Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 36

Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 36
dýrgripir 36 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ B jarnarhöfn í Helgafellssveit á Snæfellsnesi er landnáms- jörð Bjarnar austræna Ket- ilssonar. Hann nam land á milli Hraunsfjarðar og Stafár 886 og setti bú sitt í Bjarnarhöfn. Hann var bróð- ir Auðar djúpúðgu, Helga bjólu, sem nam land á Kjalarnesi, og Þórunnar hyrnu, eiginkonu Helga magra, sem nam Eyjafjörð. Björn lenti í voginum og nefndi land sitt Bjarnarhöfn og er uppsátur hans kallað Bjarnarnaust. Þar varð síðar verzlunarstaðurinn Kumbaravogur, sem fékk nafn af Kumbaralandi, þaðan sem Englend- ingarnir voru. Hans sér enn stað í friðuðum minjum. Auður hafði vet- ursetu í Bjarnarhöfn hjá bróður sín- um áður en hún fór innar og nam land í Dölum. Hún var kristin sem og systkini hennar; Helgi bjóla og Þór- unn hyrna, en Björn samdi sig ekki að þeim nýja sið. Hann mælti þó svo fyrir, að hann skyldi jarðsetja í flæð- armálinu, sem kristnir menn gerðu fyrir helgi hafsins, þegar ekki var hægt að komast í vígða mold. Kirkja hefur líklega verið í Bjarn- arhöfn frá kristnitöku, en með vissu frá því á 12. öld. Í kaþólskum sið var hún helguð heilögum Nikulási. Hún var útkirkja frá Helgafelli til 1878 að hún var lögð undir Stykkishólm, en er nú heimiliskirkja fólksins í Bjarn- arhöfn. Í sögu Stykkishólms 1845–1892 eftir Ásgeir Ásgeirsson segir, að heldra fólk hafi flest verið jarðsett í Bjarnarhöfn og réð þar mest um bágborið ástand kirkjugarðsins á Helgafelli. Oft gat brugðið til beggja vona með veður, þegar kistur voru fluttar sjóleiðina í Bjarnarhöfn að vetrarlagi, og þótt leiðin sé ekki löng eru til frásagnir af svaðilförum og þær slíkar að stundum varð að hætta við jarðarför, snúa skipinu við og sigla aftur til Stykkishólms. Gátu út- farir þá frestast um einhverja daga, þar til betur byrjaði í Bjarnarhöfn. Ásgeir Ásgeirsson rekur, að viða- mesta útför frá Stykkishólmi á þessu tímabili og um leið að líkum útför helzta fyrirmanns á Snæfellsnesi á 19ndu öld hafi verið jarðsetning Páls Melsteðs, amtmanns, 30. maí 1861. Hún hófst með athöfn í heimahúsi í Stykkishólmi og var kistan svo flutt sjóleiðina í Bjarnarhöfn, þar sem amtmaður var sunginn til moldar. Fimm prestar töluðu við útförina og einn þrisvar sinnum og ellefu sálmar voru sungnir. Af erfinu segir Ásgeir engar sagnir vera. Kirkjuna, sem nú er í Bjarnarhöfn, lét Þorleifur Þorleifsson reisa og var hún vígð 1857. Á mynd sem enski fræðimaðurinn og málarinn W.G. Collingwood teiknaði 1897 er fer- hyrndur turn upp úr mæni kirkj- unnar og hattur efst. Þessi turn er ekki lengur, en kirkju- og ferðaþjón- ustubændurnir í Bjarnarhöfn; Hrefna Garðarsdóttir og Hildibrand- ur Bjarnason, hafa lagt metnað í að gera kirkjunni sem bezt. Nú er hún svartbikuð með rauðu þaki og hvítum krossi yfir stafni og nýlega máluð innan sem hún var í fyrstu gerð. Kirkjan stendur í kirkjugarðinum miðjum, en um hann er hlaðinn grjót- veggur, sem fellur vel að umhverfinu. Fjarskyggn smáskammtalæknir Þorleifur Þorleifsson (1801–1877), sem lét smíða þessa kirkju, var smá- skammtalæknir og héraðslæknir. Hann keypti Bjarnarhöfn 1854 og bjó þar til æviloka. Margar sögur fara af farsæld hans sem læknis og einnig var hann aflasæll formaður, skytta skörp og góður bóndi, en fjar- skyggnin þótti mest um verð í fari hans. Við leiði Þorleifs í kirkjugarð- inum segir Hildibrandur mér sögur, þar á meðal þessa: Dóttir nágranna Þorleifs hafði siglt til Kaup- mannahafnar, en kom ekki aftur með tilsettri ferð og spurðist ekkert til hennar. Faðir hennar hafði af þessu þungar áhyggjur og leitaði liðsinnis hjá Þorleifi. Eftir nokkra stund kvað Þorleifur upp úr um það, að stúlkan væri við beztu heilsu á erlendri grund og á gangi þar í grasagarði. Lýsti hann svo klæðaburði hennar í smáatriðum. Þegar stúlkan kom heim um síðir spurði faðir hennar hana spjörunum úr með lýsingu Þor- leifs í huga og sagðist hún þá akkúrat þann daginn hafa keypt sér fötin, sem Þorleifur sá hana í, og fengið sér síðan göngutúr í nærliggjandi garði. Í Árbók Ferðafélags Íslands 1986 – Snæfellsnes norðan fjalla, sem Ein- ar Haukur Kristjánsson tók saman, segir, að fjarskyggni Þorleifs hafi oft komið honum að notum, þegar hann var kvaddur að sjúkrabeði. Sneri hann stundum við á miðri leið, þar sem sjúklingurinn væri dáinn og hann hefði því ekkert lengra að gera. Eitt sinn var hann á leið til konu í barnsnauð í Ólafsvík, þegar maður kom á móti honum og sagði óþarfa að hann færi lengra, því sjúklingurinn væri dáinn. Þorleifur sagði svo ekki vera, því hún myndi lifa sig; hraðaði sér á vettvang og tókst að lífga kon- una, sem náði heilsu og lifði Þorleif, eins og hann hafði sagt. Þorleifur í Bjarnarhöfn gat á sjó oftast sagt hvort fiskur væri undir eða ekki. Einu sinni höfðu þeir fengið nokkrar flyðrur á Höskuldseyj- armiðum og vildu halda heim, en Þorleifur horfði út fyrir borðstokkinn og sagði þrjár flyðrur eftir enn, þær lægju undir stórum steini og hann færi ekki fyrr en þær væru komnar um borð. Þeir drógu svo þrjár flyðr- ur til viðbótar og þá kvaðst Þorleifur fús til heimferðar, því ekki væri meira að hafa þarna. „Þorleifur er hér enn,“ segir Hildi- brandur. „Það hafa margir séð hann og lýst honum fyrir mér og hann læt- ur oft til sín heyra með hljóðum, þar sem sízt skyldi.“ Og sögur af Þorleifi eru sagðar enn. Hildibrandur rifjar upp að fyrir tveimur árum hafi komið til hans maður, sem hafði vitrast að Þorleifur hefði staðið á bak við björg- un manns, sem tók út af skipi á Breiðafirði, en maðurinn barst á móti vindinum og náðu félagar hans hon- um aftur um borð. Margir gripir og merkilegir Þór Magnússon, fyrrverandi þjóð- minjavörður, undirbýr nú að skrifa um muni í friðuðum kirkjum á Snæ- fellsnesi, þ.á m. í Bjarnarhöfn, í rit- verkið Kirkjur Íslands, sem Þjóð- minjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd, Fornleifavernd ríkisins, Biskupsstofa og Hið ís- lenska bókmenntafélag gefa út. Þór segir þá Bjarnarhafnarfeðga; Hildibrand og Bjarna, hafa hirt kirkjuna og passað vel. Kirkjan á marga og merkilega gripi, en í Þjóð- minjasafni eru tveir munir frá kirkj- unni; hökull frá 1790, með fanga- mörkum hjónanna Hallgríms læknis Jónssonar og Halldóru Skúladóttur, og gamalt altarisklæði. Matthías Þórðarson, þjóðminja- vörður, kom í Bjarnarhöfn 19. júlí 1911 og skoðaði kirkjuna og gripi hennar. Þá er kirkjan „mjög lítil og ljeleg“. Enn er hún lítil, en langt í frá að vera léleg lengur; vel gerð utan og nýmáluð að innan í sömu litum og fyrr. Um gripi kirkjunnar segir Matt- hías: „Altaristaflan er ágætt listaverk, olíumálverk á trje: Kristur í Em- maus (St. lucæ Ev. Cap:24 V:30) Traust eikarumgjörð. Altarisstjakar 2 úr tini eins, miklir um sig að neðan, skál við stjett; gam- allegir, sjerstök, laus kertaskál í efst; hæð 27 sm. Einn tinstjaki stakur að auki, heimilisstjaki með „rifluðum“ legg; hæð ca. 18 sem. Kaleikur og patina úr silfri; heyra ekki saman, virðast bæði gamalleg og íslensk. Hnúður og meðalkafli gyltur og með bungum að ofan og neðan, sívalur; h. 15,3 sm.,þverm. 8,8 sm. á skál, 10,2 á stj.: Pat. gylt að of- Lítið hús með stóra helgi Morgunblaðið/RAX Altarið Kirkjan á marga merka gripi. Kirkjubóndinn hjá altarinu; altaristaflan fyrir miðju, kringd altarisstjökum, kaleik, biblíu og oblátudós á patínu. Mestur helgidómur Hildibrandur Bjarnason segir marga hrífast af helgi Bjarnarhafnarkirkju og vitnar til kaþ- ólsks kardinála þar um; sá hafði komið í margan helgidóminn en þessi væri þeirra mestur.                                                                    Hún lætur ekki mikið yfir sér þar sem hún kúrir á bakkanum nið- urundan Bjarnarhafn- arfjalli. En þegar inn er komið breytist þetta litla guðshús í stóran helgidóm. Freysteinn Jóhannsson brá sér í Bjarnarhöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.