Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 39
Atvinnuauglýsingar
Óskum eftir starfsfólki
Vegna mikillar aukningar viðskiptavina í fyrir-
tækjaþjónustu Kerfis leitum við að hressu
starfsfólki sem er til í að vinna með okkur í ört
vaxandi fyrirtæki.
Við óskum eftir starfsfólki í eftirfarandi
starf
● Þjónustufulltrúum í útkeyrslu á ýmsum vörum
fyrir kaffistofuna t.d. kaffi, rekstrarvörum, drykkj-
arvatni o.fl. ásamt tilfallandi lagerstörfum.
Helstu kröfur í þessi störf
● Aldur 18-45.
● Snyrtimennska og heiðarleiki.
● Frumkvæði og jákvæðni.
● Reyklaust fyrirtæki.
Lögð er mikil áhersla á að fólk eigi auðvelt með
mannleg samskipti.
Við bjóðum uppá góðan starfsanda í góðu fyrirtæki í mikilli stækkun
Kerfi er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í leigu og sölu á kaffi- og
vatnsvélum. Kerfi selur einnig allar aðrar rekstrarvörur sem tilheyra
kaffistofunni.
Vinsamlegast sendið umsókn með mynd á
netfangið bjarni@kerfiehf.is
Umsóknir berist fyrir 10. desember.
Smiðir óskast
Óska eftir 1-2 smiðum í tímabundið verkefni til
jóla við byggingu sumarbústaðar í Borgarfirði.
Góð aðstaða og húsnæði. Upplýsingar í símum
897 6121 og 698 3404.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar
boðar til
auka-aðalfundar
þriðjudaginn 5. desember 2006 kl. 20.30 á
Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fundurinn er haldinn vegna væntanlegrar sam-
einingar Starfsmannafélags Akraness við
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um næstu
áramót.
Fundarefni:
1. Tillaga til lagabreytingar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Bjarkarbraut 5, íb. 01-0301, Dalvíkurbyggð, (215-4691), þingl. eig. LMS
ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Tollstjóraembættið, föstudag-
inn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Gránufélagsgata 19, 01-0101, Akureyri (214-6607), þingl. eig. Hermann
Rúnar Stefánsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., föstu-
daginn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Grænagata 4, 01-0101, Akureyri (223-0948), þingl. eig. Arnrún Magn-
úsdóttir og Friðrik Valur Karlsson, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf.,
föstudaginn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Guðrún Jakobsdóttir EA-144, skipaskr.nr. 1968, þingl. eig. Snuddi ehf.,
gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Akureyri og Tryggingamiðstöðin
hf., föstudaginn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Hafnargata 17, Grímsey (215-5499), þingl. eig. Brynjólfur Árnason,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 8. desember 2006
kl. 10:00.
Hjallalundur 7a, 01-0101, Akureyri (214-7439), þingl. eig. Ólöf Vala
Valgarðsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 8. des-
ember 2006 kl. 10:00.
Jódísarstaðir, 01-0101, eignarhl. Eyjafjarðarsveit (215-9019), þingl. eig.
Halldór Heimir Þorsteinsson, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf.,
Sparisjóður Norðlendinga og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudag-
inn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Karlsbraut 20, Dalvíkurbyggð (215-4995), þingl. eig. Gísli Steinar Jó-
hannesson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 8. desem-
ber 2006 kl. 10:00.
Karlsrauðatorg 4, Dalvíkurbyggð (215-5014), þingl. eig. Þuríður Svava
Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 8. des-
ember 2006 kl. 10:00.
Melbrekka-Rauðhús, lóð 21, Eyjafjarðarsveit (215-9361), þingl. eig.
Anna Kristín Hansdóttir og Natural White ehf., gerðarbeiðandi Kaup-
þing banki hf., föstudaginn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Svarfaðarbraut 6, 50%, eignarhl. Dalvíkurbyggð (215-5280), þingl. eig.
Gunnar L. Hjartarson, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., föstudag-
inn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Þingvallastræti 18, Akureyri (215-1850), þingl. eig. Anna Kristín Hans-
dóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., föstudaginn 8. desember
2006 kl. 10:00.
Ægisgarður nhl. Arnarneshreppur (215-7207), þingl. eig. María Stein-
unn Jóhannesdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sandgerð-
isbær, föstudaginn 8. desember 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
4. desember 2006.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Tilkynningar
KÓPAVOGSBÆR
„Ljóðstafur Jóns úr Vör”
Ljóðasamkeppni
Lista- og menningarráð Kópavogs minnir
á að skilafrestur í árlegri ljóðasamkeppni
undir heitinu “Ljóðstafur Jóns úr Vör” er til
og með 15. desember 2006 og utanáskriftin
er:
„Ljóðstafur Jóns úr Vör”
Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs
b.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur,
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi
Jóns úr Vör sunnudaginn 21. janúar 2007.
Þátttökuljóð má sækja
á ofangreint heimilisfang
fyrir 1. febrúar;
eftir það verður
þeim eytt.
Félagslíf
Jólafundur í kvöld !
Jólafundur Lífssýnar verður
haldinn í Bolholti 4 (4. hæð) í kvöld,
þriðjudagskvöldið 5. desember
kl. 20.30
Jólahelgileikur og skemmtun.
Kaffiveitingar. Aðgangseyrir 500
kr. Allir velkomnir
Stjórnin. EDDA 6006120519 I
FJÖLNIR 6006120519 III
HLÍN 6006120519 IV/V
I.O.O.F. Rb. 4 1551258-
Raðauglýsingar
sími 569 1100
DORIT Otzen ræðir um vændi og
mansal í erindinu „Hið blinda auga
lýðræðisins“ í Norræna húsinu í
dag, þriðjudaginn 5. des., kl. 17.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að Dorit Otzen sé umsjónarkona
ýmissa úrræða fyrir konur í vændi í
Danmörku og er gestur Stígamóta í
tengslum við 16 daga átak gegn
kynbundnu ofbeldi. Otzen hefur í
áratugi séð um rekstur Hreiðursins
í Kaupmannahöfn sem er athvarf
fyrir vændiskonur á götunni og úr-
ræðið „Stöðvum verslun með kon-
ur“ sem er þjónusta stjórnvalda við
konur sem seldar hafa verið man-
sali í dönskum klámiðnaði.
Dorit hefur einnig haft umsjón
með mörgum fleiri úrræðum fyrir
konur í danska klám- og vændisiðn-
aðinum og hún er forseti Inter-
national Abolitionist Federation
sem eru elstu samtök í heimi gegn
vændi. Í fyrirlestri hennar „Hið
blinda auga lýðræðisins“ dregur
hún saman 25 ára norrænar rann-
sóknir á vændi. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku.
Ræðir um
vændi og
mansal
FÉLAG einstæðra foreldra býður til
formlegrar opnunar nýrrar skrif-
stofu í Aðalstræti 9, 2. hæð, miðviku-
daginn 6. desember kl. 16.
Kynnt verður bætt aðstaða, stór-
efld starfsemi og nýjungar í starfi og
þjónustu félagsins. Léttar veitingar
verða í boði.
Jóhanna Kristjónsdóttir, stofn-
andi félagsins, flytur ávarp. Laufey
Ólafsdóttir, formaður félagsins,
kynnir þau verkefni sem fyrirhuguð
eru á komandi ári. Oktavía Guð-
mundsdóttir félagsráðgjafi og Katr-
ín Theódórsdóttir lögfræðingur
kynna þjónustu sína við félagsmenn.
Að erindum loknum verða umræður.
Ný skrifstofa
Félags ein-
stæðra foreldra
FIMMTUDAGINN 7. desember
heldur Guðjón Bergmann tveggja
stunda fyrirlestur í samstarfi við
Eddu útgáfu á Grand hóteli
Reykjavík með yfirskriftinni Fyr-
irgefningin: Heimsins fremsta
lækning.
Þetta er í annað skiptið sem fyr-
irlesturinn er haldinn á stuttum
tíma vegna mikillar eftirspurnar,
segir í fréttatilkynningu. Fyrirlest-
urinn er nefndur í höfuðið á bók
eftir Gerald Jampolsky sem Guð-
jón þýddi af ensku fyrir rúmum
sex árum og kom upphaflega út
hjá Leiðarljósi ehf. en hefur nú
verið endurútgefin af Eddu útgáfu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og
stendur í rúma tvo tíma. Aðgangs-
eyrir er 2.500 kr. Hægt er að mæta
beint á fyrirlesturinn eða skrá sig
á www.gbergmann.is.
Fyrirlestur
um fyrir-
gefninguna
ÁRLEG Jólasala Iðjuþjálfunar geð-
deildar Landspítalans við Hring-
braut verður fimmtudaginn 7. des-
ember frá klukkan 12 til 15.30
síðdegis. Markaðurinn er haldinn í
anddyri geðdeildarhúss LSH við
Hringbraut.
Þar verða að venju vandaðar
handunnar vörur á vægu verði; úr-
val leirmuna, vörur unnar af tré-
smíðaverkstæði og saumastofu.
Ágóði sölunnar rennur til starfsemi
iðjuþjálfunar en þangað koma bæði
sjúklingar af geðdeildunum við
Hringbraut og fólk utan úr bæ í end-
urhæfingu.
Markmið iðjuþjálfunar er að meta
færni skjólstæðinga, hvetja þá og
styðja til sjálfstæðis við daglega iðju.
Iðjuþjálfun veitir námsstyrki
tvisvar á ári í framhaldi af sumar- og
jólamarkaði. Hún getur því gegnt
margvíslegu og veigamiklu hlut-
verki í bata margra sem glímt hafa
við geðsjúkdóma, segir í frétta-
tilkynningu.
Kaffi og veitingasala verður á
staðnum.
Jólasala
Iðjuþjálfunar
geðdeildar
VODAFONE á Íslandi hefur hrund-
ið af stað átaki til að endurvinna og
endurnýta eldri farsíma sem lands-
menn eru hættir að nota. Farsím-
arnir verða yfirfarnir og endurunnir
eða lagfærðir og síðan sendir til Afr-
íku, Austur-Evrópu og Asíu. Þar
verða þeir seldir fyrir brot af upp-
haflegu verði.
Margir farsímar sem fólk leggur
til hliðar eru í nothæfu ástandi og
koma því í góðar þarfir í þróun-
arríkjunum þar sem uppbygging
farsímakerfa er mun hagkvæmari
en lagning landlínu. Á slíkum svæð-
um telst farsími ekki munaður held-
ur nauðsynlegt öryggis- og sam-
skiptatæki. Kostnaður við símtækin
sjálf hefur verið einn helsti þrösk-
uldur fyrir því að þessi ríki nái að
innleiða símatæknina í stórum stíl.
Fólk sem kemur með farsíma til
Vodafone getur fengið 1.000 kr. upp
í nýjan GSM-síma eða lagt 1.000 kr. í
Samfélagssjóð Vodafone. Fyr-
irtækið leggur einnig 1.000 kr. á
móti hverjum farsíma sem það fær í
hendur. Stefnt er að því að veita úr
Samfélagssjóðnum í janúar á næsta
ári.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Söfnun hafin Þingmenn úr umhverfisnefnd Alþingis ýttu farsímasöfnun
Vodafone formlega úr vör. Rannveig Guðmundsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Mörður Árnason og Kolbrún Halldórsdóttir með nokkra gamla síma.
Vodafone endurvinnur
gömlu farsímana