Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 56
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Starfsfólk Eignamiðlunar
56 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Óskum viðskiptavinum
okkar nær og fjær og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Á DÖGUNUM voru kynntar
niðurstöður fyrsta hluta hag-
kvæmniathuganna vegna hugs-
anlegrar byggingar 250 þúsund
tonna álvers við
Bakka á Húsavík.
Niðurstöðurnar voru
afar góðar, þótt ekki
sé dýpra í árina tekið,
fyrir Húsvíkinga, Ey-
firðinga og lands-
menn alla. Í stuttu
máli sagt er staðan sú
að engar tæknilegar
hindranir standa í
vegi fyrir því að álver
geti risið við Bakka.
Þessu ber að fagna.
Það merkilegasta
við hugsanlegt álver
er að það verður knúið raforku
frá háhitasvæðum í nágrenni
Húsavíkur, en nýting jarðvarma á
þennan hátt er í senn afskaplega
náttúruvæn og nýlunda, ekki bara
hér á Íslandi heldur eru engin
dæmi þess að þetta stór og orku-
frek stóriðja nýti jarðvarma á
þennan hátt. Það var því sérlega
ánægjulegt að rannsóknir við
Þeistareyki leiddu í ljós að há-
hitasvæðið þar er tvöfalt stærra
en áður var talið, eða um 45 fer-
kílómetrar að stærð. Góðu frétt-
irnar voru fleiri, því botnhiti nýrr-
ar rannsóknarholu á
Þeistareykjum er 360 gráður sem
er næst mesti hiti sem mælst hef-
ur í íslenskri borholu. Orkan er
því næg. Hola sem boruð var
vegna verkefnisins í Bjarnarflagi í
Mývatnssveit reyndist einnig
mjög öflug og rafmagnsfram-
leiðslugeta hennar er 12MW en
meðal orkugeta íslenskra bor-
holna er um 5 MW. Það er því
ljóst að gríðarleg
verðmæti eru fólgin í
jarðvarmanum og
nauðsynlegt fyrir
okkur að nýta þessa
auðlind á jákvæðan
og uppbyggjandi hátt
fyrir atvinnulíf og
byggðarþróun á
Norðurlandi.
Í almennri umræðu
um stórframkvæmdir
á Íslandi hefur mikil
verið rætt um þenslu-
áhrif fram-
kvæmdanna og slæm
tímabundin áhrif á efnahagslífið.
Þessi rök gilda engan veginn við
uppbyggingu álversins við Bakka.
Uppbygging álvers sem knúið er
jarðorku lýtur öðrum lögmálum
en við eigum að venjast, t.d. frá
núverandi framkvæmdum á Aust-
urlandi. Álver sem nýtir jarð-
varma er byggt upp á lengri tíma
og í áföngum í samræmi við
orkuna sem afgreidd er til fyr-
irtækisins. Uppbygging virkj-
ananna tekur einnig lengri tíma
en gerð vatnsaflsvirkjana. Þessar
framkvæmdir kollvarpa því ekki
hagkerfinu á einni nóttu og kalla
ekki á innflutning erlends vinnu-
afls í stórum stíl, eins og fram-
kvæmdirnar við Kárahnjúka og í
Reyðarfirði. En það allra besta
við þessar framkvæmdir er að
þær eru að fullu afturkræfar.
Álver við Bakka tryggir stöð-
ugleika og verður sú kjölfesta í
atvinnumálum og byggðarþróun
sem nauðsynleg er fyrir íbúa og
byggð á Norðausturlandi. Áhrif
álversins munu hafa góð og já-
kvæð áhrif á allt Norðurland og
áhrifa þess mun reyndar gæta á
landinu öllu. Álverið sjálft kallar á
um 300 störf, samkvæmt skýrslu
sem unnin var um samfélagsleg
áhrif hugsanlegs álvers á Bakka.
Afleidd störf versins verða hins
vegar mun fleiri og á mjög stóru
svæði. Í skýrslunni kemur fram
að í heildina skapar álverið að
minnsta kosti 1000 störf á lands-
vísu, þar af um 450 til 500 í Þing-
eyjarsýslu. Á Akureyri og Eyja-
fjarðarsvæðinu yrðu þau um 200.
Þessi nýju atvinnutækifæri
sporna gegn fólksflótta og kalla á
fleiri störf og bætta þjónustu.
Af fyrri störfum mínum er ég
viss um verulegan ávinning fyrir
okkur Eyfirðinga verði af fram-
kvæmdum við Bakka. Ljóst er að
aukin eftirspurn verður eftir
margvíslegri sérhæfðri þjónustu
verkfræðinga, tæknifræðinga,
tölvunarfræðinga og fleiri sér-
fræðinga. Almenn verslun eykst,
hótel og gististaðir munu njóta
góðs af hugsanlegum álvers-
framkvæmdum. Álverið mun flýta
fyrir samgöngubótum á svæðinu
enda kallar það á jarðgöng gegn-
um Vaðlaheiðina, en þau stytta
ferðatímann milli Akureyrar og
Húsavíkur um 20 mínútur. Göngin
gera Eyjafjörð og Húsavík að
einu atvinnu- og þjónustusvæði og
íbúar munu njóta fjölbreyttara
mannlífs í sterkari byggð-
arkjörnum bæði í Eyjafirði og í
nágrenni Húsavíkur. Fram-
kvæmdirnar styrkja Norðurland
til mikilla muna og gera það að
áhugaverðum valkosti í sam-
anburði við höfuðborgarsvæðið.
Við þurfum á skynsamlegri nýt-
ingu jarðorkunnar að halda, við
verðum að nýta auðlindina til
heilla fyrir íbúana og þá er álver
á Bakka við Húsavík besti kost-
urinn.
Íbúar í Eyjafirði þurfa
álver á Bakka
Jón Björnsson fjallar um at-
vinnumál og fyrirhugað álver á
Bakka við Húsavík
» Álver við Bakkatryggir stöðugleika
og verður sú kjölfesta í
atvinnumálum og
byggðarþróun sem
nauðsynleg er fyrir íbúa
og byggð á Norðaust-
urlandi.
Jón Björnsson
Höfundur er framkvæmdastjóri og
fyrrverandi sparisjóðsstjóri á Ak-
ureyri.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Eldri borgarar Hafnarfirði
Miðvikudaginn 20 des. var síðasti
spiladagur fyrir jól. Þá var spilað á
13 borðum 12 umferðir.
Meðalskorin var 264.
Úrslit urðu þessi í N/S
Ólafur Ingvarss.– Sigutberg Elentínuss. 354
Oddur Jónsson – Oddur Halldórsson 322
Rafn Kristjánsson – Oliver Kristóferss. 295
Sæmundur Björnss. – Albert Þorsteinss. 283
A/V
Sverrir Jónsson – Skarphéðinn Lýðsson 323
Ingimundur Jónsson – Helgi Einarsson 305
Guðm. Bjarnason – Jón Ól. Bjarnason 291
Kristján Þorláksson – Jón Sævaldsson 285
Næst verður spilað 9. janúar 2007.
FEBH sendir öllum sem hafa spil-
að með okkur, sem og öðrum lands-
mönnum, okkar bestu jóla- og nýár-
skveðjur og þökkum
samstarfið á árinu 2006.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Fréttir
í tölvupósti