Morgunblaðið - 07.12.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 47
Atvinnuauglýsingar
Bílamálari óskast
Óskum eftir að ráða bílamálara og aðstoðar-
mann við bílamálun. Frábær vinnuaðstaða.
Upplýsingar í síma 567 8686.
Bílastjarnan,
Bæjarflöt 10,
112 Reykjavík.
Raðauglýsingar 569 1100
Félagsstarf
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna í
Hóla- og Fellahverfi
verður haldinn þriðjudaginn 12. desember
2006 kl. 17.30 í félagsheimili sjálfstæðismanna,
Álfabakka 14.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórn Félags sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi.
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ
Aðalfundur
verður haldinn í félagsheimili
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
á Garðatorgi 7, Garðabæ, í dag,
fimmtudaginn 7. desember
kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Staða bæjarmála: Gunnar
Einarsson bæjarstjóri.
3. Gestur fundarins:
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
frambjóðandi til Alþingis
2007.
4. Önnur mál.
Stjórn Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Fundir/Mannfagnaðir
Fræðslu- og skemmtifundur
verður haldinn sunnudaginn 10. desember
2006 kl. 14:00 í hliðarsal á Hótel Sögu.
Dagskrá:
1. Fyrirlestur: Það eru forréttindi að lifa með
fötlun. Freyja Haraldsdóttir.
2. Upplestur úr nýjum bókum: Einar Már Guð-
mundsson les úr nýútkomnum bókum sín-
um, „Nafnlausir vegir“ og „Ég stytti mér leið
framhjá dauðanum“. Einnig verður lesið
upp úr nýjustu bók Fríðu Sigurðardóttur,
„Í húsi Júlíu“.
3. Tónlistaratriði: Söngnemar frá Söngskólan-
um í Reykjavík.
Veitingar í boði félagsins.
Eigum saman góða stund á aðventunni.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Kópavogs
Aðalfundur 2006
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Kópavogs verður haldinn í kvöld,
fimmtudaginn 7. desember 2006
í Hlíðasmára 19 kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2.Gestur fundarins, Gunnar Ingi Birgisson,
bæjarstjóri, fjallar um fjárfestingar Kópa-
vogs í landi innan bæjarmarka.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Tilboð/Útboð
Útboð á sorphirðu
fyrir stofnanir
Akureyrarbæjar
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í sorphirðu fyrir
stofnanir bæjarins. Gert er ráð fyrir að samningur um
sorphirðu verði til 4 ára með möguleika á framleng-
ingu um 2 ár.
Umsjónaraðili útboðsins er:
Hagþjónusta Akureyrarbæjar,
Eggert Óskarsson, verkefnastjóri,
Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Sími 460 1000, fax 460 1001.
Netfang: eggert@akureyri.is
Útboðsgögn verða seld á 3.000 kr. frá og með
7. desember 2006 kl. 13:00 í þjónustuanddyri Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Hægt er að fá útboðsgögn send með tölvupósti
sé þess óskað.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
22. desember 2006 kl. 13:00 og verða þau opnuð
kl. 13:00 þann sama dag í fundarsal 2. hæð, Geisla-
götu 9, að viðstöddum þeim bjóðendum, eða full-
trúum þeirra, sem þess óska.
Verkefnastjóri hagþjónustu
Ýmislegt
Egilsbúð í
Neskaupstað
Rekstur félagsheimilisins Egilsbúðar í Nes-
kaupstað er laus til umsóknar.
Útboðsskilmála og gögn er að finna á heima-
síðunni, www.fjardabyggd.is og á skrifstofum
Fjarðabyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 21. desember
2006.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður
fjármála- og stjórnsýslusviðs í síma 470 9062.
Félagslíf
Bæn og lofgjörð í dag kl. 20.
Umsjón: Elsabet og Björn
Tómas.
Allir velkomnir.
Fimmtudagur 7. des. 2006
Samkoma kl. 20.00 í Háborg, fé-
lagsmiðstöð Samhjálpar, Stang-
arhyl 3. Vitnisburður og söngur.
Predikun Kristinn P. Birgisson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
I.O.O.F. 11 1871278½ M.A.*
I.O.O.F. 5 1871278 Jv
Landsst. 6006120719 X
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Skólabraut 33, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1979, Akranesi, þingl. eig.
Hilda Sigríður Pennington, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf.,
Greiðslumiðlun hf., Íbúðalánasjóður, Kreditkort hf. og Tryggingamið-
stöðin hf., þriðjudaginn 12. desember 2006 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
6. desember.
Esther Hermannsdóttir, ftr.
FRÉTTIR
Í FRÉTT sem samþykkt var á al-
mennum fundi í Kennarafélagi
Menntaskólans að Laugarvatni er
tekið undir og lýst yfir stuðningi
við það starf sem unnið er af hálfu
menntamálaráðuneytis og forystu
kennarasamtaka í landinu og stuðl-
ar að nýbreytni, sveigjanleika og
almennt betra skólastarfi í landinu.
„Sérstaklega styður fundurinn
áform um eflingu kennaramennt-
unar á öllum skólastigum, eflingu
verk- og starfsnáms, viðleitni til að
minnka brottfall úr framhalds-
skólum, og eflingu námsefn-
isgerðar. Fundurinn styður góð
áform um samræmingu námsefnis
og samvinnu milli skólastiga.
Fundurinn telur hins vegar ekki
að það sé skynsamlegt að stefna að
styttingu námstíma til stúdents-
prófs. Með einstaklingsmiðuðu
námi telur fundurinn að nemendur
eigi að hafa valmöguleika að miða
námshraða við þarfir hvers og
eins.
Fundurinn varar við og mótmæl-
ir öllum áformum um skerðingu á
námi/námsframboði til stúdents-
prófs en tekur undir að eitthvað af
núverandi námsefni framhalds-
skóla megi kenna í grunnskóla,“
segir í samþykkt fundar kennara
við Menntaskólann að Laug-
arvatni.
Ekki skynsam-
legt að stytta
námstíma til
stúdentsprófs
MARGT var um manninn hjá Geð-
hjálp laugardaginn 2. desember þeg-
ar fulltrúar hvaðanæva af landinu
mættu og undirrituðu með stjórn
Geðhjálpar stofnsáttmála um deildir
félagsins á landsvísu. Viðkomandi
stofnsáttmáli er grundvallaður á
lögum Geðhjálpar og þeirri stefnu-
mótun er félagið setur sér. Frekari
upplýsingar er að finna á vefsíðu fé-
lagsins: www.gedhjalp.is
Í kjölfar söfnunar Kiwanishreyf-
ingarinnar á Íslandi haustið 2004,
sem bar yfirskriftina „Rjúfum ein-
angrun geðsjúkra á landsbyggð-
inni“, rann til Geðhjálpar fjármagn
sem gerði félaginu m.a. kleift að
undirbúa stofnun landsbyggð-
ardeilda. Trúnaðarmenn Geðhjálpar
á landsbyggðinni hófu störf í byrjun
árs 2006 í sjö landshlutum (Suð-
urnes, Vesturland, Vestfirðir, Norð-
urland vestra, Norðurland eystra,
Austurland, Suðurland). Þessir
sömu trúnaðarmenn koma til með að
fara fyrir deildum Geðhjálpar hver á
sínu svæði til að byrja með.
Stefnt er að því að það fjármagn
sem safnast með yfirstandandi átaki
Sparisjóðanna; „Þú gefur styrk“
gangi enn frekar til að renna stoðum
undir þetta aðkallandi verkefni og
verður þá sérstaklega horft til ungs
fólks sem rekist hefur illa í kerfinu
og/eða er „týnt“. Nánari upplýs-
ingar um átakið og þátttöku er að
finna á: www.sparisjodur.is
Deildir Geð-
hjálpar á lands-
byggðinni
stofnaðar
Gjöf til kvenna Soroptimistasystur úr Kópavogi afhentu Sunnuhlíð tvo
lyftibaðstóla. Lilja Guðmundsdóttir, Jónína Magnúsdóttir, María Ein-
arsdóttir, Þóra Guðnadóttir, Sigurborg Einarsdóttir, Margrét Árnadóttir
og Hildur Hálfdanardóttir.
Gáfu Sunnuhlíð tvo lyftibaðstóla
SOROPTIMISTAKLÚBBUR Kópavogs afhenti nýlega hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð tvo lyftibaðstóla, að andvirði 1,1 milljón króna.
Aðalverkefni Soroptimistaklúbbs Kópavogs hefur frá upphafi verið
stuðningur við hjúkrunarheimilið með fjárframlögum og ýmsum tækja-
gjöfum. Megin uppistaðan í tekjuöflun klúbbsins hefur verið sala jólakorta,
en kortin eru hönnuð af Jónínu Magnúsdóttur soroptimistasystur, þekkt
undir listamannsnafninu Ninný.