Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 19
Sacha Baron Cohens ætti við-
kvæmni Kasaka fyrir þeirri afbök-
uðu mynd úrkynjunar og afkára-
skapar að vera skiljanleg öllum
sem taka land sitt og þjóð alvar-
lega, ef ekki hátíðlega. Það er
stutt á milli þjóðarstolts og minni-
máttarkenndar. Við Íslendingar
verðum einatt arfavitlausir ef gert
er grín að eða gert lítið úr þjóð-
ararfi okkar og þjóðareinkennum,
samanber nú síðast stílbrögð ein-
hverra blaðamanna við danska
Ekstrabladet, Íslandsinnslag
Opruh Winfrey eða ummæli
Quentins Tarantinos um íslenskar
konur. Og skemmst er að minnast
múgsefjunar sem danskar skop-
teikningar ollu meðal heittrúaðra
múslima víða um heim. Fólk er
viðkvæmt fyrir því sem því er heil-
agt. En það er einfaldlega í eðli
bestu afbrigða af gamansemi að
hæðast að því sem heilagt er. Með
fullri virðingu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 19
„Ég féll kylliflöt í gildruna,“ er haft
eftir bandarísku kynbombunni Pa-
melu Anderson, draumadísinni sem
Borat leggur á sig langt og strangt
ferðalag fyrir í aflóga ísbíl þvert yfir
Bandaríkin. Atriðið þar sem Borat
hittir loks stóru ástina og biður henn-
ar með formlegum „kasöskum“ hætti
er ein af fjölmörgum óborganlegum
uppákomum í myndinni, sem áhorf-
andinn velkist í vafa um hvort eru al-
farið sviðsettar og leiknar eða skrá-
setning á raunverulegum atburði eða
atburðarás sem Borat hrindir af stað.
Eftir því sem næst verður komist eru
helstu leiknu karakterarnir Borat
sjálfur, eiginkona hans, aðstoðarmað-
urinn og bandarísk vændiskona. Í
langflestum öðrum hlutverkum eru
óbreyttir borgarar, ekki síst banda-
rískir, sem vita ekki hvaðan á þá
stendur veðrið. Frammistaða og
framkoma sumra er með ólíkindum,
eins og framkoma áhorfenda á ródeó-
sýningu, sem Borat hleypir upp, og
snarruglaðra háskólapilta á húsvagni.
Og settlegt kvöldverðarboð í heima-
húsi er eftirminnilegt fyrir margra
hluta sakir.
En tökum annað dæmi: Borat tek-
ur viðtal við þrjá fulltrúa kvenrétt-
indasamtakanna Veteran Feminists
of America. „Það var hringt í mig
vegna einhvers náunga frá Kasakst-
an sem væri á ferð um Bandaríkin að
gera heimildamynd,“ segir ein þeirra,
Grace Welch, í viðtali við breska viku-
blaðið The Observer, „og vildi fá hug-
myndir sem hann gæti tekið með sér
heim og notað til að fræða þjóð sína
um Bandaríkin.“ Welch kveðst hafa
verið alveg grandalaus, enda horfi
hún ekki á HBO og hafi því ekkert
vitað um Borat. Þegar viðtalið átti að
fara fram kom það henni á óvart að
spyrillinn væri ekki mættur, og að
ekki þyrfti að fjalla um umræðuefni
eða spurningar fyrirfram. Þegar
spyrillinn loksins mætti fannst henni
eitthvað einkennilegt á seyði; hann
var druslulega klæddur og þegar
hann fór að spyrja „vissi ég að gaur-
inn var annað hvort auli eða fífl, en ég
hafði enga hugmynd um að þetta
væri grín eða gabb. Tökuliðið og
framleiðandinn héldu alvörusvipnum
hvað sem á gekk og Baron Cohen var
allan tímann í hlutverkinu, líka eftir
að tökum lauk.“
„Finnst ykkur að kvenfólk eigi að
mennta?“ var dæmigerð spurning.
„Sannarlega,“ svaraði femínistinn
Linda Stein forviða og virtist ekki
kunna að meta það þegar spyrillinn
ávarpaði hana sem „pussycat“.
„En er ekkert vandamál að konur
hafa minni heila?“ spurði Borat og
vitnaði til landa síns Dr. Yamuka sem
hefði sannað að heili kvenna væri af
sömu stærð og heili íkorna. „Hann
hefur rangt fyrir sér! Hann hefur
rangt fyrir sér!“ mótmæltu þær í kór.
Þegar fréttamaðurinn fór að spyrja
konurnar um heimilisfang Pamelu
Anderson var þeim nóg boðið og
stóðu upp. En Borat var ekki af baki
dottinn: „Eigum við ekki að dansa? Í
mínu landi dönsum við. Af hverju
lyftið þið ekki skyrtunum og gerið
eitthvað villt?“ Það skal tekið fram að
eftir á sáu þessir ágætu fulltrúar fem-
ínista húmorinn í uppákomunni.
Allt í plati eða …?
Borat Hver er að leika og hver ekki?
HINN 27 ára gamli fréttamaður frá Kasakst-
an hefur víða verið í viðtölum til að kynna
heimildarmynd sína. Hér eru nokkur sýn-
ishorn í eins bjagaðri íslenskri þýðingu og við
verður komið. Viðkvæmir lesi eitthvað annað:
Um Bandaríkjaforseta: „Við í Kasakstan
dáumst mjög vel að George Walter Bush.
Hann mjög vitur maður og mjög sterkur, en
kannski ekki eins sterkur og faðir hans, Bar-
bara.“
Um hvers vegna Bilo bróðir hans var
klipptur út úr kvikmyndinni: „Bilo bróðir
minn hafa lítið höfuð en afar sterka hand-
leggi. Hann hafa 204 tennur, 193 í munni, 11 í
nefi. Maður geta gert allt við hann, hann ekki
muna neitt. Hann vera kynlífsvitfirringur.
Allan dag hann vera í búri sínu og horfa á
klám og nudda nudda nudda.“
Um árangur þess að veita konun atkvæð-
isrétt: „Við segja að veita konum atkvæð-
isrétt er sama og afhenda öpum byssur. Mjög
hættulegt. Við ekki gera þetta lengur síðan í
dýragarðsblóðbaðinu í Almaty 2003.“
Um sérstakan dansstíl Borats: „Ég líka
mjög vel dansur og poppmúsíkur. Núna allt
vitlaust í kasakstönskum diskótekur gerir
músík eftir dansandi negrann Michael Jack-
sons. Við líka mjög vel nýja lag hans Beat It.
Við hafa marga góða útflutningsvöru í landi
mínu. Fyrst kemur pótassíum, annað epli og
þriðja litlir drengir handa búgarði Michael
Jacksons. Hvers vegna ekki? Finnst gott. Er
gooott. Líka mjög vinsælt núna í Kasakstan
er syngjandi klæðskiptingur Madonna. Hann
virkilega líkur konu!“
Um vinsældir Borats í heimalandinu:
„Myndin slá met Hollywoodmyndarinnar
King Kong sem hafa verið númer eitt mynd í
Kasakstan alveg síðan frumsýningu árið
1933.“
Svo mælir Borat