Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Eignir frá 2,050 millj. kr./27.771 þús. Svefnpláss f. 4, nýb., sundlaug, 10 mín. frá flugvelli Sími 0044 845 056 9706 (enska) www.redseaproperties.net SÓLRÍKT OG HEITT 365 DAGA Á ÁRI RIVÍERAN VIÐ RAUÐA HAFIÐ, EGYPTALANDI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Háaleitisbraut Glæsilegt 289 fm einbýlishús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Eignin skipt- ist m.a. í samliggjandi stofur með arni, stórt eldhús með ljósum viðarinnrétting- um, 5-6 herbergi auk fataherbergis, 2 flísalögð baðherbergi, gesta w.c. auk um 20 fm nýlegs skála sem byggður var við húsið. Rúmgóðar suðursvalir út af stof- um. Falleg ræktuð og skjólgóð lóð með nýlegri verönd og nýlega hellulagðri innkeyrslu með hita í. Einnig hiti í tröppum upp að húsi. Verð 76,9 millj. Stóragerði - 2ja íbúða hús Vel staðsett 315 fm einbýlishús með aukaíbúð á jarðhæð og 25 fm sér- stæðum bílskúr á þessum eftirsótta stað. Eignin skiptist m.a. í stóra setu- stofu, borðstofu með aukinni lofthæð, eldhús með nýuppgerðum innrétting- um og góðum borðkrók, 4 herbergi og 2 flísalögð baðherbergi auk 3ja herb. séríbúðar. Stór verönd/suðursvalir út af stofu efri hæðar. Hús nýlega málað að utan. Skjólgóð, ræktuð lóð. Verð 73,0 millj. Selbraut - Seltjarnarnesi Glæsilegt 218 fm raðhús á tveimur hæðum með 41 fm innb. bílskúr. Eign- in er mikið endurnýjuð, m.a. bæði baðherbergi og gólfefni auk þess er nýtt múrverk utanhúss ásamt nýju þaki. Eldhús, stofa og gesta w.c. í opnu rými á efri hæð með mikilli loft- hæð og góðu útsýni auk 4 herbergja, sjónvarpsherbergis, þvottaherb. og baðherbergis á neðri hæð. Falleg ræktuð lóð. Hiti í innkeyrslu og stéttum fyrir framan hús. Verðtilboð. Tjarnarmýri - Seltjarnarnesi Nýtt og glæsilegt steinsteypt 235 fm einbýlishús á tveimur hæðum með innb. bílageymslu. Húsið afhendist fullbúið að utan og fokhelt að innan skv. nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Vatnsstígur - Ný 3ja herb. íbúð Glæsileg 99 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð í endurbyggðu húsi í hjarta mið- borgarinnar. Glæsilegar sprautulakk- aðar innréttingar. Stórar og bjartar stofur með miklum frönskum gluggum, stórt svefnherb. með miklu skápa- plássi, baðherb. með vönduðum tækj- um. Eyja í eldhúsi og hellulagðar svalir til suðausturs með miklu útsýni. Sér- geymsla í kjallara. Verð 34,9 millj. Skúlagata - 3ja herb. íbúð fyrir eldri borgara Mjög góð 99 fm íbúð á 2. hæð í þessu fallega húsi í miðborginni fyrir 60 ára og eldri. Íbúðin skiptist í opið eldhús, rúmgóða borð- og setustofu með útg. á suðursvalir, 2 herb. og baðherb. með þvottaaðstöðu. Vandaðar innrétt- ingar. Parket og flísar á gólfum. Útsýni til norðurs og hellulagðar suðursvalir út af stofu. Sérgeymsla í kj. Húsvörð- ur. Verð 32,5 millj. Til leigu Víkurhvarf, Kópavogi tvær hæðir samtals 1904 fm. Jarðhæð neðan við húsið 1125 fm. Jarðhæð ofan við húsið 780 fm. Mögulegt er að skipta hæðunum upp í minni eingar. Húsið klætt að utan m. flísum. Húsið er mjög vel staðsett og liggur vel við umferð. Afhending í febrúar 2007. Bílastæði malbikuð. Óskað er eftir tilboðum í leigu. Upplýsingar Valhöll fasteignasala, Magnús Gunnarsson símar 588 477 og 822 8242. Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Hér er um að ræða óvenju fallegt og skemmtilegt 232,7 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 42,5 fm bílskúr. Skipulag og hönnun hússins er mjög vel heppnuð og mætti þar nefna stóra glugga sem ná niður í gólf við stofu og borðstofu og 2,9 m lofthæð að hluta. Fallegir gluggar gefa eigninni mikla birtu sem er staðsett innar- lega í lokuðum botnlanga og skilast fullbúin að utan og fokheld að innan. Án efa eitt fallegasta og skemmtilegasta húsið í hverfinu. Verð 34,4 millj. Nánari upplýsingar veitir Reynir Björnsson í síma 895 8321. Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Fléttuvellir 31 Glæsieign í Hf. Í DAG búa rúmlega 18 þúsund ís- lensk börn hjá einstæðum foreldrum eða rétt rúmlega 23% íslenskra barna, þetta hlutfall er enn hærra í Reykjavík þar sem tæplega þriðjungur barna býr hjá ein- stæðum foreldrum. Fjöldi barna sem alin eru upp af einu foreldri hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu árum og áratugum, til að mynda bjuggu um 16% ís- lenskra barna hjá ein- stæðum foreldrum árið 1995 eða tæplega 13 þúsund börn. Börn einstæðra foreldra eiga erfiðara uppdráttar Erlendar rannsóknir á högum barna sem búa hjá einstæðum for- eldrum sýna að þessum börnum vegnar á margan hátt verr en börn- um sem alast upp hjá báðum for- eldrum. Þessar rannsóknir sýna að börn sem alin eru upp af einu foreldri glíma í ríkari mæli við hegðunar- og tilfinn- ingavanda en önnur börn. Menntun þeirra er almennt styttri en annarra barna, fleiri þeirra hafa einungis lokið grunnmenntun, þau ljúka síður lang- skólanámi og náms- árangur þeirra er lak- ari. En hvernig vegnar börnum einstæðra for- eldra á Íslandi? Rann- sóknir sýna sömu til- hneigingu hér á landi, að fjölskyldugerð virðist skipta miklu máli þegar horft er á líðan og velferð íslenskra barna og unglinga. Upplýsingar um börn sem barna- verndarnefndir á Íslandi hafa afskipti af leiða í ljós að tæplega 60% þeirra búa ekki hjá báðum foreldrum sínum. Af þeim börnum sem sótt er um með- ferð fyrir á meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu búa um 80% þeirra ekki hjá báðum kynfor- eldrum sínum. Tölur frá árunum 1996 til 2000 um heimilislaus börn sem leit- uðu athvarfs í Rauðakrosshúsinu sýna að einungis 11% þeirra bjuggu með báðum foreldrum. Ríkuleg og traust samskipti for- eldra og barna eru mikilvæg Fræðimenn hafa bent á að aðgengi barna að fleiri en einum fullorðnum uppeldisaðila skiptir verulegu máli í uppeldi barna. Þeim börnum sem hafa aðgengi að, verja tíma með og mynda góð tengsl við báða foreldra sína vegnar betur og verða síður fyrir áföllum. Ríkuleg samvera unglinga og for- eldra dregur úr líkum á vímu- efnaneyslu unglinga. Unglingar sem verja miklum tíma með foreldrum sínum og eru í góðum tengslum við þá hefja síður neyslu vímuefna, þeir eiga jafnframt auðveldara með að stand- ast neikvæðan þrýsting jafnaldra. Unglingar sem eru í góðum tengslum við foreldra sína eru síður líklegir til að stríða við félagsleg eða sálræn vandkvæði og eru bæði ólíklegri til að vera gerendur eða þolendur ofbeldis. Báðir foreldrar virkir uppal- endur barna eftir skilnað Að vel takist til við tengslamyndun foreldra og barna virðist því vera lyk- ilatriði þegar velferð barna er annars vegar, það sem best þjónar hags- munum barna eru ríkulegar sam- vistir við báða foreldra sína. Í Svíþjóð hefur sameiginleg forsjá verið val- kostur í kjölfar skilnaða í rúmlega hálfa öld og meginregla í áratugi. Í ljósi þessarar löngu reynslu af sam- eiginlegri forsjá hafa Svíar haft möguleika á að kanna í langtímarann- sóknum afdrif barna sem búa við ólík Foreldrajafnrétti – bestu hagsmunir barna Víðir Ragnarsson fjallar um foreldrajafnrétti » Sterk tengsl og ríku-leg samvera við báða foreldra eru öllum börn- um mikilvæg. Víðir Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.