Morgunblaðið - 06.11.2006, Side 44
44 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
MÝRIN mogga tilb. gildir ekki kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
THE LAST KISS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára
WORLD TRADE CENTER kl. 10:30 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 8 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN.
Mogga Bíó í bíófyrir2 1 sjá miða framan á morgunblaðinu í dag gildir ekki á Borat né mýrina*
the last kiss
Vel gerð og rómantísk með
þeim Zach Braff („Scrubs“,
„Garden State“), Rachel
Bilson („The O.C.“
þættirnir) ofl.
eeee
EMPIRE MAGAZINE
Pennavinir
ritstjorn@mbl.is
Vont veður
„ÞRIÐJA leiðin gæti verið sú, að
vinna með markvissum hætti gegn
fjölgun bíla og aukinni notkun
strætisvagna. En er það raunhæf
leið á Íslandi, þar sem veður er oft
vont yfir vetrartímann? Tæplega.“
(Úr ritstjórnargrein Morgunblaðs-
ins týsdaginn 1. nóvember 2006.)
Þetta var snaggaralega afgreitt.
Var veður síður vont yfir vetrar-
tímann fyrir hálfri öld, þegar við
leiðarahöfundur vorum mennta-
skólastrákar? Þá voru strætis-
vagnar troðnir. Að vísu voru þá bið-
skýli á hverri viðkomustöð vagn-
anna, en nú er sjaldnast nokkurt
skjól fyrir veðrum og vindum á bið-
stöðvum.
Leiðakerfi vagnanna var stór-
bætt fyrir nokkrum misserum og
ýmsir vankantar lagaðir síðan, en
tekið var stökk aftur á bak þegar
ferðum var fækkað í sumar og
haust. Satt að segja virðist á flestan
hátt reynt að fæla menn frá því að
taka strætó. Farþegum er t.d. ekki
gefið til kynna hvað biðstöðvar
heita, ekki einu sinni á skipti-
stöðvum eins og Ártúni (þar er
reyndar hvorki nafn á stöðinni, skrá
um vagna sem hafa þar viðkomu, né
leiðbeiningar um hvar sé hægt að
komast í þá). Þeim sem ekki gjör-
þekkja bæði borgina og kerfið er
gert mjög erfitt um vik. Góð leiða-
bók bætir úr, en venjulega er hún
orðin úrelt.
Á því er enginn vafi að langsam-
lega besta og hagkvæmasta leiðin til
að leysa úr umferðaröngþveiti á höf-
uðborgarsvæðinu er að vinna með
markvissum hætti að fækkun bíla í
umferð og aukinni notkun strætis-
vagna. Hvaða vit er í því að tíu eða
tuttugu þúsund manns setjist á
morgnana upp í jeppann sinn til að
mjakast í vinnuna í þvögu, hafa jepp-
ann standandi fyrir utan yfir daginn,
setjast svo upp í hann aftur eftir
vinnusetuna og mjakast til baka
heim í þvögu? Þessir menn gætu
hæglega tekið strætó sem er á ferð-
inni hvort eð er, en vissulega þarf að
fjölga ferðum verulega.
Aukin notkun strætisvagna stuðl-
ar að minni loftmengun vegna um-
ferðar, þar á meðal minna svifryki
vegna nagladekkja. Hún minnkar
þörf á umferðarmannvirkjum og
bílakaupum og er þjóðhagslega hag-
kvæm. Því ættu strætisvagnar að
vera undanþegnir öllum opinberum
gjöldum og kostaðir af almannafé.
Fyrirtæki ættu að eiga þess kost að
bjóða starfsmönnum sínum strætó-
kort gegn því að þeir hætti að taka
upp bílastæði.
Haukur Jóhannsson,
verkfræðingur og
strætófarþegi.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
AURÉLIO M. Da Silva, sem er frá
Suður-Ameríku, óskar eftir íslenskum
pennavinum. Hann skrifar á ensku.
Aurélio M. Da Silva,
Rua Padre Nóbrega, 50
16400-726 Lins - Sp.
Brazil,
South-America - Br.
aurelio.machado@zipmail.com.br
FRANS Rodriguez, sem er frá Spáni,
óskar eftir íslenskum pennavinum.
Frans Rodriguez,
El Cercao Z,
04760 Berja,
Almeria,
Spain.
CELESTE Balboni, sem er frá Banda-
ríkjunum, óskar eftir íslenskum penna-
vinum. Hún er að vinna að verkefni um
Ísland í skólanum.
Celeste Balboni,
97 Buttrick Lane,
Carlisle, MA 01741,
U.S.A.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Gunnhildur Einarsdóttir og Guðný
Ósk Guðnadóttir, söfnuðu 3.818 kr. til
styrktar Rauða krossi Íslands. Á
myndina vantar Dagnýju Rós Elías-
dóttur.
Óhugnanleg fréttbirtist í Morg-
unblaðinu síðastliðinn
fimmtudag, ekki raunar
á forsíðu heldur á blað-
síðu fjögur. Þar kom
semsé fram að á þessu
ári hefðu 843 flutn-
ingabílstjórar verið
kærðir hjá lögreglunni í
Reykjavík fyrir brot á
umferðarlögum með því
að hafa vanrækt skyldur
um frágang á farmi og
hleðslu.
Með fréttinni fylgir
mynd sem sýnir svart á
hvítu að víða er pottur
brotinn í þessum efnum.
Haft er eftir Guðbrandi Sigurðs-
syni lögregluvarðstjóra að sumir at-
vinnubílstjórar virðist sér ekki
nægilega vel meðvitandi um þá
miklu ábyrgð sem hvíli á þeim.
Þetta eru orð að sönnu, raunar er
hægt að tala um tifandi tíma-
sprengju; spurningin er sú hvort
það þurfi virkilega að verða alvar-
legt slys til að menn taki sig á eða
hvort lögreglan þurfi að beita harð-
ari viðurlögum gegn þeim bíl-
stjórum sem standa ekki undir
þeirri ábyrgð sem hvílir á þeim.
x x x
Víkverji hefur lesið nokkrar bókaPatriciu Highsmith um siðvill-
inginn Tom Ripley.
Nokkrar bóka henn-
ar hafa verið kvik-
myndaðar, Víkverja
telst til að fimm leik-
arar hafi leikið Rip-
ley í jafn mörgum
myndum. Ríkissjón-
varpið sýndi í gær-
kvöldi fyrstu mynd-
ina, sem gerð var
eftir sögu Hig-
hsmith, en þar fer
Frakkinn Alain De-
lon með hlutverkið.
Þessi mynd var gerð
eftir sögunni The
Talented Mr. Ripley
en Matt Damon lék
Ripley í annarri kvikmyndagerð
sömu bókar löngu seinna.
Víkverji sá mynd í danska sjón-
varpinu um daginn sem Þjóðverjinn
Wim Wenders gerði en hún skart-
aði Dennis Hopper í hlutverki Rip-
leys. John Malkovich lék hann síðar
í annarri kvikmyndagerð sömu
sögu, Ripley’s Game. Loks hefur b-
leikari, Barry Pepper, leikið Ripley
en þá mynd hefur ekki rekið á þess-
ar fjörur ennþá.
Gaman væri að vita hvort sýning
myndarinnar í gærkvöldi væri upp-
hafið að sýningum allra þessara
mynda, en nokkuð þykir Víkverja
vanta upp á að RÚV sé á þematísk-
um nótum sem slíkum.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er mánudagur
6. nóvember, 310. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og
þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp-
lokið verða. (Matt. 7, 7.)
Hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Breska kvikmyndaakademían(BAFTA) veitti Britannia-
verðlaunin 2006 í Los Angeles síð-
astliðinn fimmtudag.
Þar voru Hollywood-goðsagnirnar
Clint Eastwood og Sidney Poitier
heiðraðir fyrir ævistarf sitt. Þá hlaut
breska leikkonan Rachel Weisz
verðlaun sem listamaður ársins og
landi hennar, leikstjórinn Anthony
Minghella, var verðlaunaður fyrir
framúrskarandi árangur á sviði leik-
stjórnunar.
Britannia-verðlaunin voru fyrst
veitt fyrir sautján árum. Þá voru ein
verðlaun veitt einstaklingi en ekki
kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum.
Síðan þá hefur hátíðin orðið viða-
meiri og nú voru fern verðlaun af-
hent.
Fólk folk@mbl.is Sveitasöngvarinn Keith Urban ernú sagður hafa farið í áfeng-ismeðferð þar sem kveðið sé á umþað í kaupmála hans og kvikmynda-
leikkonunnar Nicole Kidman að
hann fari í meðferð hefji hann áfeng-
is- eða fíkniefnaneyslu að nýju. Þá er
Kidman sögð hafa sett umrætt skil-
yrði inn í kaupmálann að kröfu fyrr-
verandi eiginmanns síns Tom
Cruise.
„Lögfræðingar Nicole settu skil-
yrðið inn til að sýna Tom að fortíð-
arvandi Keith myndi ekki hafa áhrif
á börnin, segir heimildarmaður
bandaríska tímaritsins US Weekly
en Nicole og Tom eiga saman tvö
ættleidd börn, Connor, 11 ára, og
Isabellu, 13 ára.
Þá staðhæfir heimildarmaður
tímaritsins að Kidman hafi frestað
áformum sínum um barneignir
vegna vanda eiginmannsins. „Nicole
mun ekki ráðgera barneignir fyrr en
hún er viss um að Keith sé kominn á
gott ról og laus við fíkniefni. Þau eru
bæði mjög ástfangin og hafa oft talað
um að stofna fjölskyldu en því hefur
verið frestað á meðan hann tekst á
við vanda sinn. Hún á þegar tvö börn
sem hún elskar mjög mikið og á
meðan hún þarf að annast um Keith,
með þessum hætti, er hún varla í að-
stöðu til að bæta fleirum við.
Börnin tvö munu að mestu hafa
dvalið hjá Cruise og unnustu hans.
Katie Holmes frá því Kidman og Ur-
ban gengu í hjónaband í sumar.