Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Ísraels-her hefur verið gagn-rýndur harð-lega víða um heim eftir stór-skota-árás sem kostaði 18 óbreytta borgara lífið í bænum Beit Hanun á Gaza-svæðinu. Flest fórnar-lambanna voru konur og börn. Þúsundir Palestínu-manna fylgdu fórnar-lömbum árásarinnar til grafar á fimmtu-daginn. Óttast er að árásin leiði til hermdar-verka. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu-manna, hefur lýst yfir þjóðar-sorg vegna árásanna, en hann hefur jafn-framt sakað Ísraels-stjórn um að fyrir-gera friðar-viðræðum með aðgerðunum. Embættis-menn í Ísrael sögðust harma árásina, fyrir-skipuðu rann-sókn og buðust til að aðstoða þá sem særðust í árásinni. „Það er alveg ljóst að þetta voru hræði-leg mis-tök, sem hafa verið gagn-rýnd í Ísrael, og við höfum harmað árásina,“ sagði tals-maður utanríkis-ráðuneytis Ísraels. Íslensk stjórn-völd for-dæma árásina Blóð-bað á Gaza for-dæmt Reuters Náms-menn í Beirút mót-mæla á-rásinni á Gaza. Nancy Pelosi, leið-togi demó-krata í fulltrúa-deildinni í Bandaríkjunum, verður fyrst kvenna til að gegna em-bætti for-seta þing-deildarinnar. Sigur demó-krata í þing-kosningunum í Banda-ríkjunum mun breyta póli-tísku lands-lagi þar tölu-vert. Pelosi er mjög vinstri-sinnuð og því munu líklega nokkrir vinstri-sinnaðir demókratar verða for-menn mikilvægra þing-nefnda. Demókratar lýstu því strax yfir að George W. Bush Bandaríkja-forseti yrði að breyta um stefnu í Írak. Nancy Pelosi sagðist vilja að repúblikanar og demókratar ynnu saman að því að finna lausn á vandanum í Írak. „Bandaríska þjóðin lýsti því hvergi eins skýrt yfir og í Íraks-málunum að hún vildi breyttar áherslur.“ Kona forseti þing- deildar Til-nefndur til eftir-sóttra verð-launa Leik-mynda-hönnuðurinn Börkur Jónsson hefur verið til-nefndur til Evening Standard-leikhús- verðlaunanna bresku fyrir leik-mynd sína í sýningunni Ham-skiptin eftir sögu Franz Kafka í upp-setningu Vestur-ports í London. Verð-launin verða veitt í London hinn 27. nóvember næst-komandi. Sér-stök viður-kenning Ís-lenski sýningar-skálinn á Feneyja-tvíæringnum fékk sér-staka viður-kenningu fyrir „framúr-skarandi fram-setningu og sam-spil lista-manns og arkitekta-stofu“. Í skálanum er tón-listar- og ráðstefnu-hús við Austur-höfn kynnt ásamt til-heyrandi borgar-skipulagi og upp-byggingu í miðborginni. Hönnunin er verk dönsku arkitekta-stofunnar Hennings Larsen Tegnestue, í sam-vinnu við Batteríið arki-tekta og lista-manninn Ólaf Elíasson. Listir Kvenna-sveit Gerplu vann silfur-verðlaunin á Evrópu-meistara-mótinu í hóp-fimleikum í Tékk-landi fyrir viku. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk sveit vinnur verðlaun á Evrópu-meistara-móti í hóp-fimleikum. Í liði Gerplu eru: Íris Mist Magnúsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Ásdís D. Þorsteinsdóttir, Sara Rut Ágústsdóttir, Svava Björk Örlygsdóttir, Rut Valgeirsdóttir, Íris Svavarsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Hrefna Þ. Hákonardóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, Guro Andersson, Magdalena Guðmundsdóttir og Jóhanna Gunnarsdóttir. Gerpla vann silfrið Úrslit þing-kosninganna í Banda-ríkjunum á þriðju-dag komu í ljós á fimmtu-daginn, en demó-kratar náðu meiri hluta bæði í fulltrúa-deild Bandaríkja-þings og í öldunga-deildinni. George W. Bush Bandaríkja-forseti lýsti yfir persónu-legri ábyrgð á ósigri repúblikana og tilkynnti við sama tækifæri að Donald Rumsfeld myndi hætta sem varnar-mála-ráðherra. Í hans stað kemur Robert Gates, fyrr-verandi for-stjóri bandarísku leyni-þjónustunnar, CIA. Bush sagði að Íraks-stríðið hefði skipt mestu í sigri demó-krata. Hann og Rumsfeld hefðu farið vandlega yfir málið og komist að þeirri niður-stöðu að nú væri rétti tíminn til að skipta um forystu í ráðu-neytinu. For-setinn varaði hryðju-verkamenn við að fagna brott-för Rumsfelds, því Bandaríkja-menn myndu ekkert gefa eftir í bar-áttunni og standa áfram með írösku þjóðinni. Rumsfeld hættir Reuters Donald Rumsfeld hlustar á Robert Gates. Eldur í Breið- holti Morgunblaðið/Sverrir Eldur kom upp í blokk í Breið-holti seint á þriðjudags-kvöld. Maður og kona fengu alvar-leg bruna-sár og lést konan af völdum þeirra á fimmtudags-morgun. 20 slökkvi-liðs-menn komu fljótt á staðinn og eldurinn náði ekki að breiðast út. Í-búar blokkar-innar fengu áfalla-hjálp. Fyrr-verandi for-seti Íraks, Saddam Hussein hefur verið dæmdur til dauða fyrir glæpi gagn-vart mann-kyninu, en hann fyrir-skipaði líf-lát 148 sjíta í þorpinu Dujail norður af Bagdad 1982. Dómnum hefur verið á-frýjað og verði hann stað-festur verður Saddam Hussein hengdur innan 30 daga. Þegar dómarinn las upp dóminn hrópaði Saddam: „Írak lengi lifi. Íraska þjóðin lengi lifi.“ Saddam er 69 ára. Hann fæddist nálægt Tikrit, kvæntist þrisvar og eignaðist sex börn. Hann varð forseti Íraks 1979. Saddam Hussein dæmdur til dauða Reuters Saddam Hussein Netfang: auefni@mbl.is AUÐLESIÐ EFNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.