Morgunblaðið - 21.12.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 21
KYRRÐAR- og íhug-
unartónleikar verða í Nes-
kirkju við Hagatorg, annað
kvöld kl. 21. Hallveig Rún-
arsdóttir sópran og Stein-
grímur Þórhallsson org-
anisti flytja gömul sálmalög
í bland við tónlist Bachs.
Tónleikarnir eru hugs-
aðir sem mótvægi við hrað-
ann sem einkennir jólahald
á okkar dögum og eru tæki-
færi fyrir fólk til að setjast niður í kirkjunni
sem verður aðeins lýst með kertaljósum,
hlusta á fagra tónlist og komast í snertingu við
sannan anda jólahátíðarinnar og kristninnar.
Kyrrð og íhug-
un í Neskirkju
Tónleikar
Hallveig
Rúnarsdóttir
frá flottri list til subbuskapar. Al-
menningur þurfi að átta sig á þessu
og gera greinarmun á því og hinu
sem vel er gert. „Það eru aðallega
þeir sem eru að byrja sem eru að
„tagga“ eða merkja út um allt. Ef það
væri fræðsla í gangi og meiri meðvit-
und, væri kannski ekki jafn mikið um
það. Þá væru báðir aðilar að vinna;
byrjendurnir myndu vilja fá tækifæri
til að gera eitthvað flottara, borgin
og einstaklingar myndu síður eyða
peningum í að þrífa ljóta veggjaskrif-
ið og listhreyfingin kæmi inn í þetta
líka vegna þess að graffarar í dag eru
að móta list komandi ára. Ný-
listasafnið er ekki lengur nýlistasafn;
gatan er nýlistasafn.“
Fáfræði að óttast graffara
Ómar Ómar segir að kjörið væri að
koma upp aðstöðu fyrir alvöru graff-
ara á fjölförnum stöðum svo almenn-
ingur gæti notið þess sem þeir eru að
gera. „Hlíðagöngin voru löglegt
svæði áður en einhverjir íbúar þorðu
ekki í gegnum þau meðan fólk var
þar að úða. Það er auðvitað bara fá-
fræði að óttast graffara eins og þér
séu einhverjir glæpamenn. Ég myndi
vilja að þarna yrði opnað aftur og það
mætti auka lýsinguna svo öllum liði
betur. Veggurinn fyrir neðan Aust-
urbæjarskólann var líka opinn og
mikil hreyfing á verkum. En það fór í
vitleysu því einhverjir fóru að úða á
skólann sjálfan. Ég myndi vilja sjá að
það yrði steyptur veggur, t.d. í Laug-
ardalnum, sem væri grunnaður og
lýstur og helst annar veggur niður í
miðbæ. Það er ekki dýrt að steypa
einn vegg sem listasafn. Núna er
graffað hjá Loftkastalanum þótt það
sé ólöglegt en það eru veggir sem á
hvort eð er að rífa. Fólk gæti kíkt
þangað og skoðað. Það eru margir að
vinna þar. Það voru líka margir með
aðstöðu í Klink og bank í Þverholt-
inu. Ég gæti nefnt marga fleiri staði
sem væru kjörnir fyrir graffiti.“
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HANN kallar sig Ómar Ómar og er í
forsvari fyrir áhugamannafélagið
TFA. Í vor gekk Ómar á fund menn-
ingarfulltrúa Reykjavíkurborgar
með hugðarefni sitt; graffiti.
Ómar hugðist kynna borginni
þessa tegund myndlistar, ræða þau
vandamál sem skapast vegna veggja-
krots og eignaspjalla og síðast en
ekki síst graffiti sem listgrein sem
gæti orðið borgarbúum til ánægju og
yndisauka. Ómar lagði fram hug-
myndir að verkefnum; áætlun hvern-
ig koma mætti þessum menning-
arkima í betra horf.
Tíminn leið – vikur, kosningar,
mánuðir og nýr borgarstjórnarmeiri-
hluti og engin svör bárust. Þau hafa
ekki borist enn, að hans sögn.
Nú í vikunni sendi Ómar Ómar
borgarstjóra bréf að nýju, þar sem
hann reifaði hugmyndir sínar aftur
og lagði spilin á borðið. Afrit af bréf-
inu sendi hann fjölmiðlum. Ómar
segir að það hafi komið sér jafn mikið
á óvart og ekki, að fjölmiðlar hafi
heldur ekki sýnt erindi graffara í
borginni meiri áhuga. „Ég hef áður
sent svona póst á fjölmiðlana til að
vekja áhuga þeirra á málinu en þeir
hafa ekki sýnt því neinn áhuga.“
TFA stendur fyrir Tíma fyrir að-
gerðir og Ómar segir tíma kominn til
að gera eitthvað til að brúa gjána
milli graffara og borgarinnar, gap
sem virðist bara stækka verði ekkert
að gert. Lengi vel var graffiti-fólki
leyft að stunda list sína á ákveðnum
stöðum í borginni en í fyrra var það
leyfi afnumið og graffiti á opinberum
vettvangi alls staðar bannað. „Við-
urlög við veggjakroti voru hert á
þessu ári og ég sé augljóslega að
áhrifin eru þau að ljótt krot og
óvandað graffiti hefur aukist, Ég finn
einnig fyrir uppreisnarhugarfari
meðal þeirra sem stunda þetta. Í
þeirri aðstöðu sem ég er, að vinna
innan hip-hop-menningarinnar en
vilja vera hlutlaus, finnst mér ég
knúinn til að gera eitthvað í þessu.
Mér finnst það mikil list og hæfi-
leikar komin í graffiti í dag, að mér
finnst það synd ef áfram verður litið
á það sem ómennsku einhvers
krakkalýðs og smánarblett á borg-
inni. Það er það alls ekki.“
Fræðsla þarf að vera til staðar
Ómar talar skýrt og ákveðið um að
fræðsla og upplýsing um graffiti
þurfi að vera til staðar fyrir þá sem
langar að spreyta sig. Nauðsynlegt
sé að beina hæfileikafólki í rétta far-
veginn til að koma í veg fyrir óvin-
sælt veggjaskrif. Hann segir að þótt
orðið graffiti sé yfirleitt þýtt sem
veggjakrot, þá geti graffiti verið allt
Ómar Ómar bíður svara frá borginni
Graffari
leitar sátta
ÞAÐ sem Ómar boðar með bréfi sínu til borgarinnar er að graffitífólk axli
sjálft ábyrgð með því að virkja og fræða þá sem yngri eru í listinni og vinni
með borginni að því að minnka neikvæðnina sem fylgir illa gerðum veggja-
skrifum, en fái í staðinn sómasamlega aðstöðu fyrir sitt fólk sem virkilega
vill sýna að í þessu formi myndlistarinnar býr sprengikraftur.
Morgunblaðið/Golli
Graffarar axli líka ábyrgð
Í HAUST hefur verið unnið að end-
urskoðun á stefnu Reykjavík-
urborgar um veggjakrotsþrif, að
sögn viðmælanda blaðsins, starfs-
manns gatna- og eignaumsýslu
borgarinnar. Hann segir að útkom-
an úr henni verði lík því sem áður
hefur verið ákveðið: að veggjakrot
sé skemmdarverk sem ekki verði
liðið á eignum borgarinnar og það
beri að bregðast við samkvæmt því;
að þrífa það af, helst innan 24
klukkustunda frá því að þess verð-
ur vart og ef vitað sé um gerendur
verði þeir kærðir.
Spurður hvort vilji sé til þess inn-
an borgarinnar að bregðast við
þeirri ósk graffitífólks, að gefin
verði eftir ákveðin svæði, þar sem
leyft verði að graffa, segir viðmæl-
andinn að það hafi verið rætt
nokkrum sinnum. „Reynslan er sú,
að ef þú leyfir þetta á tilteknu
svæði, þá er það ekki virt og fer út
um allt.“
Ekki liðið
í borginni
Í KVÖLD heldur sjö manna
latínsveit Tómasar R. Ein-
arssonar tónleika á Café
Rósenberg í Lækjargötu og
hefjast þeir kl. 22.
Auk Tómasar skipa sveit-
ina Kjartan Hákonarson
trompet, Óskar Guðjónsson
saxófón, Samúel J. Sam-
úelsson básúnu, Ómar Guð-
jónsson gítar, Matthías
M.D. Hemstock trommur
og Sigtryggur Baldursson kóngatrommur.
Þeir munu leika lög af geisladiskinum
ROMM TOMM TOMM sem kom út í haust.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Tónleikar
Tómas R. á
Café Rósenberg
Tómas R.
Einarsson
HIN ÁRLEGA Sólstöðuhá-
tíð þungarokkara verður
haldin á morgun föstudag, í
Tónlistarþróunarmiðstöð-
inni, Hólmaslóð 2.
Í ár verður leikið á tveim-
ur sviðum innan miðstöðv-
arinnar og tekur ein sveit
við af annarri. Fyrsta
hljómsveit byrjar klukkan
19.00 og verður spilað
stanslaust til klukkan 23.30.
Fram koma: Sólstafir, Helshare, Changer,
Svartidauði, Bootlegs, Celestine, Forgarður
helvítis, Denver, Devious og Gjöll.
Aðgangseyrir er kr. 700.
Rokktónleikar
Sólstöðuhátíð
þungarokkara
Forgarður
helvítis
ÞANN 3. nóvember síðast-
liðinn varð i8 gallerí á
Klapparstíg ellefu ára.
Í tilefni afmælisins hafa
Háskólaútgáfan og i8 gefið
út vandað og glæsilegt af-
mælisrit.
Yfir áttatíu sýningar hafa
verið haldnar í galleríinu
frá upphafi og í bókinni eru
myndir af verkum valdra
listamanna sem sýnt hafa
og saga gallerísins þannig rakin í myndum.
Einnig eru í bókinni greinar eftir Sigurð
Guðmundsson, Evu Heisler, Guðberg Bergs-
son og Halldór Björn Runólfsson.
Afmæli
i8 gallerí ellefu ára
og gefur út bók
Verk Katrínar
Pétursdóttur í i8
» Formlegt átak yrði sett ígang í samstarfi við
áhugamannafélgið TFA til að
auka þekkingu meðal iðkenda
graffiti-listar.
» Tíu einkaeignir eða lista-verk sem búið væri að
mála eða krota á yrðu málaðar
eða þrifnar.
» Fyrirlestrar um graffitisem list yrðu haldnir í fé-
lagsmiðstöðvum.
» Þrjú eða fleiri graffiti-svæði yrðu opnuð op-
inberlega.
ÚR TILLÖGUM ÓMARS