Morgunblaðið - 12.11.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 31
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
24
3
45
Kúbu
Kúba
Frá 79.990 kr.
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Arenas Doradas í viku með morgun-
verði, 16. des. Aukavika kr. 20.000.
Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 1.390 á dag.
Ferð 23. des. kr. 84.990.
Síðustu sætiná ótrúlegu verði
Jól á
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti í ferð til Kúbu um
jólin. Breyttu út af vananum og upplifðu hátíðirnar í sólinni og
Karíbahafsstemmningu. Bjóðum síðustu sætin á frábærum kjörum.
Bókaðu núna!
16. des. Örfá sæti laus
23. des. Örfá sæti laus
hann ekki verið bleiulaus út af
niðurganginum,“ segir Karen.
Sex mánuðum síðar var Arth-
ur farinn að tengja orð og
mynda setningar.
„Þá keypti ég mér bók frá
Bandaríkjunum sem heitir
Children with starving bra-
ins,“ segir Karen. „Banda-
rískur læknir skrifaði bókina
og ég uppgötvaði við lesturinn
að barnabarn höfundar var
nákvæmlega eins og Arthur,
hafði verið með niðurgang ár-
um saman og breytt mat-
aræði hafði sömu áhrif. Og …
þetta er alls ekki sjaldgæft,“
segir Karen og hljómar nokk-
uð undrandi. „Við urðum al-
veg steinhissa þegar við átt-
uðum okkur á því að þessar
upplýsingar voru fyrir hendi
þarna úti en einhvern veginn
hafði þeim ekki verið komið á
framfæri hér.“
DAN-samtökin sett á fót
Umræða um tengsl mat-
aræðis og einhverfu er aldeilis
ekki ný af nálinni þó að ekki
hafi mikið verið rætt um slíkt á Ís-
landi. „Árið 1964 skrifaði dr. Bern-
hard Rimland bók sem heitir Infan-
tile autism (Einhverfa barna) og
hann kollvarpaði þeirri kenningu að
einhverfa væri orsökuð af kaldri og
slæmri móður,“ segir Olgeir. „Þessi
maður eignaðist einhverfan son og í
framhaldi af því sneri hann lífi sínu
við, fór að gera alls konar tilraunir,
bæði með lyf og náttúruefni, án þess
kannski að komast neitt svakalega
langt. Árið 1995 kallaði hann saman
hóp lækna og fræðimanna sem höfðu
verið að gera eitthvað svipað og
hann. Þarna voru mynduð samtök
sem kölluð eru DAN, sem stendur
fyrir Defeat Autism Now (Sigrumst
á einhverfu núna) og þetta eru regn-
hlífarsamtök sem standa fyrir ráð-
stefnum þar sem ræddar eru með-
ferðarleiðir fyrir einhverfa. Í
framhaldinu var farið að taka saman
ýmsa punkta sem menn höfðu safnað
að sér hér og þar og voru ekkert
endilega samþykktir sem meðferð
fyrir einhverfa. Í ellefu ár hafa þessir
menn hist reglulega og þetta hefur
undið upp á sig og nú eru haldnar
stórar ráðstefnur tvisvar á ári. Á þær
koma foreldrar, læknar og ýmsir
sérfræðingar á þessu sviði og
skiptast á skoðunum,“ segir Olgeir.
„Einhverfum hefur fjölgað alveg
rosalega mikið,“ segir Olgeir og
nefnir ótrúlegar tölur eða um allt að
1.500% á síðustu tuttugu árum.
„Réttilega benda menn á að fyrir
20 árum voru greiningartæki ekki
jafngóð og í dag. Einhverfurófið hef-
ur líka stækkað, en á móti má spyrja:
er líklegt að við höfum vangreint
95%?“ segir Olgeir og svarar svo
sjálfum sér: „Varla. M.a.s. íslenskar
rannsóknir benda allar í þessa sömu
átt; að þetta sé á hraðri uppleið.
Læknar halda því almennt fram að
einhverfa sé erfðafræðilegur sjúk-
dómur og ef svo er ætti ekki að koma
fram svona mikil aukning, kannski
þó smávægileg. Það hefur verið leit-
að að genum sem gætu orsakað þetta
og um 20 gen fundist sem hugs-
anlega eru áhrifaþáttur. Þó hefur
ekki tekist að einangra þessi gen,“
segir Olgeir og bendir þó á að full-
komlega heilbrigðir einstaklingar
geti haft þessi sömu genamengi.
„Hins vegar er sagt að ef fólk hefur
einhver þessara genamengja sé það í
meiri áhættu. Það er klárlega þannig
vegna þess að algengara er að hjón
sem eignast eitt einhverft barn eign-
ist annað en fólk sem ekki á neitt ein-
hverft barn.“ Þarna nálgast Olgeir
einmitt kjarna málsins því hvernig er
þá hægt að skýra hina miklu aukn-
ingu í einhverfu?
„DAN-samtökin líta á það þannig
að einhverjir umhverfisþættir hafi
þarna áhrif. Reynt hefur verið að
svara spurningunni um það hvað
mannkynið gerir öðruvísi í dag en
fyrir 20 árum. Þarna hefur verið
horft til t.d. sýklalyfjanotkunar.
Læknar eru jú almennt sammála um
það í dag að við eigum að nota miklu
minna en við gerum. Litið hefur ver-
ið á þungmálmamengun, t.d. kvika-
silfur, blý, PCB o.s.frv. Bent hefur
verið á að stór hluti einhverfra sé
með meltingarveginn í ólagi. Melt-
ingarvegurinn er mikilvægasta verk-
færi líkamans því í gegnum hann
sækjum við ekki einungis næringu,
heldur byggist allt ónæmiskerfið á
honum. Ef fólk er af erfðafræðileg-
um orsökum viðkvæmt fyrir utan-
aðkomandi „árásum “, það getur ver-
ið matur, þungmálmar eða eiginlega
hvað sem er,“ segir Olgeir og
lyftir höndunum, „þá ræður
meltingarvegurinn ekki við
að vinna eins og hann á að
gera. Nefna má t.d. sveppa-
sýkingar í þörmum; rétt flóra
er ekki til staðar. Ónæm-
iskerfið sem er í innyflunum
virkar þá ekki rétt, inn kom-
ast efni sem eiga ekki að kom-
ast inn og þau efni sem lík-
aminn þarf að fá komast ekki
inn,“ segir Olgeir.
„Í gegnum ráðstefnur
DAN-samtakanna hefur
komið í ljós að stór hluti ein-
hverfra er með alltof hátt
hlutfall þungmálma í lík-
amanum og að meðferð sem
felst í því að hreinsa út þung-
málma hefur veruleg áhrif,“
segir Olgeir. „Komið hefur í
ljós að langflesta einhverfa
skortir sink. Þegar líkamann
skortir sink byggir hann upp
kopar í staðinn. Sumum ein-
hverfum er þannig hægt að
hjálpa með því að bæta sink-
inntöku. Það hefur verið
þekkt í mörg ár að blanda af
B6-vítamíni og magnesíum getur
hjálpað einhverfum. Kenningar eru
uppi um það að ef bólgur eru í inn-
yflum, sem orsakast af próteinum,
svo sem mjólk eða hveiti, verði til
þannig ástand í líkamanum að í stað-
inn fyrir að próteinkeðjurnar, sem
eru mjög langar, brotni niður sleppi
þær inn í innyflin sem lengri keðjur
en þær eiga að vera. Þessar keðjur
heita peptíð og ef þær eru af tiltek-
inni gerð flokkast þær sem opíóð.
Það er efni sem líkist í raun ópíum og
þegar það lekur inn í blóðrásina leit-
ar það til heilans og hefur sljóvgandi
áhrif á viðkomandi,“ segir Olgeir og
líkir því við að venjulegt fólk kveiki
sér í ópíumpípu. „Þess vegna eru
sumir einhverfir svona sljóir,“ segir
hann og bætir við að jafnframt séu
einhverfir þess vegna oft svo slitnir
frá umhverfi sínu sem raun ber vitni.
Olgeir segir þó að DAN-samtökin
gangi ekki svo langt að hvetja fólk til
að hætta alfarið við hinar hefð-
bundnu aðferðir. „Við Karen vitum
hins vegar að breytt mataræði hefur
hjálpað okkar börnum alveg gríð-
arlega mikið.“
Karen og Olgeir segjast hafa fund-
ið fyrir nokkurri andstöðu við það
sem þau hafa verið að kynna eftir
reynslu sína af breyttu mataræði.
„Þá fyrst og fremst hjá lækna-
stéttinni,“ segir Olgeir. „Maður finn-
ur ef farið er að ræða þetta að við-
brögðin eru alltaf: það er búið að
afsanna þetta. Það kemur aldrei
þetta … en … Meltingarsérfræð-
ingar segja svona ahh … þetta eldist
af honum.“
Mikilvægt að viðhalda
breyttu mataræði
Olgeir segir að DAN-samtökin séu
með á skrá hjá sér 1.100 börn sem
hafa náð verulegum bata með
breyttu mataræði, réttum fæðubót-
arefnum og jafnvel með hreinsun
þungmálma. „Þeir ganga aldrei svo
langt að segja að einstaklingarnir
hafi læknast af sjúkdóminum, því
viðkomandi er alltaf áfram við-
kvæmur í meltingarveginum. Það
þýðir það að ef öllu er hleypt af stað
aftur fer allt í sama farið. Þannig að
mikilvægt er að halda sig við hið
breytta mataræði til að viðhalda
þeim árangri sem næst.“
Sú spurning er óhjákvæmileg
hvort ekki sé mikið álag á heimili þar
sem öllu mataræði hefur verið um-
bylt. Sú spurning vekur hlátur hjá
þeim Karen og Olgeiri og Karen
verður fyrir svörum: „Þetta venst
eins og allt annað,“ segir hún. Olgeir
segir hins vegar að áfallið felist fyrst
og fremst í því að mjólk sé í þessu og
hinu. „Það er hveiti þarna og þarna
og þarna og hvað geri ég nú?“ Á
heimilinu er mjólkurlaust, sykur-
laust og hveitilaust fæði og allir
heimilismeðlimir hlíta því. „Þetta
verður miklu einfaldara en það
hljómar þegar það hefur vanist,“
segir Olgeir og útskýrir að DAN-
samtökin hvetji fólk til að prófa sig
áfram með eitt atriði í einu. „Þeir
segja: það er engin hætta fólgin í því
að breyta mataræðinu. Fólk á að
leita sér ráðgjafar hjá næringar-
fræðingi og gera svo eina tilraun í
einu. Sjá hvort það hefur áhrif að
taka mjólkina út, ekki taka út allt í
einu því ef eitthvað virkar veit eng-
inn hvað það er. Þess vegna á að gera
eitt í einu,“ segir Olgeir.
Hinn fimmtánda nóvember verður
fræðslufundur á vegum Umsjónar-
félags einhverfra á 4. hæð í Sjónar-
hóli á Háaleitisbraut 11. Þar munu
Karen og Olgeir segja frá reynslu
sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Breyting „Við urðum alveg steinhissa þegar við
áttuðum okkur á því að þessar upplýsingar voru
fyrir hendi þarna úti en einhvern veginn hafði
þeim ekki verið komið á framfæri hér,“ segir Kar-
en um uppgötvun þeirra hjóna á því að breytt mat-
aræði hafði áhrif á einhverfu sona þeirra.
sia@mbl.is
»Meltingarvegurinn
er mikilvægasta
verkfæri líkamans því í
gegnum hann sækjum
við ekki einungis nær-
ingu, heldur byggist allt
ónæmiskerfið á honum.