Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 22
daglegtlíf
Framkvæmdum linnir ekki í
Reykjavík. En hvað segja
sérfróðir um húsin í
höfuðborginni? » 36
húsin í borginni ljóðaunnandi
Gerður Kristný fjallar um það
þegar vandamál fullorðna fólks-
ins bitna á börnunum í nýrri
barnabók sinni. » 24
skáldskapur
|sunnudagur|12. 11. 2006| mbl.is
Eftir Guðrúnu Eddu Einarsdóttur
gee2@hi.is
S
kólínan einkennist meðal
annars af hlébarða-
mynstri ásamt rauðum,
gráum og brúnum litum,“
segir María Kristín
Magnúsdóttir skóhönnuður um Gold
N’red collection, nýjustu skólínuna
sína, fyrir veturinn 2006. Þar gefur
líka að líta semelíuskreytta hælaskó,
stígvél og ýmsa fylgihluti. „Efnin
sem ég nota í yfirleður eru hlýri og
hrosshúð, mér finnst mikilvægt að
halda hrárri áferð efnisins og þá sér-
staklega í hlýraroðinu,“ segir María.
Þegar efnin eru skoðuð nánar
sjást rispur og skurðir í leðrinu, sem
mynda mismunandi mynstur og
gera þannig hvern skó einstakan. Og
það sem gerir skóna ennþá einstak-
ari er að yfirleðrið er að mestu leyti
íslenskt, en María er í samstarfi við
Sjávarleður á Sauðarkróki.
Ökklabönd og glitrandi steinar
Sérstök lína, Gold N’red limited,
er samhliða Gold N’red-línunni fyrir
veturinn 2006 og eru aðeins fram-
leidd 24 pör í hverjum lit. Þetta eru
stígvél í sebra- og hlébarðamunstri.
„Ég vildi gefa viðskiptavinum mín-
um möguleika á að skera sig úr,“
segir María og útskýrir að þessi lína
sé í takt við tískustraumana hverju
sinni.
Síðastliðin ár hefur María einnig
þróað ýmsar nýjungar í fylgihlutum
fyrir skófatnaðinn, t.d. skóhlífar,
sem hugsaðar eru til að breyta hæla-
skóm í stígvél, og fást í mörgum
stærðum. Áhugaverð semelíu-
skreytt ökklabönd úr hrosshúð eða
roði fylgja með nýju Gold N’red-
skólínunni, og bjóða þau upp á alls
konar möguleika og samsetningar.
María leggur mikla áherslu á að
sem flestir geti notað skóna, enda
eru stígvélin sniðin þannig að þau
passi konum með mismunandi svera
kálfa.
„Fætur kvenna hafa stækkað und-
anfarna áratugi,“ segir María og
upplýsir að skórnir fáist í stærð-
unum 36 til 42.
Með annan fótinn
í skóverksmiðjum
„Mikil vinna liggur á bakvið það
að hanna skó og koma þeim á mark-
mikinn gaum, þá einna helst hvernig
hún vinnur með íslenskt hráefni. Að-
spurð um næsta skref í markaðs-
setningu skófatnaðarins segir María
frá því að hún sé nú þegar komin í
samstarf við dreifingaraðila í Hol-
landi og hún stefni á að sækja á fleiri
staði í útlöndum á komandi árum.
Hún hefur undirbúið sig frá því í
haust og stundar námskeiðið UH17
sem er á vegum Útflutningsráðs.
„Þetta er mjög sniðugt nám fyrir þá
sem eru með sinn eigin rekstur og
stefna á erlendan markað,“ segir
hún.
Það má segja að María sé frum-
kvöðull á sínu sviði og hefur hún að
vissu leyti brotið ísinn fyrir komandi
skóhönnuði á Íslandi. „Mikil vinna
og þrautseigja fer í að fylgja öllu
hönnunarferlinu eftir og það sem
skiptir miklu máli er að vera sam-
kvæmur sjálfum sér og hafa gaman
af því sem maður tekur sér fyrir
hendur,“ segir María og bætir við að
galdurinn sé fólginn í því að taka lítil
skref í átt að takmarkinu.
Morgunblaðið/Eyþór
Ökklabönd María hefur þróað ökklabönd sem prýða stígvélin.
Morgunblaðið/Eyþór
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetrarlínan 2006 Sebra- og hlébarðamynstur í hávegum höfð sem og rauðir, gráir og brúnir litir.
Skraut Semalíuskreytt
öklabönd úr hrosshúð og
roði fylgja með í Gold N’red-
skólínunni.
Skóhönnuður María Kristín Magnúsdóttir
starfar, ásamt fleiri hönnuðum, í Verksmiðjunni
á Skólavörðustíg, þar sem skór úr nýju línunni
koma senn í hillur.
að. Þegar ég hanna nýja skólínu
byrja ég á því að velja liti og efni. Í
því felst mikil rannsóknarvinna,“
segir María. Í hönnunarferlinu seg-
ist hún gera sér far um að hlusta á
hugmyndir viðskiptavina sinna og
nota síðan hugmyndaflug sitt til þess
að þróa skóna í takt við það sem þeir
sækjast eftir. „Skólínan getur tekið
miklum breytingum á þessu ferli,“
útskýrir hún.
Í hönnunarferlinu er hún í sam-
starfi við verksmiðjur í Kína. „Ég
var lengi að finna réttu aðilana til að
framleiða skóna, til að byrja með fór
ég í samstarf við verksmiðjur á
Spáni. En ég áttaði mig fljótlega á
því að hagstæðast væri að flytja
framleiðsluna til Kína. Sérstaklega
upp á að hafa möguleika til að auka
framleiðsluna og þess háttar,“ segir
María.
Útrás á erlendan markað
Skórnir hafa ekki aðeins vakið at-
hygli Íslendinga heldur hafa ferða-
menn gefið skónum hennar Maríu
Skref í átt að
takmarkinu
» Semelíuskreytt ökklabönd úr hrosshúð eða roði
fylgja með nýju Gold N’red-skólínunni, og bjóða
þau upp á alls konar möguleika og samsetningar.
María Kristín Magnús-
dóttir hefur nú hannað
nýja línu af skóm, sem
hún segir að gefi
viðskiptavinum sínum
tækifæri til að skera
sig úr fjöldanum.
Hauke Trinks fór yfir Atlantsála
á skútu sinni og ákvað að hafa
vetursetu á Seyðisfirði því að
þar slær hjarta Íslands. » 28
sægarpur njósnarinn
Einn fremsti njósnari Breta í
heimsstyrjöldinni síðari var af
íslenskum ættum. Saga William
Stephenson. » 32
Jódís Kr. Jósefsdóttir byrjaði
að safna ljóðum fjögurra ára er
hún eignaðist Skólaljóðin og
hefur safnað þeim síðan. » 40