Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Alþingi fresti ákvörðun
um gjöld á áfengi
ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð-
herra lagði til á Alþingi í gær að
þingið frestaði því að taka afstöðu til
ákvæða í matarskattsfrumvarpinu
svonefnda sem kveða á um lækkun
virðisaukaskatts á áfengi og hækkun
áfengisgjalds.
Hann sagði að tillögurnar hefðu
valdið talsverðri ólgu og að þær
gætu því orðið mjög umdeildar. Það
væri því skynsamlegt að þingið
frestaði því að taka afstöðu til þeirra.
Árni mælti fyrir matarskatts-
frumvarpinu í gær en í því er m.a.
kveðið á um lækkun virðisauka-
skatts, þannig að öll matvara beri 7%
virðisaukaskatt frá og með 1. mars
nk. Auk þess er lagt til að öll vöru-
gjöld af matvælum, öðrum en sykri
og sætindum, falli niður frá sama
tíma.
Í frumvarpinu eru lagðar til fleiri
breytingar, m.a. að virðisaukaskatt-
ur af áfengi lækki í 7% og að áfeng-
isgjald hækki á móti. Ýmsir urðu
hins vegar til þess að mótmæla þess-
um breytingum. Formaður Félags
íslenskra stórkaupmanna, Andrés
Magnússon, sagði til að mynda að
þetta myndi leiða til þess að ódýr
bjór og sterk vín hækkuðu í verði en
dýrari tegundir lækkuðu.
Ráðherra sagði á Alþingi í gær að
það væri rétt að tillögurnar myndu
hafa í för með sér mismunandi breyt-
ingar á verði áfengis eftir tegundum.
„Það er ljóst að breytingarnar geta
verið umtalsverðar og greinilegt að
þær hafa valdið talsverðri ólgu,“
sagði hann. Ráðherra tók fram að
ekki væri gert ráð fyrir því að breyt-
ingarnar hefðu áhrif á tekjur ríkis-
sjóðs og því væri skynsamlegt að
fresta því að taka afstöðu til þeirra.
Þannig gæfist tími til að fara betur
yfir þær með hagsmunaaðilum og
öðrum þeim sem hefðu gert athuga-
semdir við þær.
Mælt fyrir matarskattsfrumvarpinu á Alþingi
Í HNOTSKURN
» Í frumvarpi um breyt-ingar á virðisaukaskatti er
lagt til að vsk. af víni lækki í
7% en að áfengisgjald hækki á
móti.
» Ýmsir hafa mótmælt þess-um breytingum og sagt að
þær leiddu til þess að ódýrt
áfengi hækkaði í verði en dýr-
ari tegundir lækkuðu.
» Ráðherra lagði til að þing-ið frestaði því um sinn að
taka afstöðu til breytinganna.
ÞRJÁTÍU manns; tuttugu karlar og
tíu konur, fá heiðurslaun listamanna
á næsta ári, samkvæmt tillögu
menntamálanefndar Alþingis. Nema
launin samtals 48 milljónum króna,
en hver listamaður fær 1,6 milljónir.
Þrír listamenn bætast í hópinn
frá þessu ári, en þá fengu 27 lista-
menn heiðurslaun. Þeir sem bætast
við eru: Magnús Pálsson, Guðmund-
ur Jónsson og Guðmunda Elíasdótt-
ir.
Aðrir listamenn sem fá heiðurs-
laun frá Alþingi eru: Atli Heimir
Sveinsson, Ásgerður Búadóttir,
Erró, Fríða Á. Sigurðardóttir, Guð-
bergur Bergsson, Gunnar Eyjólfs-
son, Hannes Pétursson, Herdís Þor-
valdsdóttir, Jóhann Hjálmarsson,
Jón Nordal, Jón Sigurbjörnsson,
Jón Þórarinsson, Jónas Ingimund-
arson, Jórunn Viðar, Kristbjörg
Kjeld, Kristinn Hallsson, Kristján
Davíðsson, Matthías Johannessen,
Megas, Róbert Arnfinnsson, Thor
Vilhjálmsson, Vigdís Grímsdóttir,
Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorbjörg
Höskuldsdóttir, Þorsteinn frá
Hamri, Þráinn Bertelsson og Þur-
íður Pálsdóttir.
Hafa verið veitt frá 1944
Heiðurslaun listamanna hafa ver-
ið veitt síðan að minnsta kosti árið
1944. Engin lagaákvæði gilda um
þessi laun, en menntamálanefnd
þingsins hefur gert tillögu um heið-
urslaunin á hverju ári og eru þau
sett á fjárlög næsta árs.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hefur síðustu árin
mótmælt þessum heiðurslaunum og
greitt, einn þingmanna, atkvæði
gegn þeim.
Þrír nýir fá heið-
urslaun listamanna
SIGURJÓN Þórðarson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, hélt því fram á
Alþingi í gær að forseti Alþingis legði
Frjálslynda flokkinn í einelti. Sólveig
Pétursdóttir, forseti þingsins, vísaði
því á bug.
Sigurjón kvaddi sér hljóðs eftir að
óundirbúnum fyrirspurnartíma lauk á
Alþingi og kvartaði yfir því að fyrir-
spurn hans til sjávarútvegsráðherra
skyldi ekki hafa verið tekin á dagskrá.
Hins vegar hefði Samfylkingin verið
með tvær fyrirspurnir, Vinstri grænir
eina og Framsókn eina. „Mér finnst
stórundarlegt að verða vitni að því á
þjóðþingi Íslendinga að einn flokkur,
minnsti flokkurinn, skuli vera lagður í
einelti af forseta þingsins.“ Sólveig
vísaði þessu á bug. Fleiri fyrirspurnir
hefðu ekki komist á dagskrá, þrátt fyr-
ir að beiðnir um þær hefðu verið lagð-
ar fram á undan beiðni Frjálslyndra.
Lagðir
í einelti
MEIRIHLUTI fjárlaganefndar Al-
þingis leggur til, við þriðju umræðu
um fjárlagafrumvarp næsta árs, að
gerðar verði breytingar á frum-
varpinu sem nemi alls 96 milljónum
kr. til lækkunar útgjalda. Gert er
ráð fyrir því að lokaatkvæða-
greiðsla um fjárlagafrumvarpið
fari fram á Alþingi á morgun, mið-
vikudag.
Lækki um 139 milljónir
Í tillögum meirihlutans er m.a.
lagt til að fjárveiting til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna (LÍN) lækki
um 139 milljónir frá því sem gert
var ráð fyrir í upphaflegu frum-
varpi. „Frá síðustu áætlun hafa
nokkrar breytingar orðið hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna. Um-
sóknum um námslán hefur ekki
fjölgað eins mikið og ráð var gert
fyrir. Áætluð fjölgun námsmanna á
Íslandi og erlendis er nú 3%. Gert
er ráð fyrir að lánþegar verði
10.600 og útlán hækki úr 8.260
m.kr. á árinu 2006 í 9.506 m.kr. á
árinu 2007 í stað 9.778 m.kr. eins og
gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
Einnig hefur gengisþróun verið
hagstæð,“ segir m.a. í skýringum
með tillögum meirihlutans.
Samtals verða því fjárframlög
ríkissjóðs til LÍN á næsta ári um
5.244 milljónir króna í stað um
5.383 milljóna króna.
Morgunblaðið/Kristinn
Lagt til að framlag til
LÍN lækki á næsta ári
Íhugulir þingmenn Á morgun verður fjárlagafrumvarpið til lokaumræðu.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær að það væri
sjálfsagt rétt að betra og heppilegra
hefði verið ef meira og betra samráð
hefði verið haft við utanríkismála-
nefnd þingsins er ákveðið var að ís-
lensk stjórnvöld styddu innrás
Bandaríkjamanna og Breta í Írak ár-
ið 2003. Hann sagði hins vegar að
hann teldi að ákvörðunin um stuðn-
inginn hefði verið rétt í ljósi þeirra
upplýsinga sem þá lágu fyrir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, var máls-
hefjandi umræðunnar á Alþingi í fyr-
irspurnartíma á Alþingi í gær. Hún
vitnaði m.a. í ræðu Jóns Sigurðsson-
ar, formanns Framsóknarflokksins, á
miðstjórnarfundi Framsóknar nýver-
ið. Þar sagði hann m.a. að ákvarðanir
íslenskra stjórnvalda á sínum tíma
um málefni Íraks hefðu verið rangar
eða mistök. Forsendur hefðu verið
rangar og ákvarðanaferlinu ábóta-
vant. Ingibjörg Sólrún spurði for-
sætisráðherra hvort ekki væri kom-
inn tími til þess að hann, fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar, iðraðist ákvörðun-
arinnar og bæðist afsökunar á henni.
Geir svaraði því m.a. til að stjórn-
völd hefðu, í sambandi við Íraksmálið,
samþykkt í fyrsta lagi að leyfa yfir-
flug og lendingar hér á landi. Auk
þessa hefði Alþingi samþykkt, með
sérstakri fjárveitingu, að verja 300
milljónum kr. til uppbyggingarstarfs
og mannúðar- og neyðaraðstoðar í
Írak. Sú fjárveiting hefði verið aðild
Alþingis að málinu. „Ég tel að sú af-
staða sem tekin var af hálfu íslenskra
ráðamanna á þeim tíma hafi verið
réttlætanleg í ljósi þeirra upplýsinga
og þess sem lá fyrir um þetta mál á
þeim tíma,“ sagði hann.
Gott að vera vitur eftir á
Ingibjörg Sólrún lét ekki þar við
sitja heldur spurði ráðherra aftur að
því hvort hann væri sammála Jóni
Sigurðssyni. Geir sagði þá að alltaf
væri hægt að vera vitur eftir á. „En
ég tel að sú ákvörðun sem var tekin á
þeim tíma, og við erum hér að tala
um, hafi verið rétt miðað við þær for-
sendur sem þá lágu fyrir.“ Hann
kvaðst margoft hafa tekið þetta fram
á Alþingi.
„Hvort síðan hefði mátt hafa meira
og betra samráð við utanríkismála-
nefnd, þá er það sjálfsagt rétt að það
hefði verið betra og heppilegra að það
hefði verið gert, en það var sem sagt
ekki svo,“ sagði Geir.
Morgunblaðið/Kristinn
Íraksmál Stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrás Bandaríkjamanna í
Írak var ræddur á Alþingi, að frumkvæði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Samráð hefði
verið heppilegra
Kallað eftir iðrun í Íraksmálinu