Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 63
Í síðustu heimsóknunum duldist engum að hún var orðin fársjúk en baráttuandinn var enn til staðar. Við kveðjum Auði með innilegu þakklæti fyrir ómetanleg störf, hreinskiptni hennar, stuðning og hressilega samveru í gegnum árin. Okkur, sem lengst höfðum starfað með henni, verður minningin um hana alla tíð samofin okkar eigin lífi og starfi eins og verða vill þegar fólk er samvistum alla daga áratugum saman. Hetjuskapur hennar í barátt- unni við sjúkdóm sinn er okkur öll- um fordæmi. Elsku Andrés, Lína, Sighvatur, Ómar Andrés, Sigga, Silla og aðrir ættingjar, við á Veirurannsókn send- um ykkur öllum innilegar samúðar- kveðjur. Samstarfsfólk á veirufræðideild LSH. Ég hef stöðugt undrast þann styrk og kraft sem Auður sýndi í barátt- unni við krabbameinið – og þó ekki. Svona var hún nefnilega gerð. Við deildum kjörum um langt árabil á Rannsóknastofu Háskóla Íslands í veirufræði við Eiríksgötu og börnin okkar voru saman í Hálsakoti, sem var foreldrarekið barnaheimili. Þeg- ar því var lokað kom tími þar sem við vorum í raun eins og framlenging hvor af annarri. Þetta kom til af því að gift fólk fékk einungis 4 klst. vist fyrir börn undir skólaaldri á leikskól- um og skóladagurinn í yngstu bekkj- um grunnskóla var 2–3 klst. Við feng- um heimild til að hafa vinnutímann sveigjanlegan og iðulega byrjaði önn- ur okkar eldsnemma en hin tók við um miðjan daginn og vann fram á kvöld. Hvort sem við unnum þannig eða gátum verið í vinnunni á sama tíma var samvinna okkar algjörlega hnökralaus. Við vorum orðnar eins og gömul hjón, það þurfti fá eða eng- in orð til að láta hlutina ganga. En lífið var ekki bara saltfiskur. Það voru haldin eftirminnileg partí og afmæli, farið í Brekkuskóg og matarveislur haldnar. Kússkússið hans Andrésar er meðal bestu mál- tíða sem maður man eftir og þá var sko ekki jafn auðvelt og nú að finna framandi hráefni til matargerðar. Það var einstaklega gott að leita til Auðar, hvort sem bónin var stór eða smá. Hún var sannur vinur og gaf af sér, skilyrðislaust. Hún hafði ríka lund og gat rokið upp, en var sem klettur þegar eitthvað bjátaði á í al- vörunni. Hún var afar vel gefin og skýr í hugsun og svolítið stríðin. Það var gaman að sjá til hennar á spít- alanum núna í haust, komandi bæði starfsfólki og gestum í opna skjöldu með dálítið svörtum húmor. Svo hló hún stríðnislega og maður dáðist að stoltinu sem skein í gegn og var henni svo eðlislægt. Allt frá því meinið greindist var baráttan hörð og stöðug og Auður var alltaf reiðubúin að halda áfram og prófa næsta lyfjakokkteil þegar sá síðasti var hættur að hafa áhrif. Ást hennar til fjölskyldunnar gaf henni mikinn kraft því velferð þeirra skipti hana öllu máli. Umhyggja þeirra og kærleikur umvafði hana og þau gerðu henni kleift að dvelja eins lengi heima á Tómasarhaganum og nokkur kostur var. Hún notaði líka tímann til að hitta vini og vanda- menn, spila bridds, fara í sumarbú- staðinn, á kaffihús og almennt séð að njóta lífsins eins og kostur var. Við Hermann og börnin okkar sendum Andrési, Línu, Sighvati, Ómari Andrési, Siggu, Sillu og öðrum ætt- ingjum og vinum innilegar samúðar- kveðjur. Sigríður Guðmundsdóttir, (Sigga G.). Auður Antonsdóttir líffræðingur var í starfsmannahópnum sem lagði grunn að Rannsóknarstofu Háskólans og Landspítalans í veirufræði fyrir rúmum 30 árum. Átti hún sinn stóra þátt í því að vel gekk að koma rannsóknarstarf- seminni í gang. Auður vann síðan í fullu starfi að veirurannsóknum og kennslu alla sína starfsævi og lá ekki á liði sínu. Hún vann að margs konar verkefnum til greininga á bráðum veirusýkingum og rann- sókna á árangri ónæmisaðgerða gegn þeim. Var hún alla tíð einn af burðarásunum í starfi rannsóknar- stofunnar og lét sér annt um hag hennar fyrr og síðar. Hún kynnti sér tækninýjungar og var mjög ötul við að koma þeim inn í rannsókn- arstarfið. Kom það að ómetanlegu gagni. Auður var mikil félagsvera. Hún gekk ung í félag íslenskra náttúru- fræðinga og gegndi þar ýmsum trún- aðarstörfum árum saman af sama dugnaði og hún vann störf sín á rannsóknarstofunni. Barátta Auðar við banvænt krabbamein síðustu tvö árin var engu lík þó að sjúkdómurinn yrði að lokum sigurvegarinn. Við, sem eftir lifum, viljum helst sjá þann skæða sjúkdóm krabbamein verða fyrir áföllum líka, ef hægt er. Hér er gós- enland til alls konar sjúkdómarann- sókna, ekki síst krabbameinsrann- sókna. Þær ættum við að efla af miklum krafti því að mörgum spurningum er ósvarað. Við gætum t.d. reynt að svara betur en gert hef- ur verið spurningunni hvað það eig- inlega er sem veldur því að hraust fólk í blóma lífsins verður krabba- meini að bráð á svo skömmum tíma? Hér á landi gæti verið auðveldara að finna svör við þessari mikilvægu spurningu en á nokkrum öðrum stað. Um leið og ég kveð Auði að leið- arlokum og þakka henni langt og gott samstarf með þessum fátæk- legu orðum langar mig til að senda Andrési, Línu, Sighvati, Siggu syst- ur og öðrum í fjölskyldu Auðar inni- legar samúðarkveðjur. Margrét Guðnadóttir. Það er undarleg tilfinning að standa nú í þeim sporum að kveðja hana Auði. Ekki að það hafi ekki verið fyr- irséð undir það síðasta að stríðið við krabbann hlyti að tapast, en uppgjöf var aldrei til í hennar huga. Barátta síðustu tveggja ára hafði verið upp á líf og dauða. Þann tíma nýtti hún vel, fór norður í bústað, fór með fjölskyld- unni til Kaupmannahafnar, stundaði kaffihúsin óspart með vinahópunum og síðast en ekki síst naut hún sam- vistanna við ömmustrákinn sinn. Við Auður unnum ærið lengi sam- an, allt frá því við hófum störf á „Veirunni“ beint af skólabekknum. Þá mátti telja starfsfólkið á fingrum annarrar handar, en smám saman fjölgaði samstarfsfólkinu, einkum eftir að flutt var af Keldum niður á Landspítalalóð. Við deildum vinnu- stað í á fjórða áratug, oft skrifstofu- aðstöðu og síðast tölvu eftir að sú tækni hélt innreið sína. Samstarf okkar var mjög gott og aldrei bar skugga á það, setið var yfir dönskum krossgátum í pásum og síðar mogga- gátunum framundir það síðasta. Ógleymanlegar eru einnig ferðirnar á veirufundina í gegnum tíðina, vítt og breytt um Evrópu. Á þessum tíma fór Auður til náms og rannsókna til Kaupmannahafnar með fjölskylduna vetrarlangt. Seinna brá hún sér svo í annað starf um stundarsakir er hún tók að sér starf framkvæmdastjóra Félags ís- lenskra náttúrufræðinga um skeið, hafði enda starfað sem formaður fé- lagsins, þekkti innviði þess betur en flestir og var oftar en ekki aðalmað- urinn í kjara- og stéttarbaráttu okk- ar. Hún kom aftur á gömlu veiruna og vann þar svo lengi sem stætt var. Auður var einstök samstarfskona og einstök manneskja og ég kveð hér traustan vin. Við Ingimar og dætur okkar send- um fjölskyldunni okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Skarð Auðar verður vandfyllt og minningin um hana mun ekki blikna. Sigrún Guðnadóttir. Ég vann í stóru happdrætti árið 1993 þegar ég kynntist Auði. Það var MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 63 Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919                   ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SNORRA HELGASONAR. Þórdís Todda Jónsdóttir, Helgi Snorrason, Þóra Sigurþórsdóttir, Jón Snorrason, Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir, Páll Snorrason, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, RÚNARS PÉTURSSONAR vélstjóra, Garðabraut 21, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A-deildar Sjúkrahúss Akraness, HB-Granda , Kiwanisklúbbn- um Þyrli og Ásgerðarsystrum. Guð blessi ykkur öll. Guðný Jónsdóttir, Guðfinna Rúnarsdóttir, Birgir Guðnason, Rúnar Örn og Guðný Sara Birgisbörn, Ingibjörg M. Kristjánsdóttir, Fjölnir Lúðvígsson, Rúnar Máni Baldursson, Birta Líf og Helga Lind Fjölnisdætur. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts JÓNS GUÐLAUGSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóra Sælgætisgerðarinnar Opal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki við hjúkrun- arheimilið Sóltún fyrir kærleiksríka umönnun og allar góðu samverustundirnar. Magnús Heiðar Jónsson, Inge Christiansen, Guðlaugur Gauti Jónsson, Birgir Rafn Jónsson, Ingibjörg Norberg, Sturla Már Jónsson, Steinunn Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ROSE E. HALLDÓRSSON, Reynimel 61, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Frank M. Halldórsson, Betsy Halldórsson, Georg Halldórsson, Stefanía Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU ALEXANDERSDÓTTUR, Sörlaskjóli 28, Reykjavík. Minný Ísleifsdóttir, Guðrún Ísleifsdóttir, Haukur V. Guðmundsson, Ísleifur Ólafsson, Jóhanna L. Hauksdóttir, Ingibjörg R. Hauksdóttir. ✝ Þökkum innilega sýnda samúð og hlýjar kveðjur við andlát og útför, SIGURÐAR M. HELGASONAR fyrrverandi borgarfógeta. Þorbjörg Gísladóttir, Guðný Sigurðardóttir, Héðinn Jónsson, Gísli H. Sigurðsson, Birna G. Hjaltadóttir, Helgi M. Sigurðsson, K. Soffía Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, REYNIR JÓNSSON, Álfaskeiði 100, 220 Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 1. nóvember síðastliðinn á Líknardeild Landspítalans. Útför hans fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 9. nóvember síðastliðinn að ósk hins látna. Jón Benóný Reynisson, Halla Rún Friðriksdóttir, Ólöf Kristjana Reynisdóttir, Hafsteinn Jakob Pétursson, Hjördís Reynisdóttir, og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.