Morgunblaðið - 12.11.2006, Page 74
74 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Jólamyndatökur
Hverfisgötu 50, sími 552 2690
www.svipmyndir.is
Kalvin & Hobbes
ÞÚ ÁTT TVÆR
KENNSLUSTUNDIR
EFTIR ÓLIFAÐ
SÍÐAN KEMUR
LEIKFIMI OG ÞÁ BREYTI
ÉG ÞÉR Í GÚLLAS
ÉG ÞOLI EKKI LEIKFIMI
KENNARINN HELDUR AÐ
OFBELDI SÉ ÍÞRÓTT
Kalvin & Hobbes
HVAR ER EIGINLEGA
JAKKINN MINN?!
ÉG ER BÚINN AÐ LEITA ALLS
STAÐAR! UNDIR RÚMI...
Á STÓLNUM MÍNUM...
Í STIGANUM...
Á GÓLFINU Á GANGINUM...
Í ELDHÚSINU...
JAKKINN MINN ER
HORFINN!
HÉRNA ER HANN!
HVER SETTI JAKKANN
MINN INN Í SKÁP?!
Kalvin & Hobbes
ABRA-KADABRA!
HÓKUS-PÓKUS!
HEIMALÆRDÓMUR,
LÆRÐU ÞIG SJÁLFUR!
HEIMALÆRDÓMUR
VERTU BÚINN!
ANSANS
Risaeðlugrín
© DARGAUD
BRRR! ÞAÐ ER
FREKAR KALT Í DAG
SUMA DAGA LANGAR MANN
BARA TIL ÞESS AÐ VERA UPP
Í RÚMI, UNDIR SÆNG
DAVÍÐ TÆKI ÞAÐ
EKKI Í MÁL VINNAN ER
NÚMER 1, 2
OG 3! SEGIR
HANN ALLTAF
EN....
HEY ÞÚ! ÉG ÞEKKI ÞIG! ÞÚ VARST Á
ÞESSUM SAMA STAÐ Í GÆR. EKKI
NEITA ÞVÍ, ÉG SÁ ÞIG!
LÖGIN ERU ÓTVÍRÆÐ. ÞAÐ ER
BANNAÐ AÐ STALDRA HÉRNA VIÐ Í
SVONA LANGAN TÍMA. ÉG SKIPA
ÞÉR AÐ FÆRA ÞIG Í NAFNI LAGNNA
EÐA ÉG NEYÐIST TIL ÞESS AÐ GERA
ÞAÐ MEÐ VALDI!!
ÞÚ NEITAR AÐ HLÝÐA LÖGUNUM!
ERTU MEÐ MÓTÞRÓA? Í SÍÐASTA
SKIPTI, ÉG TEL UPP Á ÖÖÖ EINUM
ÉG VARAÐI
ÞIG VIÐ!
EINN! HVAÐ? HVAÐ
GERÐIST?
TAKK FYRIR! ÁN ÞÍN HEFÐI ÉG DVALIÐ Í
KLAKANUM TÍMUNUM SAMAN
ÞETTA ER ÉG! ÉG
VONA AÐ ÉG KOMI
EKKI OF SEINT
EN
EN...
...OG ÁÐUR EN ÉG NÁÐI AÐ ÁTTA MIG ÞÁ STÖKK
HANN Á MIG OG KYSSTI MIG!
ÞAÐ VERÐUR AÐ
LOKA HANN INNI!
ELSKAN! KOMDU
AFTUR! ÞETTA ER BARA
MISSKILNINGUR!!
Mannfræðifélag Íslandsbýður til fyrirlestrar kl.20 næstkomandi þriðju-dag, 14. nóvember, í
JL-húsinu. Þá mun Þórður Krist-
insson mannfræðingur flytja erindið
Kynbundin þekking? Karlar kljást
við hjúkrun.
Í fyrirlestrinum segir Þórður frá
niðurstöðum tveggja rannsókna um
karlmenn í hjúkrunarnámi og hjúkr-
unarstörfum: annars vegar rann-
sóknar sem hann vann sem hluta af
meistararitgerð sinni og hins vegar
rannsóknar sem hann vann fyrir
Jafnréttisráð Háskóla Íslands.
Um 1,4% starfandi hjúkr-
unarfræðinga á Íslandi eru karlar,
samanborið við 7–11% á hinum
Norðurlöndunum og hafa rannsóknir
Þórðar hafa leitt í ljós ýmsar áhuga-
verðar niðurstöður um þennan hóp:
„Þeir karlmenn sem fara í hjúkr-
unarnám eru töluvert sérstakir. Þeir
eru á skjön við samfélagið að því leyti
að þeir eru með bein í nefinu og láta
almenningsálit ekki á sig fá,“ segir
Þórður. „Þeir verða fyrir fordómum,
bæði úti í samfélaginu, á vinnustað
og jafnvel í náminu sjálfu, en ekki er
heldur óalgengt að þeir hagnist á
þeirri sérstöðu að vera karlar í
kvennafagi.“
Meðal þeirra fordóma sem karl-
hjúkrunarfræðingar og -nemar
verða fyrir nefnir Þórður að þeir
þyki skrítnir og gefið sé í skyn að
þeir séu að taka niður fyrir sig með
því að leggja fyrir sig kvennafag.
Hins vegar standi karlar oft vel að
vígi þegar þeir hefja starfsferil sinn
við hjúkrun: „Þá virðist oft ætlast til
þess að þeir séu leiðtogar í starfinu,
séu áberandi í ákvarðanatöku og taki
að sér þau hjúkrunarverk sem þykja
hefðbundin karlmannsverk.“
Misduglegir í námi
Þórður skoðaði sérstaklega stöðu
karla í hjúkrunarfræðináminu sjálfu:
„Meðal annars bar ég saman hjúkr-
unarfræðinámið, með tilliti til þess
hvort það væri kvenmiðað eða karl-
miðað, við bandarísk skrif um hvaða
námsaðferðir og námsefni hentar
best kynjunum. Ég komst að því að
þær náms- og kennsluaðferðir sem
notaðar eru við hjúkrunardeildina
ættu frekar að henta körlum en kon-
um, en hins vegar eru þeir karlar,
sem hefja nám við deildina, oft svo
sérstakir að þeir passa ekki inn í
módel um karllægar kennsluaðferð-
ir,“ segir Þórður. „Eins gengur körl-
unum misvel í náminu. Gert var átak
til að vekja athygli á hjúkrunarnám-
inu fyrir fimm árum og meðal annars
sérstaklega reynt að höfða til karl-
manna. Það skiptið sótti metfjöldi
karla um nám við deildina, en mjög
svipaður fjöldi og árin á undan stóðst
„klásus“ og komst yfir á næsta náms-
ár. Margir féllu úr náminu mjög
snemma, mættu lítið sem ekkert eða
komust fljótt að þeirri niðurstöðu að
námið ætti ekki við þá.“
Nálgast má rannsóknir Þórðar á
heimasvæði hans á slóðinni
www.hi.is/~thordurk.
Fyrirlesturinn á þriðjudag er öll-
um opinn og aðgangur ókeypis.
Mannfræði | Sagt frá rannsóknum á stöðu
karla í hjúkrunarnámi og -störfum
Karlar kljást
við hjúkrun
Þórður Krist-
insson fæddist í
Reykjavík 1976.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
við Hamrahlíð
1997, BA-gráðu í
mannfræði frá
Háskóla Íslands
2001 og meistaragráðu í mannfræði
frá sama skóla 2003 og stundaði
hann hluta af námi sínu við Uni-
versidad Autónoma de Barcelona.
Þórður hefur fengist við ýmis rann-
sóknar- og kennslustörf. Hann hef-
ur verið stundakennari við Háskóla
Íslands frá 2003 og kennari við
Kvennaskólann í Reykjavík frá
2005. Þórður er kvæntur Þuríði
Ósk Sigurjónsdóttur félagsfræðingi
og eiga þau einn son.