Morgunblaðið - 21.12.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 45
FRÉTTIR
Atvinnuhúsnæði
Iðnaðarbil á höfuðborgarsvæð-
inu. Fyrirtæki óskar eftir 80-150 fm
iðnaðarplássi með 4-5 m lofthæð og
ekki minni en 3,20 hurð, þrifaleg um-
gengni. Upplýsingar sendist á
re@centrum.is.
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Listmunir
15% jólaafsláttur. Gallerí Símón,
Miklubraut 68. Opið þriðjud. til
föstud. frá kl. 14.00 til 18.00 og laug-
ard.12 til 16. Sími 692 0997.
Tómstundir
Bókhald
Bókhald * Reikningar * Laun *
Vsk * Skattframtal. Þú kemur bara
með möppuna þína. Við sjáum um
allt ferlið fyrir þig. Veitum einnig
ráðgjöf og aðstoð til einstaklinga í
greiðsluerfiðleikum. Katrín Magnús-
dóttir, bókhald - ráðgjöf og aðstoð.
Helena Bjarnadóttir viðskiptafræð-
ingur. Ársuppgjör - skattframtal.
Maka ehf., gsm 820 7335.
Þjónusta
Jólagjöfin í ár! Gefðu elskunni
þinni eða vinum ógleymanlega jóla-
gjöf í ár og komdu þeim skemmtilega
á óvart. Gefðu þeim gjafabréf í húð-
flúr eða líkamsgötun. Skemmtilegri
gæti nú gjöfin ekki orðið. HOUSE OF
PAIN, Laugavegi 45, 101 Rvík.
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
HPI Savage X RTR fjarstýrður
bensíntrukkur, nú fáanlegur með jóla-
tilboðs viðauka.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600
www.tomstundahusid.is
Nýkomin sending af Revell
plastmódelum í miklu úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600
www.tomstundahusid.is
Nudd
580 7820
Persónuleg
dagatöl Jólagjöf nuddarans eða meðferð-araðilans. Ferðanuddbekkir og fylgi-
hlutir til sölu. Tilvalin jólagjöf fyrir
nuddara eða aðra meðferðaraðila.
Vönduð vara á hagstæðu verði. Uppl.
í síma 891 6447 Ólafur.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu yfir hátíðarnar. Íbúð
á Laugarnesvegi til leigu frá 15. des.
til 2. jan. með innbúi. Leigist reglu-
sömum einstaklingum. Sími 823 3670.
Húsnæði óskast
Jólasveinaþjónusta
Vantar þig jólasvein? Við komum í
heimahús, jólaböll, húsfélög og aðrar
samkomur. Margra ára reynsla.
Upplýsingar í síma 820 7378.
Húsnæði óskast. Tvær systur utan
af landi vantar 3ja herbergja hús-
næði í miðbæ Reykjavíkur til leigu frá
og með 1. janúar 2007. Upplýsingar í
síma 869 9977.
Skemmtilegir inniskór, tilvaldir í
jólapakkann. Fyrir dömur og herra á
öllum aldri.
Verð aðeins 500 kr. parið!
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Ath. Fram að jólum verður verslunin
opin: Virka daga 10-18
Laugardaga 10-16
Þorláksmessu 10-20
Lokað á sunnudögum
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomnar nýjar vörur.
Toppar – blússur – sjöl.
Góðar jólagjafir.
Bílar
VERÐHRUN Á BÍLUM!
Nýjir og nýlegir bílar frá öllum helstu
framleiðendum allt að 30% undir
markaðsverði. Veldu úr þremur
milljón nýrra og nýlegra bíla í USA og
Evrópu. Íslensk ábyrgð og bílalán. 30
ára traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu
betra tilboð í síma 552 2000 eða á
www.islandus.com
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Góður í vetrarakstur.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Herrahattar.
Hattabúð Reykjavíkur,
Laugavegi 8,
sími 551 2123.
Fatnaður
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Rangt ártal
Rangt var farið með ártal í mynda-
texta með mynd eftir Ólaf K. Magn-
ússon við grein um 150 ára afmæli
hafnarnefndar í Morgunblaðinu á
sunnudag. Morgunblaðinu hefur
borist ábending um að á myndinni sé
skip, sem smíðað var 1953, eða syst-
urskip þess, sem afhent var 1954. Á
myndinni sést einnig í hluta húss,
sem reist var á árunum 1954 til 1957
fyrir tollskoðun og afgreiðslu far-
þega, sem ferðuðust með Gullfossi.
Myndin gæti verið tekin 1956, 1957
eða 1958 þegar skipin stöðvuðust
vegna verkfalla.
LEIÐRÉTT
ÍSLENSKIR friðarsinnar standa
að blysför niður Laugaveginn á Þor-
láksmessu. Safnast verður saman á
Hlemmi og leggur gangan af stað
stundvíslega klukkan 18.00. Í frétta-
tilkynningu frá Samstarfshópi frið-
arhreyfinga er fólk hvatt til að mæta
tímanlega.
Friðargangan á Þorláksmessu er
orðin fastur liður í jólaundirbúningi
margra. Gangan í ár er sú tutt-
ugasta og sjöunda í röðinni. Að
venju munu friðarhreyfingarnar
selja kyndla á Hlemmi í upphafi
göngunnar. Söngfólk úr Hamrahlíð-
arkórnum og Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur kórstjóra tekur að
vanda þátt í blysförinni sem endar
með stuttum fundi á Lækjartorgi.
Þar mun Falasteen Abu Libdeh
frá Palestínu flytja stutt ávarp.
Fundarstóri verður Arnar Jónsson
leikari. Fundinum lýkur með frið-
arsöng.
Friðarganga verða einnig á Ak-
ureyri á Þorláksmessukvöld.
Blysför frið-
arsinna á Þor-
láksmessu
ORKUVEITA Reykjavíkur hefur
auglýst samkeppni um frágang á
niðurrennslisæð Hellisheiðarvirkj-
unar. Orkuveitan vill vera í forystu
í umhverfismálum en niðurrennsl-
islögnin sem um ræðir er í þjóð-
braut og blasir við þegar ekið er
eftir þjóðvegi 1 neðan Hveradala-
brekkunnar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Samkeppnin verður opin al-
menningi og fagmönnum og haft
að leiðarljósi að lögnin falli sem
best inn í umhverfið. Um er að
ræða hugmyndasamkeppni, þar
sem Orkuveitan hyggst nýta tillög-
urnar og getur ráðstafað þeim og
nýtt þær við aðlögun á núverandi
og framtíðarvirkjanasvæðum fyr-
irtækisins í viðkvæmu umhverfi á
Hengilssvæðinu. Verðlaunafé er
1½ milljón króna en þrenn verð-
laun verða veitt.
Samkeppnin er haldin að frum-
kvæði stjórnar Orkuveitu Reykja-
víkur, en í greinargerð með sam-
þykkt stjórnarinnar segir m.a. að
sjálfsagt sé fyrir OR að reyna að
lágmarka umhverfisáhrif lagnar-
innar og leita eftir nýjum hug-
myndum að frágangi lagna á yf-
irborði.
Ein leið er að reyna að virkja al-
menning og fagmenn til að koma
með hugmyndir um hvernig betur
mætti standa að hönnun og út-
færslu lagnarinnar.
Nánari upplýsingar um sam-
keppnina, samkeppnislýsingu og
samkeppnisgögn er að finna á vef
Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is.
Samkeppni
um frágang
á niður-
rennslislögn
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík hefur veitt Stíga-
mótum styrk að upphæð kr. 450 þús-
und kr. Guðrún Jónsdóttir og Guðný
Hafliðadóttir veittu styrknum við-
töku fyrir hönd samtakanna hinn 13.
desember sl. Styrknum verður varið
til þess að efla sjálfshjálparhópa
Stígamóta.
Sjálfshjálparhóparnir eru lokaðir
hópar 4–6 einstaklinga sem ásamt
leiðbeinanda skuldbinda sig til þess
að hittast 15 sinnum, þrjá tíma í
senn. Í hópunum er farið skipulega í
gegnum ýmsa þætti sem tengjast of-
beldinu. Á hverju ári eru starfræktir
6–15 hópar. Frá upphafi hafa þannig
verið reknir um 200 hópar sem hafa
skilað samfélaginu sterkari, örugg-
ari og lífsglaðari konum og einnig
nokkrum körlum, segir í frétta-
tilkynningu.
Verkalýðsfélög veita Stígamótum styrk
Styrkveiting F.v. Guðný Hafliðadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Georg Páll
Skúlason og Guðmundur Þ. Jónsson.
ÚT ER komið Almanak Þjóðvina-
félagsins um árið 2007 og er þetta
133. árgangur ritsins. Það hefur að
geyma Almanak Háskólans, sem
Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur reiknaði og bjó til prent-
unar og Árbók Íslands 2005, sem
Heimir Þorleifsson sagnfræðingur
samdi.
Í Almanakinu er m.a. að finna
dagatal með upplýsingum um sjáv-
arföll, gang himintungla og messur
kirkjuársins, en í árbókinni er yf-
irlit um árferði, atvinnuvegi, íþrótt-
ir, stjórnmál, verklegar fram-
kvæmdir og margt fleira. Fjöldi
mynda er í ritinu, sem að þessu
sinni er 214 bls. að stærð.
Almanak Þjóð-
vinafélagsins
komið út
Á AÐFANGADAG lýkur söfnunar-
átaki Sparisjóðsins til styrktar
átta frjálsum félagasamtökum til
verkefna við uppbyggingu,
fræðslu, og þróun í geðheilbrigð-
ismálum. Á sextándu milljón króna
höfðu safnast þegar fimm dagar
voru eftir af átakinu.
Það kostar ekkert fyrir við-
skiptavini Sparisjóðsins að taka
þátt í söfnuninni. Aðeins þarf að
velja eitt af verkefnunum átta á
heimasíðu Sparisjóðsins
(www.spar.is) eða í heimabanka og
hlýtur það verkefni sem valið er
þúsund króna styrk frá Spari-
sjóðnum fyrir vikið. Að sjálfsögðu
er einnig hægt að leggja fram við-
bótarframlag auk þess sem allir
landsmenn geta tekið þátt með því
að hringja í söfnunarsímann 901
1000.
Á heimasíðu Sparisjóðsins,
www.spar.is, er að finna ítarlegar
upplýsingar um þau félög sem
hljóta styrki og þau verkefni sem
ætlað er að hleypa af stokkunum.
Staðreyndin er sú að einn af hverj-
um fjórum landsmönnum glímir
við geðræn vandamál einhvern
tímann á lífsleiðinni. Það eru því
fáar fjölskyldur í landinu sem þessi
vandi lætur ósnortnar. Það eru því
hagsmunir allra Íslendinga að taka
þátt í þessari söfnun og styðja við
bakið á uppbyggingu og nýsköpun
á sviði geðheilbrigðismála, segir í
fréttatilkynningu.
Yfir 15 milljónir í átaki
í geðheilbrigðismálum