Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðlæg átt, víða
10–15 m/s, rign-
ing eða súld sunn-
an- og vest-
anlands. Minnkandi úrkoma
og vindur síðdegis. » 8
Heitast Kaldast
10°C 3°C
ICAO, Alþjóðaflugmálastofnunin, hefur
samþykkt aðgerðaáætlun Flugmála-
stjórnar Íslands sem gripið verður til ef
skortur verður á íslenskum flugumferðar-
stjórum 1. janúar nk.
Í tilkynningu frá Flugmálastjórn kemur
fram að viðbragðsáætlunin felur í sér
breytingu á skipulagi flugumferðar á ís-
lenska flugstjórnarsvæðinu sem muni að
mestu leyti fylgja föstum ferlum og flug-
hæðum. Fullt samstarf sé við flugstjórn-
armiðstöðvarnar í Prestwick í Skotlandi
og Stavanger í Noregi um framkvæmd
þessarar áætlunar og sama gildir um
Flugstjórnarfélag Kanada. Þá muni flæð-
isstjórn flugumferðar í Brussel gegna
veigamiklu hlutverki.
Boðaður hefur verið fundur með flug-
rekstraraðilum til að kynna viðbragðs-
áætlunina.
ICAO samþykkir
viðbragðsáætlun
JÓLAFAGNAÐUR Hjálpræðishersins og
Verndar verður haldinn í dag, aðfanga-
dag, í Herkastalanum, Kirkjustræti 2 í
Reykjavík.
Fagnaðurinn hefst að venju með borð-
haldi klukkan 18.
Þeir sem ekki hafa tök á að dveljast hjá
vinum og vandamönnum á aðfangadags-
kvöld eru hjartanlega velkomnir í jóla-
fagnaðinn.
Morgunblaðið/Eyþór
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðishersins
ÞÓTT kirkjan í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi sé bæði lágreist og lítil
stækkar hún öll, þegar inn er komið sakir þeirrar helgi sem hún býr
yfir. Kirkjubóndinn í Bjarnarhöfn, Hildibrandur Bjarnason, gerir bæn
sína áður en hann gengur út í eril dagsins. | 36
Morgunblaðið /RAX
Heilög jól, gleðileg jól
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
TALSVERT eignatjón varð á
Grundarfirði í fyrrinótt vegna óveð-
urs en vindhraðinn þar náði allt að
50 metrum á sekúndu í mestu hvið-
unum. Hluti af húsvegg fiskmark-
aðarins fauk af í einni hviðunni en
við það losnuðu plötur sem ollu
tjóni á bifreiðum og húsum í bæn-
um. Þannig varð stórtjón á veit-
ingahúsi þegar þrjár rúður brotn-
uðu.
Ólafur B. Ólafsson björgunar-
sveitarmaður sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að um þrjátíu
manns frá björgunarsveitum og
lögreglu hefðu verið við björgunar-
störf. Þá hefðu smiðir verið kallaðir
til aðstoðar við að festa niður þak-
plötur.
„Ég held að ég hafi aldrei nokk-
urn tíma orðið var við þvílíkan
hvell. Hviðurnar stóðu lengi yfir og
vindhraðinn féll ekki mikið niður
þess á milli,“ sagði Ólafur.
Vatnselgur á Ísafirði
Mikill vatnselgur myndaðist á
götum Ísafjarðar í gærmorgun með
þeim afleiðingum að hálfófært var
um bæinn. Einhverjar skemmdir
urðu á húsum þegar vatn flæddi inn
í kjallara. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu bætti í vind um sexleyt-
ið og urðu nokkrar skemmdir á hús-
fyrrinótt á norðanverðu Snæfells-
nesi, á Vestfjörðum og á Ströndum.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands lægði mikið í gær-
morgun en meðalvindhraðinn á
Vestfjörðum var þó enn um 30
metrar á sekúndu.
og á Saurbæjarlínu í Dalabyggð.
Samkvæmt upplýsingum frá Rarik
má búast við truflunum þar til veð-
ur lægir og sérstaklega í Grundar-
firði vegna mikillar veðurhæðar í
Kolgrafarfirði.
Veðurofsinn var hvað mestur í
um og bifreiðum, auk þess sem þak-
plötur fuku.
Rafmagnstruflanir voru í fyrri-
nótt og gærmorgun á Snæfellsnesi
þar sem stofnlínur hafa farið út
vegna mikils vindálags. Einnig hafa
verið truflanir á dreifilínum í Kjós
Talsvert eignatjón í
ofsaveðri á Grundarfirði
Veðurofsinn var hvað mestur á norðanverðu Snæfellsnesi og á Vestfjörðum
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Sjórinn gengur á land Mikill vatnselgur var á Ísafirði í gærmorgun en þar var háflóð klukkan 10.
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út
miðvikudaginn 27. desember. Fast-
eignablað Morgunblaðsins verður ekki
gefið út um jólin en næsta blað kemur
út þriðjudaginn 2. janúar. Um jólin
verður fréttaþjónusta á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Á aðfangadag verður áskriftardeild-
in opin frá kl. 6.00–12.00, en deildin
verður lokuð á jóladag og annan í jól-
um.
Auglýsingadeildin verður opnuð 27.
desember.
Skiptiborð Morgunblaðsins verður
lokað á aðfangadag og jóladag en opið
annan í jólum frá kl. 13.00–20.00.
Fréttavakt á
mbl.is yfir jólin