Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Orra Pál Ormarsson og Ragnhildi Sverrisdóttur
orri@mbl.is rsv@mbl.is
J
esúbarnið fæddist á jólunum og þess
vegna höldum við hátíð,“ kenna for-
eldrar börnum sínum frá unga aldri.
En Jesúbarnið er auðvitað ekki eina
barnið sem fæðst hefur á þessum árs-
tíma. Þau sem deila fæðingardegi með Jesú velta
því sum fyrir sér hvort ekki væri notalegt að
eiga sinn eigin afmælisdag. Einhvern „venjuleg-
an“ dag, svo hægt sé að halda afmælisveislu fyrir
vini og ættingja, með afmælisköku, kertum og
blöðrum. En auðvitað eru þau vön þessari sér-
stöku dagsetningu afmælisins frá unga aldri og
kippa sér því ekki jafnmikið upp við þetta og
margir aðrir, sem eiga afmæli á öðrum tíma árs.
Líklega er það jafnmisjafnt og afmælisbörnin
eru mörg hvernig þau og fjölskyldur þeirra
halda upp á jólaafmælin. Sum hafa þá sögu að
segja að aldrei hafi verið vikið frá afmæl-
iskaffinu á aðfangadag. Heima hjá öðrum var
reglan sú að blása til afmælisfagnaðar réttri
viku fyrir afmælið, eða á öðrum fastákveðnum
degi.
Sumir leysa þetta á óhefðbundinn hátt. Hrafn
Didduson var snemma ósáttur við afmælisdag-
inn sinn, 24. desember, enda voru vinir hans ekki
á þeim buxunum að koma í barnaafmæli þá. En
lausnin er aldrei langt undan, ef hugmynda-
flugið er í lagi. Mamma Hrafns, Didda skáld-
kona, tók fyrst til þess bragðs að skipta við hann
á afmælisdögum, svo hann gæti boðið til veislu
29. nóvember, daginn sem hún fæddist. En til að
drengurinn héldi upp á afmælið í réttum mánuði
ákváðu þau mæðginin síðar að hann myndi fá
lánaðan afmælisdag móðursystur sinnar, 8. des-
ember. Og þar við situr.
Í tilefni jólanna hafði Morgunblaðið uppi á
nokkrum „jólabörnum“ og bað þau að rifja upp
minningar frá afmælisdeginum, 24. desember,
fyrr og nú.
Afmæli á aðfangadag
Aðfangadagur
Ryan Seacrest (1974), kynnir í
American Idol.
Ricky Martin (1971), söngvari.
Mary Higgins Clarke (1929),
rithöfundur.
Ava Gardner (1922), leikkona.
Howard Hughes (1905),
auðkýfingur.
Jóladagur
Dido (1971), söngkona.
Annie Lennox (1954),
söngkona.
Sissy Spacek (1949), leikkona.
Anwar Sadat (1918), fyrrver-
andi forseti Egyptalands.
Humphrey Bogart (1899),
leikari.
Sir Isaac Newton (1642),
vísindamaður.
Annie Lennox
Humphrey Bogart
Howard Hughes
Fræg
jólabörn
Ava Gardner
Sindri Snær Jónsson er ljúfurog tillitssamur drengur ogsýndi þess strax merki ímóðurkviði. Hann átti að
fæðast 12. desember 1998 en var svo
almennilegur að fresta komu sinni í
heiminn enda var faðir hans í
strembinni próftörn um þetta leyti.
„Þetta var mjög spennandi og ég
fékk meira að segja undanþágu til að
hafa gsm-síma á borðinu hjá mér í
prófunum ef ske kynni að kallið
kæmi,“ segir faðirinn, Jón Agnar
Ólason, en Sindri fæddist loksins
klukkan tólf mínútur yfir níu að
morgni aðfangadags. Hann er því
átta ára í dag.
Sindri segir ákaflega skemmtilegt
að eiga afmæli á jólunum enda gefur
það honum tækifæri til að taka upp
gjafir frá morgni til kvölds. „Ég ríf
upp pakkann frá mömmu og pabba
strax og ég vakna,“ segir Sindri og
ljómar. Augljóslega ekki amalegar
gjafir þar á ferð.
Verður ekki þreyttur
Sindri er vanur að bjóða skóla-
félögum sínum til afmælisveislu
skömmu fyrir jól en hefð er fyrir því
að fjölskyldan líti inn til hans í hádeg-
inu á aðfangadag. Þá er þess vand-
lega gætt að Sindri fái tvo pakka frá
hverjum gesti, annan í afmælisgjöf
og hinn í jólagjöf. Annan opnar hann
strax en hinn fer undir jólatréð.
Til að létta álaginu af unga mann-
inum setja foreldrar hans stundum
einhverja pakka til hliðar og leyfa
honum að opna þá nokkrum dögum
síðar. Það hefur gefið góða raun.
Sindri vill ekki viðurkenna að hann
hafi nokkurn tíma orðið þreyttur við
að taka upp pakkana en staðfestir að
stundum geymi hann einn eða tvo.
Sindri á einn bróður, Sævar Leó,
sem er fjögurra ára. Eins og gefur að
skilja fær hann jafnan að opna tvo
eða þrjá pakka fyrirfram á að-
fangadag. Von er á þriðja systkininu
á næstunni en Sindri segir að það
muni ekki fæðast á jólunum. „Það á
að fæðast í mars. Kannski verður það
á páskunum?“
Já, hver veit?
Þegar Sindri er spurður hvort
hann óski þess stundum að eiga af-
mæli á öðrum degi, t.d. um hásumar,
rekur hann upp stór augu. „Og þurfa
að bíða alla þessa daga fram að jól-
um!“
Sindri hlakkar ekki bara til að fá
gjafir í dag, jólamaturinn vekur líka
eftirvæntingu. „Við borðum alltaf
hamborgarhrygg,“ segir hann skýrt
og greinilega og ekkert ber á a-inu
sem svo margir bæta ranglega inn í
þann ágæta rétt. „Það er uppáhalds-
maturinn minn.“
Síðan greinir hann blaðamanni frá
því að hann hafi áform um að vaka til
miðnættis. Þó það nú væri!
Í ljós kemur að Sindri er vel að sér
um jólaævintýrið en hleypir brúnum
þegar hann er spurður hvort hann
hafi fæðst í fjárhúsi eins og jesú-
barnið. „Nei, ég fæddist á sjúkrahúsi
í Reykjavík.“
Ekki stendur á Sindra að rekja
söguna. „María og Jósep urðu að fara
í fjárhús af því að það var ekki pláss á
gistiheimilinu. Svo varð Heródes al-
veg rosalega pirraður þegar Jesús
fæddist því hann vissi að þá yrði hann
ekki lengur kóngur.“
Amen!
Piparkökur hjá forsetanum
Sindri býr á Álftanesi og sótti
Bessastaðakirkju heim fyrir jólin í
fyrra ásamt skólafélögum sínum til
að fræðast m.a. um fæðingu frels-
arans. Þegar presturinn spurði börn-
in hvort þau vissu hver hefði fæðst á
jólunum stóð ekki á svarinu. Öll risu
börnin úr sætum og mæltu einum
rómi: „Sindri!“
Sindri upplýsir blaðamann sam-
viskusamlega um að forseti Íslands
eigi heima á Bessastöðum og á dög-
unum lágu leiðir þeirra félaga saman.
„Ég fór með bekknum mínum í Álfta-
nesskóla að hitta forsetann. Hann gaf
okkur piparkökur.“
Sindri veltir vöngum um stund
þegar hann er spurður hvort forset-
inn hafi bakað piparkökurnar sjálfur.
„Nei, ég held hann hafi keypt þær.“
Forsetafrúin var að heiman þegar
Sindra bar að garði á Bessastöðum.
„Ég sá Dorrit hvergi. Það var alla
vega engin kona sem talaði út-
lensku.“
Þegar hann er spurður hvort Dor-
rit tali ekki orðið prýðilega íslensku
samsinnir hann því en er eigi að síður
sannfærður um að hún hafi ekki verið
heima, a.m.k. þykir honum ósenni-
legt að hún hafi verið inni í eldhúsi að
baka.
Heródes
varð alveg
rosalega
pirraður
Morgunblaðið/Kristinn
Tillitssamur Sindri Snær Jónsson frestaði komu sinni í heiminn um tólf
daga svo pabbi hans gæti klárað prófin.
Hrafn Didduson fæddist á aðfangadag fyrirsjö árum. „Krummi er ekkert öðruvísi enaðrir krakkar og trúir því að hann sé að-
almanneskjan í heiminum. Honum finnst því erf-
itt að eiga afmæli á degi, þegar vonlaust er að
halda afmælisveislu. Við ákváðum að skipta á af-
mælisdegi, hann fékk að eiga minn, sem er 29.
nóvember. En núna hefur hann að vísu fengið af-
mælisdag systur minnar lánaðan, 8. desember, og
er sáttur við það. Hann hélt upp á afmælið sitt á
þeim degi núna og gat boðið félögum úr skól-
anum heim. Núna fyrst ríkir því friður um þetta,“
segir Didda skáldkona um óvenjulegt fyr-
irkomulag afmælishalds á þeim bænum.
Krummi fæddist heima og Úlfur stóri bróðir
hans, sem nú er 16 ára, tók á móti honum. Á eins
árs afmælisdeginum var honum gefið nafn og þá
komu vinir fjölskyldunnar í stutta heimsókn fyrir
hádegi á aðfangadag. „Það var fallegt og gott.
Gestirnir voru þeir sem voru viðstaddir fæðingu
hans ári fyrr.“
Sjálfur gerði Krummi auðvitað enga at-
hugasemd við þetta fyrirkomulag á eins árs af-
mælinu. Núna vill hann hins vegar fá sína afmæl-
isveislu. „Við höfum náð sáttum og ég reikna með
að hann fái afmælisdag systur minnar lánaðan
hér eftir,“ segir Didda. „Ég gerði mér enga grein
fyrir því fyrirfram að það gæti verið svona flókið
að eiga afmæli á jólunum, en mín reynsla er sú að
þeir sem fæddir eru á þessum tíma eru ákveðnar
og sterkar manneskjur.“Morgunblaðið/Kristinn
Afmælisskipti
Didda og sonur
hennar, Hrafn,
höfðu skipti á
afmælisdögum,
en svo fékk
hann afmælis-
dag frænku
sinnar lánaðan.
Fékk 8. desember
lánaðan