Morgunblaðið - 21.12.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 15
stofu og gangi, en að öðru leyti er
ekki ljóst hve tjónið í íbúðarhúsinu
er mikið.
Leðjan náði ríflega einn og hálfan
metra upp á útveggi hússins að
austan og norðan.
„Það er ekki jólalegt hér og hefði
alveg mátt vera öðruvísi,“ sagði
Óskar í samtali við Morgunblaðið og
bætti við: „Það er ömurlegt að líta
hér yfir svæðið.“
Óskar, sem er 57 ára, hefur búið í
Grænuhlíð alla ævi. Foreldrar hans
bjuggu þar en þau Rósa María tóku
við búinu um mitt ár 1972. „Ég hef
oft horft á fjallið í leysingum – oft
horft smeykur til fjalls í svona tíð-
arfari,“ sagði Óskar og hryllti hálf-
partinn við. „Það kom spýja úr fjall-
inu hingað heim undir húsið í janúar
1973 en þá varð ekkert meira úr því,
en ég hef alla tíð síðan verið með
fiðring í maganum í svona tíðarfari.
Það er erfitt að lýsa þessu en það er
mannheilt og það skiptir mestu
máli. Það er hægt að bæta bæði
skepnur og hús,“ sagði Óskar Krist-
jánsson, bóndi í Grænuhlíð.
Þyrla pöntuð norður
Stundarfjórðungi fyrir klukkkan
átta í gærmorgun var svo tilkynnt
að aurskriða hefði fallið á veginn
norðan við Kolgrímustaði í Eyja-
fjarðarsveit, ekki langt frá Grænu-
hlíð en hinum megin fjarðarins.
Skriðan lokaði veginum en lenti ekki
á öðrum mannvirkjum. Þá féll aur-
skriða á veginn norðan við bæinn
Stóradal og yfir hann þannig að
hann varð ófær. Loks bárust upp-
lýsingar um að aurskriða hefði fallið
á veginn skammt frá Skriðu í Hörg-
árdal.
Lögregla lokaði þjóðveginum til
suðurs við Saurbæ í Eyjafjarð-
arsveit. Í birtingu fór lögregla með
jarðfræðingi á vettvang skriðufall-
anna til að kanna aðstæður og þeir
gáfu ábúendum og öðrum fljótlega
leyfi til þess að koma heim að bæn-
um.
Á tímabili í gær var talið að fólk á
bænum Melbrekku í Eyjafjarð-
arsveit væri komið í sjálfheldu
vegna vatnsflaums og í hættu statt.
Því var óskað eftir þyrlu frá Land-
helgisgæslunni norður. Þegar þyrl-
an var lögð af stað rénaði vatnselg-
urinn og leið opnaðist burt fyrir
fólkið. Þyrlunni var því snúið við.
Verulegt tjón
Laust fyrir klukkan ellefu fyrir
hádegi brast svo jarðvegsstífla við
uppistöðulón ofan við rafstöð í
Djúpadal. Vatn flæddi úr lóninu, yf-
ir virkjunina og áleiðis niður að
Eyjafjarðará. Flóðið rauf veginn
beggja vegna við brú á Eyjafjarð-
arbraut yfir Djúpadalsá. Einnig
rofnaði vegurinn báðum megin við
brú sem er yfir Djúpadalsá að bæn-
um Völlum.
Mikill vöxtur var í Eyjafjarðará á
þessum tíma og bættist nú enn við
þannig að nokkur hross sem voru á
mýrum við ána voru hætt komin.
Unnt var að koma þeim til bjargar.
Þegar vatnið hafði rofið Eyja-
fjarðarbraut við Djúpadalsá vildi
ekki betur til en svo að vegfarandi á
pallbíl ók ofan í rofið og barst með
bíl sínum niður ána. Honum tókst að
komast út úr bílnum af sjálfsdáðum
og á land og var fluttur með sjúkra-
bifreið á slysadeild FSA til aðhlynn-
ingar. Þykir ótrúlegt hve vel hann
slapp.
Maðurinn, Jón Sverrir Sigtryggs-
son, var með gröfu á vagni aftan í
bílnum og eru tækin öll gjörónýt.
Hann var á leið inn að Grænuhlíð til
hjálpar.
„Við höfum enn ekki hugmynd um
hve fjárhagslegt tjón er mikið, við
höfum ekki komist í stöðvarhúsið,
en það er ljóst að tjón á stíflunni er
verulegt,“ sagði Franz Árnason, for-
stjóri Norðurorku, þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann á vettvangi
en Djúpadalsvirkjun er í eigu dótt-
urfyrirtækis Norðurorku. Það var
einstaklingur sem virkjaði fyrir
nokkrum misserum og seldi fyr-
irtækinu virkjunina fyrr á þessu ári.
Stíflan er mikið hlaðin úr stóru
grjóti og mikið mannvirki en nokk-
urra tuga metra skarð er nú í henni.
„Hér hefur komið gífurlegt vatns-
magn, einhvers konar hamfaraflóð.
Stíflan hefur ekki staðist álagið og
vatnið hefur smám saman étið upp
hluta af stíflunni.“
Annað stöðvarhús Djúpadals-
virkjunar, það efra, fylltist af vatni
og hið neðra, niður undir Eyjafjarð-
arbraut, hálffylltist. Báðar stöðv-
arnar eru óstarfhæfar en Franz
sagði stefnt að því að koma þeirri
neðri í gang sem fyrst.
Vegagerðin vann í gær að viðgerð
á vegum sem rofnuðu en ekki liggur
ljóst fyrir hvenær henni lýkur.
Sýslumaðurinn á Akureyri
fundaði síðdegis í gær með sveit-
arstjóra Eyjafjarðarsveitar, lögregl-
unni og Halldóri G. Péturssyni jarð-
fræðingi, sem er sérfræðingur í
flóðum og skriðuföllum. Nið-
urstaðan er sú að mesta hættan sé
liðin hjá og ekki ástæða til að óttast
frekari skriðuföll nema aftur fari
saman mikil leysing og mikil rign-
ing. Til öryggis áttu björgunarsveit-
armenn í Eyjafirði að vera á vakt í
nótt.
Ástandið verður kannað aftur í
dag og viðbrögð metin í ljósi þess.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Líf Fátt er svo með öllu illt, sagði Óskar bóndi og sýndi Morgunblaðsmanni
kálfinn sem blasti við Rósu konu hans þegar hún komst loks í fjós í gær.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikið starf Aurinn úr skriðunni náði töluvert upp á hliðar íbúðarhússins og drullan var mikil. Fjöldi fólks vann að
því að hreinsa innan úr húsinu og næsta nágrenni, bæði með handaflinu einu og stórvirkum vinnuvélum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vegurinn hvarf Vatnselgurinn í Dj́úpadalsá rauf veginn báðum megin við
brúna á Eyjafjarðarbraut. Það var þarna sem bíllinn lenti í ánni.
!"#
$
% %&#
'(&
)
*
+) ## )#
) )
#'
%
, *
-%, .
/&'( + #
% ) .)
aranum væru ónýt. Slökkviliðs-
menn, lögregla, starfsmenn Ak-
ureyrarbæjar og félagar í
björgunarsveitinni Súlum unnu
sleitulaust í alla fyrrinótt við að
dæla vatni í Grenilundinum. Verk-
takar aðstoðuðu við að setja upp
varnargarð meðfram húsunum til að
varna frekari skemmdum.
Um nóttina var jafnframt unnið
við að dæla úr húsi við Urðargil í
Glerárhverfi en alls var á tímabilinu
kallað eftir aðstoð í 15 húsum.
Alls komu um 100 manns að að-
gerðunum á Akureyri í fyrrinótt,
þar af um 50 í Grenilundi, og margir
stóðu vaktina allan tímann og fóru
ekki að sofa fyrr en öllu var lokið
síðdegis í gær. Slökkvilið Akureyrar
þurfti að leggja tæplega kílómetra
lögn af slöngum til að dæla vatninu í
burtu. Flestar íbúðirnar sem flæddi
inn í voru á tveimur hæðum þannig
að fólk þurfti ekki að flytjast úr
íbúðum sínum og gat haldið til á efri
hæðinni.
Síðdegis í gær fór slökkviliðið að
einbeita sér að flugvellinum en mik-
ið vatn hafði safnast saman á flug-
hlaðinu og farið var að flæða inn í
skýli og kjallara. Þar var vatni
stanslaust dælt út til að halda í horf-
inu en hreinsun getur ekki hafist
fyrr en flóðið sjatnar.
„Þetta gerðist mjög snöggt. Um
níuleytið [í fyrrakvöld] hringdi kona
dyrabjöllunni hjá okkur og vildi at-
huga hvort við hefðum tekið eftir
miklu vatnsflóði vestan og sunnan
við húsið.“ Þá var ekkert athugavert
að sjá í geymslunni, en um það bil
fimm mínútum síðar var aðeins byrj-
að að leka þar inn og skömmu síðar
var allt komið á kaf, að sögn Höllu.
„Manni bregður auðvitað við
þetta en við fórum bara í það að
bera út dót,“ sagði hún og vildi kom
á framfæri innilegu þakklæti til
allra þeirra sem aðstoðuðu fjöl-
skylduna. „Við fengum mikla hjálp
og erum mjög þakklát. Þegar maður
lendir í svona erfiðleikum er frá-
bært að finna stuðning og fá svona
mikla hjálp, frá björgunarsveit-
armönnunum í Súlum – sem allir eru
að þessu í sjálfboðavinnu – lögreglu,
slökkviliði, starfsmönnum bæjarins
og svo auðvitað ættingjum, vinum
og nágrönnum,“ sagði Halla Tul-
iníus í gær.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Margar hendur Félagar í björgunarsveitinni Súlum báru út húsgögn og ýmsa aðra muni úr kjallara hússins við
Grenilund 17. Myndin er tekin í fyrrinótt þegar fjöldi manna var að störfum vegna vatnselgsins í götunni.