Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 37

Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 37
Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is Ég ætla mér að flytja aftur inn í frum-skóginn þegar aðstæður leyfa það.Ég er svört að innan þótt hörundiðsé ljóst,“ segir Sabine Kuegler, 33 ára kona af þýskum ættum sem fæddist í Nep- al 1972 og ólst upp í frumskóginum í Vestur- Papúa. Sabine hefur skrifað sögu sína sem er um flest afar sérstæð og bókin, Frumskóg- arstelpan, er komin út á vegum bókaforlagsins Útkalls. „Foreldrar mínir eru málvísindamenn og störfuðu á meðal ættflokks í Himalajafjöllum. Þar fæddist ég og var fyrstu þrjú ár ævinnar meðal frumbyggja,“ segir Sabine. Þaðan sneri fjölskyldan til Þýskalands og var þar næstu tvö árin, eða allt þar til faðir hennar fékk tilboð um starf í Vestur-Papúa. Þangað fluttust þau þeg- ar Sabine var fimm ára gömul. „Sama dag og við fórum frá Þýskalandi bárust fregnir af því starfsmenn byggingarfyrirtækis í nágrenni höfuðborgarinnar, Jayapura, hefðu orðið vitni að því þegar fjórir allsnaktir menn og fjað- urskreyttir, með bein í gegnum nefið, komu skyndilega út úr frumskóginum. Frumbyggj- unum var greinilega afar brugðið að sjá hvíta menn, og mæltu þeir fram orð sem náðist að skrá niður. Við nánari eftirgrennslan sérfræð- inga kom í ljós að um óþekkt tungumál var að ræða og óþekktan ættflokk, sem síðar fékk nafnið Fayu. Sérfræðingar vildu senda málvís- indamann inn í frumskóginn þar sem talið var að ættflokkurinn héldi til en vitað var að það gæti verið hættuspil þar sem dæmi var um mannát meðal frumbyggjanna. Faðir minn var talinn hugrakkur maður og það var leitað til hans. Í annarri ferðinni inn á svæðið fann hann Fayu-fólkið sem aldrei hafði hvítt fólk augum litið. Í þeirra huga erum við reyndar alls ekki hvít heldur litlaus. Þeim finnst við vera eins og lík sem hafa lengi legið í vatni. Við komumst að því að tvær kynslóðir Fayu-manna höfðu átt í innbyrðis átökum um landsvæði og höfðu sundrast í fjóra hópa. Þeir vildu gjarnan að stríðinu lyki en virtust þess ekki megnugir án hjálpar. Faðir minn hitti höfðingja ættflokks- ins og kvaðst gjarnan vilja búa á staðnum með fjölskyldu sinni en eingöngu með leyfi höfð- ingjans. Leyfið fékkst og þarna reisti faðir minn hús sitt í frumskóginum árið 1979. Ég var þá sex ára,“ segir Sabine. Börnin léku sér ekki Sabine rifjar upp þegar hún, systir hennar Judith og bróðir hennar, Christian, hittu Fayu-fólkið í fyrsta sinn. „Við vorum mjög ljós á hörund og bláeygð. Fólkið umkringdi okkur og við urðum hrædd. Ekki vegna þess að fólkið var nakið, með fjaðrir á höfðinu og bein í gegn- um nefið, heldur vegna þess hvernig það horfði á okkur. Við vorum eins og frá öðrum heimi og hringurinn í kringum okkur þrengdist. Þegar ég kallaði á pabba hörfaði fólkið frá og virtist undrandi á því að við gæfum frá okkur hljóð. Fayu-fólkið hafði aldrei áður séð hvít börn. Við vorum kynnt fyrir höfðingjanum og að því loknu féll allt í ljúfa löð og okkur var eingöngu sýnd dálítil forvitni.“ Morgunblaðið/Eyþór Frumskógarstelpan Sabine Kuegler er af þýskum ættum en fæddist í Nepal 1972 og ólst upp í frumskóginum í Vestur-Papúa. Ljós á hörund en svört að innan Bækur | Lifði í frumskógi Vestur-Papúa alla sína æsku  |mánudagur|6. 11. 2006| mbl.is Staðurstund Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glor- ious Nation of Kazakhstan fær fjórar stjörnur af fimm. » 45 gagnrýni Flugan sveimaði um borgina um helgina og tók m.a. þátt í löngum laugardegi, leit inn í gallerí og skoðaði hunda.» 39 flugan Bítillinn Paul McCartney og Heather Mills standa í hörðum skilnaði og alltaf er eitthvað nýtt að frétta af þeim. » 43 fólk Sæbjörn Valdimarsson gefur kvikmyndinni Óttalaus þrjár stjörnur af fimm mögulegum m.a fyrir flott bardagaatriði. » 41 gagnrýni Frank Aarnink slagverksleikari hélt tónleika í Norræna húsinu í 15:15-tónleikaröðinni og fær góða umsögn. » 38 umsögn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.