Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 4
„MÉR er óskiljanlegt að ríkið skuli gera kröfu í Þeistareyki,“ segir Friðbjörn Garðarsson, lög- maður hjá Regula lögmannsstofu, sem m.a. hefur unnið fyrir sveit- arfélög og fjölda landeigenda vegna þjóðlendukrafna ríkisins á svokölluðu svæði 5 á Norðaust- urlandi. „Þeistareykir voru jörð í eigu Múlakirkju. Síðar var jörðin seld og lögð til afréttar. Fyrirfram hefði ég talið hæpið að slík land- svæði gætu talist þjóðlenda nema eitthvað meira kæmi til.“ Frið- björn segir að þegar land sé úr- skurðað eða dæmt þjóðlenda verði það eftirleiðis á forræði ríkisins: „Ríkið getur ráðstafað öllum fast- eignarréttindum innan þjóðlendna gegn gjaldi ef því er að skipta. Það er því súrt í broti fyrir landeig- endur að réttindi, sem þeir hafa talið sig eiga til þessa, séu tekin af þeim bótalaust og jafnvel framseld gegn gjaldi. Ég vil ekki saka stjórnvöld um að ásælast dýrmætar auðlindir með þessum hætti en á svæðum 5 og 6 er gerð krafa í landsvæði þar sem dýrmætar auðlindir eru. Álver á Húsavík er t.d. innan seilingar að margra mati og bendir margt til þess að Þeistareykir verði virkj- aðir og orkan nýtt til þess að knýja álverið ef af framkvæmdum verður. Tilraunaboranir þar lofa gríðarlega góðu og svæðið virðist nánast ótakmörkuð orkuupp- spretta. Með nýjustu þjóðlendu- kröfum sínum er ríkið að ásælast háhitasvæðin við Þeistareyki, sem eru í eigu Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar, og einnig háhita- svæðin við Gjástykki.“ Fasteignir nánast í gíslingu „Enn fremur valda þessi mál tortryggni á fasteignamarkaði,“ segir Friðbjörn. „Málum fyrir austan, á svæði 5, er ekki enn lok- ið og lýkur kannski ekki fyrr en eftir u.þ.b. tvö ár ef dómstólaleiðin verður farin. Hver ætli vilji kaupa jarðir af bændum og landeigend- um á þessum svæðum á meðan á þessu þrasi stendur? Þessar jarðir eru nánast í gíslingu meðan þetta ástand varir og það er grafalvar- legt mál.“ Þjóðlendukröfur ríkisins á svæði 6 snerta marga tugi jarða, bæði beint þar sem kröfur ríkisins ná inn fyrir þinglýst landamerki og þar sem kröfugerð fer eftir landa- merkjum jarða. Hvað varðar þjóðlendukröfurnar á svæði 5, norðaustan Vatnajökuls, er nú búið að flytja málin og óbyggðanefnd hefur fengið þau til úrskurðar. Friðbjörn vonast eftir úrskurði kringum áramótin en slíkt sé þó engan veginn víst. Ríkið hafi gert kröfu í gríðarlega mikið land á áhrifasvæði Kárahnjúka- virkjunar. Nái þær fram að ganga, sem ekki sé vitað, verði um 55– 60% af orkunýtingarrétti þeirra fallvatna sem koma til með að knýja Kárahnjúkavirkjun á for- ræði ríkisins og þar sem ríkið eigi Landsvirkjun þurfi það væntan- lega ekki að borga sjálfu sér krónu. Ekki áhrif á þjóðgarðsstofnun Um bótakröfur landeigenda við Jökulsá á Dal vegna missis orku- nýtingarréttinda, en Regula hefur unnið mikið fyrir þá aðila, segir Friðbjörn þau mál væntanlega verða flutt snemma á næsta ári. „Ágreiningurinn verður síðan lagð- ur í hendur matsnefndar en máls- aðilar geta skotið úrskurði hennar til almennra dómstóla og það er nýmæli í ágreiningsmálum af þessu tagi, því ef gerðardómsleið væri farin hefði það ekki verið hægt.“ Hvað hugsanlega stofnun Vatna- jökulsþjóðgarðs snertir segist Friðbjörn ekki telja að sjónarmið um stofnun þjóðgarða og verndun svæða komi eignarhaldi við og því eigi þjóðlendukröfur ríkisins ekki að hafa áhrif á það ferli. Til stendur að halda almennan fund um þjóðlendukröfur ríkisins á svæði 6 fljótlega, þar sem lögmenn Regula munu fara nánar yfir kröfugerð ríkisins. Ásælist ríkið virkjan- legar náttúruauðlindir? Þjóðlendukröfur ríkisins á svæði 6 snerta marga tugi jarða Í HNOTSKURN »Þeistareykir og Gjástykkifalla undir þjóðlendukröf- ur ríkisins á svæði 6 og allt að 60% af orkunýtingarrétti þeirra fallvatna sem knýja munu Kárahnjúkavirkjun á svæði 5. »Jarðir innan kröfusvæðaríkisins eru óseljanlegar meðan úrskurðar er beðið. »Vonast er eftir úrskurðióbyggðanefndar um svæði 5 í kringum áramót. »Málflutningur vegnavatnsréttindakröfu land- eigenda við Jökulsá á Dal á hendur Landsvirkjun fer fram snemma á næsta ári. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Morgunblaðið/BFH Rautt, grænt og blátt Litadýrð er mikil á háhitasvæði Þeistareykja. 4 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík Sími 588 0200 –www.eirvik.is -hágæðaheimilistæki Miele þvottavélar Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr. 114.800 -hreinn sparnaður 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS vi lb or ga @ ce nt ru m .is HALLDÓR Guðbjarnason, fram- kvæmdastjóri Visa Ísland, hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu og fer á eftirlaun. Full sátt er um starfslok hans, en Halldór hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins síðustu sjö ár. Halldór, sem er orðinn sextugur, sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa hugsað sér að fara með fyrra fallinu á eftirlaun. Fram undan séu miklar breyting- ar hjá Visa næstu eitt til tvö árin. Fyrirtækið gangi vel og aldr- ei betur en nú og því hafi þetta verið talinn rétti tíminn til að gera þessar breyting- ar. Halldór Guðbjarnason hættir hjá Visa Ísland Halldór Guðbjarnason Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is STJÓRN Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar telur heppilegra að hluti þeirra skuldabréfa að minnsta kosti, sem borgin fékk sem greiðslu fyrir eignarhlut í Lands- virkjun og renna mun til lífeyris- sjóðsins, sé með föstum vöxtum til að minnka áhættu sjóðsins vegna mögulegrar vaxtalækkunar, í um- sögn til borgarráðs vegna fyrir- spurnar þar að lútandi. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar sjóðsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að í þessari afstöðu fælist engin afstaða til samninganna um sölu á eignarhlutnum í Lands- virkjun sem slíkum heldur einungis ábending um að heppilegra væri að að minnsta kosti hluti þessara skuldabréfa, sem rynnu til sjóðsins, væru með föstum vöxtum. „Ég geri engar athugasemdir við þennan samning í sjálfu sér og hef lýst því yfir áður að ég telji það bara mjög heppilegt að borgin selji þennan hlut sinn í Landsvirkjun,“ sagði Al- freð. Samfylking tekur undir niðurstöðu stjórnar LSR Hann sagði að stjórn sjóðsins væri einungis að benda á það vegna fyrirspurnar þar að lútandi að það væri heppilegra og hentaði hags- munum sjóðsins betur að að minnsta kosti hluti þessara skulda- bréfa væri með föstum vöxtum. Á fundi borgarráðs í gærmorgun, laugardag, höfðu borgarráðsfulltrú- ar Samfylkingarinnar ákveðið að taka undir niðurstöðu stjórnar Líf- eyrissjóðs starfs- manna Reykja- víkurborgar í þessum efnum og leggja til að samningar um sölu Landsvirkj- unar yrðu teknir upp aftur til að ná fram ásættan- legri niðurstöðu fyrir borgarbúa. Í athugasemd frá Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni borgarstjóra af þessu til- efni segir að það hafi aldrei verið markmið samningsaðila að greiðslu- samningnum yrði ráðstafað á fjár- magnsmarkaði. Lífeyrissjóðnum hefði aldrei verið ætlað að fá greiðslusamninginn til frjálsrar ráð- stöfunar. 4,43% vextir nú „Samningur ríkisins og sveitarfé- laganna kveður á um að ríkið gefi út verðtryggð skuldabréf með vöxtum sem eru hinn 9. nóvember 2006 4,43%. Vextir skuldabréfanna eru breytilegir sem þýðir að sveitar- félögin fá markaðsvexti á hverjum tíma. Í svari lífeyrissjóðsins er vísað til reglugerðar um tryggingafræði- legt mat á verðbréfaeign lífeyris- sjóða. Þar er tilgreint að miða skuli við að vextir á skuldabréfum með breytilegum vöxtum skuli lækkaðir um 1,5% áður en þau eru núvirt. Þessari reglugerð var breytt hinn 9. nóvember sl. á þann veg að við nú- virðingu skuli aldrei reikna með lægri vöxtum en 3,5%. Þar með á fullyrðing lífeyrissjóðsins um afföll á skuldabréfunum ekki við,“ segir einnig. Heppilegra að skuldabréfin séu með föstum vöxtum Alfreð Þorsteinsson Framkvæmdir við undirbúning lóðarinnar fyrir tónlist- arhús í Reykjavík ganga vel. Grunnurinn er orðinn djúp- ur en af efstu hæð gamla Eimskipshússins má fylgjast með verktökunum grafa sig æ dýpra undir sjávarmál. Unnið undir sjávarmáli Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.