Morgunblaðið - 06.11.2006, Side 16
16 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
IS
LB
I
34
64
6
10
/2
00
6Maður, náttúra og mynd
Í Landsbankanum, Austurstræti, í afgreiðslusal og á 2. hæð, eru sýnd
málverk í eigu Færeyjabanka eftir þrjá af helstu listamönnum færeysku
þjóðarinnar.
Ingálvur av Reyni
Sámal Joensen-Mikines
Zacharias Heinesen
Sýningin er opin á
afgreiðslutíma bankans
til 30. nóvember.
NÚ STENDUR yfir ljós-
myndasýning Sigurður Gunn-
arsson á Kaffi Mokka á Skóla-
vörðustíg. Um er að ræða
portrettmyndir af goðum Ása-
trúarfélagsins og Reykjavík-
urgoðorðs. Á sýningunni má
sjá níu svart-hvítar ljósmyndir
af goðunum þar sem þeir
standa í sínum goðorðum.
Valið á sýningarstaðnum er
ekki tilviljunarkennt því á
Kaffi Mokka fór fram umræða stofnenda Ása-
trúarfélagsins um stofnun félags um heiðin sið í
byrjun áttunda áratugarins.
Sýningin stendur til 6. desember.
Ljósmyndasýning
Goð í sínum goð-
orðum á Mokka
Eyvindur P.
Eiríksson
Á SKEMMTISTAÐNUM
Classic Rock í Ármúla 5 verður
haldið blúskvöld í kvöld.
Það eru hljómsveitirnar
Mood og Rætur sem stíga á
svið í kvöld en þess má geta að
Þorsteinn Einarsson, söngvari
og gítarleikari Hjálma, fer fyr-
ir Rótum.
Þessi blúskvöld verða viku-
lega á staðnum en þau eru
haldin í tengslum við útvarps-
þáttinn Bölverk sem einbeitir sér að því að breiða
út blúsfagnaðarerindið til landans í gegnum XFM
91,9.
Blúsinn hefst kl. 20.30 og aðgangur er ókeypis.
Blúskvöld
Mood og Rætur
á Classic Rock
Classic Rock
heldur blúskvöld.
MYNDLISTARMAÐURINN
Katrín Sigurðardóttir heldur
fyrirlestur um verk sín í
Listaháskóla Íslands í Laug-
arnesi kl. 12.30 í dag.
Katrín hefur sýnt víðs veg-
ar um Bandaríkin og hefur
nafn hennar verið skráð í al-
þjóðlegar uppflettibækur um
fremstu listakonur samtím-
ans. Hún lauk BFA-gráðu frá
San Francisco Institute of Art
og mastersnámi frá Mason Gross School of the
Arts, Rutgers University.
Hinn 9. nóvember nk. verður opnuð í i8 galleríi
sýningin „Stig“ með verkum Katrínar.
Fyrirlestur
Hefur sýnt víða
um Bandaríkin
Katrín
Sigurðardóttir
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÚT ER komin platan Magga Stína
syngur Megas en þar flytur hún
ellefu lög meistarans, og þar af
þrjú sem ekki hafa heyrst áður.
Blaðamaður hitti á Möggu á
ágætu kaffihúsi Kaffitárs í Þjóð-
minjasafninu og ræddi við hana
um þetta nýjasta ævintýri hennar.
Hent í plötu
Magga Stína segir að rekja
megi upphaf plötunnar til afmæl-
istónleika sem haldnir voru til
heiðurs Megasi í fyrravor. Þar
kom fram fjöldi listamanna sem
flutti lög eftir afmælisbarnið og
Magga Stína söng „Fílahirðinn frá
Súrín“.
„Hún hafði velkst svona hug-
myndin með okkur í nokkurn tíma
eftir þessa tónleika og á þessu ári
fór ég að velta því fyrir mér, hvort
maður ætti ekki bara að kýla á
það að henda í plötu. Í vor fórum
við svo saman í hljóðver, ég, Krist-
inn H. Árnason gítarleikari, Þórð-
ur Högnason kontrabassaleikari,
Hörður Bragason orgelleikari og
Matthías Hemstock trommuleik-
ari.“
Fer alla leið
Magga segir að þetta hafi verið
nokkuð þungt að mörgu leyti, eitt-
hvað sem má t.d. heyra í lagi eins
og „Björt ljós, borgarljós“.
„Þessar upptökur höfðu mikla
tilfinningalega þýðingu fyrir mig.
Eftir lagið sem þú nefnir hefði
maður sennilega þurft á nokkra
daga heilsuhælisvistun að halda.
Það má kannski kallast kostur en
er jafnframt heilmikill galli í mínu
fari að ég hef lítinn áhuga á því að
nálgast hluti nema að taka þá alla
leið. Ég sleppi því þá frekar. Það
getur verið dálítið óþægilegt á
meðan á því stendur en svo gefur
það manni líka margfalt eitthvað
annað óvænt og miklu betra til
baka.“
Magga valdi saman fleiri lög en
þau ellefu sem birtast á plötunni.
„Svo var þetta spurning um
hvaða lög færu „inn“, hvaða lög
væru semsagt að virka. Það var
líka mikilvægt að þau myndu tóna
einhvernveginn við huga minn.“
Til viðbótar við þau lög á plöt-
unni sem áður hafa komið út í
flutningi Megasar, lét hann Möggu
hafa þrjú ný lög, „Flökkusögu
ferðalangs“, „Óskina“ og „Deiglu“,
og í síðasta laginu syngja þau
meira að segja saman.
„Þetta er bara botnlaus brunn-
ur, Megas er náttúrulega sístarf-
andi. Hann sýndi mér mikinn
stuðning og hvatningu allan tím-
ann við vinnslu plötunnar og það
þykir mér ósegjanlega vænt um.
Stundum finnst manni það auð-
vitað jaðra við brjálsemi að vera
að reyna eitthvað við þessi lög,
Megas ristir það djúpt í mann með
sínum eigin flutningi að það má al-
veg kalla það fáranlega hugmynd
að ætla sér hlut eins og að gera
þennan disk. Það toppar hann ekki
nokkur manneskja í „performansi“
náttúrulega! En ég er samt mjög
hamingjusöm yfir því að hafa
gengist þessari „firru“ á hönd.“
Miklar æfingar
Magga segir að platan hafi tekið
mjög tilfinningalega á alla flytj-
endur, ekki bara hana eina.
„Og það er ekkert skrítið. Plat-
an tók annars ekki langan tíma í
upptökum, mestur tími fór í æf-
ingar. Guðmundur Kristinn Jóns-
son, snillingur, tók þetta upp með
okkur. Þannig að þetta var mjög
góður hópur. Og þessar útgáfur af
lögunum urðu eiginlega til af
sjálfu sér þegar þessir þungavigt-
armenn voru komnir saman í
hljóðverinu.“
Skáld sem kitlar
Eins og heyra má hefur Megas
gríðarlega mikla þýðingu fyrir
Möggu, og er hún engan veginn
ein um það.
„Ég held að hann hafi mikla
þýðingu fyrir alla sem á hann
hlusta. Hann er skáld sem kitlar
öllum undir iljunum, sama hvað
við erum gömul. Hann kveikir í
okkur, ruggar okkur í lendunum,
velgir okkur undir uggum og já,
víkkar bara út öll tilfinninga-
herbergin í manni,“ segir hún að
lokum. „Ég held að það sé bara
stundum kannski einhver örlítill
ótti hjá einstaka manni við það að
taka á móti því sem Megas hefur
að segja en það held ég að sé
mjög tímabundið ástand sem alls
ekki mun vara lengi. Ég held að
innst inni þráum við öll að fá að
njóta þess sem hann býður okkur
upp á,“ segir hún og brosir kank-
vís. „Þetta er bara einhver létt-
vægur ótti sem fólk þarf að yf-
irstíga. Og úr því að það þráir
hann ætti það með glöðu geði að
ganga með opinn faðminn til móts
við hann. Það verður svo ríkt af
því.“
Tónlist | Magga Stína syngur ellefu lög Megasar, þar af þrjú ný
Tekið á móti Megasi
Megasarlög Magga Stína segir að upphaf plötunnar, Magga Stína syngur Megas, megi rekja til afmælistónleika
sem haldnir voru til heiðurs Megasi í fyrravor. Þar kom fram fjöldi listamanna sem flutti lög eftir Megas.
Morgunblaðið/Sverrir
EINN vegsamaðasti kvikmynda-
leikstjóri dagsins í dag, Martin
Scorsese, vinnur nú að heim-
ildamynd um eina af langlífustu og
stærstu hljómsveit í heimi, Rolling
Stones. Scorsese, sem hefur áður
gert heimildamynd um Bob Dylan,
hóf tökur af bandinu í seinustu viku
en ráðgert er að myndin komi í
kvikmyndahús á næsta ári.
Rolling Stones-meðlimir eru nú
staddir í New York á Bigger Band-
heimstúrnum sínum. Þeir voru með
tónleika í Beacon-leikhúsinu þar í
borg þegar Scorsese hóf að mynda
þá. Myndir úr þessari hljóm-
leikaferð eiga að vera aðaluppi-
staðan í heimildamyndinni, auk at-
riða sem gerast á bak við tjöldin,
viðtala og gamalla mynda af hljóm-
sveitinni.
Engu er til sparað við gerð þess-
arar myndar og leikstjórinn hefur
fengið til liðs við sig sum af bestu
nöfnunum innan kvikmyndalist-
arinnar til að vinna að henni með
sér.
Scorsese hefur hingað til ekki
viljað tjá sig um verkefnið við fjöl-
miðla en áheyrendur komust ekki
hjá því að verða varir við það á tón-
leikunum í Beacon-leikhúsinu í lið-
inni viku. Leikhúsið tekur aðeins
2.800 manns í sæti og kvörtuðu
áhorfendur yfir því að hafa ekki
séð bandið almennilega fyrir kvik-
myndatökuvélum og öðrum tækjum
sem umléku það allan tímann.
Allir fjórir meðlimir Stones eru
meðframleiðendur að myndinni,
Paramount hefur keypt dreifing-
arréttinn fyrir Norður-Ameríku en
Fortissimo Films eru með alþjóð-
legan dreifingarrétt.
Martin Scorsese
vinnur að myndinni
Rokk Mick Jagger í Rolling Stones.
Heimilda-
mynd
um Stones