Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ 14. nóvember 1976: „Á fundi, sem Landsmálafélagið Vörð- ur efndi til fyrir nokkru lýsti Ólafur Björnsson, prófessor og fyrrum alþingismaður, þeirri skoðun sinni, að þótt við mikil vandamál hefði ver- ið að etja á undanförnum misserum í efnahagsmálum væri stærsti vandinn þó kannski eftir. Með þeim orð- um átti þessi þrautreyndi efnahagssérfræðingur við, að það væri kannski erfiðast af öllu að halda efnahagsbat- anum, sem byrjaður væri að koma í ljós, í réttum skorðum svo að allt færi ekki úr bönd- um á ný. Þetta er áreið- anlega rétt. Vandinn fram- undan er sá að missa ekki tökin á batanum og það er sízt auðveldara en það verk- efni, sem við hefur verið glímt að undanförnu. Þess er þó að gæta að nú er fyrst og fremst um að ræða vanda sem fylgir vaxandi velgengni en ekki þann vanda, sem tengdur er kreppu og stjórn- leysi.“ . . . . . . . . . . 9. nóvember 1986: „Á miklu ríður að útvegurinn fái að nýta þann árangur, sem nú er í hendi, til að greiða niður gamlar skuldir og byggja upp eigin fjármagn að nýju. Fimmtán ára samfelldur hallarekstur, á verðbólgu- tímabilinu, hefur bundið út- gerðinni þunga skuldabagga, auk þess sem lítil sem engin endurnýjun hefur orðið í flot- anum. Um síðustu mán- aðamót námu skuldir útvegs- ins við olíufélögin, ein sér, langleiðina í hálfan annan milljarð króna, eða sem svar- ar tíu mánaða viðskiptum.“ . . . . . . . . . . 10. nóvember 1996: „Í skipu- lagsmálum gamla miðbæj- arins togast nefnilega margs konar hagsmunir á. Í fyrsta lagi eru það verndunarsjón- armiðin, sem áður er lýst og hljóta að hafa forgang. Það eru vissulega almannahags- munir að gömul bygging- arlist sé varðveitt og henni sómi sýndur. Miðborgin er andlit Reykjavíkur út á við, auk þess sem svipur hennar og ástand er mikilvægur þáttur í þeirri ímynd, sem Reykvíkingar sjálfir hafa af borginni sinni. Í öðru lagi eru einkahags- munir eigenda gamalla húsa. Ekki hafa allir metnað eða fjármuni til að halda merkum húsum við eða gera þau upp í upprunalegri mynd. Það er ekki óeðlilegt að Reykjavík- urborg styrki menn til slíkra hluta eða kaupi af þeim eign- ir þeirra, sé henni í mun að vernda húsin.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. DAGUR HELGAÐUR FEÐRUM Í fyrsta skipti er dagur helgaðurfeðrum í dag, sunnudaginn 12.nóvember. Sú ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að taka upp feðradag, að tillögu félagsmálaráðherra, hefur verið tilkynnt Almanaki Háskólans, sem hefur staðfest að nýtt dagsheiti, feðradagur, verði formlega skráð í Almanakið fyrir árið 2008. Eflaust heyrast þær raddir að upptaka feðradags skipti engu máli í jafnréttisumræðunni, ekki frekar en að maðurinn í gönguljósinu verði kona í pilsi. Þetta hafi jafnvel aðeins þýðingu fyrir blómabúðir. En form- legar breytingar hafa mikið að segja þrátt fyrir allt, þær gefa ákveðin skilaboð til samfélagsins og bera nýjum tíðaranda vitni. Er það ekki tímanna tákn að feðradagur sé tek- inn upp hér á landi í fyrsta skipti árið 2006 þegar slíkur dagur hefur verið haldinn hátíðlegur víða erlendis frá upphafi síðustu aldar? Mæðradagur hefur verið fastur liður í tilverunni á Íslandi annan sunnudag í maí frá árinu 1934. Þá hafa börn á öllum aldri verið minnt á að þau eigi móður og að nú sé ástæða til að gera eitthvað fyrir hana. Það hefur auðvitað verið undarlegt fyrir börnin að á hverju ári rynni upp mæðradagur, en það væri aldrei nein sérstök ástæða til að minnast pabba síns. Enda voru feður lengst af í hlut- verki fyrirvinnunnar, jafnvel tugi eða hundruð sjómílna frá landi, dög- um eða mánuðum saman, og fylgdust lítt með því sem fram fór innan veggja heimilisins; móðirin sinnti um börnin. Eftirminnilegt er ljóð Jóns úr Vör: Og manstu gleði þína á miðri nóttu, er þú vaknaðir við, að á koll þinn var lagður vinnuharður lófi og um vanga þinn strokið mjúku og hlýju handarbaki. Fóstri þinn var kominn – og kyssti þig, er þú lagðir hendur um háls hans. Og það var enn kul í sjóvotu yfirskegginu. Og næsta morgun var blár steinbítur á héluðum hlaðvarpasteini, og sól sindraði í silfri ýsuhreisturs, – og hamingja hins fátæka manns. En flestir feður tóku auðvitað virkan þátt í uppeldi barna sinna, eða eins og aðstæður leyfðu, og þeg- ar þeir voru heima voru þeir nálægir. Þeir sýndu jafnvel tilfinningar. Þannig lýsir Guðjón Friðriksson heimkomu Einars Benediktssonar árið 1887 eftir nær þriggja ára úti- vist í Kaupmannahöfn: „Benedikt Sveinsson tekur á móti syni sínum á bryggju í Reykjavík, faðmar hann að sér, þrýstir fast og fellir tár.“ Auðvitað er það ekki þannig að börn bíði feðradagsins til að gleðja pabba sinn eða að karlmenn verði að- eins föðurlegir þennan dag. En ber ekki að fagna öllum tilefnum sem þjappa fjölskyldum saman? Og það er ekki aðeins formið sem mótar efn- ið, heldur mótast það af efninu. Kjarni málsins er sá að tímarnir hafa breyst. Karlmenn taka meiri þátt í heimilisstörfum og uppeldi barna en áður, ekki síst yngri kyn- slóðin. Það óraði engan fyrir því að nánast allir feður myndu nýta sér fæðingarorlof eftir að því var komið á. Sú löggjöf er ef til vill stærsta skref í þágu karlmanns sem föður sem stigið hefur verið hér á landi. Feður fá þá kærkomið tækifæri til að vera hjá börnum sínum og tengjast þeim tilfinningaböndum. Eftir því sem þau bönd eru þéttofnari, þeim mun betur halda þau. Og feður verða líklegri til að verja enn meiri tíma með börnum sínum. Ekki síður er þetta mikilvægur áfangi fyrir feður sem eiga fá tækifæri til að vera með börnum sínum, hvort sem það er vegna vinnu eða fjölskylduaðstæðna. Það var lofsvert framtak hjá Mar- gréti Blöndal og Inger Önnu Aikman að hafa frumkvæði að því að óska eft- ir því við félagsmálaráðherra að sér- stakur dagur yrði helgaður feðrum hér á landi. Nú geta íslenskir pabbar hlakkað til feðradagsins. Þá verður börnunum hugsað til þeirra – og eig- endum blómabúða. Á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar var ekki jafn mikill friður um verkalýðshreyfinguna og nú er. Ástæðan var sú að verkalýðs- félögin sjálf voru vettvangur mik- illa pólitískra átaka. Alþýðuflokk- urinn hafði framan af ráðin í verkalýðshreyfingunni enda voru skipulagsleg tengsl á milli Alþýðuflokks og Alþýðusambands. Með klofningi Alþýðuflokksins 1938 og stofnun Sameiningarflokks alþýðu-Sósíalistaflokks, sem varð til með sameiningu Kommúnistaflokks Ís- lands og vinstri arms Alþýðuflokksins, sem þá laut forystu Héðins Valdimarssonar, varð breyt- ing á og Sósíalistaflokkurinn varð smátt og smátt mest ráðandi innan verkalýðsfélaganna og ASÍ. Þegar komið var fram yfir 1950, og kalda stríðið var skollið á, var verkalýðsfélögunum markvisst beitt í pólitískum átökum. Það varð til þess að flokkarnir hófu að búa um sig innan verkalýðsfélaganna og Sjálfstæðisflokkurinn náði þar meiri árangri en búast hefði mátt við í fyrstu. Sá maður, sem hélt utan um þessa baráttu Sjálfstæðisflokksins í verkalýðsfélögunum á þessum árum, var Gunnar Helgason, sem jarð- settur var sl. miðvikudag. Hann var einn af föstu punktunum í tilveru þeirra sem störfuðu innan Sjálfstæðisflokksins á þeim árum. Flokkur er ekki bara þeir sem starfa í fremstu víglínu á Al- þingi eða í ríkisstjórn eða í sveitarstjórnum. Flokkur er líka þeir sem starfa að tjaldabaki frá degi til dags. Lengst af var Gunnar Helgason í þeim hópi. Á þessum árum kom fram sterk sveit nýrra forystumanna í verkalýðsfélögum úr Sjálf- stæðisflokknum, bræðurnir Guðjón Sigurðsson, sem vann glæstan sigur í Iðju, félagi iðnverka- fólks og Pétur Sigurðsson, sem um langt árabil var í forystu fyrir sjómönnum, og Sverrir Her- mannsson og Guðmundur H. Garðarsson á vett- vangi samtaka verzlunarmanna, svo einhverjir séu nefndir. Gunnar Helgason var maðurinn sem vann hina daglegu vinnu og hélt þessum hópi saman. Verkalýðshópurinn var dálítið sér á parti innan Sjálfstæðisflokksins og það hefur ekki verið auð- velt fyrir þá sem störfuðu innan verkalýðsfélag- anna að koma þar fram sem sjálfstæðismenn en það hefur heldur ekki verið auðvelt að halda þeim saman. Þeim sem fylgdust með Gunnari að störfum á þessum árum fannst hann alltaf vera í símanum. Hann virtist óþreytandi í að tala við fólk, sem getur líka verið erfitt á stundum. Og rak mikla fyrirgreiðslustarfsemi við einstak- linga, sem var þáttur í pólitík þeirra tíma. Gunnar Helgason naut augljóslega mikils trausts forystumanna Sjálfstæðisflokksins á þessum árum, þeirra Ólafs Thors, Bjarna Bene- diktssonar, Gunnars Thoroddsens og Jóhanns Hafsteins. Um miðjan Viðreisnaráratuginn tók hann sæti í borgarstjórn Reykjavíkur og átti þá samstarf við Geir Hallgrímsson, sem þá var borgarstjóri í Reykjavík. Og ekki tilviljun, að við útför hans voru saman komnir þeir þrír menn, sem síðan hafa gegnt formennsku í Sjálfstæð- isflokki, þeir Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson og Geir H. Haarde. Starf Gunnars Helgasonar og félaga hans skil- aði þeim árangri að sjálfstæðismenn náðu fót- festu í verkalýðshreyfingunni og sköpuðu sér þá vígstöðu að vinstri menn urðu að tala við þá. Undir lok þessa tímabils varð til eins konar óformlegt bandalag á milli sjálfstæðismanna í verkalýðshreyfingunni og þeirra Hannibals Valdimarssonar og Björns Jónssonar. Það hafði gífurlega þýðingu í harðri pólitískri baráttu kaldastríðsáranna. Á milli Morgunblaðsins og Gunnars Helgason- ar voru töluverð tengsl á þessum árum, sem rit- stjórn Morgunblaðsins þakkar að leiðarlokum. Forsagan Þ að hefur verið fróðlegt að fylgjast með umræðum síðustu daga um útlendinga á Íslandi, umræðum, sem hlaut að koma að. Þegar fyrst var farið að tala um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusamband- inu fyrir mörgum áratugum var ótti við útlend- inga sterkasta einkenni þeirra umræðna. Þeir sem þá þegar töldu að slík aðild kæmi ekki til greina voru þeirrar skoðunar m.a. vegna þess að þeir óttuðust að útlendingar mundu fjölmenna hingað. Þá voru aðstæður aðrar. Þjóðin var nýbúin að öðlast sjálfstæði. Útlendingar voru enn að veiða okkar fisk úti fyrir ströndum landsins, sem var augljóst arðrán hinna gömlu nýlenduvelda í Evr- ópu, sem höfðu látið greipar sópa um auðlindir annarra þjóða um allan heim og orðið ríkar á því og þjóðin var ekki búin að gleyma sambýlinu við Bandaríkjamenn sem voru ótrúlega fjölmennir hér á árum heimsstyrjaldarinnar síðari. Svo hafa einhver einkenni þjóðernisstefnu, sem einkenndi okkar heimshluta á fyrri hluta 20. aldarinnar, náð hingað. Síðan gerðist margt. Fleiri og fleiri Íslend- ingar fóru til náms í öðrum löndum og komu heim með breiðari sýn á umheiminn og til- veruna. Þjóðin fór að ferðast til annarra landa í stórum stíl þannig að allur almenningur fór að horfa á umheiminn með öðrum augum. Ein- hverjir hópar útlendinga höfðu komið hingað til lands og komið sér vel. Á árunum fyrir seinna stríð og eftir að það var hafið komu hingað nokkrir erlendir tónlistarmenn, sem áttu mikinn þátt í að leggja grundvöll að því mikla tónlistar- lífi, sem við getum státað af. Á árunum eftir stríð kom svolítill hópur þýzkra kvenna hingað og hóf störf, aðallega í sveitum en þá þegar var orðið erfitt um vinnuafl í sveitum. Eftir uppreisnina í Ungverjalandi 1956 komu hingað nokkrir ung- verskir flóttamenn. Yfirleitt átti þetta fólk nokk- uð auðvelt með að samlagast íslenzku samfélagi. Víetnamstríðið og lyktir þess leiddi svo til þess að hingað kom nokkur hópur flóttamanna úr þeirri heimsálfu. Þá mátti aftur greina hinn gamla ótta við útlendinga. Þá hringdu málsmet- andi menn á ritstjórn Morgunblaðsins og hvöttu til þess að blaðið hæfi baráttu gegn komu útlend- inga hingað til lands. Þegar þeim hinum sömu var boðið að lýsa þeim skoðunum undir eigin nafni í blaðinu útskýrðu viðmælendur að það gætu þeir að sjálfsögðu ekki gert undir sínu nafni en blaðið hlyti að geta gert þeirra sjón- armið að sínum. Sem ekki var gert. Smátt og smátt höfum við öðlast reynslu á þessu sviði sem í öllum megindráttum hefur ver- ið góð. Það er augljóst af tali manna á milli að út- lendingar eru í miklum metum ef þeir eru dug- legir að vinna. Og þannig hafa innflytjendur frá Asíu öðlast virðingu Íslendinga. Þeir hafa verið duglegir að vinna og koma sér fyrir. Það kunna Íslendingar að meta. Hið sama á við um Pól- verja. Þeir eru duglegir að vinna og eftir því taka landsmenn. Þegar horft er yfir farinn veg verður ekki annað sagt en þjóðin hafi haft gott af þessari blöndun, alveg frá því að fyrstu erlendu Laugardagur 11. nóvember Reykjavíkur Frímínútur í Melaskóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.