Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Kalvin & Hobbes
MANNLEGA
SKORDÝRIÐ, KALVIN,
LABBAR RÓLEGA UM
ELDHÚSBORÐIÐ...
MEÐ STYRK, SEM
EINUNGIS SKORDÝR BÚA
YFIR, TEKST HONUM AÐ
KOMA RISAVAXINNI BAUN
FYRIR Á ENDA SKEIÐAR
SÍÐAN
KLIFRAR HANN
FIMLEGA UPP Á
HINN ENDANN...
OG MEÐ
LITLU
STÖKKI
SKÝTUR...
KALVIN!
HÆTTU
ÞESSU!
Kalvin & Hobbes
VEGNA ÞESS HVE KALVIN ER
LÍTILL ÞÁ TEKUR ÞAÐ HANN
TÍU MÍNÚTUR AÐ LABBA YFIR
EINA BLAÐSÍÐU
ÞEGAR HANN ER KOMINN
Á ENDANN ÞÁ LYFTIR
HANN HORNINU Á SÍÐUNNI
SÍÐAN TEKUR ÞAÐ HANN
AÐRAR TÍU MÍNÚTUR AÐ
FLETTA YFIR Á NÆSTU SÍÐU
VÁ! KRAKKINN
ER BÚINN AÐ
ÞEGJA Í NÆSTUM
TUTTUGU
MÍNÚTUR...
HANN ER
AÐ LÆRA
HEIMA
Kalvin & Hobbes
HÉRNA
ER MYND
SEM VIÐ
ÆTTUM
AÐ SJÁ
HVER ER
Í HENNI?
ÞAÐ STENDUR, JAPANSKIR
LEIKARAR...
MYNDIN FJALLAR UM TVÖ
GRÆN SKRÍMSLI SEM ERU
AÐ SLÁST Í STÓRBORG...
Í BARÁTTU SINNI FYRIR
HEIMSYFIRRÁÐUM
HJÓMAR
VEL, EKKI
SATT?
OG HVER
SAGÐI AÐ
ERLENDAR
MYNDIR VÆRU
SLÆMAR?
Litli Svalur
© DUPUIS
JÆJA, BLEIKU KOLKRABBAR, Í DAG ÆTLA ÉG AÐ KENNA
YKKUR VIRÐULEGUSTU OG KARLMANNLEGUSTU
VATNSÍÞRÓTTI SEM TIL ER
VATNAPÓLÓ?
NEI FÁVITAR!
VEIÐI!
TAKIÐ
EFTIR!
SÝNIKENNSLA!
ALVÖRU ÍÞRÓTTAMAÐUR STENDUR SEM FASTAST Í ÞURRUM
STÍGVÉLUNUM. HANN KASTAR KRÖFTUGLEGA, MEÐ GÓÐRI SVEIFLU,
EINS LANGT OG HANN GETUR. ALVÖRU ÍÞRÓTTAMAÐUR LEITAR
EFTIR STÆRSTU BRÁÐINNI
ÁRANGURINN ER ÞESS
VIRÐI AÐ LEGGA
SVOLÍTIÐ Á SIG
SJÁIÐ
BARA.
BEINT Í
MARK
ORRUSTAN ER BYRJUÐ.
HVER MUN VINNA BARDAGANN?
VILLIDÝRIÐ EÐA ÞRAUTSEIGUR
VEIÐIMAÐURINN
NIÐURSTAÐAN...
...ER... PFFF.... ER
....ÓVTÍRÆÐ...
NÚ ÞEGAR... PFFF...
VILLIDÝRIÐ ER AÐ
ÞREYTAST... RAAAAA...
SÍÐUSTU ÁTÖK DÝRSINS ERU
MERKI UM UPPGJÖF
OG AÐ
LOKUM...
MEÐ RÉTTRI
SVEIFLU
TAKIÐ UPP MÁLBAND OG MÆLIÐ
ÓFRESKJUNA KRAKKAORMAR
OF
STÓR BITI
KENNARI...
ÞÚ ÆTTIR AÐ
LÁTA HANN
AFTUR ÚT Í
HVAÐ
ÞYKIST
ÞÚ
VERA..
Við erum við símann,reiðubúin að hjálpa öllumsem hringja inn,“ segirElfa Dögg. S. Leifsdóttir,
verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða
krossins 1717. „Fólk hringir til okk-
ar ef því líður illa, vill leita upplýs-
inga um hvert hægt er að leita til að
fá aðstoð við ýmsum vandamálum,
eða vantar sálrænan stuðning af ein-
hverju tagi. Fólk á öllum aldri – frá
10 til 90 – hringir í Hjálparsímann
1717, og oft er símtal til okkar fyrsta
skrefið sem fólk tekur til að leita sér
hjálpar. Oft er þetta fólk sem byrjað
er að átta sig á að eitthvað amar að,
s.s. þunglyndi eða geðraskanir, hjá
þeim sjálfum eða þeirra nánustu.“
Hjálparsími Rauða krossins varð
til við sameiningu Vinalínunnar og
Trúnaðarsíma unglinga. Auk þess að
veita almenna aðstoð við hverskyns
vandamálum gegnir Hjálparsíminn
1717 mikilvægu hlutverki í almanna-
varnakerfinu við upplýsingagjöf í
neyðartilvikum.
Hjálparsíminn 1717 er opinn allan
sólarhringinn, alla daga ársins, einn-
ig á jólum og áramótum. Þá er
ókeypis að hringja í 1717 úr öllum
símum, líka farsímum, þökk sé sam-
komulagi við íslensk símfyrirtæki.
Fullrar nafnleyndar og trúnaðar er
gætt, og birtast símtöl í Hjálparsím-
ann ekki á símreikningum.
Hlusta og leiðbeina
Að jafnaði tekur Hjálparsíminn
1717 við 50 símtölum á sólarhring:
„Greinilegt er að mikil þörf er fyrir
þessa þjónustu, og verðum við vör
við að innhringingum fer fjölgandi,
hægt en örugglega,“ segir Elfa
Dögg. „Mörgum þykir óþægilegt að
tala um sín innstu mál við ættingja
eða vini, og þykir gott að geta rætt í
trúnaði við hlutlausa manneskju á
hinum enda línunnar. Yfir hátíðirnar
er sérstaklega algengt að fólk hringi
vegna einmanaleika. Þetta er fjöl-
skylduhátíð, margt í umhverfinu
sem minnir fólk á einsemdina, og
margir sem finna sig í erfiðri að-
stöðu þessa daga. Marga vantar
jafnvel einfaldlega félagsskap, og
eru sjálfboðaliðar Hjálparsímans
1717 allir af vilja gerðir að veita fólki
þá aðstoð sem það þarf á að halda.
Sjálfboðaliðar Hjálparsímans hafa
gengist undir vandaða þjálfun, en
við gefum okkur þó ekki út fyrir að
vera fagaðilar, heldur vísum fólki
áfram ef þörf er á sérfræðiaðstoð.
Eins getur Hjálparsíminn 1717 sent
alvarlegri símtöl áfram, bæði til 112
og til geðsviðs Landspítalans.“
Hjálparsíminn 1717 býr að ein-
valaliði sjálfboðaliða sem með fórn-
fúsu starfi sínu gera kleift að starf-
rækja þjónustuna: „Fimm launaðir
starfsmenn eru við verkefnið, en
starfsemin byggist á hátt í áttatíu
sjálfboðaliðum sem gefa tíma sinn,
allan ársins hring, og þykir mér allt-
af jafneinstakt hversu vel hefur
gengið að fá fólk til að standa vakt-
ina yfir hátíðirnar,“ segir Elfa Dögg.
„Það er þó alltaf pláss fyrir fleira
gott fólk og tökum við vel á móti
þeim sem vilja leggja Hjálp-
arsímanum til krafta sína.“
Að endingu vill Elfa Dögg hvetja
alla þá sem þurfa á aðstoð að halda
til þess að hika ekki við að hringja í
Hjálparsímann 1717.
Aðstoð | Ókeypis aðstoð í fullum trúnaði hjá
Hjálparsíma Rauða krossins 1717
Til staðar allan
sólarhringinn
Elfa Dögg S.
Leifsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1975. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti
1995 og B.A.
prófi í sálfræði
frá Háskóla Ís-
lands 2000. Elfa Dögg starfaði sem
rekstrarstjóri hjá Samtökum aug-
lýsenda um nokkurt skeið, en hóf
störf hjá Reykjavíkurdeild Rauða
krossins árið 2004, fyrst sem um-
sjónarmaður sjálfboðaliða Hjálp-
arsímans 1717, og sem verkefn-
isstjóri frá 2006. Elfa Dögg er gift
Ómari Erni Jónssyni viðskiptafræð-
ingi og eiga þau tvö börn.
SJÁLFBOÐALIÐAR í jólasveina-
búningum sjást hér halda á blöðr-
um á góðgerðarsamkomu í Seúl í
Suður-Kóreu fyrr í vikunni. Sam-
koman var haldin til að safna fé til
handa fjölskyldum fyrirbura. Á
næstu dögum munu um 160 sjálf-
boðaliðar í gervi jólasveina heim-
sækja fjölskyldur fyrirbura og færa
þeim jólagjafir.
Reuters
Sannur jólaandi í Seúl