Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 78
78 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
staðurstund
Sýning á málverkum níu kvennasem allar hafa fengist við að
mála til lengri eða skemmri tíma var
opnuð á Skúlagötu 61. Þetta eru
þær: Dagbjört Guðmundsdóttir,
Guðrún Helga Kristjánsdóttir,
Helga Jensdóttir, Helga Sigurð-
ardóttir, Kristín Tryggvadóttir,
Laufey Johansen, Maja Siska, Mar-
grét Brynjólfsdóttir og Rannveig
Tryggvadóttir.
Við undirbúning sýningarinnar
hafa þær notið aðstoðar Bjarna Sig-
urbjörnssonar listmálara og Jóns
Proppé gagnrýnanda.
Þær nálgast málverkið hver á sínum forsendum, en eiga það sameig-
inlegt að leita opinnar og kraftmikillar tjáningar með pensli og litum og
beita sér óheft við framsetningu stórra verka. Málverkin eru af ýmsum
toga, sum unnin út frá náttúruinnblæstri meðan önnur eru hreinar afstrak-
sjónir. Sýningunni hafa þær gefið yfirskriftina „40A 32D“ og hún verður
opin daglega kl.15-19 og um helgar kl.13-18 fram til 18.nóvember.
Myndlist
Málverkasýning við Skúlagötu –
Níu konur sýna ný málverk
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Broadway | Flass 104.5 og Basshunter
verða með tónleika á Broadway 14. nóv. kl.
21 fyrir framhaldskólanema ásamt
xxxRottweiler og leynigestum. Miðasala er
í skor.is í Kringlunni og kostar miðinn 2000
kr. ef menn skrá sig í Flassklúbbinn.
Bústaðakirkja | Í kvöld kl. 20. Kamm-
ertónlist í Bústaðakirkju. Sigurður I.
Snorrason leikur með Cuvilliés strengja-
kvartettinum. Sjá kammer.is
Neskirkja | Í dag kl. 15: Sjö gítarsnillingar
leika hver í sínu lagi og allir saman í minn-
ingu Einars Kristjáns Einarssonar, sem
hefði orðið fimmtugur 12. nóvember. Sama
dag kemur út geisladiskurinn Finisterre
með einleik Einars Kristjáns.
Salurinn, Kópavogi | Verðlaunaafhending í
III. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA kl. 14.
Salurinn, Kópavogi | Tónleikarnir kl. 20 í
tilefni af síðari hluta útgáfu á lögum Kalda-
lóns, Ég lít í anda liðna tíð, en fyrri hluti út-
gáfunnar, Svanasöngur á heiði, kom út
haustið 2004. Verð: 3000 kr. í síma
570 0400 og á salurinn.is
Seltjarnarneskirkja | Tónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna kl. 17 á sunnu-
dag. Frumflutt verða verk fyrir strengja-
sveit eftir Oliver Kentish. Einnig verður
fluttur konsert Salieris fyrir flautu og óbó
og Serenade fyrir blásara eftir Dvorák. Ein-
leikarar Hallfríður Ólafsdóttir og Daði Kol-
beinsson, stjórnendur Oliver Kentish og
Ármann Helgason.
Myndlist
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Opið mán-þri. kl. 10–
18 og lau. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir
með sýninguna „Puntustykki“. Verkið sem
Hanna Hlíf sýnir er um stöðu og sögu
kvenna fyrr og nú. Til 1. des.
Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak-
sal til 12. nóvember.
Gallerí Stígur | „Vinátta“ myndlistarsýn-
ing Elsu Nielsen stendur nú yfir til 17. nóv.
Opið kl. 13–18 virka daga og 11–16 lau.
Gallery Turpentine | Georg Guðni sýnir ný
málverk og kolateikningar til 21. nóv.
Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum
Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavík-
urborgar. Ljósmyndirnar sýna mannlíf í
Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í daglegu
amstri. Opin virka daga frá 11–17 og um
helgar frá 13–16.
Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur
safnað saman. Opið virka daga frá 11–17 og
um helgar frá 13–16. www.gerduberg.is
Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson)
með sýningu á olíumálverkum og teikn-
ingum í neðri sölum Hafnarborgar til 27.
nóv. Baski sýnir olíumálverk og teikningar
sem tengjast Kili og sögu Reynistað-
armanna sem þar urðu úti 1780.
Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember.
Verkin eru úr væntanlegri bók sem mun
bera titilinn „Locations“ og kemur út nú
fyrir jólin. Þarna er fyrst og fremst um að
ræða myndir af stöðum sem bera ummerki
mannfólksins.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með
myndlistasýningu til 24. nóv.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum
Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur
bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu.
Kirkjuhvoll Akranesi | Eiríkur Smith sýnir
um 30 verk, bæði olíu- og vatnslitamyndir í
Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís-
lensku listalífi og haslaði hún sér völl í ein-
um erfiðasta geira grafíklistarinnar, trérist-
unni. Opið kl. 12–17 virka daga, nema
mánudaga.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft-
ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í
dag. Til 26. nóv.
Listamannaspjall á sunnudag kl. 14 þar
sem myndlistarmennirnir Georg Guðni og
Jón Óskar munu skiptast á skoðunum um
sýninguna Málverkið eftir 1980. Opið frá kl.
11–17. Safnbúð og Kaffitár taka á móti safn-
gestum. Ókeypis aðgangur. Sjá nánar á
www.listasafn.is.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista-
safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist
Sog.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu
röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett-
vangs.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin
laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Árni sýnir olímálverk 70x100. Opið kl.
9–17 alla daga nema laugardaga er opið kl.
12–16. www.arnibjorn.com
Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp-
boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum
stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda
hefðbundins veggjakrots. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
Myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef-
ur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru
myndir af óþekktum stöðum, húsum og
fólki og gestir beðnir um að þekkja mynd-
efnið og gefa upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af
20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er
sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu
kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur
sett saman með sóknarnefnd og Listvina-
félagi Hallgrímskirkju. Minnst er einstakra
þátta úr byggingarsögunni og fórnfýsi fylg-
ismanna til að gera kirkjuna að veruleika.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja-
vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá
Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað-
ur, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir
bera vott um. Sýningin spannar æviferill
Jónasar í máli og myndum.
Matthías Jochumsson var lykilmaður í
þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best
sálmana, þjóðsönginn og Skugga–Svein, en
skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar
af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til
31. desember. Sjá heimasíðu safnsins
www.landsbokasafn.is
Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð-
deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög-
um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar
á heimasíðu: www.landsbokasafn.is
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist –
sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Aðrar
sýningar: Eyjafjörður frá öndverðu og Ak-
ureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp-
haf símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit-
símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns
Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið
og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka
daga kl.13–16. www.tekmus.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
Íslensk og erlend skotvopn ásamt upp-
stoppuðum veiðidýrum og veiðitengdum
munum. Sjá nánar á www.hunting.is Opið
um helgar í nóvember kl. 11–18. Sími 483–
1558 fyrir bókanir utan sýningartíma.
Víkin Sjóminjasafnið í Reykjavík | Á Sjó-
minjasafninu Grandagarði 8 eru þrjár sýn-
ingar í vetur. Togarasýning um 100 ára
sögu togaraútgerðar á Íslandi, sýningin
„Úr ranni forfeðranna“ og ljósmyndasýn-
ing Hannesar Baldvinssonar frá Siglufirði
„Í síldinni á Sigló“. 50 bráðskemmtilegar
ljósmyndir Hannesar Baldvinsonar af
mannlífinu á síldarbryggjunum á Siglufirði
á árunum 1958–62. Opið um helgar frá 13
til 17 að Grandagarði 8.
Open Season m.ensku.tali kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 12, 2, 4 og 6
Borat kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Fearless kl. 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Grettir m.ísl.tali kl. 12
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 12 og 2
The Devil Wears Prada kl. 8
Borat kl. 2(450 kr.), 8 og 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 2(450 kr.), 4 og 6
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍ-
NUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
ARNALDAR INDRIÐASONAR
60.000 gestir!
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeeee
Hallgrímur Helgason – Kastljósið
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eeee
H.S. – Morgunblaðið
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
eeeee
V.J.V. - Topp5.is
eeeee
EMPIRE
eeeee
THE MIRROR
eeee
S.V. Mbl.
T.V. - Kvikmyndir.com
DÝRIN TAKA VÖLDIN!
Veiðitímabilið
er hafið!
FORSALA AÐGÖNGU MIÐA
ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FORSÖLU
Sýnd með íslensku og ensku
tali
HÁDEG
ISBÍÓ
500 K
R. KL.
12
Í SMÁR
ABÍÓ