Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 68
68 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning STARFSFÓLK BORGARLEIKHÚSSINS ÓSKAR YKKUR GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI Gleðilega hátíð! LA óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar. Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning! Svartur köttur – forsala hafin Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin! www.leikfelag.is 4 600 200 Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus, lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evripídes Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. Stóra sviðið kl. 20:00 Þjóðleikhúsið óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla!                                      ! "                  !    "  ! # $ %       &'#    ( ) !  ###     $    "!( *++ $,-- .#   # +/#-- ! )00" 1 '  !  ! /#   # ,-#-- !     & # ,#--- 1 2 ( ,  + 3 4   # 5#  # # ,- 1   6     %   &  % 37889: 398&"2 1 ;'9<= #"   12  4 >>>#  '   ( &  % )    &  % 389 "?2:289 ;9@A0 BC9&:A8 ";98D E 1 ,*      *-F     !  *+ +     &  ,-.  / 0 1     2 Hátíðarhljómar við áramót Flytjendur: Kristinn Sigmundsson óperusöngvari Ásgeir H. Steingrímsson trompet Eiríkur Örn Pálsson trompet Hörður Áskelsson orgel Á efnisskránni eru ma: bassaaríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni auk verka eftir Albinoni, Scarlatti o.fl. Miðasala í Hallgrímskirkju - sími 510 1000 Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 3.-31. des. 2006 Listvinafélag Hallgrímskirkju - 25. starfsár 31. desember 2006, gamlárskvöld kl. 17.00 Þ að er enga þreytu að sjá á Kim Larsen; kominn á sjötugsaldur er hann enn að gefa út plötur og enn að fá fína dóma eins og nýjasta skífa hans sannar. Gammel hankat heitir hún og kom út fyrir rétt rúmum mánuði. Á plöt- unni er hann samur við sig, hrærir saman ýmsum tónlistarstefnum, poppi, rokki og svo hefðbundnu larsensku glensi – sjötta plata hans á innan við sex árum, en alls eru þær komnar á þriðja tug skífurnar sem hann hefur sent frá sér í gegn- um tíðina. Fyrir stuttu var sýnd hér á landi heimildarmynd um dönsku rokksveitina Gasolin’ sem lagði upp laupana fyrir rúmum ald- arfjórðungi. Þó hún hafi á sinni tíð verið helsta rokksveit Danmerkur og hætt á hátindinum er hennar helst minnst fyrir það í dag að Kim Larsen var í henni. Upp frá því hef- ur hann verið í miklu uppáhaldi hjá löndum sínum, svo miklu dálæti reyndar að erfitt er fyrir aðra að skilja oft á tíðum. Aldönsk hljómsveit og einstök Framan af var Gasolin’ nokkuð hefðbundin rokksveit sem sótti inn- blástur vestur um haf, en eftir nokkra togstreitu innan sveit- arinnar náði Kim Larsen yfirhönd- inni og eftir það varð til aldönsk hljómsveit og einstök. Hann varð síðar þreyttur á félögum sínum og lagði sveitina niður til að hefja sólóferil, gerði meðal annars at- lögu að Bandaríkjamarkaði, en síð- ustu árin hefur hann starfað með hljómsveitum, gaf út fjórar plötur með Bellami og stofnaði síðan Kjukken 1995 og hefur unnið með henni upp frá því. Segja má að hann hafi haldið vinsældum sínum alla tíð og meðal annars selt á fjórðu milljón eintaka af plötum sem verður að teljast gott í ekki fjölmennara landi en Danmörk er. Sum laganna á Gammel Hankat hafa víst lifað með Larsen og Kjuk- ken-félögum í langan tíma, lög sem þeir grípa í þegar stund gefst milli stríða á tónleikaferðum, rútubíla- söngvar, en rata nú loks á plast, en önnur hefur hann spilað á tón- leikum, hugsanlega hér á landi líka. Heyra má í textum á skífunni að bókin sem Larsen gerði með Klaus Rifbjerg og kom út í haust, Så mange var ordene, hefur orðið honum tilefni pælinga um liðna tíð, enginn tregi en angurværð yfir því að árunum fækki. Migið utaní runna Titillagið er svo dæmigert fyrir lagasmíðar Kims Larsens – eitt sinn er hann var á leið heim eftir skrall í Óðinsvéum, staldraði hann við til að kasta af sér vatni utaní runna eins og hvert annað fress. Þar sem hann stóð og skvetti úr skinnsokknum varð honum litið til himins og þegar hann sá að það var fullt tungl vitraðist honum lagið í heilu lagi og hann hljóp heim með buxurnar á hælunum til að ná að koma því inn á band áður en það rynni af honum. Þó Kim Larsen sé mesta stjarna þeirra Dana er hann fyrst og fremst alþýðuhetja, heldur sig á jörðinni og er lítið gefinn fyrir ríki- dæmi og titlatog. Hann afþakkaði til að mynda heiðurslaun lista- manna sem honum voru boðin fyrir nokkrum árum og ekki vildi hann taka við riddarakrossi Danne- brogs, þó hann hafi sagt í viðtali varðandi það að hann gæti vel hugsað sér að fá sér smók með drottningunni, en ekki nennti hann að taka við orðuglingri. Hann er eins og kötturinn sem fer sínar eig- in leiðir, neitaði til að mynda að veita fríblöðunum dönsku viðtal vegna plötunnar nýju vegna þess að þau væru ekkert nema papp- írsmengun og til ama fyrir venju- legt fólk. Eins og hann syngur sjálfur á skífunni: „Jeg er en af de få, som der er mange af.“ Gamla fressið Enginn hefur selt fleiri plötur í Dan- mörku en Kim Larsen og ekkert lát á. Fyrir stuttu kom út sjötta plata hans á sex árum, Gammel Hankat. Fress Kim Larsen er hress þó hann sé skriðinn á sjötugsaldurinn. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Milljarðamæringurinn og at-hafnamaðurinn Donald Trump og Rosie O’Donnell, spjall- þáttastjórnandi og háðfugl, ausa nú svívirðingum hvort yfir annað vegna fegurðar- drottningarinnar Töru Conner. Conner er ungfrú Bandarík- in sem stóð til að svipta titli vegna kærulauss lifn- aðar en Trump veitti henni ann- að tækifæri. O’Donnell sagði í spjallþætti sínum að Trump teldi sig „áttavita sið- ferðis tvítugra Bandaríkja- manna“ þó svo hann hefði sjálfur yfirgefið tvær eiginkonur sínar og haldið framhjá þeim. Þá gerði O’Donnell einnig grín að hár- greiðslu Trumps með leikrænu lát- bragði. Trump er meðeigandi fyr- irtækis sem stendur á bak við fegurðarsamkeppnirnar Ungfrú Bandaríkin og Ungfrú bandarísk táningsstúlka. Trump svaraði fyrir sig i þættinum Entertainment To- night og sagðist líklega fara í mál við O’Donnell út af þessum um- mælum þar sem þau væru lygi. Hann svívirti O’Donnell svo í viðtali við sjónvarpsstöðina Fox News og sagðist ætla að hafa af henni pen- inga. „Rosie er að tala um áttavita sið- ferðisins en hvaða áttavita siðferðis hefur hún? Sjáið hana bara, sjáið andlitið á henni. Getið þið ímyndað ykkur vesalings kærustuna hennar að þurfa að kyssa hana á hverju kvöldi? Hún má bara eiga hana,“ sagði Trump. Hann lét ekki þar við sitja heldur sagði í viðtali við New York Daily News að O’Donnell yrði að vara sig á honum, hann gæti sent einn vina sinna til hennar og látið hann hirða kærustuna. Það ætti að vera auðvelt því O’Donnell væri „feitur sóði“ og „auvirðileg“. O’Donnell kann að svara fyrir sig því í næsta þætti The View, sem hún stýrir, sagði hún: „Sjáið hver er hérna,“ og benti á kærustu sína Kelly. „Ég þorði ekki að skilja Kelly eftir heima þar sem einhver með yfirgreiðslu gæti komið og stolið henni.“ Fólk folk@mbl.is Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.