Morgunblaðið - 12.11.2006, Page 59
ÞAÐ ÆTTI AÐ SETJA ÞIG
Á HEIMSMINJASKRÁ
HIN ÍSLENSKA
TRAINSPOTTING
ÞESSI BÓK ER EKKI UM BLEIKA FLAMINGÓFUGLA. ÞESSI BÓK ER UM
ÚTVARPSMANNINN E SEM LENDIR Í ÓVÆNTUM OG ALLSVAKALEGUM
HREMMINGUM EFTIR AÐ HAFA GEFIÐ ÚT SÍNA FYRSTU BÓK.
50 GRÖMM AF ÓDRÝGÐU KÓKAÍNI HVERFA Í PARTÍI
Í REYKJAVÍK. ELTINGARLEIKUR UPP Á LÍF OG DAUÐA.
„Bráðskemmtileg bók sem heldur fínu jafnvægi milli
tilgerðarleysis og húmors.“
- Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið, 3. nóvember 2006
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR
„Það er nautn að lesa textann og sagan er í senn fyndin,
írónísk, persónuleg, kátbrosleg, ljúfsár og melankólísk.“
Geir Svansson, Morgunblaðið 3. nóv
„Þetta er skemmtilegur texti og furðulegur.
Hann fengi í mínum kladda fimm stjörnur væru þær gefnar.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið 5. nóv
GADDAVÍR
ÁHRIFAMIKIL SKÁLDSAGA SEM HELDUR LESANDANUM Í HELJARGREIPUM
SIGURJÓN MAGNÚSSON
Gaddavír er látlaus, hefðbundin, vel skrifuð skáldsaga sem gefur
tilefni til þess að velta fyrir sér mannlegu eðli…
…Í stærra samhengi og táknsögulega fjallar Gaddavír um
erfðasyndina, þjáningu, jafnvel píslarvætti."
- Geir Svansson, Morgunblaðið, 3. nóv. 2006
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 59
FRÉTTIR
Pera vikunnar:
Hvert er flatarmál bláa ferhyrningsins mælt í cm2?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er mánudagurinn
20. nóvember kl. 12. Lausnir þarf að senda á vef skólans,
www.digranesskoli.kopavogur.is, en athugið að þessi Pera
verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi þann 13. nóv-
ember 2006. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann
sama dag ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinnings-
hafanna.
Stærðfræðiþraut
Digranesskóla
og Morgunblaðsins
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
STJÓRN SVÞ – Samtaka verslunar
og þjónustu segist í yfirlýsingu hafa
fylgst með síminnkandi framboði ís-
lensks vinnuafls í verslun og þjón-
ustu á undanförnu misseri og telur
líklegt að þrátt fyrir einhverja slök-
un í efnahagskerfinu þá muni nokk-
uð vanta upp á að framboð vinnuafls
í þessum greinum svari eftirspurn.
Fyrirtæki grípa í vaxandi mæli til
þess úrræðis að ráða til starfa út-
lenda borgara af Evrópska efna-
hagssvæðinu þrátt fyrir augljós
vandkvæði sem því fylgja í þjónustu
þeirra við íslenska neytendur. Næg-
ir þar að nefna tungumálaörð-
ugleika.
Samtökin segjast í yfirlýsingu
ekki vera andsnúin frjálsu flæði
vinnuafls og telja reyndar að án þess
hefði ýmiss konar verslun og þjón-
usta lent í miklum erfiðleikum og
jafnvel þurft að draga saman seglin.
Á hinn bóginn megi líka líta til þess
að í landinu er sífellt stærri hópur
eldri borgara sem vill og getur unn-
ið margvísleg störf í mismunandi
starfshlutföllum, en fáist ekki út á
vinnumarkaðinn vegna þess að með
launuðu starfi skerðast aldurs-
tengdar greiðslur hans. Á sama tíma
eykst heilbrigði hópsins, lífaldur
lengist og sífellt fleiri eru tilbúnir að
stunda einhverja launavinnu.
SVÞ – Samtök verslunar og þjón-
ustu skora á ríkisstjórnina að gera
nú þegar breytingar sem fela í sér
að aldurstengdar bætur fólks sem
náð hefur 67 ára aldri skerðist ekki
þótt viðkomandi séu í launuðu starfi
enda séu greiddir almennir skattar
af þeim launum. Með þessu verði
reynt að fá fleiri aldraða til starfa á
íslenskum vinnumarkaði og draga
þar með úr þörf fyrir útlent vinnu-
afl.
Áskorun um
óskertar aldurs-
tengdar bætur
launafólks
STJÓRN SUS hefur samþykkt eft-
irfarandi ályktun:
„Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna lýsir sárum von-
brigðum sínum með að mennta-
málaráðherra og ríkisstjórnin
undir forystu Sjálfstæðisflokksins
standi nú að frumvarpi sem ætlað
er að efla rekstur Ríkisútvarpsins
og styrkja stöðu þess á fjölmiðla-
markaði. Það stangast á við grund-
vallarhugmyndir sjálfstæðisstefn-
unnar að ríkisvaldið standi í
samkeppni við einkaaðila, hvort
sem það er á sviði fjölmiðlunar eða
öðrum sviðum atvinnulífs.
Það er sorgleg staðreynd að eng-
in skref hafa verið stigin í frjáls-
ræðisátt í málefnum ríkisfjölmiðl-
unar frá því að þáverandi
menntamálaráðherra, Ragnhildur
Helgadóttir, fékk samþykkt á Al-
þingi frumvarp sem afnám einka-
leyfis ríkisins á útvarps- og sjón-
varpsrekstri. Síðan þá eru liðnir
rúmlega tveir áratugir.
Varðandi menningarlegt hlut-
verk Ríkisútvarpsins ítrekar SUS
fyrri afstöðu sína þess efnis að rík-
isstyrkt menning kæfir frumkvæði
og sköpunargleði einstaklinga.
Þegar stjórnmálamenn deila fé úr
sameiginlegum sjóðum til sérhags-
munahópa er slík úthlutun jafnan
eftir geðþótta fremur en hæfi-
leikum listamanna og eftirspurn.
[…] Þær fyrirætlanir mennta-
málaráðherra að auka skilvirkni í
starfsemi Ríkisútvarpsins með hinu
nýja frumvarpi eru góðra gjalda
verðar. Ríkisrekstur á fjölmiðla-
markaði er hins vegar tímaskekkja
og því hefði verið eðlilegt og skyn-
samlegt af menntamálaráðherra að
draga ríkisvaldið alfarið út úr þeim
rekstri, leggja stofnunina niður og
selja eignir hennar.“
Ríkisrekstur á
fjölmiðlamark-
aði er
tímaskekkja