Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 31
tíð verið tengdar grískri matargerð
þar sem þær eru í miklu uppáhaldi.
Um er að ræða þunn lög af filo-deigi
sem eru fyllt með söxuðum hnetum,
s.s. pistasíum, ristuðum möndlum eða
valhnetum sem velt er upp úr kanil
eða sykri og síðan skorið í dem-
antalaga bita áður en bökun hefst.
Strax og kökurnar eru teknar glóandi
úr ofninum er rósavatnsilmandi hun-
angssírópi hellt yfir herlegheitin.
Baklava er frábær eftirréttur á hátíð-
um – ilmurinn er jólalegur (kanill,
vanilla, hnetur), útlitið er fallegt og
framandi og kökurnar eru brakandi
stökkar undir tönn sem eykur enn á
ánægjuna við að borða þennan ljúf-
fenga rétt. Sumir halda að það sé
flókið að búa til baklava, en það er
hins vegar ótrúlega einfalt. Það er þó
ekkert verra að gestgjafinn fái að
njóta þessa útbreidda „misskilnings“
er hann ber kökurnar fram og taki á
móti miklu hrósi gesta sem munu eft-
irleiðis telja hann óskoraðan meist-
arakokk.
450 g fillo-deig (fæst frosið í betri
stórmörkuðum)
455 g saxaðar pistasíuhnetur
225 g smjör (brætt)
2 g kanill
235 ml vatn
200 g sykur
1 vanillustöng eða 1 msk rósavatn
120 ml hunang
Penslið bökunarplötu með bræddu
smjöri. Afhýðið hnetur (einnig innra
hýði, þannig að grænn litur pistasí-
anna komi í ljós, best er að láta þær
liggja í bleyti í 30 sek. og afhýða svo),
saxið og veltið upp úr kanil. Leggið til
hliðar. Afþýðið fillo-deig og opnið
deiglögin. Skerið af enda sem rúmast
ekki á bökunarplötu (honum má
koma fyrir á þverveg plötunnar).
Leggið deiglögin á hreint borð og
þekið með rökum klút til að koma í
veg fyrir að deigið þorni á meðan þið
útbúið lögin. Setjið tvö lög af filo-
deigi á plötuna og penslið vel með
bræddu smjörinu. Endurtakið þar til
8 lög eru komin á plötuna. Dreifið 2–3
msk. af hnetufyllingu yfir og þannig
koll af kolli (tvö lög í einu, þar til um
6–8 lög eru komin ofan á (samtals
semsagt 16 lög af deigi). Penslið efsta
lagið með smjöri og skerið kökuna
með beittum hníf í tígla og bakið við
175°C í miðjum ofni í 20–30 mín. eða
þar til tíglarnir hafa hlotið gullin lit og
deiglögin eru stökk og brakandi.
Á meðan á bökun stendur er sír-
ópið útbúið. Sjóðið saman vatn og
sykur þar til sykur er uppleystur.
Bætið vanillustöng (eða rósavatni) og
hunangi saman við og sjóðið í 10–15
mín. við vægan hita. Takið baklava-
tígla úr ofni og hellið sírópsblöndunni
strax yfir sjóðheitar kökurnar. Látið
kólna og berið fram t.d. með heitum
kanilkrydduðum eplasafa eða epla-
kanilteinu frá Celestial Seasonings.
Panettone Þessi ítalska jólakaka prýðir víða glugga „pasticceria“.
Baklava Ilmurinn af þessum aust-
urlenska eftirrétti er jólalegur.
Panettonesneið Vanillusósa á vel við þennan ítalska eftirrétt.
Jólatrjábolskakan „Buche de
noel“ er klassísk frönsk jólakaka.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 31
ÞRIÐJI hluti þeirra sem leggjast
undir hníf lýtalækna í Danmörku
er karlmenn. Og þeim fer fjölg-
andi.
Danskir karlmenn virðast velta
útliti sínu æ meira fyrir sér, því
þriðji hver Dani sem fer í lýtaað-
gerð eða íhugar það er karl-
maður. Fimm prósent allra full-
orðinna karlmanna eða meira en
100 þúsund karlmenn þar í landi
hafa farið í lýtaaðgerð og tvöfalt
fleiri íhuga það, samkvæmt könn-
un sem Gallup gerði fyrir Berl-
ingske Tidende. Blaðið greinir
frá því að karlmenn séu 15–20
prósent viðskiptavina á stofum
sem framkvæma lýtaaðgerðir og
bjóða upp á aðrar meðferðir sem
miða að því að fegra fólk.
Hárvöxtur ekki
í tísku
Vinsælustu aðgerðirnar meðal
karlmanna eru lagfæringar á
slútandi augnlokum, nefaðgerðir,
fitusog og að láta fjarlægja brjóst
sem yfirleitt hafa myndast vegna
fitu eða hormónainntöku.
Karlmenn fara þó einnig í and-
litslyftingu og hrukkumeðhöndl-
um með botoxi eða geislum. Æ
fleiri karlmenn láta líka fylla í
andlitshluta til að fjarlægja svo-
kallaðar „áhyggjuhrukkur“.
Oftast er um að ræða menn,
sem komnir eru yfir miðjan ald-
ur, sem finnst þeir hafa þreytu-
legt yfirbragð og vilja líta frísk-
legar út. Stundum er ástæðan sú
að þeir hafa eignast nýja, yngri
konu.
Meðal yngri karlmanna er
einnig stór eftirspurn eftir leysi-
meðferð í þeim tilgangi að fjar-
lægja líkamshár, s.s. í andliti, á
hálsi, brjósti, maga og baki. Enda
er hárvöxtur ekki í tísku í dag ef
marka má einn stofueigandann í
Danmörku.
Reuters
Lagfærður Berlusconi, fyrrum for-
setisráðherra Ítalíu, er sagður hafa
farið í fjölda fegrunaraðgerða í
gegn um tíðina.
Æ fleiri
karlmenn
sækja í lýta-
aðgerðir
heilsa