Morgunblaðið - 07.12.2006, Page 16

Morgunblaðið - 07.12.2006, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STJÓRN Samtaka fiskvinnslu án útgerðar mótmælti í gær starfs- háttum á íslenzku fiskmörkuðunum og krafðist skjótra úrbóta. Óskar Þór Karlsson, formaður samtak- anna, sagði ástandið algerlega óvið- unandi og kæmi þar margt til. Nú- verandi starfshættir brytu í bága við lög um starfsemi fiskmarkaða en þeim væri ætlað að tryggja frjáls viðskipti og tryggja jafnræði milli kaupenda og seljanda. Svo væri ekki í dag. Það eru nokkur atriði sem fisk- kaupendur gera sérstaklega at- hugasemdir við. Þeir segja að ítrek- að standist fiskur á uppboði ekki uppgefna stærð og skakki þar oft miklu. Einnig vanti oft mikið upp á uppgefna vigt og oft reynist óger- legt að fá leiðréttingu. Ýmis fleiri atriði brenna á fisk- kaupendum, meðal annars hvernig fiskmarkaðirnir nýta bankaábyrgðir þeirra. Telja þeir að þar sé um mis- notkun að ræða, þar sem annar kostnaður sé færður á reikning fiskkaupandans en sá sem snýr beint að kaupum á fiski og beinum kostnaði við uppboðið. Hyggjast nokkrir stórir kaupendur endur- nýja ábyrgðir sínar þar sem skýrt verður kveðið á um það að þær nái aðeins til beins kostnaðar við fisk- kaupin. Jafnframt beinir stjórn SFÁÚ því til sjávarútvegsráðherra að hann sjái til þess að útgáfu reglu- gerðar um starfsemi fiskmarkaða verði hraðað eins og framast er kostur. Í bréfi til ráðherransson segir meðal annars á þessa leið: „Eins og ráðherra er kunnugt, þá er mælt fyrir setningu þessarar reglugerðar í lögum nr 79/2005 um uppboðs- markaði fyrir sjávarafla og má ljóst vera að reglugerðinni er ætlað það mikilbæga hlutverk að skapa um- gjörð um dagleg viðskipti á fisk- mörkuðunum. Útgáfa hennar hefur hins vegar dregizt úr hömlu, sem hefur að okkar mati leitt til þess að á fiskmörkuðunum hafa þróazt óviðunandi viðskiptahættir, vinnu- brögð sem verður að leiðrétta. Það teljum við hægt að gera með áð- urnefndri reglugerð og því er brýnt að hún taki gildi sem fyrst.“ Munum skoða þetta Eyjólfur Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsmarkaðar, segir að þeir þurfi að fá tíma til að fara yfir þesssar athugasemdir. Það hafi verið gott að fá þær með form- legum hætti. Þeir hafi vitað af nokkurri óánægju um tíma. „Þessir viðskiptahættir hafa viðgengizt lengi, en nú munum við skoða með fiskmörkuðunum hvað við getum gert fyrir fiskkaupendur,“ segir Eyjólfur. Víkurfréttir/Þorgils Mótmæli Óskar Þór Karlsson, formaður SFÁÚ, afhendir Eyjólfi Guðlaugs- syni, framkvæmdastjóra Íslandsmarkaðar, athugasemdir fiskkaupenda við starfsemi markaðanna og kröfur um úrbætur. Fyrir framan þá eru Birgir Kristinsson, frá Ný-fiski, Grétar Finnbogason frá Hafgæðum og Albert Sveinsson frá Ný-fiski. Auk þeirra voru á fundinum Jón Steinn Elíasson frá Toppfiski, Steingrímur Leifsson frá Frostfiski og Bjarni Áskelsson, starfs- maður Íslandsmarkaðar. Krefjast úrbóta á starfsemi fiskmarkaða Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÚR VERINU EFTIR 2 ára niðursveiflu í þorsk- veiðum við Færeyjar er sá guli aftur farinn að veiðast. Auðunn Konráðs- son formaður Meginfelags Útróðra- manna segir á heimasíðu Landssam- bands smábátaeigenda að að undanförnu hafi veiðzt mikið af smáum þorski við eyjarnar. „Allt lítur út fyrir að verulegt magn sé á ferðinni, líklega sterkur árgangur að koma inn í veiðarnar. Annars hefur tíðin leikið okkur grátt í haust og það sem af er vetri en á móti kemur að fiskverð hefur sjaldan verið hærra. Það er því sæmilegt- hljóð í okkur nú,“ sagði Auðunn. Auðunn sagði þorskveiðina nú ekki koma sjómönnum á óvart þó fiskifræðingar hefðu spáð viðvarandi þorsksleysi næstu árin. Samtímis hefðu þeir gagnrýnt stjórnvöld í Færeyjum fyrir að hunza tillögur Al- þjóðahafrannsóknaráðsins. „Færeyingar hlusta jú á ráðið og hafa alltaf gert en sjaldnast farið eft- ir þeirra ráðum. Við erum vanir sveiflum í veiðum og förum því ekki á taugum þó það tregist, hvað þá að okkur detti í hug að banna veiðar á tilteknum tegundum. Færeyingar rekja þessar sveiflur til náttúrunnar og meðan við heimilum ekki togveið- ar innan 12 mílna þá er ástæðulaust að óttast að veiðar á grunnslóð valdi því að ekki fæst bein úr sjó“, sagði Auðunn Konráðsson. Mikið af þorski við Færeyjar Morgunblaðið/ÞÖK Fjölmennur fundur Á fundi stjórnmálafræðiskorar í Öskju í HÍ mætti m.a. fólk sem hlerað var hjá og afkomendur fólks sem hlerað var hjá. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „BRÓÐIR minn hafði nýlokið bif- vélavirkjanámi árið 1952. Ári síðar var honum boðið að fara í framhalds- nám í Bandaríkjunum, á verkstæði sem var fyrirmyndarverkstæði. Það var búið að ganga frá öllum málum, vinnu og húsnæði og öllu slíku. En hann fékk ekki vegabréfsáritun. Af hverju fékk hann hana ekki? Vegna þess að móðurbróðir hans og afi hans höfðu verið í Nóvuslagnum á Torfu- nesbryggjunni 1933 eða 19 árum áð- ur. Hvaðan kom Bandaríkjamönnum sú vitneskja? Hverjir veittu þá vitn- eskju?“ spurði Haukur Sigurðsson menntaskólakennari á fundi sem stjórnmálafræðiskor Háskóla Ís- lands efndi til um hleranir í tilefni af bók Guðna Th. Jóhannessonar sagn- fræðings. Haukur sagði að margir sem sóttu um atvinnu í Bandaríkjunum hefðu mátt sæta því að fá ekki atvinnuleyfi. Þetta ástand hefði varað áratugum saman. Forsenda fyrir því hefði hins vegar verið upplýsingasöfnun á Ís- landi og að bandarísk stjórnvöld fengju þær upplýsingar í hendur. Spjaldskráin átti sér ekki stað í lögum Guðni var með framsöguerindi á fundinum þar sem hann reyndi að svara spurningunni „Ógnuðu þeir ör- yggi ríkisins?“ Guðni sagði ljóst að stjórnvöld á tíma kalda stríðsins hefðu talið raunverulega ógn til stað- ar. Á fyrri hluti tímabilsins hefðu þau óttast valdarán en á síðari hlut- anum hefði óttinn aðallega snúist um að vernda öryggi erlendra gesta sem hingað komu. „Samt er þó haldin áfram spjaldskrá um kommúnista og svokallaða velunnara kommúnista. Það má segja að það sé fyrst og fremst arfur frá liðinni tíð. Óþarfi, ef út í það er farið og ekki byggt á skýrri lagastoð, svo maður noti kurt- eislegt orðalag.“ Í sambandi við símahleranirnar sagði Guðni að það hefði ekki komið sér á óvart að sími Einars Olgeirs- sonar og Bryjólfs Bjarnasonar, for- ystumanna sósíalista, hefðu verið hleraðir. Sér hefði hins vegar komið á óvart að sími t.d. Finnboga Rúts Valdimarssonar, fyrrverandi rit- stjóra Alþýðublaðsins, hefði verið hleraður. Finnbogi Rútur hefði aldr- ei starfað í hreyfingu kommúnista. „Það má kannski segja eftir á um spurninguna, ógnuðu þeir öryggi ríkisins? Það var nær aldrei nein ógn til staðar. „Þeir“ voru aldrei til sem sameiginlegur hópur ógnvalda,“ sagði Guðni og bætti við að öryggi ríkisins væri hins vegar alltaf við- fangsefni sem stjórnvöld yrðu að sinna. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra, sagði hleranir á símum þingmanna og stjórnarandstöðu pólitískar njósnir, heimskulegt athæfi og ganga þyrfti úr skugga um að það endurtæki sig ekki. Ekkert benti til þess að þeir sem voru hleraðir, alþingismenn eða aðrir, hefðu ógnað öryggi ríkisins. Hann sagði að hleranir árið 1951, sem til komnar voru vegna samnings Viðreisnarstjórnarinnar við Breta um landhelgismál, hefðu ekki verið annað en pólitískar njósnir þáver- andi stjórnvalda á símum leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Jón Baldvin sagði að Bandaríkjamenn hefðu lagt áherslu á að komið væri í veg fyrir að menn sem þeir töldu varasama fengju vinnu á varnarsvæðinu á Mið- nesheiði. Til að það væri hægt hefði þurft að stofna leyniþjónustu. Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra sagði bók Guðna Th. Jóhannessonar sýna að hér hefði ekki verið haldið uppi öflugri njósna- starfsemi. Hleranir hefðu verið miklu minni en halda mætti miðað við umræðu manna hér heima, og miklu minni en í Skandinavíu. Leyni- þjónustan hefði verið lítil, aðeins skipuð 2–3 mönnum. Menn hefðu verið vanbúnir að takast á við það verkefni að gæta öryggis ríkisins. „Nær aldrei nein ógn við öryggi ríkisins til staðar“ Í HNOTSKURN »Sjávarútvegsráðherrabenti á að það hefði verið almenn skoðun manna á þess- um tíma að öryggi ríkisins væri ógnað. Einar Ágústsson, fyrrverandi utanrík- isráðherra, og Kristján Eld- járn, fyrrverandi forseti, hefðu lýst áhyggjum í þessa veru. »Guðni Jóhannesson sagðiað símahleranirnar hefðu átt þátt í að sefa ótta stjórn- valda við þessa meintu ógn. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is DÓMARI við Héraðsdóm Reykja- víkur hafnaði í gær kröfu verjenda sakborninga tengdra Baugi Group, í málarekstri vegna meintra brota á skattalögum, þess efnis að ríkislög- reglustjóri og yfirmaður efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra yrðu kallaðir fyrir dóminn sem vitni. Krafan var sett fram vegna þess að sakborningarnir, þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdótt- ir, Jóhannes Jónsson, Tryggvi Jóns- son og Stefán H. Hilmarsson, töldu að reglur um réttláta málsmeðferð hefðu verið brotnar á þeim með um- mælum yfirmanna hjá ríkislögreglu- stjóra í fjölmiðlum. Verjendur fimmmenninganna til- kynntu dómara að þeir hygðust kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. Var því frestað málflutningi um að- alkröfu verjenda í málinu, þess efnis að rannsókn ríkislögreglustjóra á meintum skattalagabrotum yrði úr- skurðuð ólögmæt Öllum skylt að bera vitni Eggert Óskarsson héraðsdómari féllst ekki á kröfur verjenda í málinu og sagði að á meðan á rannsókn stæði væri enga heimild að finna í lögum um að sá sem rannsakaði mál gæfi skýrslu fyrir dómi sem vitni. Hafnaði hann þar með þeim rök- um sem Þórunn Guðmundsdóttir hrl. setti fram, en hún sagði grundvall- arregluna þá að öllum væri skylt að gefa skýrslu fyrir dómi nema sérstök undantekning væri gerð í lögum. Jón H. Snorrason, saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra, sagði enga heimild í lögum fyrir því að kalla til vitni vegna máls byggðs á þeim lagagreinum sem verjendur hafi tiltekið. Auk þess myndi það sennilega reynast sér um megn að sitja sem vitni í vitnastúku og jafnframt spyrja sjálfan sig út úr sem fulltrúi ákæruvaldsins í málinu. Morgunblaðið/ÞÖK Ekki í vitnastúku Jón H. Snorrason saksóknari þarf ekki að bera vitni nema Hæstiréttur snúi úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær. Yfirmenn RLS ekki látnir bera vitni TILKYNNT var í gær um meðdóm- endur í hluta Baugsmálsins, en að- almeðferð í málinu hefst 12. febr- úar nk. Arngrímur Ísberg verður dómsformaður í málinu, en með- dómendur verða Jón Finnbjörnsson héraðsdómari og Garðar Valdi- marsson hrl. Um er að ræða þann hluta Baugs- málsins sem varð til eftir að Hæsti- réttur staðfesti frávísun á 32 ákæruliðum, en Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í málinu, gaf út endurákæru í mál- inu. Sakborningar eru þeir Jón Ás- geir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger. Meðdóm- endur valdir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.