Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Sætúni 4 Sími 517 1500 ÍSLANDS MÁLNING Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Hjá Íslandsmálningu Færðu alla gæðaflokka og alla verðflokka á málningarvörum Skútuvogi 13 Sími 5171501 við hliðina á Bónus ÍSLANDS MÁLNING ÍSLANDS MÁLNING Frábært fyrirtæki Til sölu er frábært fyrirtæki sem selur mat frá Póllandi. Eins og Íslendingar vilja Pólverjar helst sinn eigin mat. Þetta eru matvöruverslun og matsölustaður, hvorutveggja staðsett í Hafnarfirði. Nú þegar er mikil fjölgun Pólverja og á eftir að stóraukast næstu árin. Fyrirtækið flytur inn matinn frá Póllandi. Tilvalið fyrirtæki fyrir Pólverja sem tala góða íslensku eða þann sem á pólskan maka. Wyjatkowa okazja – dobry interes. Na sprzedaz zostal wystawiony sklep, który secjalizuje sie sprzedaza polskich produktów zywnosciowych a takze kuchnia polska,specjalizujaca sie w gotowaniu polskich dan, szczególnie dla wszelkich zakladów pracy,przede wszystkim wszedzie tam, gdzie sa zatrudnieni obywatele polscy i pracownicy z innych krajów. Obydwa przed- siebiorstwa znajduja sie na terenie miasta Hafnar- fjörður,sklep przy gównej ulicy – Reykjavikuvegur natomi- ast restauracja jest usytuowana w samym srodku zakladów pracy i blisko bloków mieszklanych,przy ul Hvaleyrarbraut. Bardzo dobry interes szczególnie dla pary polsko- islandzkiej, dla tych którzy wladaja j.islandzkim oraz dla wszystkich przedsiebiorczych i energicznych, pragnacych poznawac swiat i ludzi. Dodatkowych informacji na ten temat udziela Maria pod nr. tel. 696-8366 lub w biurze nieruchomosci przy ul.Suðurver w Reykjavík pod nr. tel: 8961810 Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Elsta fyrirtækjasalan á landinu. London. AP. | Vinur njósnaforingjans fyrrverandi, Alexanders Lítvínenk- os, sem lést af völdum eitrunar í London þann 23. nóvember sl., sagð- ist í viðtali við AP-fréttastofuna í gær hafa látið lögreglunni í hendur nafn aðila sem hann telur hafa skipu- lagt morðið á Lítvínenko. „Svo vill til að ég tel mig vita hver standi á bak við dauða vinar míns Lítvínenkos og ástæðuna fyrir morð- inu,“ sagði Júrí Shvets í símaviðtali frá Bandaríkjunum, þar sem hann er nú í fríi. Fullyrti Shvets, sem starfaði fyrir sovésku leyniþjónustuna gömlu, KGB, að um væri að ræða al- þjóðlega hryðjuverkastarfssemi. Þá hafa bresk stjórnvöld ákveðið að senda hóp lögreglumanna til Moskvu til að rannsaka málið. Innt- ur eftir málsatvikum, sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands, þau hafa spillt samskiptum Rússlands og Bretlands. Morðingi njósnara fundinn? Vinur Lítvínenkos nefnir banamanninn Sydney. AFP. | Ástralski Verka- mannaflokkurinn, sem er í stjórnar- andstöðu, kaus í gær að skipta um leiðtoga þegar Kim Beazley vék fyrir Kevin Rudd í kjöri um formannssæti flokksins. Beazley, sem hættir jafn- framt í stjórnmálum eftir 26 ára fer- il, hefur þótt umdeildur en ástríðu- fullur forystumaður. Rudd er fimmti leiðtogi jafnaðar- manna á þessum tíu árum, tímabili sem hefur einkennst af veikri stjórn- arandstöðu og innbyrðis deilum jafn- aðarmanna sem voru við völd árin 1983 til 1996. Rudd tekur við Beazley ♦♦♦ MÖRGUM útlendingum finnst sérkennilegt að Íslendingar leggi sér sviðahausa til munns. Þeir hinir sömu ættu að bregða sér suður á bóginn og kynna sér matseld í borginni Huangshan í Anhui-héraðinu í austurhluta Kína, þar sem þessi gengilbeina sýnir forvitnum ljósmyndara hvernig matreitt krókódílahöfuð er borið fram. Huifu-veitingahúsið hefur vakið athygli fyrir krókódílarétti sína, á borð við krókódílakebab. AP Má bjóða þér upp á krókódílahöfuð? Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, sem birt var í gær, að ástandið í Írak væri „einstaklega hættulegt“ og að það hefði versnað frá því að Saddam Hussein, fyrrverandi for- seta, var steypt af stóli í innrás herja Bandaríkjahers og Breta árið 2003. „Fyrir nokkrum árum, þegar við upplifðum átök í Líbanon og á öðrum stöðum, kölluðum við þau borgara- styrjöld. Þetta er miklu verra,“ sagði Annan, sem jafnframt lýsti því yfir að það hefði verið mikið áfall fyrir SÞ að geta ekki komið í veg fyrir innrásina, sam- tökin væru enn að jafna sig. Muwaffaq al- Rubaie, þjóðar- öryggisráðgjafi Íraks, vísaði um- mælunum á bug og lagði fram þá spurningu hvort Annan gerði ekki greinarmun á fjöldamorðum stjórnar Husseins og drápum hryðjuverkasamtakanna al- Qaeda í Írak á óbreyttum borgurum. „Ég er hneykslaður og agndofa yf- ir því sem Kofi Annan gaf í skyn að ástandið hefði verið betra undir ein- ræðisstjórn Saddams Husseins,“ sagði al-Rubaie. Hann tjáði sig einn- ig um aðdraganda innrásarinnar, með þeim orðum að hann teldi að Sameinuðu þjóðirnar hefðu brugðist skyldum sínum gagnvart írösku þjóðinni árið 2003. Háttsettur klerkur súnníta í Írak, Sheikh Hareth al-Dhari, sem stjórn- völd í Bagdad vilja yfirheyra vegna gruns um að hann hafi ýtt undir átök milli trúarhópa, hvatti í gær alþjóða- samfélagið til að bjarga Írak frá því sem hann líkti við „algert hrun“. Dhari er nú í heimsókn í Sanaa, höf- uðborg Jemens, og sakaði hann rík- isstjórn Nuri al-Malikis, forsætis- ráðherra Íraks, um að bera ábyrgð á vandanum í landinu. Frumskilyrði þess að friður kæmist á væri að Bandaríkjamenn yfirgæfu landið. „Aðeins Írakar munu leysa vanda- mál Íraks,“ sagði Dhari og gaf í skyn að ónafngreind grannríki sem ættu sameiginlega hagsmuni með Banda- ríkjunum bæru ábyrgð á ástandinu. Blair til fundar í Hvíta húsinu Þá mun Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, hitta George W. Bush Bandaríkjaforseta að máli í Hvíta húsinu á föstudag, þar sem rætt verður um stöðu mála í Írak, Afganistan og Mið-Austurlöndum. Blair kemur til Bandaríkjanna á miðvikudag, sama dag og þverpóli- tísk nefnd um Íraksmálin mun skila af sér skýrslu sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu en óstað- festar fregnir herma að hún muni leggja til bein samskipti við stjórn- völd í Íran og Sýrlandi. Ummæli Annans vekja reiði Kofi Annan Taldi hugtakið borgarastyrjöld ekki nógu sterkt til að lýsa ástandinu í Írak Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Í GÆR var fullyrt í einu helsta mál- gagni Tamíl-Tígranna á Sri Lanka, vefsíðunni tamilnet.com, að stjórn- völd hefðu ógilt vopnahléssamkomu- lagið frá árinu 2002, með því að biðja Norðmenn, sem leiða friðarferlið, um að hætta að hafa samskipti við Tígrana í kjölfar misheppnaðs morð- tilræðis á varnarmálaráðherra landsins í Colombo á föstudag. Aðspurður um hótunina á vefsíð- unni sagði Þorfinnur Ómarsson, tals- maður norrænu eftirlitssveitanna, SLMM, á Sri Lanka, að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem slík hótun hefði verið sett fram. Ástandið hefði verið þrungið spennu eftir tilræðið. „Það er óhætt að segja að svona eindregin tilraun til að myrða varn- armálaráðherrann, sem er auk þess bróðir forsetans, ógnar friðarferlinu með mjög alvarlegum hætti,“ sagði Þorfinnur. „Stjórnin bað Norðmenn um að fresta samskiptum við Tígr- ana þangað til á miðvikudag [á morg- un]. Það er rætt um að banna Tígr- ana. Tígrarnir eru ekki bannaðir og erfitt að sjá hvernig bann geti farið saman við vopnahlé.“ Norðmenn urðu við beiðni stjórn- arinnar um að fresta heimsókn til helsta vígis Tígranna í Kilinochchi. Rætt um að banna Tígrana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.