Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ J agshemash! Nafn mitt Bo- rat. Mér líka vel við þig. Mér líka vel við kynlíf. Er gott. Hvað kostar?“ Ef langur og slánalegur náungi með svartan skóbursta sem yfirskegg, íklæddur þvældum og blettóttum gráum jakkafötum, vind- ur sér að þér á förnum vegi og ávarp- ar þig með þessum hætti hefurðu um a.m.k. þrennt að velja: Að hlaupa æpandi á brott, gefa honum einn á lúðurinn eða fara að hlæja. Fyrrnefndu við- brögðin einkenna fórn- arlömb hans í hinni óborganlegu „plat“- heimildarmynd Borat: Menningarlegir lær- dómar um Ameríku til handa hinni stór- fenglegu þjóð Kasakst- an. Síðastnefndu við- brögðin einkenna hins vegar milljónir áhorf- enda. Veröldin er á valdi Borats Sagdiyev. Æv- intýri þessarar ófyr- irleitnu karlrembu, kynlífs- og kynþátta- bullu frá Kasakstan á ferðalagi um Bandarík- in slær aðsóknarmet víða um lönd þessa dag- ana og veldur hærri og samfelldari hlátrasköll- um, stundum reyndar nokkuð taugaspennt- um, en dæmi eru um hin síðari ár. Það er að verðleikum: Borat er í grófleika sínum einhver magnaðasta og marg- slungnasta skemmtun sem völ hefur verið á í bíó um langa hríð. Og að vonum ein sú umdeildasta. Persónan, fréttamaðurinn Borat, er hugarfóstur breska leikarans og grínistans Sacha Baron Cohen, rétt eins og Silvía Nótt er sköpunarverk Ágústu Evu Erlendsdóttur. Borat og Silvía eiga það sammerkt að ögra um- hverfi sínu með því að ýkja fordóma þess, hugaróra, öryggisleysi og hé- gómleika. Þessar persónur eru skrumskældur þjóðarsálarspegill. Þannig er skotspónn Borats ekki Ka- sakstan, þótt sá misskilningur sé skiljanlega uppi þar í landi. Skot- spónninn eru Bandaríkin. Það gerir mörgum einnig erfitt fyr- ir að höndla húmorinn að engin skil eru á milli skaparans og sköpunar- verksins. Rétt eins og Ágústa Eva tjáir Sacha Baron Cohen sig lítt um persónu sína nema sem hún, þ.e. í hlutverkinu eða gervinu. Og enn eyk- ur á vandann að skilin milli leikinna atriða í myndinni og „raunverulegra“ eru engin. Gyðingurinn gangandi Cohen hefur sjaldan á ferli sínum, sem spannar tæpan áratug, veitt per- sónuleg viðtöl. Og þeg- ar hann gerir það verst hann fimlega flestum spurningum um einka- líf sitt. Í rauninni er Sacha Baron Cohen töluverð ráðgáta, eins og stundum á við um sérvitra snillinga. Þekktar staðreyndir eru m.a. þessar: Hann fæddist fyrir 35 árum í London, og er sonur hjónanna Ger- alds Baron Cohen frá Wales, sem rekur herrafataverslun á Piccadilly, og Daniella Baron Cohen, sem er af persneskum og gyð- ingaættum og fædd í Ísrael. Hann á tvo bræður og er annar þeirra, Erran Baron Cohen, liðsmaður bresku rafsveitarinnar Zöhar og höfundur tón- listarinnar í Borat. Þeir bræður ólust upp við notalegt fjölskyldulíf og næg efni. Cohen gekk í góðan einkaskóla. Með- al félaga hans þar voru tveir framtíðar- grínistar, Matt Lucas (Little Britain) og Dav- id Baddiel, og er ekki ólíklegt að í þeim fé- lagsskap hafi satírískum sáðkornum verið plantað. Þar var einnig Dan Mazer sem síðar varð framleiðandi Cohens þegar annað sköpunarverk hans, Ali G, hóf göngu sína í sjón- varpi. Hann þótti prúður og elskuleg- ur skólapiltur. Eftir ársdvöl á sam- yrkjubúi í Ísrael innritaði Cohen sig í sagnfræði við háskólann í Cam- bridge. Þar fór hann að fást lítillega við leiklist en einnig sótti á hann frek- ari áhugi á gyðinglegum rótum sínum og hann gerðist félagi í samtökum ungra gyðinga. Á þriðja námsári í Cambridge skrifaði Cohen ritgerð um þátt gyðinga í bandarísku mann- réttindahreyfingunni. „Hann tók það mjög alvarlega,“ er haft eftir félaga hans, „og fór til Bandaríkjanna til heimildarannsókna í sumarfríinu. Ritgerðin fékk mikið lof.“ Af þessu má sjá að „smekklaust“ kynþáttagrín Cohens, sem beinist að blökkumönn- um (samanber „súkkulaðifés“- brandara Borats um t.d. Condoleezza Rice) og öðrum hópum, líka að gyð- ingum sjálfum, er byggt á þekkingu og djúpri tilfinningu fyrir mynstri svokallaðra fjölmenningarsamfélaga; það er eins langt frá yfirborðslegri aulafyndni og hugsast getur. Afhjúpun merkikertanna Leiklistin varð þó ofan á fræði- mennskunni. Cohen fékk m.a. stórt hlutverk í Fiðlaranum á þakinu í West End-sýningu í London og söng- hlutverk í My Fair Lady. En það var í sjónvarpi sem hann fann viðspyrn- una. Á kapalstöðinni Paramount Co- medy Channel fékk Cohen að vera með innskotsatriði milli þátta og byrjaði að þróa sitt kómíska að- alsmerki, bjánalegan spyril í viðtölum við grandalaust fólk. Þetta framlag og innsend umsókn með myndbands- upptöku af albönskum fréttamanni að taka viðtal við enska refaveiðimenn vöktu athygli stjórnenda grínþátt- arins 11 O’Clock Show sem sýndur var á Channel 4 á árunum 1998 til 2000. Vinsælasta efni þáttarins var þegar Cohen, í gervi Ali G, eins konar platsvertingja í rapparagervi, lagði með afkáralegum hreim og götu- slangri fáránlegar en lýsandi spurn- ingar fyrir þekkt og óþekkt fólk, ekki síst stjórnmálamenn, og afhjúpaði merkikerti af ýmsum toga. Einn rót- tækasti þingmaður Verkamanna- flokksins gegnum áratugina, Tony Benn, fór í gegnum heilt viðtal hjá „hálfvitanum“ í þeirri trú að hann væri raunveruleg persóna, þótt runn- ið hafi á hann tvær grímur þegar Ali G kallaði Margaret Thatcher komm- únista. Cohen vann bresku grínverðlaunin árið 1999 sem besti nýliðinn og fékk í framhaldinu eigin sjónvarpsþátt, Da Ali G Show. Þar fæddist ný persóna sem gekk til liðs við Ali G, Borat, frægasta fjölmiðlafígúra Kasakstan. Þótt skömmum rigndi yfir Channel 4 frá húmoristum pólitískrar rétthugs- unar fyrir „kynþáttahatur“ Borats jukust bara almennar vinsældir og verðlaunum fjölgaði stöðugt. Þar kom að Da Ali G Show var keyptur yfir hafið til Bandaríkjanna þar sem Ali G hélt uppteknum hætti á Home Box Office-kapalstöðinni og hæddist með sínum sakleysislega hætti að bandarískum pólitíkusum. Í einu við- talinu fékk Ali G hinn strangtrúaða hægri mann og forsetaframbjóðanda Pat Buchanan til að viðurkenna að kvikmynd Mels Gibson um píslar- göngu Krists væri aðeins skárri en Lethal Weapon 3. Á beinu brautinni Viðvarandi vinsældir leiddu til óhjákvæmilegrar tilraunar til að flytja Ali G á hvíta tjaldið. Bíómyndin Ali G Indahouse (2002) snerist um slysalegt pólitískt framboð aðal- persónunnar og var það sem Borat hefði getað orðið en tókst að forðast með glæsibrag: eins brandara mynd. Þriðja bíómyndin um sköp- unarverk Sacha Baron Cohens er nú komin á koppinn með risasamningi upp á 42,5 milljónir dollara við Uni- versal. Í aðalhlutverkinu verður fí- gúran Bruno, hómósexúal tískulögga frá Austurríki sem tekur fáránleg viðtöl, eins og kollegar hans tveir. Sú spurning vaknar hversu lengi Cohen getur haldið þessum leik gangandi, eftir því sem frægð hans vex og fólk þekkir betur til hans og þessara gerva verður það erfiðara. En hann hefur fleiri járn í eldinum og er farinn að leika „venjuleg“ hlutverk í bíó- myndum, eins og Talladega Nights með Will Ferrell þar sem hann fer með hlutverk sérkennilegs fransks kappaksturskappa og þykir fara á kostum. Þrjár aðrar gamanmyndir eru í uppsiglingu á næstu tveimur ár- um. Í einkalífinu virðist okkar maður líka á beinu brautinni, því hann er trúlofaður áströlsku leikkonunni Isla Fisher og búa þau þessa stundina í Los Angeles. Um list Cohens er haft eftir göml- um samstarfsmanni: „Hann sekkur gjörsamlega inn í þessar persónur og umhverfist í þær. Þannig getur hann átt samskipti við fólk með full- komlega eðlilegum hætti … Þetta gengur mun lengra en venjuleg leik- list og er nánast yfirnáttúrulegt.“ Eins og Borat myndi orða það: „Great success. Hi five!“ Kvikmyndir | Grínistinn Sacha Baron Cohen hefur í hlutverki fréttamannsins Borats fengið heimsbyggð- ina til að emja af hlátri. Svipmynd | Segolene Royal sækist eftir útnefningu franskra sósíalista til forseta- framboðs. Hún á útnefninguna ekki vísa, en þykir sigurstranglegust frambjóðenda flokksins í forsetakosningunum á næsta ári. Bak við blekkingarnar Í fyrirheitna landinu Skotspónninn er Bandaríkin, ekki Kasakstan. Í HNOTSKURN »Sacha Baron Cohen talarekkert slavneskt tungumál í kvikmyndinni Borat. Þegar hann ræðir við aðstoðarmann sinn, Azamat Bagatov (sem leikinn er af Ken Davitian, bandarískum leikara af armenskum uppruna), tala þeir blöndu af hebresku og jiddísku með ýktum rússneskum hreim. »Persónan Borat er byggð álækni nokkrum sem Cohen hitti í suðurhluta Rússlands fyrir nokkrum árum. „Ég grét af hlátri þegar ég hitti hann,“ hefur Cohen sagt. „Hann var ótrúlega fyndinn náungi, en alveg óvart.“ »Ali G: „Ef þetta sjó á aðkenna þér eitthvað, er það að sýna öllum virðingu: dýrum, börnum, kventíkum, fávitum, vanskapningum, lessum, fitu- keppum og fokkurum. Virðing er málið …“ Breski grínistinn Sacha Baron Cohen afhjúpar fals með falsi SVIPMYND» VIKUSPEGILL» Eftir Árna Þórarinsson ath@mbl.is Kærastan Isla Fisher mætir á frumsýningu Borats. Hann sjálfur Sacha Baron Cohen án gervis. Ríkisstjórninni í Kasakstan er ekki skemmt. Hún hefur ráðið tvö vest- ræn kynningarfyrirtæki í sína þjónustu til að leiðrétta þá mynd sem Borat dregur upp af landinu. Hún hefur keypt fjögurra síðna auglýsingu í The New York Times í sama tilgangi og forseti landsins flaug til Bandaríkjanna til að mót- mæla myndinni við George Bush. Sendiherra Kasakstans í Bret- landi, Erlan Idrissov, skrifaði grein í The Guardian fyrir nokkr- um dögum þar sem segir m.a.: „Baron Cohen býr yfir miklum kómískum hæfileikum og merki- legu hugmyndaflugi. Svo miklu hugmyndaflugi að með sköpun Bo- rats hefur hann einnig skapað ímyndað land, ofbeldisfullt, frum- stætt og kúgað, sem hann kallar „Kasakstan“, en á ekkert skylt við hið raunverulega Kasakstan. Helstu einkenni Borats eru dónaskapur hans, fáviska, kyn- þáttahatur og karlremba. Hann er mannsvín: Heimskur, árásargjarn, óaðlaðandi … Hann segir að í landi sínu séu konur geymdar í búrum og að eiginkonur megi kaupa af feðrum þeirra fyrir 15 gallon af skordýraeitri. Hann segir stoltur: „Í Kasakstan segjum við guð, karlmaður, hross, hundur, síðan kona, síðan rotta.““ Sendiherrann rekur síðan nokkrar staðreyndir um Kasakst- an: Það sé nútímalegt hagvaxt- arríki, meirihluti þjóðarinnar séu múslimar en önnur trúarbrögð fái að dafna líka, þ. á m. gyð- ingdómur. Landið sé á stærð við Vestur-Evrópu, hagvöxtur hafi aukist um 10% árlega og fátæku fólki hafi fækkað úr 25% í 16% og á næsta áratug verði landið eitt af fimm helstu olíuframleiðsluríkjum heims. Idrissov spyr lesandann: „Ef það eina, sem milljónir manna vita um landið þitt, ætti uppruna í ruglingslegu og rógsfullu ímynd- unarafli sjónvarpsgrínista, mynd- irðu ekki vilja leiðrétta það?“ Þótt ljóst megi vera að Kasakst- an raunveruleikans eigi fátt sam- eiginlegt með því táknræna skop- stælingarlandi sem það er í sköpun Landkynningarhliðin Jeffrey Snyder Andlit Kasakstana Borat Sagdiyev fréttamaður kynnir land sitt, ásamt fé- laga sínum Azamat (t.h.), fyrir framan sendiráð Kasakstan í Washington.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.