Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 6

Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 6
6 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fasteignablað Morgunblaðsins kemur næst út 2. janúar. Auglýsingum ber að skila í síðasta lagi fimmtudaginn 28. desember.  Í HNOTSKURN » Í Krabbameinsmiðstöðinnni er unnið aðýmiss konar rannsóknum og upplýs- ingaöflun um krabbamein. » Þegar mest var var kostnaður á árs-grundvelli 30 milljónir en er mun minni á þessu ári. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FJÁRFRAMLÖG sem áttu að tryggja rekstur Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss brugðust og því hefur stjórnarnefnd spítalans ákveðið að leggja miðstöðina niður frá og með næstu áramótum. Við stofnun miðstöðvarinnar í janúar 2002 kom fram að líftæknifyrirtækið Urður Verðandi Skuld (UVS) myndi leggja henni til 250 milljónir á næstu sjö árum. Ennfremur að UVS myndi leggja til 50 milljónir í stofnfé og Íslensk erfðagreining annað eins í stofnfé. Rekstur UVS stóð ekki undir vænt- ingum og í árslok 2005 var öllum starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp til að greiða fyrir sölu og í janúar á þessu ári var tilkynnt um kaup Íslenskrar erfðagreiningar á fyrirtækinu fyrir 350 milljónir. Helgi Sigurðsson, prófessor í krabbameins- lækningum á Landspítalanum og forstöðumaður Krabbameinsmiðstöðvarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að verið væri að færa starfsemi miðstöðvarinnar yfir á lyflækningasvið 2, sem er krabbameinslækningasvið spítalans. Þar yrði starfseminni haldið áfram en í breyttri mynd. Í dag störfuðu fjórir starfsmenn í miðstöðinni og þeir myndu allir færast yfir á lyflækningasvið 2. „Þetta eru meira áherslubreytingar heldur en eitthvað annað,“ sagði hann. Eftir að útfæra breytingar Helgi minnti á að miðstöðin hefði ávallt verið rekin sem sérstök eining af Landspítalanum en UVS og ÍE hefðu greitt í sérstakan sjóð sem not- aður hefði verið til rekstrarins. Eftir að UVS lenti í rekstrarerfiðleikum hefði dregið úr fjárframlög- um frá fyrirtækinu og eftir að það rann inn í ÍE hefðu skuldbindingar þess gagnvart spítalanum fallið niður. Aðspurður hvort starfsemin yrði jafn- viðamikil og fyrr sagði Helgi að það ætti eftir að koma í ljós. „Það á eftir að útfæra það betur og það verða áherslubreytingar,“ sagði hann. Krabbameinsmiðstöð Land- spítalans verður lögð niður Morgunblaðið/Þorkell Forstöðumaður miðstöðvarinnar segir að starfseminni verði haldið áfram FYRRINÓTT var frekar róleg hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að stefnt hafi í slæmt veð- ur. Tilkynnt var um fok á þremur stöðum í Kópavogi, en allt var það minniháttar og virðist veðrið sem gekk yfir landið í nótt hafa valdið litlum sem engum vandræðum. Sex voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavík í fyrrinótt og einn í Kópavogi. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er ölvunarakstur áber- andi á þessum árstíma og eru öku- menn hvattir til að setjast ekki undir stýri eftir að hafa neytt áfengis. Þá sökk trilla í Hafnarfjarðarhöfn og marar þar í hálfu kafi. Ekki er vit- að hvernig það gerðist, en ákveðið var að bíða til dagsins í dag með að bjarga trillunni. Rólegt hjá lögreglunni ♦♦♦ neita að það getur verið snúið að finna eitthvað nýtt að segja á hverj- um stað.“ Góður bílstjóri mikilvægur Þetta er 15. veturinn sem Sigríður þjónar á Hólmavík. Á þessum árum hafa þrjú prestaköll í kringum henn- ar verið lögð niður. Hún tók við Árnesprestakalli og hinum tveimur að hluta. En hvernig hefur gengið að komast til kirknanna um jólin? Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is EINU víðfeðmasta prestakalli landsins er þjónað af séra Sigríði Óladóttur á Hólmavík. Hún messar fimm sinnum um þessi jól og ferða- lagið til og frá þeirri kirkju sem lengst er frá Hólmavík tekur heilan dag. Sigríður sagðist ekki komast yfir að sinna öllum kirkjum prestakalls- ins um jóladagana. Hún messar tvisvar á aðfangadag, á Hólmavík kl. 18 og á Drangsnesi kl. 21. Á jóladag er messa á Kollafjarðarnesi í Kolla- firði kl. 14 og kl. 16 á Óspakseyri í Bitrufirði. Annan í jólum er svo messað í Árnesi í Árneshreppi. Ferðalagið þangað og aftur heim tekur heilan dag og horfur á að þangað verði fært um jólin. Í Bitru- fjörð eru tæpir 60 km og um 100 km í Árneshrepp frá Hólmavík. Sigríður sagði að þótt vegalengdirnar milli kirkna næmu mörgum tugum kíló- metra segði það ekki alla söguna því á sumum leiðum væru heiðar og alls konar hindranir. En getur hún notað sömu ræðuna í messunum? „Ég geri það nú ekki að öllu leyti. Nenni ekki að hlusta á sjálfa mig flytja sömu ræðuna fimm eða sex sinnum,“ sagði Sigríður og hló við. „Það getur verið að sömu hugmynd- irnar séu notaðar, en því er ekki að „Það er mesta furða. Þessi seinni ár hefur veðráttan breyst mikið til hins betra,“ sagði Sigríður og að hún hefði aldrei orðið veðurteppt um jól í útkirkjunum. „Það má segja að síðan þennan blessaða vetur 1995, sem var afleitur, hafi þetta gengið þokkalega vel. Við búum þetta norðarlega og hann getur brostið á fyrirvaralítið. Maður verður að vera með góðan bíl og góðan bílstjóra og það er ég. Maðurinn minn, Gunnlaugur Bjarnason, er mjög viljugur að fara með mér. Ég myndi ekki fara ein norður. Það er ekki gott símasam- band á leiðinni og maður gerir ekki mikið einn. Fyrir kemur að það þurfi að gera við eitt og jafnvel tvö dekk í hverri ferð.“ Einfaldur jólamatur Hið tíða messuhald tilheyrir orðið jólahaldi þeirra hjóna. Þau eru tvö í heimili og eldamennskan á aðfanga- dagskvöld er einföld. „Við steikjum okkur humar þegar við komum heim og höfum ekki miklar áhyggjur. Það er ósköp nota- legt. Tími til eldamennsku er ekki mikill og þetta er fljótlegt og gott. Það eru líka jól að hitta fólkið í söfn- uðunum,“ sagði Sigríður. Fólki hef- ur fækkað mikið í prestakallinu, sér- staklega í sveitunum, en kirkjusókn er góð um jólin. Unga fólkið kemur þá heim, en það hleypir flest heim- draganum sextán ára til að fara í skóla. Sigríður segir að sér þyki gaman að sjá unga fólkið í kirkju. Jólaundirbúningurinn hjá Sigríði felst ekki síst í því að undirbúa hátíð- arguðsþjónusturnar. Auk þess að vera sóknarprestur er sr. Sigríður einnig stjórnandi kvennakórsins Norðurljósa. Í kórnum eru yfir 20 konur og auðvitað voru haldnir jóla- tónleikar og kórinn er að undirbúa söngferðalag til útlanda næsta vor. Líka jól að hitta fólkið í söfnuðunum Morgunblaðið/Kristín Einarsdóttir Jólatré Séra Sigríður við jólatré frá ömmu sinni í stofunni. VERÐ á vörum og þjónustu á Ís- landi er það hæsta í Evrópu og er verðlagið hér á landi 50% hærra en meðaltalið í Evrópu á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum sem birtar eru á vef norsku hagstofunnar. Þar kemur fram að Ísland er dýr- asta landið og munar níu prósentu- stigum á Íslandi og næstdýrustu löndunum, Noregi og Danmörku, þar sem vöruverð reyndist 41% hærra en meðaltalið í Evrópu. Finn- land og Svíþjóð skera sig talsvert úr hópi Norðurlandanna, en þar mæld- ist vöruverðið 22% og 19% yfir meðaltalinu í Evrópu. Hjá norsku hagstofunni kemur fram að vöruverð í Bretlandi, Þýska- landi og Hollandi er 4–6% yfir meðaltalinu, en á Spáni er það 10% undir meðaltalinu í Evrópu. Lægst reyndist vöruverðið í Austur-Evr- ópu, t.d. Póllandi 46% undir meðal- talinu. Í könnuninni er einnig borin sam- an landsframleiðsla Evrópulanda á hvern íbúa og trónir Lúxemborg þar á toppnum, en þar er landsfram- leiðslan á hvern íbúa 151% hærri en að meðaltali í Evrópu. Noregur sker sig einnig úr, en þar er landsfram- leiðsla á íbúa 69% hærri en meðaltal- ið og Írland er ekki langt undan, 39% yfir meðaltali. Samkvæmt rannsókn- inni er landsframleiðsla á hvern íbúa á Íslandi 29% hærri en meðaltalið í Evrópu. Austur-Evrópa er neðar- lega og er landsframleiðsla á hvern íbúa aðeins 50% af meðaltali Evrópu í Póllandi. Ísland dýrast í Evrópu MIKIÐ hvassviðri var á Ísafirði í gærmorgun, þar var vindhraðinn um 40 metrar á sekúndu í mestu hvið- unum. Háflóð var klukkan tíu og þegar bætti í vindinn gekk sjór á land með þeim afleiðingum að mikill vatns- elgur myndaðist og götur bæjarins urðu margar hverj- ar ófærar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu urðu nokkrar skemmdir á húsum og bifreiðum, auk þess sem þakplötur fuku. Þá var rafmagnslaust um tíma í nótt en rafmagn komst aftur á í morgun. Björgunarsveitir, starfsmenn Ísafjarðarbæjar og slökkviliðsins hafa unnið við að þurrka upp vatn sem flætt hefur inn í íbúðarhús. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Sjórinn gekk á land á Ísafirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.