Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
/ KEFLAVÍK
ERAGON kl. 5:50 - 8 B.I. 12
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.I. 12
THE HOLIDAY kl. 10:10 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:20 B.I. 12
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 B.I. 12
SCANNER DARKLY ÁN TEXTA kl. 10 B.I. 16
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
ÞESSAR HASARSKUTLUR HAFA
ÚTLIT TIL AÐ DEYJA FYRIR.
BYGGÐ Á TÖLVULEIKNUM VINSÆLA DEAD OR ALIVE
ÓBORGANLEG GRÍNMYND EFTIR LARS VON TRIER UM ÁREKSTRA ÍSLENDINGA
OG DANA, ÞAR SEM FRIÐRIK ÞÓR OG BENEDIKT ERLINGS STELA SENUNNI.
HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI
DÉJÁ VU kl. 6:15 - 9 - 10:30 B.i. 12 ára
BOSS OF IT ALL kl. 5:50 - 8 - 10:10
THE U.S. VS. JOHN LENNON kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 5:50 LEYFÐ
THE NATIVITY STORY kl. 5:50 - 8 B.i. 7.ára
MÝRIN kl. 8 - 10:10 B.i. 12.ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eee
SV, MBL
BNA GEGN JOHN LENNON
THE U.S. VS.
JOHN LENNON
TÓNLISTARMAÐUR. MANNÚÐARVINUR. ÞJÓÐARÓGN.
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
HÉR ER Á FERÐINNI FRUMLEGASTI
SPENNUHASAR ÁRSINS.
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
ÞRJÁR Á TOPPNUM
LEIÐIN TIL BETLEHEM
BNA GEGN JOHN LENNON
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
(“PIRATES OF THE CARIBBEAN”)
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA
"CRIMSON TIDE"
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
HINIR FRÁFÖLLNU
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
ENDURUPPLIFUNIN
JÓLASVEININN 3
klifra upp í tré og
reyna að skipta um
perur. Það breytti
engu.
x x x
Í ár ákvað Víkverji aðgefa Rúmfatalag-
ernum aftur séns.
Hugsaði með sér að
kannski hefði hann
bara verið óheppinn
með sendingu í fyrra. Í
þetta sinn var nið-
urstaðan enn aumari
en fyrir ári. Þegar serí-
urnar höfðu verið
hengdar upp í tré log-
aði aðeins á tveimur af
fjórum enda á milli. Síðan er liðinn
hálfur mánuður og daglega sýnist
Víkverja detta út einn eða tveir ser-
íubútar. Hann má líklega þakka fyr-
ir að enn logi á einhverjum jóla-
ljósum á aðfangadag.
x x x
Það er gott að geta boðið ódýravöru, en hún þarf líka að virka.
Rétt eins og handklæði mega ekki
hrinda frá sér vatni verður að loga á
öllum ljósunum á jólaseríunum.
Annars fær kúnninn ekki það sem
hann borgar fyrir. Þetta mættu inn-
kaupastjórar Rúmfatalagersins
kannski hafa í huga fyrir næstu jól.
Víkverji telur fram-lag Rúmfatala-
gersins til lífskjara á
Íslandi mikilvægt. Þar
er oft hægt að fá góða
vöru á lágu verði, ekki
sízt vefnaðarvöru, en
líka t.d. húsgögn og
annað af því tagi. Vík-
verji keypti t.d. kojur
handa börnunum sín-
um í Rúmfatalagern-
um fyrir mörgum ár-
um, sem hafa staðizt
tímans tönn betur en
mörg dýrari húsgögn,
sem hafa verið keypt
til heimilisins.
x x x
Nú hefur Víkverji hins vegarkeypt útijólaseríurnar sínar
tvö ár í röð í Rúmfatalagernum. Og
þær eru vissulega ódýrar. Að vísu
ódýrari í fyrra en í ár. En – og nú
kemur Víkverji að kjarna málsins –
þær eru drasl. Ónýtt drasl. Ónýtt
drasl, sem virkar ekki.
Í fyrra setti Víkverji seríurnar í
trén í garðinum og þær litu bara
ljómandi vel út í fyrstu. Svo leið að-
eins á desember og smátt og smátt
fór að slokkna á bútum af seríunum.
Ekki einstökum perum, heldur bút-
um með kannski 20–30 perum. Vík-
verji lagði sig í lífshættu við að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að
leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Í dag er föstudagur
15. desember, 349. dagur
ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Discovery og Fuglasöngurinn !
ÞETTA með að skjóta einum Svía út
í himingeiminn vekur enga sérstaka
athygli hér í Svíþjóð, en lesi maður
Moggann þá kemur ýmislegt í ljós
sem við ekki vissum hér í Svíþjóð.
Til hvers eru íslenskir fjölmiðlar að
velta sér upp úr þessu? Hlut sem
kemur okkur Íslendingum ekkert
við ? Spurningarnar eru margar en
svörin fá. Getur hugsast að þarna sé
á ferðinni einhverskonar minnimátt-
arkennd í garð Svía? Ekki veit ég, en
hitt veit ég, að í Svíþjóð vekur þetta
hvorki áhuga fólks né spennu um
það hvort hann eigi afturkvæmt til
jarðarinnar á ný. Ég er þeirrar
skoðunar að Íslendingar ættu að
hafa eitthvað annað fyrir stafni en
hvort það muni takast að skjóta ein-
um Svía út í geiminn.
Maður líttu þér nær var hugtak
sem ég lærði einhverntíma í
bernsku, ég lærði líka að reikna og
niðurstaða mín er að þetta himna-
brölt sé óvirðing við mannkynið. Ég
spyr: Hvernig kemur þetta að not-
um til að fæða sveltandi fólk, ekki
bara í Afríku, heldur í Ameríku líka?
Getur nokkur maður giskað á hvað
þetta dæmi kostar? Eitt geimskot
kostar það mikið að metta mætti
milljónir fólks í Afríku sem ekkert á,
engan mat, enga framtíð. Sænska
samfélagið er hvorki betra né verra
en önnur skrípasamfélög sem reyna
að slá ryki í augu fólks svo það sjái
ekki ískaldan veruleikann, við erum
á undanhaldi og getum séð dæmi um
slíkt út um allt.
Kæru lesendur, ég verð að segja
að ég komst mjög nálægt því að
deyja úr hlátri þegar mikilvægustu
menn í heimi settu kvóta á það
hversu miklu hvert land mætti dæla
út í andrúmsloftið af koldíoxíði.
Þetta er í mínum huga nákvæmlega
það sama og gerðist þegar kvóta-
kerfið var sett á fisk á Íslandi, það er
heimilt að selja kvóta frá einu landi
til annars lands. Á maður að hlæja
eða gráta? Ég held að gráturinn sé
betri valkostur, þar finnst engin
kvóti. En þetta snýst mest um póli-
tík og ég er ekki með skarpari
mönnum, enda fæddur í Vestmanna-
eyjum, þar sem fólk er heiðarlegt og
segir meiningu sína. En þrátt fyrir
að Vestmannaeyjar hafi áratugum
saman haldið Íslandi á floti, þá er nú
langt komið með að leggja Heimaey
niður. Ástæðan er augljós, kvóta-
kerfið. Þú þarna, góði Íslendingur,
láttu bara skjóta þér á braut um-
hverfis jörðu og komdu síðan til
baka sem nýr og betri maður.
Óli Jóhann,
Svíþjóð.
Silfureyrnalokkur frá
Aurum týndist
SILFUREYRNALOKKUR frá
Aurum týndist í Vesturbæ Reykja-
víkur í byrjun desember. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
520 0008 eða 567 1662.
Reuters
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
90 ára af-mæli. Í
dag, 15. desem-
ber, er níræð
Aðalbjörg Jóns-
dóttir, Dalbraut
20, Reykjavík. Í
tilefni þess
munu fjölskylda
og vinir hittast í
safnaðarheimili
Langholtssóknar laugardaginn 16.
desember kl. 14–18.
Gullbrúðkaup | Í dag, föstudaginn 15.
desember, eiga 50 ára hjúskapar-
afmæli hjónin Guðbjörg Ársælsdóttir
og Magnús Theodór Magnússon,
(Teddi). Þau halda upp á daginn með
fjölskyldunni á Hótel Glym í Hvalfirði.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Fólk getur hringt í síma 569-1100
eða sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is.