Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 40
við manninn mælt 40 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Þ að fer ekkert á milli mála hvar hjarta Jódísar Kristínar Jósefsdóttur slær. Innan um myndir af ástvinum á stofu- veggnum í húsi við Norðurgötu á Ak- ureyri, flestar svarthvítar, er ljós- mynd af ljóðskáldinu Davíð Stefánssyni. – Þarna eru brúðkaupsmyndir og fjölskyldumyndir, segir hún og horfir yfir myndirnar, og Davíð Stefánsson. Hann gaf mér myndina. Mér finnst hún ekkert lík öðrum myndum af honum, – hann er svo góðlegur þarna, blessaður. – Þú ert mikill ljóðaunnandi. – Ég byrjaði að safna ljóðum fjög- urra ára og hef safnað þeim síðan, eins og ég mögulega get. Mín allra fyrsta ljóðabók var Skólaljóð – kvæðasafn handa unglingum til að lesa og nema. Pabbi gaf mér hana þegar ég var fjögurra ára. Hún sækir velkt eintak og sýnir blaðamanni. – Svo kraup ég við rúmið, las Skúlaskeið og grét, – það var svo sorglegt. – Þú hefur verið læs þá? – Já, ég lærði að lesa öfugt. Það var verið að láta Svein bróður stafa, ég sat hinumegin við borðið og lærði að lesa á haus. Ég er enn ansi fljót að lesa á móti mér. Það er það skemmti- legasta sem komið hefur fyrir mig, – að verða læs. Hún horfir yfir bækurnar. – Ég ætlaði mér alltaf að eignast mikið af fallegum ljóðabókum og svo kom þetta smátt og smátt. Ég keypti gamlar bækur hvar sem þær urðu á vegi mínum og við Stefán [Eiríksson] vorum bæði í sambandi við Braga Kristjónsson. Stefán átti enga ljóða- bók þegar ég kynntist honum; ég gaf honum fyrstu bókina, ljóð eftir Stein- grím Thorsteinsson. Jódís fæddist 16. maí árið 1928 á Búrfelli í Hálsasveit og fluttist 5 ára gömul í Þverárhlíð, þar sem hún bjó til 16 ára aldurs. – Þá kom dálítið los á mig. Ég fór fyrst í kaupavinnu vestur á Slitvinda- staði í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Það var hvasst þar. Þetta var tvíbýli, uppeldissystur konurnar og bænd- urnir bræður. Þeim kom svo illa sam- an að um leið og hundarnir fóru að gjamma, þá rifust þeir líka. Ég tók að mér að semja frið og gerði það í gegnum kerlingarnar. Ég sagði við Sigrúnu húsmóður mína að Steinunn systir hennar hefði sagt mér hvað hún hefði verið falleg ung. Ég sagði Steinunni að Sigrún hefði sagt mér hvílíkur dugnaðarforkur hún væri. Svo fóru þær að tala saman og árið eftir voru þær farnar að bjóða hvor annarri í kaffi. Jódís horfir íbyggin á blaðamann. – Ég laug þessu. Þær höfðu aldrei sagt þetta. En ég hafði séð á mynd hvað Sigrún hafði verið falleg, segir hún, flogin aftur í tímann, þagnar eitt vængjatak og heldur áfram fluginu: – Þetta var yndislegur tími í Stað- arsveit; ég hef aldrei verið eins ham- ingjusöm og þar. Ég á enn vini það- an, eins og Jóhannes Pálsson sem býr núna í Hveragerði. Vinátta okkar var eins og hjá konum, – við gátum setið á þúfu og sagt hvort öðru sénsa- sögur. Jódís lítur rannsakandi á blaða- mann, glettni í augnaráðinu, og bætir við: – Viltu vita meira? – Já! – Þegar ég var 15 ára kynntist ég manni sem hét Þorkell Árnason. Hann var 23 ára og við opinberuðum eftir hálfan mánuð. Þetta er satt! En við vorum lítið saman, hann fór suð- ur, ég var fyrir norðan og það slitnaði upp úr þessu um veturinn. Ég hef lít- ið talað um þetta. En mér þótti óskaplega vænt um hann og þykir enn. Hann fórst með Júlí veturinn 1959 og ég á minningarstein um hann uppi í kirkjugarði með nafni hans og dánardægri, sem ég set alltaf blóm á. Jódís vann lengi á Amtsbókasafn- inu, fyrst í afleysingum um sumar- tíma og svo í útlánum. – Ég fékk 800 krónur á mánuði og fannst það alltof lítið, þó að ég þyrfti svo sem ekki á peningunum að halda. Ég hringdi í Davíð Stefánsson [skáld frá Fagraskógi], sem var í bókasafns- nefnd, gamall bókavörður og var oft á safninu. Ég kynnti mig fyrir honum og þéraði hann þá, hann þéraði svo marga. Ég sagði að ég væri að hugsa um að biðja um kauphækkun. Hann spurði hvað ég fengi í kaup. Ég sagði það og að ég vildi fá 1.500 krónur. Þá sagði Davíð: „Ég ræð því nú ekki.“ Ég vissi að hann væri að skrökva því. Svo ég sagði: „Ég veit þér getið það alveg.“ Hann sagði: „Nei, þér skuluð tala við Árna Johnsen [gjaldkera].“ Svo hringi ég í Árna daginn eftir og segi við hann að ég ætli að biðja um kauphækkun. Þá segir hann af asna- skap: „Já, Davíð var búinn að tala við mig og nefndi 1.500 krónur.“ Ég hringdi í Davíð og sagði: „Ég ætla nú að þakka yður fyrir. Þér hafið lagt inn góð orð með mér við Árna.“ Og hann svaraði: „Það var nú ekki nema sjálfsagt. Þér eruð svo einstaklega drengileg.“ Þetta er það fallegasta sem nokkurn tíma hefur verið sagt við mig. Enda var þetta skáldið sem ég dáðist svo að. Hann þéraði mig óbeint fyrstu árin þegar hann kom á safnið. Mér fannst þetta skrýtið og sagði við hann: „Eig- um við ekki bara að þúast Davíð?“ „Jú, jú,“ sagði hann .„Það er bara ekki til siðs að karlmenn bjóði það.“ Eftir það þúaði hann mig alltaf. Ég man að Árni varð hissa þegar hann kvaddi mig: „Ja, vertu blessuð, bless- uð.“ Hann tvítók svo oft það sem hann sagði. – Vann hann með þér á safninu? – Ekki þá, hann var orðinn gamall maður og blandaði lítið geði við fólk. Einu sinni settist hann hjá litlum strák, Þorvaldi Kristinssyni. Það var lítið að gera svo ég heyrði að Davíð sagði við hann: „Hvað ert þú að lesa góði?“ Og Þorvaldur svaraði: „Það er bara Svarti Pétur og Sara“. Þá hló Davíð og sagði: „Já, það eru nátt- úrlega bókmenntir!“ Það var óskap- lega gaman að vinna á safninu. Þó að ég væri alveg uppgefin, til dæmis eft- ir langan vinnudag síðar á Mogg- anum, þá leið þreytan úr mér um leið og ég gekk inn í andrúmsloftið á safn- inu. Hún bendir blaðamanni á málverk eftir Siglaug Brynleifsson, sem vann með henni á safninu, af Helluhöfða í Hrísey. – Mér finnst hún ótrúlega falleg, þó að hún sé ekki nema svona. – Hvað sérðu við bækur? – Veistu, þær kenna manni ansi margt, bara hversdagslegasta bók. Mér þykir svo vænt um þær. Það er gott að koma við þær, lesa þær og njóta. – Hvað áttu mikið af ljóðabókum? – Ég hef aldrei talið það. Ég á bók sem bókasöfnunum þykir merkileg, deildirnar hans Jóns Þorlákssonar frá Bægisá. Páll frá Vaðbrekku fyrir austan sagðist eiga átta eintök af þeim, en enga heila sem hann gat komið saman í eina bók, – þetta voru svo miklir ræflar. Svo eignaðist ég grútarbiblíuna lítil. Hún fór nú illa lagsmaður, ég geymdi hana í kassa í Hjarðarholti í Stafholtstungum og það komust mýs í hana, átu skinnið utan af henni. Annars er hún nokkuð staðheil. Jódís hverfur úr stofunni og það heyrist aðeins daufur ómur af gömlu gufunni úr eldhúsinu. Svo kemur hún færandi hendi með innvols grút- arbiblíunnar. – Nafnið er þannig tilkomið að einn kaflinn heitir Harmagrátur Jeremía og það er skrifað harmagrútur, segir hún til skýringar. – Ertu trúuð? – Nei, nei, ekki nema í meðallagi. Mér þykir bara gaman að eiga bibl- íur. Ég trúi á það sem er gott í fólki, sjálfsagt veldur því einhver kraftur. En Stefán var ofsalega trúaður. – Þú varst dyggur stuðningsmaður Alberts Guðmundssonar. – Já, mér fannst hann dásamlegur maður. Stefán var orðinn stuðnings- maður hans og lítið atvik varð til þess að ég lagðist á sveif með honum. Þeg- ar Gunnar Thoroddsen stofnaði rík- isstjórn varð hann réttdræpur í hug- um sjálfstæðismanna, en Albert studdi hann og sagði að ef hann gæti ekki fylgt sannfæringu sinni, þá hefði hann ekkert í stjórnmál að gera. Ég var að þurrka hendurnar eftir upp- vaskið, heyrði þetta í útvarpinu og sagði við Stefán: „Komdu með snep- ilinn, ég ætla að skrifa undir.“ Ég safnaði síðan ógurlegum fjölda af meðmælendum fyrir hann. Um svipað leyti lagðist Stefán fár- sjúkur á spítala. Albert hringdi á hverjum einasta morgni á Moggann til að spyrja hvernig honum liði. Þá sagði hann mér iðulega frá fólki sem hefði komist til heilsu eftir alvarleg veikindi. Daginn sem Stefán deyr hringir Albert að kvöldi og segir við mig: „Blessuð stúlkan mín, nú veit ég ekki hvað ég get sagt þér.“ Hann kom á jarðarförina. Mér líkaði svo vel við hann og eins konuna hans, – mér fannst hún voða væn. Sjáðu, segir Jódís og dregur fram enn eina bók- ina. Ég fékk frá þeim ljóð Þóru frá Kirkjubæ, sem hefur hvergi verið fá- anleg í bókabúðum. Þannig er líf Jódísar, – innbundið í bókarkápur. Hún er með gleraugu í bandi um hálsinn, fléttar hendurnar saman eins og síður í bók og horfir á þær þegar henni er mikið niðri fyrir. Eftir fráfall Stefáns tók hún saman við Bomma, Hjálmar Blómkvist Júl- íusson. – Ég kynntist fyrst Sólveigu kon- unni hans, sem vann hér í bókabúð. Þau voru trúlofuð og hann kom til að sækja hana í vinnuna, sætur strákur, ljóshærður og hrokkinhærður. Ég var síðan í sambandi við hana eftir að hún varð umboðsmaður Morg- unblaðsins á Dalvík, en eftir að hún veiktist og dó, þá tók hann við af henni og þá höfðum við heilmikið saman að sælda. Hann kom stundum að heimsækja mig, – þú veist hvernig það er. – Já. – Ja-á, þú veist það alveg. Hann fór að hringja stundum í mig, sagðist vera góður bílstjóri og að hann gæti farið með mig í frí. Ég fór undan í flæmingi, þar sem ekki var langt síð- an Stebbi dó. Svo byrjuðum við í til- hugalífi, bara eins og ungt fólk, héld- umst í hendur og kysstumst, – og ekkert meir. Trúirðu þessu? Í langan tíma! Ja-á. En hann var virkilega mitt lífslán, hann var það. Það var einkennilegt, en öllum fannst hann skemmtilegur. Um leið og hann kom inn þyrptist fólk að honum. Hann hermdi vel eftir fólki og var ákaflega fallegur maður. – Og nú ertu ein. – Já, nú er ég ein, segir hún einlæg og það kemur hik í samtalið. Og líkar það ágætlega. Reyndar býr sonur minn niðri á Eyri, Eiríkur. Hann er afskaplega gáfaður drengur en á afar bágt, skal ég segja þér. Hann er 55 ára og greindist með geðhvörf fyrir nokkrum árum. Það er honum mjög erfitt. Þessa bók skrifaði hann tvítug- ur og gaf mér í jólagjöf, segir hún og enn sækir hún bók „Í Hundagötu forðum“, handskrifaða og ekki þarf að fletta henni lengi til að sjá að stíl- brögðin eru hugmyndarík, leiftrandi skemmtileg og afar persónuleg. – Við áttum svo lengi heima í Lundagötu; það er Hundagatan sem hann nefnir svo, segir Jódís brosandi. Veistu, ég hef aldrei selt þessa bók. Ég lét prenta hana og hann má gera það við upplagið sem hann vill, því þetta var til að gleðja hann. – Hvenær fórst þú sjálf að yrkja? – Ég var ansi lítil þegar ég fór að bulla svona. Pabbi var agalega skemmtilegur og kenndi mér brag- fræði. Fyrstu vísurnar sem ég man orti ég níu ára þegar hann drap fyrir mér köttinn minn. Það var í fyrsta skipti sem pabbi vissi að ég gerði vís- ur. Ég sat yfir kisu þegar hún var að fæða kettlingana; ég mátti ekki fara frá, því þá elti hún með kettlingana í rassinum. Oft voru þeir drepnir strax, en mér fannst þessi svo fal- legur að ég suðaði í pabba um að Gimbrin var engin sárabót Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tilhugalíf „Svo byrjuðum við í tilhugalífi, bara eins og ungt fólk, héldumst í hendur og kysstumst,“ segir Jódís. Pétur Blöndal ræðir við JÓDÍSI KRISTÍNU JÓSEFSDÓTTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.