Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 67
lífsins lystisemdir. En ef með þarf
drepur hann án þess að blikka
auga.
Sean Connery mótaði persónuna
mjög ásættanlega, sýndi einkar vel
harðari hlið atvinnumorðingja hins
opinbera. Þegar hann sneri sér að
öðrum hlutverkum breyttist tónn-
inn í Bondmyndunum og fjarlægð-
ist sköpunarverk Flemings. Sá
flótti hófst þegar í fjórðu mynd-
inni, Thunderball (’65), þar voru
brellurnar farnar að kæfa per-
sónuna og söguna. Rétt er að hafa
í huga að myndbálkurinn er að
verða hálffimmtugur og end-
urspeglar jafnan samtímann og
þarfir hans.
Tímarnir eru lygilega breyttir
frá því að Bond birtist fyrst í Dr.
No árið 1962. Þá geisaði kalda
stríðið, Bretar héngu enn á heims-
veldisdraumnum og gamla sovétið
var í fullu fjöri og undirrót alls ills,
í vestrænum afþreyingarbók-
menntum a.m.k. Tölvan var ekki
komin í gagnið, farsíminn, mest
áberandi leikmunur Casino Royale
og 007 ársins 2006 sleppir ekki af
hendinni, var ekki í sjónmáli í
hjálpartækjabankanum sem leyni-
þjónustumaðurinn hafði aðgang að.
Þá þótti í meira lagi töff að hafa
undir höndum sérsmíðað Rolex-
armbandsúr; bíl sem gat skotið
farþeganum upp í heiðið hátt; pall
sem gat flogið með hetjuna upp á
húsþök …
Bond-myndirnar hafa engu að
síður fylgst vel með tækninni, bíó-
gestir sáu hvað fyrst stafrænar
tölur í Goldfinger, þegar tíma-
sprengjan tifaði og var búin að
telja niður í 007 þegar okkar mað-
ur skakkaði leikinn. Þá muna allir
Bond-unnendur atriðið þegar leysi-
geislinn risti í sundur stálbekkinn
sem 007 var ólaður niður á, líkt og
hann væri úr smjöri. En Bond
sigraðist á aðstæðunum þegar vít-
isgeislinn var kominn uppundir
hans helgustu vé. Hvað annað?
Svo mætti lengi telja.
Ég heiti Craig, Daniel Craig,
og er kominn til að vera
Það er ekki frítt við að léttur
ánægjuhrollur hríslist um gamla
Bond-aðdáendur þegar Craig birt-
ist í Casino Royale. James
„Blonde“, að vísu, því leikarinn er
allt að því norrænn í útliti, skol-
hærður með stingandi blá augu, en
að öðru leyti er hinn upprunalegi
Bond mættur til leiks. Craig skilar
honum samkvæmt bókinni, fremur
sín fyrstu dráp og þau vefjast ekki
fyrir karli. Hann stormar í gegn-
um myndina líkt og eins manns
vígvél, eirir engum óvini og á hann
bíta engin vopn. Ekki er laust við
að gert sé grín að gömlu ímynd-
inni og sú nýja í leiðinni gædd
raunveruleika ofbeldisfulls sam-
tímans. Þegar Bond svarar bar-
þjóni – er hann spyr hinnar klass-
ísku „martini-spurningar“:
„Hrærðan eða hristan?“ – pírir
007, árgerð ’06, á hann ísblá augun
og segir svo:
„Lít ég út fyrir að vera maður
sem telur slíkt skipta máli?“
Þannig er komið fyrir Bondara
dagsins. En hann verður einnig
ástfanginn, sýnir eftir allt ofbeldið
meiri tilfinningar en allir forverar
hans til samans. Craig skilar
mjúka manninum óaðfinnanlega og
nýtur aðstoðar hinnar stórfenglegu
Evu Green. Hér er farið að miklu
leyti eftir bókinni hans Flemings
og er myndin sú fyrsta í háa herr-
ans tíð sem getur auglýst með
sanni: „Byggð á sögu eftir Ian
Fleming“. Með miklu skáldaleyfi
að sjálfsögðu.
Craig vakti mikla lukku á þess-
um bæ í The Mother (’03), þar sem
hann sýndi ekki aðeins góðan leik
heldur hugrekki í hlutverkavali, en
hann leikur mann í tilvistarkreppu
og fer að sofa hjá sér mörgum ára-
tugum eldri konu. Hagur leikarans
vænkaðist enn frekar eftir magn-
aða frammistöðu sem svellkaldur
bófi í Layer Cake (’04), sem hefur
vafalaust ráðið mestu um val hans
í hlutverk Bonds.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 67
menning
Engar hömlur á verslun
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Að gefnu tilefni skal það tekið fram og ítrekað að þrátt fyrir nýjar öryggisreglur
geta farþegar eftir sem áður keypt allan vökva, krem og aðrar snyrtivörur
á frísvæði Flugstöðvarinnar hvort heldur sem þeir eru að fara af landi brott eða
koma til Íslands.
Allar upplýsingar um verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýjar öryggisreglur er
að finna á heimasíðu Flugstöðvarinnar www.airport.is
Fréttir á SMS
Bláskjár Leikarinn er allt að því norrænn í útliti, skolhærður með stingandi blá augu.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni