Morgunblaðið - 07.12.2006, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/39
Staksteinar 8 Minningar 40/46
Veður 8 Brids 46
Úr verinu 16 Menning 50/56
Erlent 18/19 Leikhús 55
Menning 20/22 Myndasögur 56
Höfuðborgin 24 Dægradvöl 57
Akureyri 24 StaðurStund 58
Austurland 25 Dagbók 58
Landið 25 Víkverji 60
Daglegt líf 26/31 Velvakandi 60
Forystugrein 32 Bíó 58/61
Viðhorf 34 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
Bandaríska verslanakeðjan
Whole Foods Market hefur ákveðið
að hætta markaðssetningu á íslensk-
um vörum í verslunum sínum. Er
það gert vegna ákvörðunar íslenskra
stjórnvalda um að hefja hvalveiðar í
atvinnuskyni að nýju. » Forsíða
Breytingar á frumvarpi um al-
mannatryggingar munu m.a. fela í
sér að gildistöku 300 þúsund króna
frítekjumarks atvinnutekna lífeyr-
isþega verði flýtt til 1. janúar nk. » 4
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra kynnti í gær aðgerð-
aráætlun stjórnvalda vegna ofbeldis
á heimilum og kynferðislegs ofbeldis.
Með henni er m.a. stefnt að bættum
aðbúnaði þeirra sem orðið hafa fyrir
ofbeldi og eru í áhættuhópi. » 14
Talsmaður verktaka hjá Sam-
tökum iðnaðarins segir verktakafyr-
irtæki vel í stakk búin til að takast á
við auknar vegaframkvæmdir og að
aðstæður á þessum markaði verði
vart hagstæðari. » Baksíða
Erlent
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, segir að ný Íraksskýrsla
gefi mjög dökka mynd af stöðunni í
Írak en í henni séu áhugaverðar til-
lögur og hann taki allar tillögur al-
varlega. Forsetinn biður um póli-
tískt vopnahlé í Íraksmálinu og með
þjóðarhag í huga sé best að allir
vinni saman í því. » Forsíða
Samkvæmt nýrri rannsókn á
vegum Sameinuðu þjóðanna eiga
efnuðustu tvö prósent jarðarbúa
meira en helming heildarauðs heim-
ilanna og ríkustu 10 prósentin eiga
85 prósent auðsins. » 18
Vladímír Kolesníkov, aðstoðar-
dómsmálaráðherra Rússlands, sagði
í gær að Rússar ættu að efna til eig-
in rannsóknar á dauða njósnarans
fyrrverandi, Alexanders Lítv-
ínenkos. » 19
Kynning – Morgunblaðinu fylgir kynn-
ingarblaðið Akureyri.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur hafnað skaðabótakröfu Sigurðar
Hreinssonar á hendur Keri hf., áður
Olíufélagið hf., vegna tjóns sem hann
hlaut af ólögmætu samráði olíufélag-
anna sem talið er að hafi átt sér stað
frá árinu 1993 til loka ársins 2001.
Taldi dómurinn að sóknaraðili hefði
ekki gert allt sem í hans valdi stóð til
að sýna fram á tjón sitt.
Sigurður fór fram á 180 þúsund
krónur í skaðabætur vegna tjóns síns
og byggði útreikning sinn á niður-
stöðum í skýrslu hagfræðingsins
Johns M. Connors, prófessors við
Purdue-háskólann í Bandaríkjunum.
Connor rannsakaði 674 tilvik svokall-
aðs yfirverðs sem stafað hefði af verð-
samráði fyrirtækja víðsvegar um
heiminn og komst að því að miðgildi
yfirverðs á árunum 1991 til 2003 hefði
verið 17–19% í Evrópu.
Sigurður greiddi tæpar 1,2 milljón-
ir kr. fyrir eldsneyti á tilteknu tíma-
bili og byggði á því að ef ekki hefði
verið fyrir samráð olíufélaganna hefði
hann greitt 18% lægra verð.
Fjölskipaður héraðsdómur taldi
skýrsluna ekki haldbæra sönnun fyrir
því að stefnandi hefði greitt tiltekið
lægra verð ef samráð olíufélaganna
hefði ekki komið til og sýknaði Ker af
aðalkröfu stefnanda.
Í málflutningi stefnanda kom fram
að hafa yrði í huga að erfiðleikum
bundið væri að sanna nákvæmlega
fjárhæð tjónsins í tilvikum sem þessu
og hefði það m.a. leitt til þess að dóm-
stólar víða í Evrópu hefðu slakað á
sönnunarkröfum því neytendur yrðu
að fá að byggja á því að til að öðlast
bótarétt væri nægilegt að gera tjón
sennilegt, þótt nákvæm fjárhæð væri
ekki tilgreind. Ef litið yrði svo á að
stefnanda hefði ekki tekist að sanna
tjón sitt með fullnægjandi hætti ætti
að dæma honum bætur að álitum.
Héraðsdómur taldi skilyrði skaða-
bóta uppfyllt sem lytu að saknæmri
og ólögmætri háttsemi stefnda. Dóm-
urinn féllst hins vegar á það með
stefnda að ótvírætt skilyrði þess að
bætur yrðu dæmdar að álitum væri
að stefnandi hefði gert allt sem í hans
valdi stæði til að sýna fram á tjón sitt.
Það þótti ekki hafa verið gert í mál-
inu.
Ker hf. sýknað af skaða-
bótakröfu vegna samráðs
Héraðsdómur féllst á skilyrði til skaðabóta en kröfurnar voru ófullnægjandi
Í HNOTSKURN
»Aðalkrafa stefnanda var180 þúsund krónur í
skaðabætur, varakrafa 35 þús-
und kr., þrautavarakrafa 26
þúsund kr. og þrautaþrauta-
varakrafa að bætur yrðu
dæmdar að álitum dómsins.
»Héraðsdómur féllst ekki ákröfur stefnanda, sýknaði
Ker hf. af tveimur og vísaði
tveimur kröfum frá dómi.
»Þetta er fyrsta mál ein-staklings gegn olíufélög-
unum vegna ólöglegs samráðs
þeirra og samvinnu.
ÞAU voru björt og glöð skólabörnin í eldri deild Grunn-
skólans í Grímsey sem héldu útgáfutónleika undir
stjórn skólastjórans síns, Dónalds Jóhannessonar.
Krakkarnir sungu eins og englar lögin 11 á diskinum
Skólajól fyrir foreldra og velunnara. Öll undirbúnings-
vinna, söngæfingar, undirleikur og framleiðsla á disk-
inum var í höndum skólastjórans. Allur ágóði rennur í
ferðasjóð eldri deildarinnar, en börnin halda á hverju
vori í gott ferðalag upp á fastalandið. Diskurinn fékk
góðar undirtektir, flestir gestanna keyptu disk og sum-
ir marga. Það var sannarlega góð og gleðileg stemning
yfir „skólajólunum“ á heimskautsbaug.
Skólajól á heimskautsbaug
Morgunblaðið/Helga Mattína
LEITAÐ var aðstoðar danska varð-
skipsins Triton síðdegis í gær þeg-
ar íslenskur fiskibátur datt úr sjálf-
virkri tilkynningaskyldu um 20
sjómílur norðvestur af Garðskaga.
Áður hafði verið reynt að kalla bát-
inn upp. Báturinn fannst fljótt, voru
skipverjar við vinnu á þilfari og
heyrðu ekki í fjarskiptabúnaði.
Datt úr tilkynn-
ingaskyldu
ALLS segjast 40% unglinga í 10.
bekk í skólum landsins hafa orðið
ölvuð á síðastliðnum 12 mánuðum
skv. könnun á vímuefnaneyslu ung-
linga í 6.–10. bekk. Rannsóknin var
unnin í samvinnu Háskólans á Akur-
eyri og Lýðheilsustöðvar og náði til
alls 11.800 nemenda.
Hæst hlutfall nemenda sem sögð-
ust hafa orðið ölvaðir á síðastliðnum
12 mánuðum var á Norðurlandi
vestra eða 49% en lægst á Norður-
landi eystra eða 28%.
Hlutfall unglinga í Reykjavík sem
höfðu orðið ölvaðir var nálægt lands-
meðaltali eða 42%. Hlutfallið í ná-
grannabyggðum Reykjavíkur var
36%.
Fram kemur í könnuninni að 10%
unglinga í 10. bekk segjast reykja
daglega. Hæst er hlutfallið í Reykja-
vík þar sem 15% unglinga segjast
reykja daglega og hlutfallið er 16% á
Suðurnesjum. Þá má lesa út úr könn-
uninni að hlutfall dagreykinga-
manna í 10. bekk er nær helmingi
lægra í nágrannabyggðum Reykja-
víkur eða 8%.
Könnunin leiðir einnig í ljós að
10% unglinga í 10. bekk segjast hafa
prófað hass. Hæst er hlutfallið í
Reykjavík eða 13% og á Suðurnesj-
um þar sem það er 12%. Hlutfall
unglinga sem höfðu prófað hass í 10.
bekk er mun lægra í nágranna-
byggðum Reykjavíkur eða 8% að
meðaltali skv. niðurstöðum könnun-
arinnar. Svarhlutfall í könnuninni
var 86%.
10% unglinga í tíunda
bekk reykja daglega
40% segjast hafa orðið ölvuð og 10% hafa prófað hass
MAÐURINN sem brenndist alvar-
lega í eldsvoðanum í Ferjubakka í
Breiðholti hinn 7. nóvember sl.
liggur enn á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi. Hann er tengd-
ur við öndunarvél og hefur líðan
hans verið óbreytt frá því hann var
lagður inn á sjúkrahúsið.
Gríðarlegur eldur braust út en
þegar slökkvilið mætti á vettvang
tókst að bjarga manninum út ásamt
eiginkonu hans. Hún lést á sjúkra-
húsi eftir stutta legu.
Enn á
gjörgæslu