Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 55 menning x6 TOMADO SAFAPRESSA Glæsileg og öflug safapressa. Hnífar og sía úr ryðfríu stáli. Fullt ver›: 9.900 kr. Safnkortshafar borga a›eins: 3.900 kr. auk 1000 punkta T V Æ R M A G N A Ð A R ! Antony Beevor lýsir hér af nærfærni og list gangi innrásarinnar í Þýskaland úr austri og þeim mannlegu örlögum og hörmungum sem hún hafði í för með sér. Þegar hinn frægi flugkappi og einangrunarsinni Charles A. Lindbergh vann stórsigur á Franklin Roosevelt í forsetakosningunum 1940 greip óttinn um sig á hverju einasta gyðingaheimili í Bandaríkjunum. BÆKUR SEM ÞÚ VERÐUR AÐ LESA SAMSÆRIÐ GEGN BANDARÍKJUNUMFALL BERLÍNAR 1945 Stundum finnst fólki allt á von-arveli, allt hafi verið betraáður, vegvísir núsins bendi niður á við, og sér fortíðina í rós- rauðum hillingum. Auðvitað er lífið ekki þannig, sem betur fer. Sú eftirtektarverða breyting hef- ur orðið á kaffi- og öldurhúsum borgarinnar á síðustu misserum að æ víðar er hægt að setjast inn til að hlusta á lifandi tónlist; – jafnvel á mánudagskvöldum, og jafnvel ókeypis. Kaffi Óliver á Laugaveginum hef- ur boðið upp á djasskvöld sem hafa oftar en ekki verið prýðilega sótt. Handan götunnar hefur Kaffi Hljómalind staðið fyrir músíkupp- ákomum af ýmsu tagi. Q-bar í Ing- ólfsstræti hefur hýst djass og fleira, þar sem Björn Thoroddsen hefur boðið gestum sínum að spila með í heita stólnum, og á Domo í Þing- holtsstræti eru tónleikar af ýmsu tagi. Kaffi Hressó hefur haldið sínu striki með ungu tónlistarfólki, og ef maður dettur inn á Rósenberg í Lækjargötunni hvort sem er í miðri viku eða um helgar hefur oft á tíð- um verið fín músík þar, trúbadorar, djass, blús og reyndar sitthvað fleira. Kaffi Kúltúr í Alþjóðahúsinu á Hverfisgötu hefur verið griða- staður tónlistar annarra menning- arheima. Á Classic Rock í Ármúlanum, sem gefur sig út fyrir að vera sportbar, eru mánudagskvöld nú orðin að tón- listarkvöldum sem helguð eru blús- tónlist. Nokkrar heimsóknir þangað í haust hafa verið ánægjulegar þótt tónlistarflutningurinn hafi verið ærið misjafn. En einmitt þess vegna nefni ég þann stað sérstaklega hér. Það er meir en virðingarvert að vertshús skuli taka að sér að hýsa tónlistina á þennan hátt. Þarna fá þeir óreyndu að spreyta sig, jafnvel á sama kvöldi og mun reyndari tónlistarmenn eru að spila. Sú var einmitt raunin síðasta mánudags- kvöld. Aðdráttarafl kvöldsins var sú rómaða sveit Kentár, en áður en mannfákarnir stigu á sviðið spilaði ung grúppa, sem aðspurð um nafn kom af fjöllum. Það var líka kannski alveg ónauðsynlegt formsatriði að bandið héti eitthvað; aðalatriðið að þarna höfðu ungir krakkar aðstöðu til að spila fyrir aðra og þroskast í sinni kúnst. Með tímanum og fleiri spilakvöldum á þetta band eftir að dafna. Fyrir nokkrum vikum var annað ungt band að spila á Classic Rock, Grasrætur heitir það og er af- ar efnilegt. Söngurinn hjá Andra Eyjólfssyni var firnagóður, og bassaleikarinn, sem ég veit því mið- ur ekki hvað heitir, var óvenju mel- ódískur og laus við klisjur í spila- mennskunni. Allt er þetta tónlistarstúss til marks um iðandi líf í grasrótinni en jafnframt eilífa og mjög ánægju- lega uppvakningu banda á borð við Kentár. Það er hægt að setjast nið- ur í rólegheitum víða í borginni og eiga von á einhverju óvæntu og skemmtilegu með kaffibollanum eða ölglasinu.    Enn vantar þó stað af svipuðumtoga sem býður upp á klass- íska tónlist. Væri það ekki dásam- leg tilhugsun að eiga í vændum sunnudagsmorgun í dagverði, með Erik Satie og Poulenc sprelllifandi á eitthvert honkítonk-píanó ein- hvers staðar – þó ekki sé beðið um meira, eða sunnudagskaffi með Chopin og sjerrítertu. Galdurinn er sennilega sá að hafa blönduna hæfi- lega samsetta af listamönnum sem hafa aðdráttarafl og þeim óreynd- ari sem langar að spreyta sig og músíkina góða blöndu af vinsælu efni og minna þekktu, og vafalaust er það ráð að kaffihúsin og barirnir sem bjóða upp á músík fái tónlistar- menn til að halda þar í spottana, eða að minnsta kosti leita ráðgjafar þeirra. Þar sem best tekst til er það þegar gert. Það hefur margt breyst til betri vegar hvað þetta varðar. Nú er ég glaður Morgunblaðið/Kristinn Verðlaunatrúbador Svavar Knútur Kristinsson, gítarleikari, tónskáld og söngvari, er einn þeirra sem eiga Kaffi Rósenberg að griðastað. Hann bar sigur úr býtum í Trúbadorakeppni Rásar tvö í fyrravetur. AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir » Væri það ekkidásamleg tilhugsun að eiga í vændum sunnudagsmorgun í dagverði, með Erik Satie og Poulenc? begga@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.