Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 37 Setjið aldrei servéttu utan á kerti Munið að slökkva á kertunum i l Slökkvilið Höfuðborgar- svæðisins Á VETTVANGI Sameinuðu þjóð- anna hafa nú verið unnin drög að al- þjóðlegum sáttmála um réttindi fatl- aðra. Sú staðreynd að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna telji þörf á sérstökum sáttmála til verndunar á réttindum fatlaðra gef- ur glöggt til kynna að núverandi skipulag mannréttindaverndar sé ekki nægilega vel til þess fallið að styðja við og vernda réttindi og reisn einstaklinga með fötlun. Sáttmálinn byggist á gildandi viðmiðum um mannréttindi þar sem þau eru skoðuð út frá stöðu fólks með fötlun. Undirbúningsvinnan fór fram í nánu sam- starfi við fatlaða sjálfa og hagsmunasamtök þeirra. Grundvöllur sáttmálans er sá að fatlaðir eigi rétt á að njóta allra þeirra mannréttinda sem ófatlaðir njóta. Með því er staðfest að fatlaðir séu einstaklingar með full og jöfn borgaraleg réttindi á við aðra þ.e. einstaklingar sem hafa bæði réttinn og getuna til að taka eigin ákvarð- anir. Hér á eftir er fjallað um nokkur af þeim efnisatriðum sem fram koma í fyrirliggjandi drögum að sáttmála. Grundvöllur sjálfsákvörðunar Sjálfsákvörðunarrétturinn og það að fá ákvörðun sína virta af öðrum er sá grundvöllur sem önnur rétt- indi sem sáttmálinn kveður á um byggjast á, því án hans er fötluðum meinuð þátttaka í samfélaginu til jafns við aðra. Lögð er áhersla á að fatlaðir séu ekki sviptir réttindum sínum, heldur að samfélagið veiti þann stuðning, sem nauðsynlegur er hverju sinni, fyrir hinn fatlaða til að geta greint frá vilja sínum og tekið ákvarðanir um eigið líf. Skóli án aðgreiningar Fatlaðir eiga rétt til menntunar án nokkurrar mismununar. Til að fatlaðir búi við jöfn tækifæri á við aðra þarf að tryggja að fatlaðir hafi aðgang að menntakerfi sem er án aðgreiningar á öllum skólastigum og býður upp á nám í gegnum allt lífið. Fatlaðir eiga rétt á stuðningi til samræmis við einstaklings- bundnar þarfir sínar sem tryggja á hámarks árangur í námi og fé- lagsþroska og stuðla þannig að fullri samfélagsþátttöku þeirra. Þá þarf að tryggja að til kennslu ráðist fólk með sérþekkingu á fötlunum, óhefð- bundnum tjáskiptaleiðum og öðrum sérkennsluaðferðum til að hægt sé að koma til móts við þarfir fatlaðra nemenda. Sjálfstæð búseta Fatlaðir eiga jafnan rétt á við aðra til að lifa í samfélaginu, velja sér búsetuform, hvar þeir búa og með hverjum. Fatlaðir eiga ekki að þurfa að sæta því að vera þvingaðir til að búa í tilteknu búsetuúrræði. Að auki eiga fatlaðir rétt á stuðningi og þjónustu til að geta tekið fullan og virkan þátt í samfélaginu og til að koma í veg fyrir einangrun. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu Fatlaðir eiga rétt á því að vera ekki truflaðir í sínu fjölskyldu- og einkalífi. Þeir eiga einnig rétt á að stunda kynlíf, stofna til hjónabands og eignast börn. Undir engum kringumstæðum er það réttlæt- anlegt að taka barn af foreldrum sínum einungis á þeim forsendum að foreldrarnir séu fatlaðir. Réttindagæsla og bann við mismunun Lögð er áhersla á að ríkið ábyrg- ist fötluðum árangursríka lagalega vernd gagnvart mismunun og stuðn- ing til að gæta réttar síns almennt. Í því felst að grípa þarf til aðgerða til að koma í veg fyrir misnotkun og að stuðningurinn felist í því að virtur sé réttur hins fatlaða, vilji hans og langanir. Þessi stuðningur á að vera sniðinn að þörf- um hins fatlaða, tíma- bundinn, laus við hagsmunaárekstra gagnvart þeim sem almennt veita fötl- uðum þjónustu og undir eftirliti óháðs aðila eða dómstóls. Næstu skref Ofantalið er aðeins stutt úttekt á helstu atriðum úr þeim 50 greinum sem sátt- máladrögin hljóða á um, en gefa góða mynd af því hvaða marki að er stefnt. Samkomulag hefur náðst um sátt- máladrögin sem verða bráðlega lögð fyrir allsherj- arþing Sameinuðu þjóðanna til formlegrar samþykktar. Eftir það tekur hvert aðildarríki fyrir sig af- stöðu til þess hvort það ætli að stað- festa sáttmálann og þegar ákveðnum lágmarksfjölda ríkja er náð telst sáttmálinn hafa öðlast gildi. Á Íslandi er ekki hefð fyrir því að lögfesta þá mannréttinda- sáttmála sem ríkið hefur staðfest. Áhrif lögfestingar eru þau, að þar með víkja ákvæði íslenskra laga fyr- ir ákvæðum sáttmálans ef upp kem- ur ósamræmi auk þess sem hún veitir einstaklingum tækifæri til að byggja rétt sinn á ákvæðum sátt- málans. Fatlaðir eiga oft, fötlunar sinnar vegna, erfiðara með að gera sér grein fyrir réttindum sínum eða sækja rétt sinn heldur en þeir sem ekki búa við fötlun. Sameinuðu þjóð- irnar hafa tekist á hendur það erfiða verkefni að útbúa sáttmála í þeim tilgangi að tryggja að jafnvel raddir þeirra, sem ekki geta talað, heyrist. Þess er óskandi að íslensk stjórn- völd taki sér þessa framtíðarsýn til fyrirmyndar og geri allt sem í þeirra valdi stendur til að skapa samfélag þar sem fatlaðir búa í raun við sömu réttindi og virðingu og aðrir. Hver maður er bor- inn frjáls og jafn öðrum að virðingu Helga Baldvinsdóttir Bjarg- ardóttir fjallar um sáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt- indi fatlaðra Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir » Fatlaðir eigaoft, fötlunar sinnar vegna, erfiðara með að gera sér grein fyrir réttindum sínum eða sækja rétt sinn heldur en þeir sem ekki búa við fötlun. Höfundur er þroskaþjálfi og lögfræðinemi. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.