru,“ sagði hann.
Benedikt var spurður hvað hann
ætti við: „Bókstaflega það að þátt-
taka í þessum kosningum og skrán-
ing í flokkinn skiptist mjög á milli
byggðarlaga og það er alveg greini-
legt að Fjallabyggð og Fjarðabyggð
hafa gríðarlega mikið vægi í félag-
inu. Það er alveg skýrt,“ sagði hann.
Þess má geta að Kristján L. Möller
er úr Siglufirði, sem nú er hluti
Fjallabyggðar, og Einar Már Sig-
urðarson er úr Fjarðabyggð.
Hann sagði ljóst að gríðarlega
miklu munaði eftir svæðum hve
margir hefðu gengið í flokkinn en
það hefði ekki komið á óvart. Þegar
ákveðið hefði verið að beita þessari
aðferð hefði legið ljóst fyrir að hún
myndi gagnast þingmönnunum
tveimur mun betur en sér.
En telur hann listann sterkan?
„Ég held ég væri ekki sjálfum mér
samkvæmur ef ég svaraði því ekki
til að hann hefði getað orðið sterk-
ari öðruvísi. Ég er alveg sannfærð-
ur um það.“
Kristján L. Möller svaraði gagn-
rýni Benedikts á þann hátt, fyrst
varðandi aðferðina, að kjördæmis-
þing hefði ákveðið aðferðina, sem
væri sú sama og síðast og þá hefði
hún tekist vel. „Og það að við fáum
70% þátttöku sýnir að þetta er
ágætis aðferð.“
Varðandi fjöldann sagði Kristján
að um 2.000 félagar hefðu verið
skráðir þegar gengið var til leiks,
þeim hefði fjölgað um 750–800 fram
að prófkjöri „og það kemur alls
staðar að úr kjördæminu. Ég get
bara sagt að í húsi okkar eru marg-
ar vistarverur og allir velkomnir, og
það er hlutverk okkar frambjóð-
enda og flokksmanna að fjölga fé-
lögum sem mest og það hef ég alltaf
haft að leiðarljósi, hvort sem er í
kosningum, prófkjöri eða öðru“.
Þingmennirnir héldu velli
Kristján L. Möller sigraði örugglega í keppninni um efsta sæti á lista Samfylkingarinnar í NA-kjör-
dæmi og Einar Már Sigurðarson hélt öðru sæti. Þrjú efstu sætin eins skipuð og fyrir fjórum árum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægð Kristján L. Möller og Lára Stefánsdóttir fagna niðurstöðunni.
Benedikt Sigurðarson, sem sóttist eftir fyrsta sætinu, er vonsvikinn.
Í HNOTSKURN
»Þegar fyrstu tölur vorubirtar höfðu 500 atkvæði
verið talin, 27%. Þá var Krist-
ján í 1. sæti með 346 atkvæði,
Einar Már var annar með 192
atkvæði í 1.–2. sæti og Lára
var í þriðja sæti með 252 at-
kvæði í efstu þrjú sætin.
»Þegar talin höfðu verið1.200 atkvæði, 64%, var
Kristján enn efstur með 828
atkvæði, Einar Már annar með
485 og Lára þriðja með 581.
»Samþykkt var á aðalfundikjördæmisráðs í sept-
ember að kosning í þrjú efstu
sætin yrði bindandi, þó með
því fororði að tryggt væri að
bæði kynin ætti fulltrúa í þeim
sætum. Ekki þurfti því að
grípa til kynjakvótans.
»Alls fjölgaði um 45% í sam-fylkingarfélögum í kjör-
dæminu síðustu vikurnar fyrir
prófkjörið.
»Níu tóku þátt í prófkjörinuog varð röð annarra fram-
bjóðenda þessi: Ragnheiður
Jónsdóttir, Örlygur Hnefill
Jónsson, Jónína Rós Guð-
mundsdóttir, Benedikt Sigurð-
arson, Sveinn Arnarson og
Kristján Ægir Vilhjálmsson.
3"%4
5 %
36
&"
'"
("
. /#. 0
&"'1*
,-&
12(
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
KRISTJÁN L. Möller frá Siglufirði, 3. þingmaður Norð-
austurkjördæmis og varaformaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar, sagðist mjög ánægður með prófkjörið þegar
Morgunblaðið spjallaði við hann í Lárusarhúsi eftir að
síðustu tölur voru birtar.
„Ég er auðvitað mjög ánægður, fyrst og fremst fyrir
hönd flokksins með hvað prófkjörið tókst vel og hve
þátttakan var mikil. Svo get ég ekki verið annað en mjög
ánægður fyrir mína hönd, ég fæ góða kosningu og vil
færa öllu stuðningsfólki mínu kærar þakkir fyrir stuðn-
inginn,“ sagði Kristján. Aðspurður kvaðst hann ánægð-
ur með niðurstöðu prófkjörsins. „Ágætis barátta hefði
verið í prófkjörinu og mikið líf í flokknum. „Þetta er hin lýðræðislega nið-
urstaða og allir verða að vera kátir með hana,“ sagði Kristján. Hann segir
mörg mikilvæg verkefni á dagskránni á næstunni og hlakkar til barátt-
unnar. Hann nefnir skólamál í kjördæminu, bæði á framhaldsskóla- og há-
skólastigi, en ekki þurfi síst að berjast fyrir byggðamálum í víðasta skiln-
ingi, sem snúist um jafnrétti og jafnræði.
Mjög ánægður með prófkjörið
Kristján
L. Möller
„MÉR sýnist augljóst að við þingmennirnir höfum fengið
traustsyfirlýsingu flokksfélaganna. Að okkur var sótt en
við fáum afgerandi kosningu og svo virðist sem engin
stór hætta hafi verið á ferðum,“ sagði Einar Már Sigurð-
arson, sem varð í 2. sæti, í samtali við Morgunblaðið.
„Maður er alltaf ánægður með að ná þeim árangri sem
stefnt er að. Það virðist hafa verið býsna góð þátttaka í
prófkjörinu, einhverjir eru sárir en ég vona að særindin
séu ekki mikil.“ Spurður um ummæli Benedikts Sigurð-
arsonar um gífurlegan fjölda sem kosið hafi í Fjarða-
byggð og Fjallabyggð svarar Einar því til að Benedikt
hljóti að vera að leika sér með stuðla þegar hann nefnir
þessi tvö byggðarlög samtímis. „Ég kannast ekki við að óeðlilegur fjöldi
hafi tekið þátt í prófkjörinu í Fjarðabyggð. Ég vísa því til föðurhúsanna og
tel að þátttakan hér geti ekki talist óeðlileg miðað við það fylgi sem við telj-
um okkur hafa og höfum lengi haft. Langfjölmennasta samfylkingar-
félagið í kjördæminu er á Akureyri og ef einhvers staðar hefði átt að vera
hægt að nýta fjöldann þá skyldi maður ætla að það hefði verið þar.“
Fengum traustsyfirlýsingu
Einar Már
Sigurðarson
„ÉG ER alsæl með þriðja sætið,“ sagði Lára Stef-
ánsdóttir við Morgunblaðið þegar úrslit lágu fyrir á
laugardagskvöldið. Lára var í þriðja sæti listans við síð-
ustu alþingiskosningar fyrir fjórum árum og hefur verið
varaþingmaður á þessu kjörtímabili. Hún sóttist eftir
öðru sæti listans nú. „Maður verður að hafa metnað í
pólitík, það þýðir ekkert annað,“ sagði Lára.
Hún rifjaði upp að mjög litlu hefði munað að hún næði
sæti á Alþingi fyrir fjórum árum. „Ég datt út klukkan
hálfníu um morguninn, en við látum það ekki koma fyrir
aftur.“ Lára telur þrjú efstu sæti listans vel skipuð. „Mér
fínnst þetta fínn listi; skipaður þaulvönu fólki. Þetta er
það sem kjósendur telja vænlegast til sigurs í vor og það er það sem gildir.“
En á hvað vill hún leggja áherslu í kosningabaráttunni? „Það er fjölda-
margt, til dæmis atvinnumálin. Ég vil að fólk geti lifað og starfað með fullri
reisn. Að fólk hafi frelsi til búsetu hvar sem er í kjördæminu en sé ekki
þröngvað til þess að flytja eitthvað annað og sitji jafnvel uppi með verðlitl-
ar eignir. Fólk skiptir mig máli,“ sagði Lára Stefánsdóttir.
Lára alsæl með þriðja sætið
Lára
Stefánsdóttir
FORMAÐUR læknaráðs Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss (LSH) ritaði
framkvæmdastjóra LSH bréf 24.
október sl. þar sem stjórn lækna-
ráðsins lagði til við stjórnendur
sjúkrahússins að þeir tækju upp við-
ræður við Stefán E. Matthíasson,
fyrrverandi yfirlækni æðaskurð-
lækningadeildar LSH, um að hann
kæmi aftur til starfa á LSH. Var
þetta gert í kjölfar þeirrar ákvörð-
unar LSH að áfrýja ekki dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í máli Stefáns.
Skiptar skoðanir um vettvang
Síðastliðinn föstudag var haldinn
mjög fjölmennur tveggja tíma lang-
ur fundur læknaráðs LSH. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
spunnust þar heitar umræður um
málefni Stefáns. Var m.a. lögð fram
tillaga um stuðning við málstað hans.
Ekki voru greidd atkvæði um tillög-
una því fram kom frávísunartillaga
og var hún samþykkt með 48 at-
kvæðum en 40 voru á móti og þrír
sátu hjá, samkvæmt sömu heimild-
um.
Friðbjörn Sigurðsson, formaður
læknaráðsins, var spurður um af-
greiðslu fyrrgreindrar tillögu um
stuðning við málstað Stefáns. Hann
sagði nokkrar umræður hafa spunn-
ist um að hve miklu leyti tillagan
hentaði læknaráði. Læknaráðið væri
ekki stéttarfélag heldur fagráð og
ráðgefandi aðili. Sumum fundar-
manna hefði þótt stuðningstillagan
við Stefán vera meira í anda álykt-
unar stéttarfélags og að læknaráð
væri ekki réttur vettvangur fyrir
hana. Þess má geta að læknar á LSH
munu flestir vera í Læknafélagi
Reykjavíkur og félagið ályktaði ný-
lega um málið.
Ekki ágreiningur í læknaráði
Friðbjörn sagði ómögulegt að
túlka frávísun tillögunnar svo að
menn hefðu ekki haft áhyggjur af
þessum málum. Niðurstaða fundar-
ins væri að menn hefðu miklar
áhyggjur af þessum deilum innan
spítalans. Hann kvaðst hafa bent á
það í lok fundarins að ekki væri
ágreiningur um málið innan lækna-
ráðs og að enginn hefði gert athuga-
semd við bréf hans til forstjóra LSH.
Friðbjörn sagði að læknaráð LSH
hefði endurtekið fjallað um deilur
einstakra lækna við yfirstjórn LSH.
Ein helsta ástæða deilnanna væru
vandamál sem vörðuðu stjórnskipu-
lag sjúkrahússins. Því hefði lækna-
ráð lagt fram ítarlegar tillögur sem
væru til þess fallnar að bæta stjórn-
skipulag sjúkrahússins og þar með
þjónustu þess. Almenn sátt hefði
skapast um megininntak tillagna
læknaráðsins og því hvetti það til að
hugmyndir þess yrðu nú þegar sett-
ar í framkvæmd.
Ekki boðið að sitja fundinn
Stefán E. Matthíasson kvaðst
hvorki hafa séð bréf formanns
læknaráðs LSH frá 24. október sl. né
heyrt af því þegar viðbragða hans
var leitað í gær. Hann sagði að sér
hefði ekki verið boðið að sitja fund-
inn á föstudag og gæti hann því að-
eins tjáð sig um það sem hann hefði
heyrt af fundinum. Hann sagði að
sér þætti óeðlilegt að hafa ekki verið
boðið að sitja fundinn.
„Ekki síst vegna þess að lækn-
ingaforstjóri LSH hélt þar langa
tölu, sem mér skilst af þeim sem til
þekkja að hafi ekki verið í samræmi
við staðreyndir – að hluta til að
minnsta kosti. Það er afskaplega
óheppilegt að ég skuli ekki hafa verið
á staðnum til þess að andmæla því.“
Stefán kvaðst ekki hafa séð tillög-
una sem lögð var fram honum til
stuðnings á fundi læknaráðsins og
vísað var frá með frávisunartillögu.
„Mér skilst að tillagan hafi verið eitt-
hvað svipuð áliti Læknafélags
Reykjavíkur. Frávísunartillagan var
samþykkt með rúmlega helmingi at-
kvæða, svo efnisleg umræða um upp-
haflegu tillöguna fór ekki fram og
engin afstaða tekin til efnis hennar.
Mér skilst að þeir sem tóku til máls
hafi ýmist verið með eða á móti, aðrir
töldu ekki ástæðu til að ítreka þetta
frekar þar sem búið væri að ítreka
þetta frá Læknafélaginu og að málið
væri í einhverju ferli. Svo virðist sem
helmingur lækna spítalans líti þetta
einum augum og hinn helmingurinn
öðrum augum.“
Stjórn læknaráðs leggur til að stjórnendur LSH ræði við Stefán E. Matthíasson um endurráðningu
Miklar áhyggjur af deilum á LSH
Friðbjörn
Sigurðsson
Stefán E.
Matthíasson