Morgunblaðið - 12.11.2006, Side 32
lífshlaup
32 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
M
argt hefur verið
skrafað og skrifað
um kyrrláta Kan-
adamanninn, Willi-
am Stephenson.
Hann stjórnaði samræmdri leyni-
þjónustu Breta í New York á stríðs-
árunum, en hún annaðist fjölda leyni-
aðgerða um allan Vesturheim og
vann að undirbúningi annarra í Evr-
ópu. Og hann aðstoðaði Bandaríkja-
menn við að koma á fót leyniþjónustu
erlendis. William Stephenson var
goðsögn í lifanda lífi, en að honum
látnum skiptust á skin og skúrir í um-
sögnum manna. Í þriðju ævisögu
hans; „Sannleikurinn um Órag (The
True Intrepid) – William Stephenson
og óþekktu fulltrúarnir hans,“ sem
kom fyrst út í Kanada 1998 og hér er
að meginefni stuðzt við (útgáfu frá
2001), segir höfundurinn Bill Macdo-
nald, að seint verði allur sannleik-
urinn um William Stephenson sagð-
ur, en hann hafi reynt eftir beztu getu
að færa sögu hans til sanns vegar.
Það hafi hins vegar ekki reynzt auð-
velt verk, því ekki einasta hvíldi mikil
launung yfir starfi hans heldur var
Stephenson ekki síður dulur á per-
sónulegt líf sitt. Hann dró til dæmis
fjöður yfir sína íslenzku móðurætt og
vestur-íslenzku fósturforeldra svo að
í fyrri ævisögunum tveimur er fjallað
um bernsku hans og æsku á mjög svo
ónákvæman hátt; foreldrar hans eru
sagðir skozkir innflytjendur, reyndar
er móðir hans sögð af norskum ætt-
um í annarri bókinni, nafn hans og
fæðingardagur eru á reiki, nöfn for-
eldra hans röng, og skólinn, sem
hann er sagður hafa gengið í, var
aldrei til!
Í grein eftir Valdimar J. Líndal,
dómara, í The Icelandic-Canadian,
tímariti íslenzk-kanadíska félagsins í
Winnipeg, 1962 segir Valdimar frá ís-
lenzkri móðurætt Stephenson og í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins 26.
febrúar 1989, að Stephenson ný-
gengnum, tíundaði Guðmundur Hall-
dórsson, blaðamaður, íslenzka hlið
hans með tilvitnunum í grein Valdi-
mars og samtali við mágkonu Steph-
enson.
Í „Sannleikanum um Órag“ fjallar
Bill Macdonald um íslenzka móð-
urætt Stephenson og fer ofan í saum-
ana á æsku hans og uppvexti í Winni-
peg. Macdonald birtir í bókinni
samtal sitt við William Stevenson,
höfund annarrar ævisögu Steph-
enson og spyr, hvers vegna frásögn
hans af æsku Stephenson sé svona
villandi. Stevenson svarar því til að
hann hafi byggt hana eingöngu á
upplýsingum frá Stephenson sjálfum.
Og Stephenson hélt íslenzku rót-
unum fyrir sig alla ævi, jafnvel kjör-
dóttir hans vissi ekkert um þær. Í
samtali við Guðmund Halldórsson
sagði Elizabeth Baptiste, að hún
minntist þess að faðir hennar hafi
einu sinni eða tvisvar minnzt á Ísland
í sín eyru. „Ég man eftir því að hann
sagði einhvern tíma að hann hefði
komið við á Íslandi í stríðinu, en það
var allt og sumt. Nei, hann talaði
aldrei um Winnipeg eða að hann ætti
ættingja þar.
Ég held að hann hafi ekki átt
nokkra íslenzka ættingja. Að minnsta
kosti veit ég ekkert um það.
Ég held að forfeður hans hafi verið
skozkir. Hann talaði um það. Afi hans
og amma voru frá Skotlandi.“ Þegar
hún var spurð, hvort hann hefði hitt
skozka ættingja sína, sagði hún: „Nei,
hann átti enga ættingja á lífi, enda
var hann orðinn 93 ára gamall þegar
hann lézt.“
Að Stephenson látnum sögðu blöð í
Kanada, að hann ætti enga ættingja í
Winnipeg.
Vestur-Íslendingur
frá Winnipeg
Í þeim hópi Íslendinga sem flutti
vestur um haf 1883 voru hjónin Krist-
ín Guðlaugsdóttir og Vigfús Stef-
ánsson frá Klungurbrekku á Skógar-
strönd, Snæfellsnesi. Með þeim voru
fjögur systkini Kristínar og móðir
þeirra; Karitas Guðmundsdóttir.
Kristín og Vigfús settust að í
Winnipeg. Þar tókst vinátta með
Kristínu og Guðfinnu Söru Johnston,
sem hafði flutzt vestur um haf með
foreldrum sínum. Þegar þær Kristín
kynntust var Guðfinna ekkja, en 1894
giftist hún aftur; William Hunter
Stanger, sem Bill Macdonald segir
hafa komið til Kanada frá Orkn-
eyjum, en Valdimar Líndal segir
hann af írskum ættum. Guðfinna og
William bjuggu í Point Douglas
hverfi Winnipeg. Neðanmáls með
grein Valdimars er vitnað til fæðing-
arvottorðs sonar hennar; William
Clouston Stanger, fæðingardagur 23.
janúar 1897 og móðir hans þá skráð
Sarah Goodfina Johnston. Valdimar
segir, að þegar stríð skall á hafi Willi-
am sagzt ári eldri en hann var til þess
að komast í herinn.
Valdimar Líndal segir að William
hafi verið yngsta barn þeirra hjóna
og átt tvær systur, en Bill Macdonald
segir í bók sinni, að William hafi verið
elzta barnið, sem komst á legg, og átt
tvö yngri systkini. Vöðvarýrnun dró
William Hunter Stanger til dauða
þegar sonur hans var barn að aldri.
Guðfinna gat ekki séð sér og þrem-
ur börnum farborða og valdi þann
kostinn að gefa frá sér tvö barnanna;
William og dótturina.
Í samtalinu við Guðmund Hall-
dórsson, segir Ninna Stephenson,
tengdadóttir Kristínar og Vigfúss, að
Guðfinna hafi komið með William til
þeirra Kristínar og sagt við hana:
„Ég get ekki alið barnið upp. Ég gef
þér barnið.“
Ninna segir að Guðfinna hafi lík-
legast verið Jónsdóttir. Maður henn-
ar hafi verið drykkjumaður og aldrei
stundað vinnu, en hún hafi gengið í
þvotta og hvað annað sem til féll.
Þegar Guðfinna hafði gefið William
frá sér segir Ninna að hún hafi gefið
dóttur sína vinkonu sinni í Saskatc-
hewan, en um fleiri börn hennar viti
hún ekki og ekkert um afdrif dótt-
urinnar í Saskatchewan. Valdimar
Líndal segir að Guðfinna hafi farið
frá Winnipeg ásamt dætrum sínum
tveim og látizt skömmu síðar. Bill
Macdonald segir ekkert vitað um af-
drif Guðfinnu og yngstu barna henn-
ar; 1903 sé þeirra ekki getið í götu-
skrá Winnipeg og helzt haldi fólk í
Stephensonfjölskyldunni að þau hafi
flutzt til Chicago.
Þegar Kristín og Vigfús Steph-
enson höfðu tekið son Guðfinnu upp á
sína arma, breyttist nafn hans úr
William Samuel Clouston Stanger í
William Samuel Stephenson.
Drengurinn, sem var kallaður Bill,
var ekki hár í loftinu, en mynd-
arlegur, þögull og einrænn, en starfs-
samur og tók vel eftir öllu í kring um
sig, svo vel, að athyglisgáfu hans var
viðbrugðið. Í fjölskyldunni var því
haldið á lofti, að hann gæti farið inn í
herbergi og komið út aftur eftir
stutta viðdvöl og þá með öll smáatriði
í herberginu á hreinu.
Í bréfi sem Valdimar Líndal skrif-
aði Ísafoldarprentsmiðju, útgefanda
fyrstu bókarinnar um Stephenson;
Dularfulla Kanadadmannsins, og
sagt er frá á innbroti bókarkáp-
unnar, kemur fram að William
Stephenson hafi verið gæddur óf-
reskigáfu. Hann hafi eitt sinn setið í
stofu á heimili fórsturforeldra sinna
og snúið baki að glugga. „Sagði hann
þá allt í einu, án þess að nokkur hefði
orðið var mannaferða, að maður væri
að læðast úti í garðinum og gægjast
inn um gluggann. Jafnframt sagði
hann öllum að bæra ekki á sér, fór út
um bakdyr hússins og kom hinum
óboðna gesti í opna skjöldu.“
Bill Stephenson gekk í Argyleskól-
ann í nágrenninu, en hætti námi og
fór sextán ára að vinna; fyrst við
timburvinnslu og síðan sem skeyta-
sendill.
Bill Macdonald segir ekkert sér-
stakt í æsku William Stephenson
hafa búið hann undir njósnir fullorð-
insáranna. Sjálfur sagði hann síðar,
að hann hafi engan undirbúning
fengið og eina reynslan hafi verið
skýrslur hans um hernaðaruppbygg-
ingu Þjóðverja á fjórða áratugnum.
Macdonald nefnir þó eitt atvik úr
æsku Stephenson til marks um
glöggskyggni hans: glæpamaður að
nafni John Krafchenko fór huldu
höfði í Winnipeg og reyndist óvenju
slyngur í að dulbúast og hylja slóð
sína. En hann slapp ekki fram hjá
vökulu auga skeytasendils, sem sá í
gegn um hann og sagði lögreglunni
frá honum. Þessar upplýsingar
Stephenson gerðu útslagið til þess að
Krafchenko var handtekinn.
Fall er fararheill
William Stephenson bauð sig fram
til herþjónustu 1916 og fór til starfa í
verkfræðisveitum kanadíska hersins.
Hann hlaut slæma gaseitrun og með-
an hann var að jafna sig á Englandi,
lærði hann að fljúga og í ágúst 1917
gekk hann í raðir konunglega flug-
hersins. Hann var sigursæll orrustu-
flugmaður í fyrri heimsstyrjöldinni,
en eins og um svo margt í ævi hans
fer tvennum sögum af frammistöð-
unni; hvort hann skaut niður 12, 18
eða 26 óvinaflugvélar. Hvað sem því
líður var hann heiðraður fyrir
frammistöðu sína af Belgum, Frökk-
um og Bretum. Hann var reyndar
skotinn niður 28. júlí 1918 og lenti í
þýzkum stríðsfangabúðum, en slapp
þaðan í október 1918, skömmu fyrir
vopnahléð.
Þegar Stephenson var sloppinn úr
höndum Þjóðverja, sneri hann heim
til Winnipeg. Fjölskyldumeðlimir og
vinir sögðu Bill Macdonald, að Steph-
enson hefði sagt ýmislegt af gangi
stríðsins í Evrópu, en verið fáorður
um eiginn hlut og hann lét með öllu
ósagt um heiðurspeningana, sem
hann var sæmdur. Hann stofnaði
með vini sínum Charles Wilfrid Rus-
sell fyrirtæki á sviði umboðssölu og
framleiðslu og framleiddi það m.a.
dósaopnara, sem átti sér sögu, sem
Stephenson reyndar sór fyrir síðar
og bannaði að kæmi fram í fyrstu
ævisögum hans. Sagan eins og Bill
Macdonald segir hana er á þá leið, að
meðan Stephenson var stríðsfangi
Þjóðverja hafi hann stytt sér stundir
við að stela hinu og þessu smálegu frá
fangavörðunum (m.a. hafði hann með
sér á flóttanum ljósmynd af þýzka
fangabúðastjóranum og geymdi hana
alla tíð.) Dag einn komst hann yfir
haganlegan dósaopnara og sagði þá
m.a. samfanga sínum, að hann ætlaði
að flýja og taka dósaopnarann með
sér og fá einkaleyfi á honum þar sem
Þjóðverjar næðu ekki til hans. Þetta
gekk eftir.
Þeir félagar; Stephenson og Rus-
sell, stefndu hátt og urðu margir til
að hrífast af eldmóði þeirra og leggja
í púkkið, þar á meðal margir Vestur-
Íslendingar, sem höfðu fengið trölla-
trú á hugkvæmni og framtakssemi
Stephenson. En þrátt fyrir háleit
markmið gekk fátt eftir og fyrirtækið
varð gjaldþrota 1922.
Prikastaða Stephenson meðal
Vestur-Íslendinga hrapaði við gjald-
þrotið og hann lét sig hverfa til Eng-
lands.
En þetta fall í Winnipeg reyndist
honum fararheill, því ólukkan sem
elti Stephenson í Kanada komst ekki
í farangur hans yfir Atlanzhafið.
Þrátt fyrir gjaldþrotið steig hann
ekki slyppur og snauður á land í Eng-
landi, því fljótlega skaut fyrirtækið
Stephenson og Russell upp kollinum í
London. Stephenson sá framtíðina í
útvarpstækni og síðar sjónvarpinu og
hann fjárfesti í tveimur fyrirtækjum,
sem blómstruðu og voru í fararbroddi
þegar útvarpsvæðingin hófst fyrir al-
vöru í Englandi 1923. Síðsumars það
ár fór hann í snögga ferð vestur um
haf, steig af skipsfjöl í Montreal, fór
þaðan til Toronto, þar sem hann
kynnti framleiðslu fyrirtækja sinna á
sviði útvarps- og röntgentækni. Frá
Kanada hélt hann til New York og
þaðan aftur austur um haf og slóst
Wilf Russell í þá ferð með honum.
Meðan farkosturinn klauf öldurnar
til Englands kynntust þeir félagar
Simmonssystrum af þekktri tóbaks-
fjölskyldu í Springfield, Tennessee.
Bill Stephenson og Mary French
Simmons giftust 22. júlí 1924. Bill
Macdonald kannaði giftingarvott-
orðið og kom í ljós, að á því er aldur
Stephenson ekki réttur, nafn fóstur-
föður hans er rangt og atvinna hans
vitlaust skráð og heimilisfang brúð-
hjónanna í London er ekki rétt!
Krókur Stephenson hefur snemma
beygzt til þess að fara dult með per-
sónulega hagi sína! Wilf Russell
kvæntist hinni Simmonssysturinni
(Macdonald nafngreinir hana ekki í
bók sinni!). Þau fluttu til Tennessee,
en Bill og Mary settust að í Englandi.
Þar varð honum enn allt að gulli.
Hann fann upp tækni sem flýtti þráð-
lausri myndsendingu og sú uppfinn-
ing ein gerði hann að stórauðugum
manni innan við þrítugt. Hann setti
fleiri járn í eldinn og færði stöðugt út
kvíarnar; í bygginga-, sements- og
stáliðnaði og hann stofnaði flug-
vélaverksmiðju og kvikmyndaver svo
eitthvað sé upptalið. Hann varð einn
öflugasti iðnjöfur Bretlands og gegn-
um alþjóðlegt fjárfestingarfyrirtæki
náði hann ítökum víðar í Evrópu, Afr-
íku og Asíu. Þessum umsvifum fylgdi
umgengni við helztu framámenn og
þá ekki sízt í brezku viðskipalífi og
stjórnmálum og með tímanum bætt-
ust brezkir leyniþjónustumenn í hóp-
inn.
Þótt velgengi Stephenson færi ekki
lágt um Evrópu, fréttist fátt um hagi
hans heim til Winnipeg, þar sem fjöl-
skylda hans svo til hætti að heyra frá
honum um miðjan þriðja áratuginn.
Ráðagerð um að myrða Hitler
Í tíðum viðskiptaferðum yfir á
meginlandið og þar til Þýzkalands
fékk Stephenson kjörið tækifæri til
þess að fylgjast með gangi mála. Og
ekkert fór framhjá glöggu auga
gamla skeytasendilsins frá Winnipeg.
Honum duldist hvorki hernaðar-
Vestur-íslenzki njósnaforinginn
Fyrri hluti
Hann var einn fremsti njósnaforingi Breta
í heimsstyrjöldinni síðari. Móðurætt hans var
íslenzk, sem hann leyndi alla tíð sem og vestur-
íslenzkum fósturforeldrum sínum og fjölskyldu
þeirra. Þegar William Stephenson lézt sagði
kjördóttir hans í samtali við Morgunblaðið,
að hún vissi ekkert um íslenzkar rætur hans.
Freysteinn Jóhannsson fletti blöðum og
bókum um Stephenson.
Óragur William Stephenson - vestur-íslenzki njósnaforinginn.
Í slaginn William Stephenson í orrustuflugvél í Frakklandi.